Dagur - 03.04.1993, Page 3
Laugardagur 3. apríl 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Lestrarhestarnir í 1. bekk 1 í Síðuskóla ásamt umsjónarkcnnaranum Sólveigu S. Ingvadóttur og Þorbjörgu Sigurð-
ardóttur sérkennara. Mynd: GG
Rúmlega 90 Iðjufélagar á atvinnuleysisskrá:
Ástandið skárra en fyrr á þessu ári
Lestrarkeppnin mikla:
Nemendur þriggja norð
lenskra skóla sigur-
vegarar í keppninni
Liðlega 90 félagar í Iðju, félagi
verksmiðjufólks á Akureyri,
eru nú á atvinnuleysisskrá, en í
vikunni bættust 7 starfsmenn
frá Foldu á skrána en það voru
þeir sem lengstan upp-
sagnarfrestinn höfðu. Félagar í
Iðju sem hafa verið á vinnu-
markaðinum eru rúmlega 500
og því er tæplega sjötti hluti
félagsmanna á atvinnuleysis-
skrá.
Flestir hafa Iðjufélagar orðið
100 á atvinnuleysisskrá svo segja
má að ástandið sé ívið skárra nú
Hegranes seldi í
Þýskalandi:
Þokkalegt verð
Hegranes SK-2 seldi afla sinn í
Bremerhaven á fimmtudags-
og föstudagsmorgun. Sæmilegt
meðalverð fékkst fyrir aflann,
að sögn Gísla Svan Einarsson-
ar útgerðarstjóra Skagfirðings
hf.
Hegranesið seldi 174,3 tonn af
karfa fyrir 24,6 milljónir króna.
Meðalverðið voru 141,3 krónur á
kílóið, sem er þokkalegt verð að
sögn Gísla. Síðast seldi Skagfirð-
ingur SK-4 snemma í mars og
fékk þá 121 krónu á kílóið í með-
alverð. Verðið sem nú fékkst er
nálægt ársmeðalverði Skagfirð-
ings hf., sem eru 146 krónur. sþ
Frímerkjasýning:
Eyfirðingur í Norður-
landameistaraliði
Reimar Viðarsson úr frímerkja-
klúbbnum AKKA í Eyjafirði
var í sigurliði Islands á NORD-
JUNEX ’93 í Amagerhallen í
Kaupmannahöfn dagana 26.-
28. mars sl.
Það er orðinn siður að landslið
unglinga frá öllum Norður-
löndunum keppi á slíkum sýning-
um í einhverju þekkingaratriði
frímerkjafræðinnar. Að þessu
sinni var keppt í þekkingu á
blómum í Norður-Evrópu. ís-
lenska liðið, sem var skipað auk
Reimars Ólafi Kjartanssyni úr
Klúbbi Skandinavíusafnara og
Pétri H. Ólafssyni úr Klúbbi
Skandinavíusafnara, bar sigur úr
býtum og fékk 23 stig af 30 mögu-
legum. óþh
en fyrr á þessu ári en nýlega var
31 starfsmanni hjá íslenskum
skinnaiðnaði hf. sagt upp störfum
og þeir bætast við þessa tölu á
komandi sumri takist þeim ekki
að komast í önnur störf en þar
var um 25 ársverk að ræða. Krist-
ín Hjálmarsdóttir formaður Iðju
segist bera ákveðnar vonir í
brjósti um að þessar uppsagnir
komi ekki allar til framkvæmda.
Samningur um leigu á drátt-
arbrautinni til Naustavarar hf.
var samþykktur með flmm at-
kvæðum í bæjarstjórn Húsa-
víkur sl. flmmtudag. Tveir
bæjarfulltrúar greiddu atkvæði
á móti, Jón Asberg Salomóns-
son (A) og Valgerður Gunn-
arsdóttir (G) og tveir sátu hjá,
Leíkmaimastefiia
þjóðkirkjimnar
áAkureyri
Dagana 3. og 4. apríl verður
ieikmannastefna þjóðkirkj-
unnar haldin í safnaðarheimili
Akureyrarkirkju. A leik-
mannastefnu eiga sæti fulltrúar
prófastsdæmanna, fulltrúar
félaga er starfa í tengslum við
þjóðkirkjuna og leikmenn úr
hópi kirkjuþingsfulltrúa.
Leikmannastefnan hefst með
ávarpi sr. Bolla Gústavssonar,
vfgslubiskups í Hólastifti. Þá flyt-
ur Helgi K. Hjálmsson, formaður
leikmannaráðs, skýrslu leik-
mannaráðs. Meðal annars efnis á
leikmannastefnunni má nefna að
Jónas Þórisson, framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunnar kirkj-
unnar, fjallar um þátttöku leik-
manna í hjálpar- og kristniboðs-
starfi, Þráinn Þorvaldsson, sókn-
arnefndarformaður í Bústaðar-
sókn, fjallar um samstarf sókn-
arnefnda og sóknarpresta og þá
mun Unnur Halldórsdóttir,
djákni, kynna djáknanám. ój
Þeir starfsmenn sem fengu upp-
sagnarbréf vinna allir á kvöldvakt.
Nokkrir Iðjufélagar hafa farið af
atvinnuleysisskrá vegna atvinnu-
átaks Akureyrarbæjar en þeir eru
við ýrnis störf og verkefni en enn er
ekki búið að koma í gang vinnu
sem tengist ýmsum fyrirtækjum í
bænum en Kristín Hjálmarsdóttir
segir að þá fái nokkur hópur
atvinnu. GG
Þórður Haraldsson, (D) fram-
kvæmdastjóri Naustavarar og
Kristján Asgeirsson (G).
Samningur þessi hafði farið
hringi milli hafnarstjórnar,
bæjarráðs og bæjarstjórnar og
leitað hafði verið álits tveggja
lögfræðinga sem staðfestu að
ekkert væri athugavert við að
samningurinn héti Leigusamn-
ingur. Naustavör greiðir ekki
leigu af afnotum af dráttarbraut-
inni en skal sjá um viðhald og
endurnýjanir á búnaði.
„Það var löngu tímabært að
Úrslit eru nú Ijós í Lestrar
keppninni miklu sem fram fór
dagana 8.-18. mars sl. að frum-
kvæði menntamálaráðuneytis-
ins, DV, Morgunblaðsins, Rík-
isútvarpsins og Bókasambands
íslands. Tilefni keppninnar var
viss ótti um minnkandi lestur
barna og unglinga en niður-
stöður keppninnar benda til að
bókalestur eigi enn upp á pall-
borðið hjá söguþjóðinni. Þátt-
takendur urðu alls 17.000 í
1100 bekkjardeildum frá 166
skólum sem er um 3/4 allra
grunnskóla í landinu. Alls voru
lesnar 71.515 bækur eða 6,7
milljónir blaðsíðna sem væri
um 900 metra stafli. Keppnin
var bekkjarkeppni og urðu
nemendur þriggja norðlenskra
skóla, Borgarhólsskóla á
Húsavík, Síðuskóla á Akureyri
og Svalbarðsskóla í Þistilfirði
sigurvegarar í sínum árgangi.
Sigurvegarar í einstaka bekkj-
ardeildum urðu: í 10. bekk, nem-
endur Sólvallaskóla á Selfossi, í
9. bekk nemendur Grunnskólans
á Þingeyri, í 8. bekk nemendur
Sólvallaskóla á Selfossi, í 7. bekk
ganga frá samningi um afnotin,
því ekki hefur verið gerður samn-
ingur eftir að Naustavör var
stofnuð upp úr rústum Nausta.
Það hefur verið þarna við vanda-
mál að stríða, sand hefur borið
upp svo brautin hefur verið ónot-
hæf hluta ársins. Hér eftir á fyrir-
tækið að sjá um að verka frá
brautinni ef til kemur. Bærinn
mun byggja varnargarð en dugi
liann ekki til er það á ábyrgð
fyrirtækisins að halda þessu
opnu,“ sagði Einar Njálsson
bæjarstjóri í samtali við Dag. IM
nemendur Hallormsstaðaskóla, í
6. bekk nemendur 6.B í stofu 5 í
Borgarhólsskóla á Húsavík.
Nemendur í bekknum eru 21 og
þeir lásu rúmlega 32.000 blaðsíð-
ur og var meðalfjöldi síðna á
nemanda 1.536. Þeir fá í verð-
laun bókina Draugar vilja ekki
dósagos eftir Kristínu Steinsdótt-
ur og Smyglarahellirinn eftir
Kristján Jónsson. í 5. bekk sigr-
uðu nemendur Sandvíkurskóla á
Selfossi, í 4. bekk nemendur í
Grunnskóla Grindavíkur, í 3.
bekk nemendur í Setbergsskóla í
Hafnarfirði, í 2. bekk nemendur
í Myllubakkaskóla í Keflavík og í
1. bekk nemendur 1. bekkjar 1 í
Síðuskóla á Akureyri sem lásu
177 bækur og fá í verðlaun bæk-
urnar Fólkið í steinunum eftir
Einar Má Guðmundsson og Litla
íkógarbjöminn eftir Illuga Jökuls-
son sem er myndskreytt af Gunn-
ari Karlssyni. Nemendur í 1.
bekk 1 í Síðuskóla eru 19, þeir
lásu 177 bækur og meðaifjöldi
bóka á hvern nemanda er 9,3
lesin var 4.931 blaðsíða og með-
alfjöldi síðna á hvern nemanda
260. í þessum aldursflokki var
keppnin mjög hörð og jöfn og sá
bekkur sem kom næstur var einn-
ig úr Síðuskóla svo árangur þessa
aldurshóps þar er mjög glæsileg-
ur. í Síðuskóla var einnig keppni
innbyrðis meðal bekkjardeilda
skólans og þar sigraði 6. bekkur 7
en nemendur þar lásu 18.000
blaðsíður og fengu í verðlaun frá
skólanum bókina Goð og
Garpar. Einn nemandi þess
bekkjar, Hildur Ey Sveinsdóttir,
las alls 30 bækur á þessum 10
dögum, alls 3.615 blaðsíður.
í samkennsluhópum voru veitt
þrenn verðlaun, og þar urðu sig-
urvegarar nemendur Klúkuskóla
á Ströndum og nemendur Sval-
barðsskóla í Þistilfirði en Þing-
eyingarnir eru í 8. til 10. bekk og
þeir fá í verðlaun bókina íslenskir
fuglar eftir Brian Pilkington og
Stóru hestabókina. Nemendur
eru 7 og var fjöldi síðna á
nemanda 1.435. GG
Verðlaunaafhending
í ljóðasamkeppni Dags og MENOR
Úrslitin í Ijóðasamkeppni Menningarsamtaka
Norðlendinga og Dags verða kunngerð á morgun,
sunnudaginn 4. apríl.
Þá fæst úr því skorið hvaða tvö ljóð dómnefnd keppninnar mat
best og verða höfundar þeirra verðlaunaðir.
Þráinn Karlsson, leikari, les verðlaunaljóðin og Tjarnarkvartett-
inn syngur nokkur lög.
Athöfnin fer fram á 4. hæð veitingahússins Fiðlarans við Skipa-
götu á Akureyri og hefst kl. 17.00.
MENOR
Dráttarbrautin á Húsavík:
Leigusairmingur við Naustavör