Dagur - 23.12.1992, Síða 26

Dagur - 23.12.1992, Síða 26
26 - DAGUR - Miðvikudagur 23. desember 1992 Minning Sl. laugardag var sæmdarkonan Rósa frá Ásgerðarstöðum lögð til hinstu hvílu, að Bakka í Öxna- dal. Það er á kveðjustundum sem þessari að hugurinn reikar til baka. Reikar heim í gamla dalinn og æskuminningarnar standa ljóslifandi fyrir sjónum. Því fækkar nú óðum sæmdarfólkinu sem setti svip á dalinn á þeim árum. Af augljósum ástæðum voru það systkinin frá Ásgerðar- stöðum ásamt systkinunum á Myrká sem festust okkur krökk- unum á Bústöðum mest í minni. Af systkinahópnum frá Ásgerð- arstöðum eru nú aðeins systurnar Sigríður og Ebba eftir. Rósa var þeirra systkina næstelst, fædd 19.10. 1899 og því 93ja ára þegar hún lést. Bræðurnir þrír, Halldór, Búi og Skúli, eru allir horfnir og sömuleiðis systurnar Steinunn og Gríma. Foreldrar þeirra voru Helga Þorsteinsdóttir frá Engimýri og Guðmundur Bjarnason frá Hraunshöfða í Öxnadal, sem bjuggu myndarbúi á Ásgerðarstöðum. Ég minnist með söknuði allra þeirra ánægju- legu stunda sem við áttum saman, einkum fjölskyldurnar á Bústöðum, Búðarnesi og Staðar- bakka. Þau eru hreint ógleyman- leg öll jóla- og afmælisboðin. Þá var mikið spilað og sungið og leikið sér. Eðlilega voru mest samskipti milli þessara fjölskyldna þar sem þær bjuggu allar í dalnum, auk Halldórs sem alla tíð bjó á Ásgerðarstöðum. Þó var ekki síður gott samband við hinar systurnar og fjölskyldur þeirra þó eðlilega væru samverustundirnar færri, þrjár bjuggu á Akureyri og sú fjórða, Rósa, sem lengst af bjó í Reykjavík. Rósa var hjúkrunar- kona og sinnti því starfi af mikilli alúð, allan sinn starfsferil. Ekk- ert starf hefði hentað henni Gítartónleikar í Akureyrarkirkju Einar Kristján Einarsson gítar- leikari heldur tónleika í Akureyr- arkirkju sunnudaginn 27. des- ember kl. 17.00. Þar flytur hann m.a. verk eftir spænsku endur- reisnartónskáldin Milan og Nar- vaez, svítu eftir Johann Sebastian Bach, Mozart tilbrigði eftir Fern- ando Sor og æfingar eftir Heitor Villa-Lobos, en Einar Kristján hefur nú nýverið flutt þessa efnis- skrá á höfuðborgarsvæðinu við ágætar undirtektir. Einar Kristján Einarsson er fæddur á Akureyri og stundaði gítarnám við tónskóla Sigur- sveins og í Manchester á Eng- landi. Hann hefur komið fram við margvísleg tækifæri hérlendis og lék með Kammersveit Akureyrar á síðasta ári. Aðgangseyrir er kr. 1000 og verða miðar seldir við inngang- inn. betur. Það var hennar eðli að hjálpa öðrum. Rósa hélt alla tíð mikilli tryggð við dalinn, þrátt fyrir áratuga dvöl í Reykjavík. Hún naut þess að heimsækja æskustöðvarnar. Ég minnist þess enn hversu mikil tilhlökkun var ríkjandi heima þegar von var á Rósu í heimsókn frá Reykjavík. Henni fylgdi mikill hlátur og mikil gleði. Rósa var mikill náttúruunnandi. Hún hafði mikla ánægju af allri ræktun, hafði það m.a. til siðs að gróður- setja plöntur í ungmennafélags- reitinn þegar hún kom í heim- sókn. Heimili Rósu í Reykjavík stóð okkur, frændfólkinu úr Hörgárdalnum, ávallt opið og þar var jafnan vel tekið á móti okkur. Óft þáðum við mat og gistingu hjá Rósu og það var ætíð látið í té með mikilli gleði. Rósa hafði allt fram á síðustu stundu mikla ánægju af að fylgjast með landsmálunum og hafði sínar ákveðnu pólitísku skoðanir sem hún rökstuddi af mikilli leikni. Ég undraðist oft hversu vel hún var inní málum þrátt fyrir háan aldur. Hún var alla tíð mjög trúuð kona og rækti trú sína vel. Gerði þó aldrei tilraun til að þröngva þessari trú sinni upp á aðra. Þannig var Rósa. Alltaf tilbúin til að gefa, hafði sínar ákveðnu og fastmótuðu skoðanir, sem hún fylgdi eftir af rökvísi, en þröngv- aði aldrei sínum skoðunum upp á aðra. Já, það var margt í fari Rósu sem gerir hana ógleymanlega; ég hygg þó að hinn mikli Iéttleiki, hlátur og gleði, sem jafnan fylgdi Rósu, verði mér minnisstæður. Rósa frá Ásgerðarstöðum skip- aði sérstakan heiðurssess í hug- um okkar systkinanna á Bústöð- um. Ekkert lýsir betur hug Rósu til æskustöðvanna en sú ákvörðun hennar að vilja hvíla að Bakka í Öxnadal, við hlið foreldra sinna, að lífsgöngunni lokinni. Þrátt fyr- ir áratuga dvöl í Reykjavík, var tryggð hennar við dalinn órofin. Eg minnist þessarar öldnu heiðurskonu með söknuði. Megi hún hvíla í friði heima á æsku- slóðunum, sem hún mat svo mikils. Guðmundur Búason. Um leið og við óskum viðskiptavhmm okkar gleðilegrajóla ogárs ogfriðar miimum við á opmmartíma yffr hátíðimar 23. desember, Porláksmessa, opið 24. desember, aðfangadagur, lokað 25. desember, jóladagur, lokað 26. desember, armar íjólum, lokað 27. desember, lokað 28.-30. desember, opið 31. desember, lokað l.janúar, einkasamkvæmi Borðapantanir í síma 27100 Fólk í gjafahugleiðingmn! Mtrnið gjafakort FIÐLARAN S Skemmtileg gjöf við öll tækifæri Verðlaun veitt í jólagetraun - Umferðarráðs og lögreglunnar Á aðfangadag mun lögreglan á Akureyri nú sem endranær heimsækja heppna krakka sem unnu til verðlauna í jólagetraun Verkamannafélagið Fram á Sauðárkróki: Mótmælir álögum á láglaunafólk Á almennum fundi í Verka- mannafélaginu Fram fyrir helgina, var samþykkt að segja upp gildandi kjarasamningum og að þeir falli úr gildi 1. febrúar nk. Þá var samþykkt ályktun þar sem lýst er þung- um áhyggjum yfír versnandi afkomu láglaunafólks og alvar- legu atvinnuástandi sem nú hefur skapast og líkur á að fari versnandi. Fundurinn mótmælir álögum á iþetta fólk í formi skattahækkana, aukinni kostnaðarhlutdeild í heil- brigðisþjónustu og verðlags- hækkunum sem dynja yfir í skjóli gengisfellingar. Fundurinn harm- ■ ar að nú virðist sem rofnað hafi það víðtæka samstarf sem leiddi af sér stöðugleika og verðbólgu- laust þjóðfélag undanfarna mán- uði. Éinnig er harmað að ríkis- stjórnin skyldi ekki ganga til sam- starfs við verkalýðsfélögin um þær efnahagsráðstafanir sem kynntar voru í síðasta mánuði. Þá mótmælir fundurinn áform- um um hækkun vaxta í húsnæðis- kerfinu og lækkun vaxtabóta og bendir á að í þeim tekjusam- drætti sem stafar af minnkandi vinnu er stórhætta á að greiðslu- þoli þeirra sem skuldugir eru vegna húsnæðis, verði ofboðið. Umferðarráðs og lögreglunnar. Lögregluþjónarnir munu færa hinum heppnu glaðning sem gef- inn er af öllum tryggingafélögum á Akureyri og Bókvali. Umferðargetraunin var fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára og var þátttaka mjög góð og þá sér- staklega hjá 11 og 12 ára Fyrir skömmu fór fram þriðja 15 mínútna stigamótið hjá Skákfélagi Akureyrar á þess- um vetri og voru úrslitin ekki sérlega óvænt. Rúnar Sigurpálsson sigraði og fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Annar varð Jón Björgvinsson með 6 vinninga einnig en færri stig. í þriðja sæti er síðan nýtt Skákmenn ætla ekki bara að liggja á meltunni yfír jólin því tvö mót eru fyrirhuguð á veg- um Skákfélags Akureyrar, jólahraðskákmót og hverfa- keppnin árlega. Jólahraðskákmótið verður sunnudaginn 27. desember kl. 14 krökkum. Veittar eru alls 75 viðurkenningar og dró Erlingur Pálmason, yfirlögregluþjónn, vinningshafana úr öllum innsend- um lausnum. Lögreglan og Umferðarráð vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra þeirra sem þátt tóku í getrauninni og einnig þeirra sem styrktu þetta framtak. nafn, Guðbjörn Elvarsson. Hann fékk 4*/6 vinning eins og Þór Val- týsson sem varð að sætta sig við fjórða sætið. Eftir þessi þrjú stigamót eru tveir skákmenn langefstir að stigum. Jón Björgvinsson er með 24 stig og Rúnar Sigurpálsson 17, en aðrir hafa mun færri stig. SS og þá er tilvalið að rífa sig upp úr jólabókunum og grípa í tafl. Miðvikudaginn 30. desember verður hin árlega hverfakeppni á dagskrá kl. 19.30 og leiða þar fimm sveitir úr bæjarhlutum Akureyrar saman hesta sína. SS Skák Stigamót Skákfélagsins: Rúnar og Jón í toppbaráttunni Skákfélag Akureyrar: J ólahraðskákmót og hverfakeppni

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.