Dagur - 03.04.1993, Síða 24
Byssuglaðir piltar:
Skutu aJlt sem flögraði
með haffletinum
- fuglarnir flestir friðaðir
Utn kvöldmatarleytið sl.
fimmtudag handtók lögreglan
á Akureyri þrjá pilta sem
höfðu sér til dundurs að strá-
fella sjófugla á innanverðum
Eyjafirði, fugla sem eru friðað-
ir samkvæmt landslögum.
í tuga tali, allflestir friðaðir. ,Um
miðjan dag í gær var mál þetta til
enn frekari rannsóknar hjá lög-
regluyfirvöldum. ój
PlMÖNfmEG; Fi;RMlN^ARQllÖ)ff;
klukkur: 5.150
lennastatíf: 3.950
Fram yfir fermingar
bjóðum við sérstakt verð.
Aletrun og sendingar-
gjald innifalið.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Ath. Sama verð hjá okkur
og öllum þeim verslunum
sem selja vöru okkar
hvarvetna á landinu.
BORGARFIRÐIEYSTRA
SÍMI 97 - 2 99 77
Eyjafjörðurinn heillar margan
manninn á góðviðrisdögum sem
sl. fimmtudag. Náttúran skartaði
sínu fegursta og hafflöturinn var
sem spegill. Um kvöldmatarleyt-
ið barst lögreglunni á Akureyri
kvörtun vegna byssuóðra manna
sem voru á báti með austurland-
inu gegnt Akureyri og ekki voru
þeir að njóta náttúrufegurðarinn-
ar. Nei, mennirnir höfðu að iðju
að skjóta niður allt sem flögraði
með haffletinum. Lögreglan náði
til mannanna, þriggja pilta, sem
eru liðlega tvítugir. Samkvæmt
upplýsingum rannsóknarlögregl-
unnar var ein byssa gerð upptæk,
en grunur leikur á að piltarnir
hafi náð að fela tvær haglabyssur.
Lögreglumenn fóru á hafnsögu-
bát Akureyrar á vettvang í
Veigastaðabás og út með austur-
landinu til að kanna vegsum-
merki. Á svæðinu flutu sjófuglar
Skagaströnd:
Skrefið leigir hús
afByggðastofiiim
- til þriggja ára
Skóverksmiðjan Skrefið á
Skagaströnd hefur tekið á
leigu 500 fermetra verksmiðju-
hús á Skagaströnd í eigu
Byggðastofnunar. Gert var ráð
fyrir að skrifa undir leigusamn-
inga síðdegis í gær.
Byggðastofnun leysti umrætt
hús við Vallarbraut til sín á nauð-
ungaruppboði snemma í mars, en
þar voru áður smíðaðir bátar hjá
fyrirtækinu Marki hf. Mark hf.
hefur verið úrskurðað gjald-
þrota.
Óskar Þórðarson, stjórnar-
maður í Skrefinu hf., sagði í gær
að leigusamningur hafi verið
gerður til þriggja ára og menn
væru nokkuð ánægðir með hann.
Óskar sagði að þegar væri byrj-
að að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á húsnæðinu áður en starf-
semi getur hafist þar. „Okkur
sýnist að húsið henti okkur mjög
vel. Strikið á Akureyri var að
vísu með helmingi stærra hús-
næði, en við teljum að við getum
komið þessu ágætlega fyrir í
þetta minna húsnæði," sagði
Óskar.
Við það er miðað að flytja vél-
arnar frá Akureyri vestur á
Skagaströnd eftir páska og fljót-
lega eftir það hefjist starfsþjálf-
un. Auglýst hefur verið eftir fólki
í framleiðsluna á Skagaströnd, en
ekki er búið að ganga frá ráðn-
ingum. „Við stefnum að því að
hefja skóframleiðsluna í maí,“
sagði Óskar. óþh
Þér bregst ekki
páskatilboð! ökunavlistiti
meðAKRA
AKRA-smjörlíki er unnið úr úrvals jurtaolíum
og pvíómissandi í metnaðarfullan bakstur.
mts
SMJÖRLIKISGERÐ
I