Dagur - 30.01.1993, Blaðsíða 21

Dagur - 30.01.1993, Blaðsíða 21
Laugardagur 30. janúar 1993 - DAGUR - 21 Bókhald - Skattframtöl. VSK-uppgjör - Launavinnsla. Rekstrar- og tölvuráðgjöf. Jónas Reynir Helgason, iðnrekstrarfræðingur. Símar 26313 og 41175. Akureyringar - Nærsveitamenn! Öll rafvirkjaþjónusta, til dæmis lagn-l ir og viðgerðir í íbúðarhús, útihús og fjölmargt annað. Allt efni til staðar. Ekkert verk er það lítið að því sé ekki sinnt. Greiðsluskilmálar. Gunnar Frímannsson, rafvirkjameistari, Akureyri. Sími 96-22015 í hádeginu og á kvöldin. Bílasími 985-30503. Bólstrun og viögerðir. Áklæði og leðurlíki í miklu úrvali. Greiðsluskilmálar. K.B. Bólstrun, Strandgötu 39, sími 21768. Klæði og geri við bóistruð húsgögn. Áklæði, leðurlíki og leðurlúx. Sérpöntunarþjónusta á Akureyri. Mikið úrval. Stuttur afgreiðslufrestur. Vísaraðgreiðslur í allt að 12 mánuði. Bólstrun Björns Sveinssonar, Geislagötu 1, Akureyri, sími 25322, fax 12475. Kenni á Nissan Sunny Sedan 4x4. Tímar eftir samkomulagi. Útvega öll náms- og prófgögn. Greiðslukjör við allra hæfi. Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari, sími 23837 og bíla- sími 985-33440. BORGARBÍÓ Salur A Laugardagur Kl. 9.00 Karlakórinn Hekla Kl. 11.00 Dýragrafreiturinn 2 Sunnudagur Kl. 3.00 Nemo litli (ísl. tal, kr. 500) Kl. 9.00 Karlakórinn Hekla Kl. 11.00 Dýragrafreiturinn 2 Mánudagur Kl. 9.00 Karlakórinn Hekla Þriðjudagur Kl. 9.00 Karlakórinn Hekla Salur B Laugardagur Kl. 9.00 í sérflokki Kl. 11.00 Krakkar í kuldanum Sunnudagur Kl. 3.00 Tommi og Jenni (ísl. tai, kr. 500) Kl. 9.00 í sérflokki Kl. 11.00 Krakkar í kuldanum Mánudagur Kl. 9.00 í sérflokki Þriðjudagur Kl. 9.00 í sérflokki Ath! Háspennutrillirinn Unlawful Entry með Kurt Russel verður sýndur í næstu viku BORGARBÍÓ S 23500 ÖKUKENNSLR Kenni á nýjan Galant 2000 GLSi. Útvega öll gögn sem með þarf. Bók lánuð. Greiðslukjör. JÓN 5. RRNRSON Sími 22935. Kenni allan daginn og á kvöldin. Hlýðninámskeið fyrir alla hunda. Hlýðni I fyrir byrjendur og Hlýðni II fyrir lengra komna. Hundaskóli Súsönnu, sími 96-33168. Þórarinn Þorbjarnarson, Þórunnar- stræti 132, Akureyri, veröur 70 ára mánudaginn 1. febrúar. Þórarinn verður á Kanaríeyjum á afmælisdaginn. Laufásprestakail. Kirkjuskóli laugardaginn janúar kl. 11.00 í Svalbaröskirkju og kl. 13.30 í Grenivíkurkirkju. Sóknarprestur. Möðruvallaprestakall: Guðsþjónusta verður í Glæsibæjar- kirkju nk. sunnud., 31. jan., kl. 14.00. Kór kirkjunnar syngur, organisti Birgir Helgason. Barnastund í lok messunnar. Guðsþjónusta í Skjaldarvík sama dag kl. 16.00. Sóknarprestur. Akureyrarprestnkall: Helgistund veröur á F.S.A. nk. sunnudag kl. 10. Sunnudagaskóli Akur- eyrarkirkju verður nk. sunnudag kl. 11. Skemmtilegt föndur verður í sunnudagaskólanum. Mætið vel. Fjölskyldumessa verður í Akureyr- arkirkju kl. 14 nk. sunnudag. Ung- menni aðstoða. Sérstaklega er vænst þátttöku fermingarbarna og fjöl- skyldna þeirra. Æskulýðsfundur verður í Safnaðar- heimilinu nk. sunnudag kl. 17. Biblíulestur verður í Safnaðar- heimilinu nk. mánudagskvöld kl. 20.30. Glerárkirkja: Laugard. Biblíulestur og bænastund verður kl. 13.00. Sunnud. Fjölskylduguösþjónusta verður kl. 11.00. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Messað verður kl. 14.00. Guðmund- ur Ómar Guðmundsson flytur hug- leiðingu og kynnir Gideonfélagið. Molasopi verður í kirkjunni að messu lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins er kl. 17.30. Sóknarprestur. Efst í huga Rórður Ingimarsson Að komast að kjarna málsins Athygli hefur vakið haganlega gerð aug- lýsing Morgunblaðsins, sem birst hefur í auglýsingatímum sjónvarpsstöðvanna að undanförnu. Slagorð hennar er „að komast að kjarna málsins" og er því ætl- að að vekja athygli á blaðinu sem þörf- um miðli í hinni daglegu umræðu. Fyrir nokkru hefði því vart verið trúað að Morgunblaðið þyrfti að beita auglýsinga- tækninni með þessum hætti þvílíka yfir- burði sem það hefur haft á fslenskum dagblaðamarkaði. A undanförnum mánuðum hefur ann- að dagblað - síðdegisblaðið Dagblaðið og Vísir - sigið á vinsældir og út- breiðslu Morgunblaðsins. Áskrifendum DV hefur stöðugt fjölgað á meðan Morg- unblaðinu hefur ekki tekist að halda sín- um hlut í hlutfalli við sölu dagblaða í landinu. Augun hljóta því að beinast að efni og uppbyggingu þessara tveggja blaða. Morgunblaðið hefur leitast við að halda uppi fjölbreyttri umræðu um málefni líð- andi stundar og landsins gagn og nauðsynjar. Blaðið hefur oft birt vel unn- ar fréttaskýringar um mál er marga varð- ar og verið trúverðugt þeirri stefnu sinni að hafa upplýsingagildið í hávegum. Blaðið hefur eftir því sem föng hafa veriö reynt að komast að kjarna fjölmargra mála. DV leggur á hinn bóginn minni áherslu á notkun hefðbundins texta. Sagt er frá mönnum og málefnum í stutt- um fréttaskeytum þar sem aðeins er tæpt á fréttnæmum viðburðum og yfirborði mála en öll efnisuppbygging miðast við sem minnsta lestrarþörf. ( stað þess er áhersla lögð á myndmál og feitt fyrir- sagnaletur. Málum er oft slegið upp en sjaldnast reynt að komast að kjarna þeirra. Þessar staðreyndir af blaöamarkaði vekja upp spurningar um á hvaða vett- vangi hin almenna umræða í þjóðfélag- inu eigi að fara fram eða hvort hún eigi yfir höfuð ekki að eiga sér stað. Þessar staðreyndir vekja einnig upp spurningar um hvort fólk hafi ekki lengur áhuga á upplýsingum - áhuga á að kafað sé I efni hinna margvíslegu mála og reynt að komast að kjarna þeirra. Sú þróun hefur orðið í hinum vestrænu samfélögun á undanförnum árum að áhugi á almenn- um lestri hefur dvínað. Aukið framboð á myndrænni fjölmiðlun á þar ákveðinn hlut að máli og hafa ýmsir orðið áhyggjur af þeirri þróun. Eiga dagblöðin að berast með straumnum og reyna að breyta textum sínum í myndmál eins og mörg síðdegisblöð hafa freistast til að gera. Eða geta þau barist á móti þeirri óheilla- þróun er stafar af minnkandi lestri og margir frömuðir menntamála vara nú við. Að sjálfsögðu er hlutverk blaða að við- halda upplýsingamiðlun og umfjöllun um hin ýmsu málefni. Síður þeirra eru einnig tæki til almennra skoðanaskipta. í því sambandi verða þau að nota letrið — það táknmál sem þeim er áskapað. Hvernig framsetningu efnis er háttað getur skipt sköpum en blöðin mega ekki flýja af hólmi og hætta að komast að kjarna málsins. Samkomur KFUM og KFUK * Sunnuhlíð. Sunnudaginn 31. janúar: Almenn samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Bjarni Guðleifs- son. Tekið á móti gjöfum í hússjóð. Allir velkomnir. SJÓNARHÆO W HAFNARSTRÆTI 63 Laugardagur 30. jan.: Laugardags- fundur á Sjónarhæð kl. 13.30. Ástirningar og aðrir krakkar vel- komnir. Unglingafundur á Sjónarhæð kl. 20. Allir unglingar velkomnir. Sunnudagur 31. jan.: Sunnudaga- skóli í Lundarskóla kl. 13.30. Krakkar, reynið að fá aðra með ykkur í sunnudagaskólann! Samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Allir eru hjartanlega velkomnir. HVITASUtlHUKIRKJAíl uwwdsw/é> Laugardagur 30. janúar kl. 21.00 samkoma fyrir ungt fólk. Sunnudagur 31. janúar kl. 11.00 barnakirkjan, allir krakkar vel- komnir. Sama dag kl. 15.30 samkoma, ræðu- maður Jóhann Sigurðsson, samskot tekin til tækjakaupa, barnapössun meðan á samkomu stendur. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn. Sunnud. 31. jan. kl. 11: Helgunarsamkoma, kl. 13.30 sunnudagaskóli, kl. 19.30 bæn, kl. 20.00 almenn samkoma. Mánud. 1. febr. kl. 16.00: Heimila- samband, kl. 20.00 hjálparflokkur. Miðvikud. 3. febr. kl. 17 fundur fyr- ir 7-12 ára. Fimmtud. 4. febr. kl. 20.30: Biblía og bæn. Allir hjartanlega velkomnir. □ HULD 5993217 VI 2. I.O.O.F. 15 = 174 22816 = OA fundir í kapellu Akureyrar- kirkju mánudaga kl. 20.30. Frá Sálarrannsóknarfé- lagi Akureyrar. Opinn fundur verður í / húsi félagsins, Strand- 9 götu 37 b, fimmtudag 4. febrúar kl. 20.30. Ræðumaður kvöldsins séra Pétur Þórarinsson. Rætt verður um sorg- ina. Allir hjartanlega velkomnir. Stjórnin. íitfAi>iow Konur’konur! 'O1 V1 „Aglow“, kristileg sam- tök kvenna, halda fund á Hótel KEA mánudaginn 1. febrúar kl. 20.00. Ræðumaður verður Janice Dennis. Mikill söngur, lofgjörð og fyrir- bænaþjónusta. Veitingar kr. 500. Allar konur hjartanlega velkomnar. Stjórn Aglow Akurcyri. Afmælisfundur Kvenfélagsins Hlíf- ar verður haldinn að Hótel KEA fimmtud. 4. febrúar nk. kl. 20. Þátttakendur láti vita í síma 23050 og 24316 fyrir þriðjudagskvöld. Gengið Gengisskráning nr. 19 29. janúar 1993 Kaup Sala Dollari 63,17000 63,31000 Sterllngsp. 95,67100 95,88300 Kanadadollar 49,71900 49,82900 Dönsk kr. 10,31390 10,33670 Norsk kr. 9,34400 9,36470 Sænsk kr. 8,77760 8,79710 Flnnskt mark 11,62280 11,64860 Fransk. franki 11,75910 11,78520 Belg. franki 1,93390 1,93820 Svissn. franki 43,23450 43,33040 Hollen. gyllini 35,39630 35,47470 Þýskt mark 39,82350 39,91170 ítölsk lira 0,04258 0,04267 Austurr. sch. 5,66220 5,67470 Port. escudo 0,43860 0,43960 Spá. peseti 0,55790 0,55910 Japanskt yen 0,50896 0,51009 irskt pund 104,49600 104,72700 SDR 87,53400 87,72800 ECU, evr.m. 77,65490 77,82700 Laus staða Staða fangavarðar við fangelsisdeildina á Akur- eyri er laus til umsóknar. Veitist til næstu ára- móta. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis- ins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 15. febrú- ar 1993. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjónum, sem veita upplýsingar um stöðuna. Sýslumaðurinn á Akureyri, 28. janúar 1993. Elías I. Elíasson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.