Dagur - 30.01.1993, Síða 23
Laugardagur 30. janúar 1993 - DAGUR - 23
I UPPÁHALD!
vmna
Sverrisdóttir
Guðný Sverrisdóttir er
sveitarstjóri Grýtubakka-
hrepps og formaður Hér-
aðsnefndar Eyjaijarðar.
Hún var í fréttum í vikunni vegna
fundar sem Héraðsnefnd boðaði til
þar sem rætt var um skýrslu nefnd-
ar um skiptingu landsins í sveitar-
félög, en í þessum tillögum er gert
ráð fyrir að Eyjafjörður verði eitt
sveitarfélag. Sameiningarmálin ber
þó ekki á góma hér heldur ýmis
hugðarefni Guðnýjar.
Hvað gerirðu helst ifrístundum?
„Þær eru nánast engar, en ef þær
gefíist fer ég hclst út að ganga eða
eitthvert til að borða góðan mat.“
Hvaða malur erí mestu uppáhaldi
hjáþér?
„Þaö eru rjúpur. Ég borða þær oftar
en bara um jólin, en það fer eftir
því hvað bóndinn er duglegur að
skjóta.“
Uppáhaldsdrykkur?
„Vatn og kaffi.“
Ertu hamhleypa til allra verka á
heimilinu?
„Nci. Ekki það að mér finnist
heimilisstörfin leiðinleg, þvert á
móti, en ef maður sest niður þegar
maður kemur heim er stundum erf-
ilt að rísa upp aftur.“
Spáirðu mikið í heilsusamlegt líf-
erni?
„Ég hugsa um þaö en fratnkvæmi
ekki í samræmi við þær hugsanir."
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
„Ég kaupi Sveitarsljómarmál og
Dag, punktur og basta.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá
þér?
„Núna er það bókin Seld eftir Zana
Muhsen og Andrew Crofts. Ég er
að verða búin með hana og hún er
mjög góð.“
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður
er í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Það er nú það. Ætli ég segi ekki
bara Geirmundur, þaö er margt
vitlausara."
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Eg hugsa nú ckki tnikið um íþrótt-
ir en get nefnt Alfreð Gíslason.
Annars cr Magni auðvitað f mestu
uppáhaldi en ég má víst ekki nefna
félag.“
Hvað horfirðu helstáí sjónvarpi?
„Fréttir. Það fer eftir því hvenær ég
stend á fætur frá sjónvarpinu hvort
ég horfi á eitthvað meira.“
Á hvaða stjórnmálamanni hef-
urðu mest álit?
„Ég held ég verðj að segja Halldóri
Ásgrímssyni. Hann cr traustur.'1
Hvará landinu vildirðu helst búa
fyrir utan heimahagana?
„Ætli væri ekki skást að vera á
Akureyri. Ég hugsa það.“
Hvað myndirðu kaupa ef þú feng-
ir 100 þúsund kall upp úr þurru?
„Ætli ég myndi ekki reyna að vera
góð við sjálfa mig frekar en að
setja þetta í húsið eða eitthvað svo-
leiðis. Já, ég myndi ferðast og
kaupa mér falleg föt.“
Hvernig myndirðu eyða þriggja
vikna vetrarfríi?
„Ég er einmitt að fara í þriggja
vikna vetrarfrí til Kanaríeyja, þann-
ig að þessari spurningu er auðsvar-
að.“
Hvað œtlarðu að gera um helg-
ina?
„Ég ætla að vinna um helgina. Ég
þarf að nota tímann vel áður en ég
fer í vetrarfríið." SS
Vantar hljómsveil?
Tökum að okkur að spila ó þorrablótum,
árshótíðum og í minni hófum.
Tónlist við allra hœfi.
Hljómsveitin FRANTIC
Upplýsingar gefa: Atli í síma 96-21184 og
Jonni í síma 96-22289.
.... ............—
FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRI
Bæjarmélafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 1. febrúar kl. 20.30.
Rætt um dagskrá bæjarstjórnarfundar á þriðjudaginn og hið
geigvænlega atvinnuleysi, sem nú er á Akureyri.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
PÓSTKORT FRÁ PAU
Kæri vinur.
Er þorrinn farinn að þjaka þig
mikið með öllum sínum blótum
og meðfylgjandi smíðaflokkum?
Fyrir mína hönd verðurðu að
standa þig vel í blótun þorrans,
þar sem ég verð af öllu slíku þetta
árið. Ekkert íslenskt brennivín.
Enginn súrmatur. Ekki einu sinni
hákarlsarða mun sleppa inn fyrir
varir mínar á þessum þorra. Eg á
að vísu nokkra saltkjötsbita og
smáhangikjöt úr jólasendingu frá
Fróni og verður það notað til að
lífga aðeins upp á tilveruna, en
það er þunnur þorri að hafa ekki
vel kæstan hákarl til að gæða sér
á. Annars þýðir víst lítið um það
að fást, ég er í það minnsta
hræddur um að einhver undur-
furðulegur svipur kæmi á franska
tollverði ef þeir þyrftu að hand-
Eilíf blíða og skorkvikindi
fjatla pakka sem innihéldi
hákarl. Og hvernig í ósköpunum
ætti íslenskur dýralæknir að
útskýra, svo trúverðugt væri, á
heilbrigðisvottorði því sem fylgja
þarf allri hrárri matvöru úr landi,
að við verkun þessa matar hefði
verið gætt fyllsta hreinlætis og
hann væri laus við alla sjúkdóma,
bakteríur og gerla. Heldur er ég
efins um annað, en svona hákarls-
biti myndi enda ferðalag sitt í
ruslakörfu tollsins, sem skemmd
matvara. Ég læt mér því nægja
saltkjöt og baunir og hver veit
nema ég prófi að drekka rauðvín
með.
Annars þjakar þorrinn mig lítt.
Alltaf sama blíðan hér og því
miður einnig alltaf sömu skor-
kvikindin. Eg á í eilífu stríði,
jafnvel heilögu stríði, við alls-
kyns skríðandi óvætti af öllum
stærðum og gerðum, sem virðast
alltaf geta fundið sér leið inn í
íbúð mína. Þér dettur auðvitað
fyrst í hug að ég sé að tala um
Deleríum tremens, en það er hel-
ber misskilningur, þessi kvikindi
eru svo sannarlega raunveruleg.
Yfir daginn fela þau sig í skúma-
skotum og skápum, en fara síðan
í ránsleiðangra eftir að ljós hafa
verið slökkt. Þegar ég skreiðist
svo fram úr að morgni, byrjar
ballið. Á nærbuxum og inni-
skóm, vopnaður allrahanda
spöðum og úðabrúsum, ræðst ég
til atlögu við kvikindin sem aðal-
lega halda sig í eldhúsinu og á
baðherberginu. Orrustan stendur
yfirleitt stutt, þar sem pöddurnar
eru snarari í snúningum en ég í
fullum herklæðum, en alltaf fá þó
einhverjar feitar og pattaralegar
virðulega jarðarför í ruslakirkju-
garðinum að henni lokinni. Ef ég
ætti að áætla fjölda fallinna frá
upphafi stríðs, þá myndi ég
segja, að ef ég hefði haldið upp á
alla skrokkana, þá gæti ég núna
eldað ágæta kássu fyrir um tíu
skordýraætur.
Sökum stríðs míns verður mér
oft hugsað til þess hve mikil
blessun okkar íslendinga er, að
þurfa ekki að kljást við aðra
óværu en fiskiflugur og mývarg.
En það getum við víst m.a. þakk-
að þorranum og öðrum köldum
vetrarmánuðum. Enginn skyldi
því bölva kuldanum og þegar þú
skelfur á leið í vinnuna í fyrra-
málið, skaltu minnast þess að
hérna megin Atlantshafs og
Ermasunds, fer annars konar
skjálfti um vin þinn, sem á ekkert
skylt við þorra; glímuskjálfti.
Ton ami, SBG
Samtök Psoriasis
og exemsjúklinga
á Akureyri og nágrenni
Fræðslufundur
verður haldinn á Hótel Norðurlandi laugardaginn
6. febrúar kl. 14.00.
Meðal þeirra sem mæta á fundinn er Jón Hjaltalín
húðsjúkdómalæknir og Helgi Jóhannsson formaður
samtakanna.
Mætum vel og stundvíslega.
Stjórn SPOEX.
.t
Innilegustu þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og viná íu
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
JÓNS EÐVARÐS JÓNSSONAR,
Lögbergsgötu 9, Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Eðvarö Jónsson,
Reynir Jónsson, Rósa Andersen,
Sigurður Jónsson,
Aðalbjörg Jónsdóttir, Tryggvi Pálsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
ÓSKARS KRISTINS JÚLÍUSSONAR,
frá Kóngsstöðum.
Aðalstelnn Óskarsson, Sigrún Guðbrandsdóttir,
Kristfn Óskarsdóttir, Gunnar Rögnvaldsson,
Valdimar Óskarsson, Gerður Þorsteinsdóttir,
Friðrikka Óskarsdóttir,
Ástdís Óskarsdóttir, Slgurður Ólafsson,
Árni Óskarsson, Ingibjörg Björnsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.