Dagur - 23.12.1992, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNAR-
SON, (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLIG. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR
(Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Hátíð fer að höndum
Senn fer að höndum fæð-
ingarhátíð frelsarans; stærsta
og gleðilegasta hátíð ársins.
Það skyggir þó óneitanlega á
gleðina hve víða er hart í ári
og hve víða erfiðleikar steðja
að. Óvenju margir íslending-
ar munu til dæmis ganga til
jólahátíðarinnar án atvinnu
og þar með án þeirrar örygg-
istilfinningar um framtíðina,
sem svo mörgum þykir sjálf-
sögð og öllum er nauðsynleg.
Vandinn sem að steðjar verð-
ur ekki leystur á einni nóttu
né heldur er hann þess eðlis
að einfaldar lausnir dugi.
Vandi atvinnuleysis er eng-
um óviðkomandi. Það ætti
heldur enginn að láta sér fátt
um finnast þótt vaxandi
fjöldi einstaklinga búi við
afar bág kjör í allsnægtasam-
félaginu og hafi vart til hnífs
og skeiðar. Megininntak
kristinnar trúar er samhjálp,
ást og kærleikur. Það er ein-
mitt í anda kristinnar trúar
að hjálpa náunganum og
styrkja þá og styðja sem eiga
um sárt að binda. Við þurfum
öll að leggjast á eitt við að
finna lausnir og deila byrðun-
um réttlátlega.
Heilög jól marka tímamót í
lífi kristinna manna um allan
heim, þótt þeir undirbúi
komu þeirra með mismunandi
hætti. Hér á landi er jóla-
undirbúningurinn jafnan
umfangsmikill hjá þorra
landsmanna og sumum kann
að finnast nóg um allt það til-
stand sem jólunum fylgir í
seinni tíð. Hins vegar er eng-
in ástæða til að amast við því,
svo fremi sem sjálfur boð-
skapur jólanna gleymist ekki
í öllu vafstrinu.
Boðskapur jólanna er friður
á jörð, byggður á batnandi
sambúð einstaklinga og
þjóða. Enginn hefur komið
þeim boðskap betur til skila
en frelsarinn sjálfur, Jesús
Kristur. Boðskapur hans er
enn í fullu gildi þótt þess sjái
lítil merki í heimsfréttunum.
Víða um heim geisa styrjaldir
og grimmd mannanna er oft
og tíðum ótrúleg og ólýsan-
leg. Vonandi kemst friður á
um um jólin og þótt hann
kunni einungis að vara um
stundarsakir, kynni stutt
friðarskeið að reynast upp-
hafið að öðru lengra.
í svartasta skammdeginu
bendir kristin kirkja okkur á
ljósið í myrkrinu, hið eilífa
ljós sem aldrei dofnar. Um
jólin gefst fjölskyldunni tæki-
færi til að vera saman í
nokkra daga og njóta þess
friðar sem jafnan fylgir hinni
miklu hátíð. í brjóstum allra
býr sama þörfin fyrir ástúð
og umhyggju og á helgum
jólum gefst betra tækifæri en
ella til að fullnægja þeirri
þörf.
Á morgun gengur jólahátíð-
in í garð. Þrátt fyrir aðsteðj-
andi erfiðleika megum við
ekki missa sjónar á því að
íslenskt þjóðfélag býr yfir
óteljandi möguleikum, ótal
tækifærum til nýrrar fram-
sóknar. Því skulum við fagna
jólunum líkt og börnin: af
einlægni og tærri gleði. Með
þeim orðum óskar Dagur les-
endum sínum og landsmönn-
um öllum gleðilegra jóla. BB.
„Ekki
Sálarrannsóknarfélagið á
Akureyri var stofnað 23. októ-
ber 1953. Fyrsti formaður var
Steindór Steindórsson fv.
skólamcistari Menntaskólans á
Alureyri. Fleiri mætir menn
veittu félaginu forstöðu í upp-
hafí vegar, svo sem Guðmund-
ur Jörundsson, skipstjóri og
útgerðarmaður, sem nú er
látinn, og Jón Sigurgeirsson,
fv. skólastjóri Iðnskólans á
Akureyri. Félagar Sálarrann-
sóknarfélags Akureyrar eru
um 900. Um þessar mundir er
starfssemin blómleg undir
stjórn formannsins Skúla
Lórenzsonar, slökkviliðs-
manns.
„Um tíma var starfsemi félags-
ins ekki burðug, en í stjórnartíð
Björns Halldórssonar fengum við
inni í Strandgötunni í bakhúsi við
Kristjánsbakaríið gamla. Sálar-
rannsóknarfélagið keypti húsið af
Akureyrarbæ og hér er nú
aðstaðan hin besta. Einnig höf-
um við herbergi í Amaro-húsinu
þar sem miðlar geta tekið á móti
fólki. Herbergið í Amaró-húsinu
leysir mikinn vanda, því oftast
eru tveir miðlar starfandi á veg-
um félagsins og i slíkum tilvikum
er húsnæðið við Strandgötuna
ekki nægilega rúmt. Skarphéðinn
heitinn Ásgeirsson lét okkur
aðstöðuna í té endurgjaldslaust
fyrir margt löngu. Að honum
látnum hafa erfingjarnir haft
sama hátt á, segir Skúli Lórenz-
son er undirritaður hitti hann að
máli fyrir nokkru til að forvitnast
um starfsemi Sálarrannsóknar-
félagsins og ekki þá síður um
sakar að leita nýrra vídda“
segir Skúli Lórenzson, formaður Sálarrannsóknarfélags Akureyrar
manninn sjálfan, sem er í forsvari
þess stóra hóps sem starfar innan
vébanda félagsins.
Guðrún í Óskabúðinni
var minn trúnaðarvinur
„Markmið mitt frá upphafi hefur
verið að vinna af heilum huga að
málefnum Sálarrannsóknarfé-
lagsins, að efla starfið sem hægt
er. Öll erum við forvitin og vilj-
um vita hvað okkar bíður að
jarðvist lokinni. Pví er svo að
starf mitt hefur beinst að því að
fá til starfa hér á Akureyri trú-
verðuga og góða miðla, sem hef-
ur tekist með ágætum.
Sjálfur hef ég haft áhuga á and-
legum málefnum frá barnæsku.
Móðir mín var mjög andlega
sinnuð, þó svo að hún hafi sjald-
an rætt andleg málefni nema við
sína nánustu. Venslaður er ég
Andrési heitnum Andréssyni,
sem var klæðskeri á Laugarvegi 3
í Reykjavík. Þeir sem þekkja
sögu Andrésar vita hvernig hann
starfaði að andlegum málefnum
og hafði áhrif.
Sem unglingur bar ég mikið
traust til Guðrúnar Sigurðardótt-
ur. Ég var alinn upp á Eyrinni og
kom oft við í Óskabúðinni til
spjalls við Guðrúnu. Við ræddum
um lífið og tilveruna og ekki síð-
ur um líf að jarðvist lokinni. Mér
þótti gott að vita af Guðrúnu í
Óskabúðinni, hún var trúnaðar-
vinur minn sem gott var að leita
til með vandanál unglingsáranna.
Langt er um Iiðið frá því þetta
var. Guðrún er gengin á vit feðra
sinna og ég sem aðir lifum
ibreytta tíma.“
*
Islendingar leita stöðugt
þess óþekkta
„Firringin í þjóðfélaginu er mikil
og kallar raunar á nýjan lífsstíl.
Atvinnuleysi eykst ár frá ári.
Fjöldi fólks á í erfiðleikum með
að framfleyta sér og sínum. Þeg-
ar fólk sér ekki fram úr erfiðleik-
um svo mánuðum og árum skiptir
þá er voðinn vís. Því er svo að
fólk verður að taka á honum
stóra sínum til að finna farsæla
braut úr ógöngunum. Fólk verð-
ur að skoða sig sjálft hið innra. Æ
fleiri leita til Sálarrannsóknarfé-
lagsins og þeirra starfskrafta,
miðla, sem þar vinna. Margir eru
þeir sem leita til miðlanna þegar
ekkert bíður þeirra annað en vist
á geðdeild. Miðlarnir hafa oft á
tíðum náð undraverðum árangri
til hjálpar fólki í neyð. Fólk leitar
einnig til okkar með líkamlega
kvilla.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um læknamiðla. Á vegum Sálar-
rannsóknarfélagsins starfa og
hafa starfað hinir færustu lækna-
'miðlar. Reynsla áranna hefur
kennt okkur að starf þessa fólks
hefur leitt af .sér gott og margir
hafa hlotið varanlegan bata.
Orkustöðvar líkamans eru
ólíkar hjá fólki. Sumir eru tilfinn-
ingaverur og aðrir ekki. íslend-
ingar eru miklar tilfinningaverur
og leita stöðugt þess óþekkta.
Við hér, sem vinnum að líkams-
og sálarheill fólks á Akureyri
undir merkjum Sálarrannsóknar-
félagsins, höfum trú á því starfi
sem hér er unnið. Ég hef alla tíð
sagt, að ekki á að neyða fólk til
þátttöku þar sem andleg málefni
eru á döfinni. Hver og einn á
að taka ákvörðun þar um.
Mjög misjafnt er hverju fólk
vill trúa. Sem ungur maður átti
ég leið um Reykjadal og fór heim
að Einarsstöðum til að hitta
Einar Jónsson, miðil. íþrótta-
meiðsl höfðu hrjáð mig lengi.
Hjá Einari, í kvistherberginu,
varð ég fyrir þeirri reynslu sem
seint gleymist. Ég fékk bata og
hann varanlegan. Einar á Einars-
stöðum hafði mjög sterka og
góða stjórnendur að handan, sem
ég fékk að njóta síðar þegar ég
átti við bakmeiðsl að stríða.
Reynsla mín af störfum Einars
Jónssonar varð aflvaki þess, að
síðar hóf ég störf hjá Sálarrann-
sóknarfélagi Akureyrar. Þessi ár
sem ég hef starfað hjá Sálarrann-
sóknarfélaginu hafa verið lær-
dómsrík og uppbyggjandi. Ég hef
hlotnast þá vissu að líf er eftir
dauðann og ýmsir eru þeir fram-
liðnir sem vilja hjálpa okkur
jarðvistarbúum. Þar koma miðl-
arnir til sögunnar og ekki megum
við gleyma mætti bænarinnar.
Því er svo að ég hvet alla sem
hafa áhuga á-andlegum málefn-
um að hafa samband við þá sem
eru í forsvari fyrir Sálarrann-
sóknarfélag Akureyrar. Fólk leit-
ar gjarna langt yfir skammt þegar
sjúkdómar og sálarböl steðjar að.
Óft er Bakkus skammt undan
þegar illa stendur á. Starf innan
Sálarrannsóknarfélagsins gefur
nýja lífssýn. Ekki sakar að leita
nýrra vídda,“ segir Skúli Lórenz-
son. ój