Dagur - 23.12.1992, Side 11

Dagur - 23.12.1992, Side 11
Miðvikudagur 23. desember 1992 - DAGUR - 11 Mýjar bækur Depill fer á grímuball Depill fer á grímuball, nefnist nýjasta bókin í bókaflokknum um Depil, eftir Eric Hill. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Þetta er skemmtileg bók fyrir yngstu lesendurna og á hverri opnu leynist eitthvað spennandi bak við flettiflipa." Útgefandi er Skjaldborg. Leynigarðurinn Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá sér bókina „Leynigarður- inn“, eftir Francis Hodgson Burnett. Þessi heimskunna og hugljúfa saga hefur verið kvikmynduð oft- ar en einu sinni og minna má á að fyrir fáum árum voru sýndir í_ Sjónvarpinu framhaldsþættir byggðir á sögunni. I fyrra kom út bókin „Lítil prinsessa“ eftir sama höfund. Fylgsnið Út er komin bókin „Fylgsnið“, eftir Dean A. Koontz. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Dean A. Koontz er meðal mest lesnu spennusagnahöfunda vest- anhafs og hafa m.a. allar komist á metsölulista New York Times. „Fylgsnið" er nýjasta bók þessa höfundar og jafnframt sú fyrsta sem út kemur á íslandi." Útgefandi er Skjaldborg. Hestar og menn Bókin Hestar og menn 1992 - Árbók hestamanna, er komin út sjötta árið í röð. í bókinni segir frá ferð nokk- urra Vestfirðinga með 60 hross yfir Breiðafjörð með bílferjunni Baldri; rakin er saga íslandsmóta og sagt frá því 15. í röðinni, sem haldið var sl. sumar í Reykjavík. Einnig er fjallað um hrossarækt á Vesturlandi og fjórðungsmót, sem haldið var þar. Pá segir einnig frá stórsigrum íslendinga á Norðurlandamótinu í Seljord í Noregi. í bókinni er fjöldi mynda og teikninga af hestum og mönnum og margar þeirra í lit. Höfundar bókarinnar eru Guðmundur Jónsson og Þorgeir Guðlaugsson. Bókin kostar 3.480 krónur. Útgefandi er Skjaldborg. Draugahúsið í skóginum Draugahúsið í skóginum heitir ný myndabók um litla stúlku sem kann ekki að hræðast. Hún villist úti í skógi og nornir, draugar og skrímsli trúa ekki sínum eigin augum þegar hún lætur sér hvergi bregða við ólæti þeirra. Höfundur er Kicki Stridh, Eva Erikson myndskreytti og Árni Sig- urjónsson þýddi. Mál og menning gefur út bókina sem er 29 blaðsíður og kostar kr. 880. Betrihelmingurími Út er komin bókin „Betri helm- ingurinn“, en hún hefur að geyma viðtöl við eiginkonur fimm landskunnra manna í þjóð- félaginu. Þetta er fjórða bókin í þessum bókaflokki. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „í bókinni lýsa konurnar lífi sínu og starfi á fróðlegan og skemmti- legan hátt en umfram allt tala þær af hreinskilni og einlægni.“ í „Betri helmingnum“ að þessu sinni er rætt við þær Margréti Björgvinsdóttur, eiginkonu Har- aldar Bessasonar, rektors Háskólans á Akureyri; Hallveigu Thorlacíus, eiginkonu Ragnars Arnalds, alþingismanns og fyrr- verandi ráðherra; Ágústu Ágústsdóttur, eiginkonu séra Gunnars Björnssonar, prests að Holti í Önundarfirði; Dóru Erlu Þórhallsdóttur, eiginkonu Heim- is Steinssonar, útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, og Þórhöllu ísberg, eiginkonu Jóns ísbergs, sýslumanns á Blönduósi. Skrásetjarar eru Jón Daníels- son, Sólveig Jónsdóttir (tveir þættir), Önundur Björnsson og Kristján Björnsson. Útgefandi er Skjaldborg. Hreintogbeint Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur sent frá sér bókina Hreint og beint-Ljóð og ljóðlíki eftir Þorgeir Ibsen í Hafnarfirði. Á bókarkápu segir m.a.: „Nýr ljóðahöfundur ýtir hér úr vör - þótt seint sé - með ljóðabók, sem hann kallar Hreint og beint. Þar eru farn- ar troðnar slóðir í hefðbundnum stíl, en nýstárlegum þó um sumt. Höfundur á það til að víkja af al- faraleið í ljóðum sínum, einkum í þeim ljóðum sem hann nefnir ljóð- líki en ekki ljóð með því fororði að ljóðltki geti ekki kallast ljóð fremur en smjörlíki smjör. En ljóðlíki hans eru samt allrar athygli verð og virð- ast standa vel fyrir sínu.“ Sykurmolarnir Árni Matthíasson blaðamaður hefur skráð sögu Sykurmolanna fyrir bókaútgáfuna Örn og Örlyg. í bókinni rekur Árni söguna allt frá sokkabandsárum á hjara verald- ar til heimsfrægðar. í bókinni er fjöldi ljósmynda af hljómsveitinni, einstaklingunum, umboðsmönnum, áhorfendum, blaðamönnum, bíl- stjórum, þjóðhöfðingjum, pönkur- um, stúdíómönnum, kvikmynda- leikstjórum, rokkurum og smekk- leysingjum. Höfundur bókarinnar, Árni Matt- híasson blaðamaður við Morgun- blaðið, hefur fylgst með ferli Sykur- molanna innanlands sem utan. Fyrirtækið Iðunn hefur gefið út bókina Fyrir- tækið eftir John Grisham. f kynningu útgefanda segir m.a.: „Þeir gerðu honum tilboð sem hann hefði átt að hafna. Fyrirtækið býður honum gull og græna skóga, en illur grunur læðist brátt að. Hvað dylst á bak við tjöldin? Enginn lögfræðing- ur hefur nokkru sinni hætt störfum hjá fyrirtækinu - en fimm hafa látist af slysförum... Þegar alríkislögregl- an setur honum kosti rennur upp fyrir honum að hann er flæktur í víðtækt og óhugnanlegt samsæri þar sem fáum er að treysta.“ Ólafur Grétar Kristjánsson og Nanna Rögnvaldardóttir þýddu. Jólagetraun Matvörudeildar KEA: Bjartmar hlaut vöruúttektina Bjartmar Sigurjónsson, Víði- lundi 12g á Akureyri, hlaut vöru- úttkekt fyrir kr. 10.000 í verðlaun í jólagetraun Matvörudeildar KEA. Getraunin var birt í jóla- blaði Matvörudeildar og var í því fólgin að svara rétt fjórum lauf- léttum spurningum. Svörin við spurningunum voru þessi: 1.) 1995 kr., 2.) KEA Sunnuhlíð, 3.) KEA Byggðavegi, 4.) 895 kr. Bjartmar hafði öll svörin rétt og hafði heppnina með sér er dregið var úr innsend- um lausnum en gífurlegur fjöldi svarseðla barst. Sálnarusk Sr. Svavar A. Jónsson Refsing Kains Kára dreymdi einkennilegan draum nóttina fyrir afmælisdaginn sinn. Afmælisgestirnir mættu allir stundvíslega til veislunnar. Þeir höfðu með sér margar gjafir og stórar. Þá gerðist nokkuð undarlegt. Þeir gáfu hver öðrum gjafirnar, héldu upp á afmælið saman, glöddust yfir gjöfunum og skemmtu sér. Enginn lét sér annt um afmælisbarnið. Að nokkrum tíma liðnum fóru gestirnir heim til sín, glaðir og sælir. Afmælisbarnið sat eftir með sárt ennið, í miðri hrúgu af gjafapappír og skraut- borðum. Damaris Reichenbach Myndina gerði Lilja Hauksdóttir, nemandi á síðasta ári I málunardeild Myndlistaskólans á Akureyri. Myndin er unnin undir þeim hughrifum sem sálnarusk sr. Svavars kallaði fram. í einni bóka sinna rifjar rithöfundurinn Elie Wiesel upp gamla gyðinglega sögn: Hvernig var Kain refsað fyrir að hafa myrt Abel? Jú, hann var látinn gleyma hinu raunverulega inntaki hvíldardagsins. Stefið, sem leikið er í sögunni hér að ofan, heyrist oft á þessum tíma ársins. Jólahald nútím- ans gefur oft berlega til kynna að þar hafa umbúðirnar borið innihaldið ofurliði. Ég er samt hissa á því þegar fólk veður hissa á því hvernig landinn heldur jól. Hvernig getur jóla- hald í þjóðfélagi eins og okkar orðið öðruvísi en það er? Er nokkuð tilefni til að ætla að það geti orðið annað en það er? Hver eru þau gildi, sem mest eru metin í verki í þjóðfélaginu? Hverjir eru raunverulegir mælikvarðar fólks? Hvers vegna ættu þeir endilega að breytast á þessum örstutta tíma heilagra jóla? Og kannski gerist ekki annað um jólin en það að einkenni samfélagsins koma vel í ljós? Skefjalaus neysla, hraði, streita og fyrirgangur. Við ömumst gjarnan við þessum fyrirbærum, að minnsta kosti svona rétt yfir blájólin, en sá söng- ur hljóðnar um leið og þau eru Iiðin og heyrist varla endranær. Rétt eins og fólk grípi aðeins kaupæði á jólun- um, og aðeins þá beri það ekki skynbragð á raunveruleg gildi. Það er í sjálfu sér ekkert rangt við að gefa gjafir og hafa það gott. Ég er enginn meinlætis- maður. En hvernig er hægt að ætlast til þess að maður upplifi helgi heilagra jóla, ef manni er ekkert heilagt? Og hvernig á að vera unnt að skynja sanna helgi jólanna, ef maður er alla aðra daga að sækjast eftir vindi og hégóma? Hvernig á maður að halda heilög, kristileg jól, ef maður hefur gleymt raunverulegu inntaki hvíldardagsins, allra helgra daga og hátíða, eins og Kain? Það hefur verið mikið spurt í þessum pistli en við höfum öll gott af því að nota þessa daga til þess að spyrja okkur sjálf út úr, vera svolítið ágeng við okkur sjálf og ærleg. Við höfum öll gott af því að hlusta á okkur sjálf og hlusta eftir þeim, sem kemur á jólunum. Þannig jól óska ég þér og þínum. „Yerið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.“ (Lúkas 2,11)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.