Dagur - 23.12.1992, Page 13

Dagur - 23.12.1992, Page 13
Miðvikudagur 23. desember 1992 - DAGUR - 13 Kynning á jóladagskránni Jóladagskrá Sjónvarpsins og Stöðvar 2: í mörg hom að líta fyrir sjónvarpsáhorfendur Sjónvarpsstöðvarnar leggja að vanda mikið upp úr dagskránni yfír jólin og oft er það svo að áhorfendur komast ekki yfír að horfa á allt efni sem áhugavert getur talist og safnast þá gjarn- an mikið efni fyrir á mynd- böndum. Gott er að grípa tii þessara myndbanda þegar dagskránni fer að hraka á ný. En hér skulum við líta á nokkra dagskrárliði sem búast má við að veki athygli sjón- varpsáhorfenda um jólin. Fimmtudagur 24. desember - aðfangadagur Dagskráin á aðfangadag verður með nokkuð hefðbundnu sniði og efni fyrir yngstu kynslóðina áberandi á báðum stöðvum. í Sjónvarpinu hefst dagskráin kl. 12.40 með táknmálsfréttum og síðasta þætti jóladagatalsins og þar með lýkur hrakningarsögu séra Jóns. Fréttir verða kl. 13 og síðan barnaefni frá 13.20-16.40. í dagskránni á aðfangadags- kvöld má t.d. nefna þátt sem nefnist Jólavaka 1992 og hefst kl. 21.30. Leikararnir Herdís Þor- valdsdóttir og Róbert Arnfinns- son lesa ljóð og annað efni tengt jólunum og Blásarakvintett Reykjavíkur leikur nokkur verk. Umsjón með þættinum hefur Sveinn Einarsson. Á Stöð 2 verður nær samfellt barnaefni frá kl. 9 um morguninn og til kl. 16.10. Stuttum fréttum verður skotið inn í dagskrána kl. 13.30 og kl. 16.10 kemur Eyfirska sjónvarpsfélagið til skjalanna og sendir út jólahugvekju sr. Birgis Snæbjörnssonar. Sjónvarpið, aðfangadagur kl. 21.30: Jólavaka 1992. Blásarakvintett Reykja- víkur leikur nokkur verk og Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson lesa Ijóð og annað efni tengt jólunum. Stöð 2, jóladagur kl. 19.55: Jólatónleikar BarnaheiIIa. Upptaka frá tónleik- um í Hallgrímskirkju þar sem Kristján Jóhannsson söng með Sinfóníuhljóm- sveit íslands og Módettukór Hallgrímskirkju. Sjónvarpið, annar í jólum kl. 18.25: Seppi. Ný, íslensk kvikmynd fyrir börn. Handritið skrifuðu Guðmundur Þórarinsson og Björn Ragnarsson. Leik- stjóri er Ásthildur Kjartansdóttir. Föstudagur 25. desember - jóladagur Mikið af góðu efni er í boði á báðum stöðvum á jóladag. Meðal dagskráratriða í Sjónvarpinu má nefna leikritið Anton og Kleópatra eftir Shakespeare (kl. 13), Á hæstri hátíð, jólatónleika með Fílaharmóníukórnum og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (kl. 19) og fyrsta þáttinn í sænskum sjónvarps- myndaflokki sem gerður er eftir skáldsögu Selmu Lagerlöf (Föðurást). Þættirnir nefnast Keisarinn af Portúgal. Jan og Kattrina eru fátæk hjón í sveit. Þau eru orðin rígfullorðin þegar dóttirin Klarafina fæðist og líf þeirra öðl- ast þar með nýjan tilgang. Þegar hagur þeirra þrengist enn fer Klarafina til Stokkhólms að vinna til þess að geta bjargað for- éldrum sínum úr klípunni. Hún er lengi í burtu og faðir hennar saknar hennar svo mikið að hann leitar huggunar í dagdraumum og í gervi keisarans af Portúgal bíð- ur hann á bryggjunni eftir henni. Loks þegar hún kemur er hann svo djúpt sokkinn að hann gerir ekki greinarmun á draumi og veruleika. Dagskrá Sjónvarpsins lýkur með óskarsverðlaunamyndinni Paradísarbíóið (Cinema Paradiso). Á Stöð 2 birtast mörg stór- menni á skjánum og þar fer fremstur í flokki Kristján Jóhannsson. Sýnd verður upp- taka frá jólatónleikum Barna- heilla í Hallgrímskirkju (kl. 19.55) þar sem Kristján söng með Sinfóníuhljómsveit íslands og Módettukór Hallgrímskirkju. Aðrir liðir eru m.a.: Mjallhvít (talsett kvikmynd), Hnotubrjót- urinn (ballett), Jólatöfrar (kvikmynd), Kiri Te Kanawa (þáttur um þessa heimsþekktu söngkonu), Stórkostleg stúlka (kvikmynd), Uppvakningar (kvikmynd) og Peningaliturinn (kvikmynd). Laugardagur 26. desember - annar í jólum Ekki er síður margt í boði á öðr- um degi jóla. Þá hefst nýjung hjá Stöð 2, annar í jólum kl. 14.40: Gilda. Gömul og góð kvikmynd með kyn- bombunni Ritu Hawyorth þegar hún var á hátindi frægðar sinnar. Sjónvarpið, jóladagur kl. 21.20: Keisarinn af Portúgal. Fyrsti þáttur í sænskri sjónvarpsþáttaröð sem gerð var eftir skáldsögu nóbelsverðlauna- höfundarins Selmu Lagerlöf frá 1914. Stöð 2, aðfangadagur kl. 10.55: Litli tröllaprinsinn er skemmtilegt ævin- týri með íslensku tali um lítinn tröllaprins sem lendir í spennandi ævintýrum. Sjónvarpinu, Morgunsjónvarp barnanna kl. 9. í þessum fyrsta þætti verður sýnt íslenskt efni, m.a. úr Stundinni okkar á liðnum árum og erlent efni með íslensku tali. Eftir hádegi er boðið upp á Svanavatnið, hinn víðfræga ballett, í uppfærslu Kirov- og Bolshojballettsins í Þjóðleikhús- inu í október sl. Kl. 18.25 er á dagskránni ný, íslensk kvikmynd fyrir börn og heitir hún Seppi. Myndin fjallar um lítinn flækingshvolp sem býr með mömmu sinni undir gömlum bát við Reykjavíkurhöfn. Mamma hans er vön að leita að æti handa þeim á hverjum degi en svo gerist það dag einn að hún skilar sér ekki til baka. Seppi litli verður hræddur og fer að leita að henni og lendir í ótal ævintýrum. Um kvöldið verður Keisarinn af Portúgal á dagskrá og kvik- myndin Óvinir - ástarsaga svo fátt eitt sé nefnt. Barnasjónvarp Stöðvar 2 hefst að vanda kl. 9. Af öðru efni má nefna Ævintýri Munchausens, geggjaða kvikmynd (kl. 12.30), kvikmyndina Gilda með kyn- bombunni Ritu Hayworth (kl. 14.40), Jól í Vín með José Carreras, Díönu Ross og Placido Domingo (kl. 19.45) og um kvöldið verður Imbakassinn á dagskrá svo og kvikmyndirnar Hafmeyjar, Sekur eða saklaus og Arthur 2 - á skallanum. Sunnudagur 27. desember Lítum að lokum á nokkra dag- skrárliði á sunnudaginn (þriðja í jólum). Sjónvarpið verður með Morgunsjónvarp barnanna og kl. 13 verður Jólaóratoría Bachs á dagskrá. Eftir að tónlistarunn- endur hafa hlýtt á þetta stórvirki fá íþróttaðdáendur eitthvað fyrir sinn snúð cn kl. 15.50 verður bein útsending frá landsleik íslendinga og Frakka í hand- knattleik og kl. 17.20 verður sýndur þáttur um Ólympíumót fatlaðra í Barcelona. Um kvöldið má sérstaklega nefna leikna heimildamynd um síðustu daga Jónasar Hallgríms- sonar, Tíminn vill ei tengja sig við mig. Jónas fótbrotnar í stiganum heima hjá sér í Kaup- mannahöfn og er fluttur á Friðriksspítala. Á hann sækja ljóðbrot og myndir að heiman. Áuk þess er fléttað inn í þáttinn minningabrotum Konráðs Gísla- sonar og fundum Fjölnismanna á Hviids vinstue. í hlutverki Jónas- ar er Jóhann Sigurðarson. Á Stöð 2 verður dagskráin að mestu með hefðbundnu sunnu- dagssniði. Af frávikum má nefna óperuna Kovanschina eftir Musorgsky sem er á dagskrá kl. 12.15. Um kvöldið verður sýnd stórmyndin Purpuraliturinn með Whoppy Goldberg í leikstjórn Stevens Spielbergs. SS Sjónvarpið, sunnudagur 27. desember kl. 20.25: Tíminn vill ei tengja sig við mig. Leikin heimildamynd um síðustu daga Jónasar Hallgrímssonar. Jóhann Sigurðarson er í hlutverki skáldsins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.