Dagur - 30.01.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 30.01.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 30. janúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Erlendir aðilar hafa sýnt áhuga á kaupum á dýpkunarprömmum sem áður voru í eigu Dýpkunarfélagsins. Framkvæmdasjóður: Erlendir aðilar sýna dvpkunarprömmunum áhuga Sigurgeir Jónsson hjá Frain- kvæmdasjóði íslands staðfestir að erlendir aðilar hafi sýnt áhuga á kaupum á dýpkunar- skipi, dráttarbáti og dýpkunar- prömmum sem Framkvæmda- sjóður keypti á nauðungarupp- boði í desember sl. en voru áður í eigu Dýpkunarfélagsins á Siglufirði. Eins og fram kom í Degi sl. fimmtudag hefur Dýpkunarfélag- ið hf. á Siglufirði verið úrskurðað gjaldþrota. Skuldir félagsins voru eftir því sem næst verður komist á þriðja hundrað milljónir króna, langt umfram eignir, enda var bróðurpartur eigna félagsins seldur á nauðungaruppboði 17. desember sl. Framkvæmdasjóður keypti Reyni, Björninn, Loka I og Loka II fyrir rúmar 30 milljónir króna. Sigurgeir Jónsson segir • að erlendir aðilar hafi sýnt áhuga á kaupum á þessum eignum, en vill ekki greina frá því hverjir það eru. En eftir því sem næst verður komist er um að ræða norska fyrirtækið Selmar AS. Fyrirtækið íslenskur fisk- útflutningur hf. keypti fimmta „skip“ Dýpkunarfélagsins, Álf, á sama nauðungaruppboði í des- ember. óþh Kvenfélag Húsavíkur: Laufabrauð til London Kvenfélagi Húsavíkur barst fyrirspurn frá Kjötiðju Kaup- félags Þingeyinga á dögunum, um hvort kvenfélagskonur lumuðu á laufabrauðskökum sem þær væru fáanlegar til að selja til London. Nokkrar kvenfélagskonur brugðu snar- lega við eitt kvöldið í vikunni og gerðu 200 laufabrauðskök- ur sem tróna munu á borðum Islendingafélagsins í London ásamt Húsavíkurhangikjötinu á árlegu þorrablóti félagsins. Kvenfélagið hefur í fjölda ára unnið að laufabrauðsgerð og -sölu til fjáröflunar fyrir jólin, en ekki er vitað til að það hafi flutt út slíka framleiðslu áður. Svala Hermannsdóttir, for- maður, sagði að íslendingar í London fengju ekta laufabrauð á þorrablótið, með uppbrettum laufum. Það væri frekar leiðin- legt að sjá laufabrauð selt sem ekki væri búið að fullklára, það ætti að halda þeim gamla sið að fletta upp laufunum áður en kökurnar eru steiktar. IM Umsókn hreppa í Suður-Þingeyjarsýslu til Atvinnuleysistryggingasjóðs: Hugmyndir um ýmis raunhæf verkefin Ein af þeim þrem umsóknum sem borist hafa Atvinnuleysis- tryggingasjóði um framlög til atvinnuverkefna er sameigin- leg umsókn hreppa í Suður- Þingeyjarsýslu. Verkalýðsfélag Húsavíkur hafði frumkvæðið að þessu máli, en atvinnuleysisskráning og greiðsla atvinnuleysisbóta fer Bingó í Lóni Karlakór Akureyrar/Geysir held- ur bingó í félagsheimili kórsins, Lóni við Hrísalund, nk. sunnu- dag og hefst það kl. þrjú. Spilað verður um marga góða vinninga. í hléi mun kórinn syngja nokkur lÖg. Fréttatilkynning fram á skrifstofu félagsins. Ágúst Óskarsson, starfsmaður Verka- lýðsfélagsins, segir að töluvert atvinnuleysi sé í sýslunni og því hafi umsókn verið send til Atvinnuleysistryggingasjóðs um fjármagn til raunhæfra atvinnu- verkefna. Ágúst segir mjög mis- munandi eftir sveitarfélögum, í hverju þessi verkefni séu fólgin, en menn horfi nokkuð til gróð- ursetningar og landgræðslu. í Skútustaðahreppi, en þar eru 29 á atvinnuleysisskrá, hafi menn einnig hugmyndir um veita atvinnulausu fólki vinnu við undirbúning að framleiðslu minjagripa. Húsvíkingar hafa einnig sent Atvinnuleysistryggingasj óði um- sókn, en þar í bæ eru nú um 80 manns á atvinnuleysisskrá. óþh Vinna í Mum gangi að stofnun félags um sorpeyðingarstöð í Suður-Þingeyj arsýslu: Hugsanlegt að sameiginleg sorpeyðing heflist á árinu Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps og formaður starfshóps um sorpeyðingarstöð í Suður- Þingeyjarsýslu, segir vel hugs- anlegt að á þessu ári verði haf- in sorpeyðing á einum stað fyr- ir alla hreppa í sýslunni. Til að byrja með verði sorp væntan- lega brennt í sorpbrennsiustöð Húsvíkinga, en síðar verði fundin önnur lausn. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn leggi fram drög að stofnun félags um sorpeyðingarstöð í apríl nk. Starfshópur um sorpeyðingar- stöð í Suður-Þingeyjarsýslu, sem í eiga sæti auk Sigurðar Rúnars Pálmi Porsteinsson, bæjartækni- fræðingur á Húsavík og Skarp- héðinn Sigurðsson, oddviti Bárð- dælahrepps, skilaði áfanga- skýrslu í ágúst í fyrra og hún var rædd á fundi Héraðsnefndar Suð- ur- Þingeyinga. Á þeim fundi var starfshópnum falið að undirbúa drög að stofnun félags um sorp- eyðingarstöð og þau mun hann leggja fram í apríl nk. „Markmiðið er að safna saman sorpi í allri Þingeyjarsýslu og farga því á einum stað. Það er augljóst að því fylgir töluverður kostnaður fyrir dreifbýlissveitar- félögin og af þeim sökum sjáum við fram á að við munum nýta okkur þá heimild í lögum að leggja á sorphirðugjöld," sagði Sigurður Rúnar. Hann sagði að um tvo kosti væri að velja; annaðhvort að urða sorpið eða brenna það. „Ef okkur tekst að hefja sameigin- lega sorpeyðingu í byrjun sumars er ljóst að til að byrja með mun- um við gera samning við brennslustöðina á Húsavík,“ sagði Sigurður Rúnar. Hann sagði að í áliti starfshópsins, sem verður skilað í apríl, muni nær örugglega verða lagt til að brenna sorp í fyrstu á Húsavík „og gera síðan úttekt á því með rannsókn hvort sé hagkvæmara fjárhags- lega í framtíðinni að brenna sorpið eða urða það og taka síð- an afstöðu til þess samanburðar. En að mínu mati ættu menn að horfa til þess í framtíðinni að sett verði upp ein allsherjar brennslu- stöð fyrir Eyjafjarðarsvæðið og Suður-Þingeyjarsýslu,“ sagði Sigurður Rúnar Ragnarsson. óþh Blönduós: Fasteignaskattar lækka - hjá elli- og örorkulífeyrisþegum Á fundi bæjarstjórnar Blöndu- óss 20. jan. var samþykkt að lækka fasteignaskatta elli- og örorkulífeyrisþega og annarra með skertar tekjur. Þetta er gert með því að hækka há- marksniðurfellingu um 5% frá fyrra ári. „Það var ákveðið að hafa sömu regluviðmiðun. Það var bara breytt með tilvísan til þess í fyrsta lagi að Tryggingastofnun hækkaði bætur á árinu um 1.7% og bæjarstjórnin ákvað 3.3% til viðbótar. Þannig að hækkun á niðurfellingum er 5% frá fyrra ári og hækkun í tekjuviðmiðun er þá líka 5%“, sagði Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á Blönduósi. Þetta þýðir að hámarksniðurfelling hækkar úr 20.000 kr. í 21.000 krónur. „Þessi niðurfelling kem- ur til framkvæmda strax við álagningu gagnvart þeim sem ein- göngu hafa tekjur frá Trygginga- stofnun ríkisins. Þeir sem hafa lífeyrissjóðstekjur og aðrar tekjur, en falla inn í þessi tekju- viðmiðunarmörk, geta sótt um lækkun og fengið þá eftir atvik- um 80% eða 50% lækkun m.v. 21 þúsund. Eftir því hvað þeir fara hátt í tekjum“, sagði Ófeigur. sþ Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins: Salan nam 12 miHjörðum á síðasta ári - samdráttur í sölu á flestum tegundum áfengis og tóbaks Á síðasta ári seldi Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins vörur, þ.e. áfengi og tóbak, fyrir ríf- lega 12 milljarða króna. Heild- arsalan nam 12,1 milljarði rúmum, þar af nam áfengissal- an 7,9 milljörðum og tóbaks- salan 4,2 milljörðum króna. Heildarsala áfengis nam 8.132.000 lítrum eða 927.906 alkóhóllítrum. Sambærilegar töl- ur fyrir árið 1991 eru 8.675.000 eða 996.895 alkóhóllítrar. Sam- dráttur milli ára nemur því 6,27% í lítrum en 6,92% í lítrum af hreinu alkóhóli. Sala á léttum vínum jókst held- ur milli áranna 1991 og 1992 en sala á bjór og sterkum vínum dróst saman. Bjórsalan minnkaði um 7,23% í lítrum og af einstök- um tegundum af sterkari vínum má nefna að sala á vodka dróst saman um 11,32%, á brennivíni um 10,31% og samdráttur í sölu á öðrum sterkum vínum er yfir- leitt 7-9%, nema hvað sala á rommi jókst um 7,64%. Heildarsala vindlinga 1992 nam 402.785.000. Sambærilegar tölur fyrir 1991 eru 416.939.000. Samdráttur í magni er því 3,39%. Heildarsalan er 9,93% minni en hún var 1984 þegar hún var hvað mest. Sala á vindlum dróst saman um 5,19% og á reyktóbaki um 3,26%. Sala á nef- og munntóbaki jókst hins vegar um 1,97%. Samkvæmt þessum tölum frá ÁTVR er neysla á áfengi og tóbaki að dragast saman hér á landi en hér er ekki tekið tillit til þess áfengis eða tóbaks sem áhafnir skipa og flugvéla flytja inn í landið, eða þess magns sem ferðamenn taka með sér frá útlöndum eða kaupa í fríhöfn. SS Skattstofumálið: Ástæður breytinganna aldeilis fráleitar Aformum Skattstjórans í Norðurlandsumdæmi eystra hefur verið harðlega mótmælt af Héraðsráði Norður-Þingey- inga. Aformin eru um að flytja úrvinnslu skattgagna fyrir Fyrsta hjálp: Bók um skyndihjálp Út er komin bókin Fyrsta hjálp. í bókinni eru upplýsingar um skyndihjálp auk annarra gagn- legra leiðbeininga. Bókin er prentuð í fullum lit. Ritstjórn var í hönum Sólveig- ar Þráinsdóttur sjúkraþjálfara en myndskreytingu annaðist Ragnar Lár. Allt efni bókarinnar er yfir- lesið af fagfólki. Söluaðili bókarinnar á Akur- eyri er knattspyrnudeild KA. Bókin er seld á kostnaðarverði kr. 400.-. Útgefandi er Samherj- ar í ReykjaVÍk. Fréttatilkynning Norður-Þingeyjarsýslu Húsavik til Akureyrar. frá í ályktun Héraðsráðs kemur fram að þau áform sem nú eru uppi gangi í þá átt að draga úr starfseminni á Húsavík, sem muni auðvelda eftirleikinn við að leggja starfsemina niður. Héraðs- ráðið telur þær ástæður sem fram eru færðar fyrir breytingunum aldeilis fráleitar, en þær eru að einn starfsmanna sé að flytja til Akureyrar. í ályktuninni eru einnig notuð öll sömu rök og fram komu í frétt í Degi sl. fimmtudag, er greint var frá ályktun sem Bæjarstjóm Húsa- víkur samþykkti um sama efni. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.