Dagur - 20.11.1993, Síða 10

Dagur - 20.11.1993, Síða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 20. nóvember 1993 PÓSTKORT FRÁ ÞÝSKALANDI HLYNUR HALLSSON HANN Steinlagðar göturnar eru ekki upplagðar fyrir reið-hjól með mjóum dekkjum. Ég hef ekki rekist á nasista ennþá, nema í sjónvarpinu og á Sögusafninu. Þar eru þeir á veggspjöldum með feitu letri og fallegum myndum. Við hliðina eru svart/hvítar myndir af rústum gömlu húsanna sem aldrei voru endurbyggð. í staðinn eru komnir bankar í glæsilegum gler og stein- steypu byggingum. En hér í gamla bænum standa þau enn, gömlu húsin. Og göturnar steinlagðar með grófum steinum með of miklu bili á milli fyrir mjó reiðhjóla-dekk. Heima, eftir hálftíma í sporvagni, brosir Björk í MTV og svarar spurningum og syngur nokkur lög með vinum sínum en velur svo JJ Cool sem rappar um stelpurnar í henni Cali-Cali-forniu. Og skömmu síðar eru íslenskir kraftakarlar aö lyfta grjóti og monta sig á annarri stöð. Maður þarf þó yfirleitt að leita lengi til að finna íslending hér í höfuðstað Neðra-Saxlands. Við erum samt umkringd öðrum innflytjendum. En hér eru engir nýnasistar svo okkur er sennilega óhætt. Skinheads gegen Rasissmus" láta meira á sér bera og líka kínverska stúdentagrúbban svo ekki sé talað um samtök byltinga- sinnaðra íranskra verka- manna sem bjóða uppá úrval bæklinga og kaffi í homi háskólagarðsins einn napran eftirmiðdag að hausti. Þaó er meira að segja farió aó skyggja enda löngu búió að flýta klukkunni um einn tíma og þannig kominn vetrartími. Ég loka augunum í spor-vagninum þegar hann fer ofan í jörðina og ímynda mér að ég sé kominn til Austurlanda í alvöru stórborg. "Bitte Aussteigen" segir önug rödd úr hátalar- anum og bindur enda á þetta ferðalag. Skólinn er ennþá í fimmtán mínútna fjarlægð jafnvel þó maóur sé kominn á mið- punktinn "Kröpcke". Það er eins gott að fara að fjárfesta í hjóli á uppboði hjá löggunni. Dekkin verða bara að vera nægilega breið. ísverksmiðjan er aflögö líkt og Mjólkursamlagið í Gilinu heima og hér hefur mynd-listin líka komió sér fyrir. Japanskættaðir mynd- bandaskúlptúrar og inn- setningar eru hér þessa stundina. Og hér eru ekki heldur neinir hægri öfga- menn, bara saklausir Þjóð- verjar, bongóleikari frá Afríku og listamaðurinn, kominn frá Japan með VÍðkomu í New York. Hinsvegar eru nýnasist- arnir til staðar og haga sér illa en það er óneitanlega kald- hæðnislegt að þegar þeir gerast svo djarfir að berja á bandarískum íþróttaköppum ætlar fyrst allt að verða vitlaust þó að Tyrkir séu barðir á hverjum degi og jafnvel drepnir. Það er bara vonandi að þessar barsmíðar á stóra bróður í vestri verði til þess að komið verði í veg fyrir frekari uppivöðslu hægri öfgamanna og aó Tyrkirnir og allir hinir útlendingarnir sem búa í þessu landi geti verið óhultir í framtíðinni. Það er þungskýjað í dag og þrátt fyrir tíu stiga hita er íslendingum kalt og ekki gott að fá sér ís úr gömlu ís- verksmiójunni heldur heitt kakó lagaó úr ekta súkkulaði úr tollinum. OVER H E I LSU PÓ5TU RINN Skurðaðgerð í gegn um skráargat Sú þróun sem á sér stað í skráar- gatsskurðaógeróum þýðir aó að- gerðir eru sársaukaminni, valda nánast engum örum og stytta verulega dvölina á sjúkrahúsinu. Skurólækningar eru nokkuð sem hefur tekið stórum framför- um á undanförnum árum og eru í slíkri útþenslu í dag aó menn hafa áhyggjur af því að tæknin sé á undan þjálfuninni sem þörf er á til þess að ráða við hana. ímyndaðu þér að geta farið í stóran uppskurð án þess að nokkurt ör sjáist. Vissulega hafa skurðlæknar náð það góðum ár- angri aó sífellt minna sést af ör- um. Nú er hins vegar að koma fram ný aðferð sem byggist að miklu leyti á tölvutækninni. Það er ekki nóg með að meö henni sé kleift að framkvæma svokallaðar stóraógerðir í gegnum sentimet- ers skurðarop, heldur minnka öll óþægindi og eftirköst til muna. Hægt verður aó skreppa í tals- verða aðgerð og vera komin heim innan sólarhrings. Um er að ræða ofurlitla smá- sjá sem hægt er að stinga inn um skurðarop. Skurðlæknirinn sér síðan hvað hann er aö gera á sjónvarpsskjá. Hvað sjúklinginn varðar þá hefur þetta mikið að segja. Eftir- köstin eru minni og ör eru alger- lega í lágmarki. Blóömissir er mjög lítill og í mörgum tilfellum veður hægt að notast eingöngu við staðdeyfingu. Annað jákvætt við þessa tækni er að hún losar menn við ýmsa þá galla sem fylgt hafa stórtækum skurðaðgeröum, en þeim vilja fylgja bólgur og ígerðir. Hægt er að víkka út at- hafnasvæðió sem vinna skal á innan líkamans með því að dæla carbon díoxid gasi inn í maga- veggina eða notast við saltlausn í kringum liði til þess aö gera að- gerðina auðveldari. Síðan eftir aðgerðina er gasinu eða salt- lausninni hreinlega dælt út aftur. Þróun þessarar „skráargats“ aðferðar hefur orðið samhliða aðferóum sem hafa verið í notk- un um árabil þar sem notast er við allan meltingarveginn til þess að komast að líffærum. Hægi er að komast aó blæð- andi skeifugarnarsárum, hægt er að taka sýni úr æxlum og jafnvel skera þau í burtu. Hægt er að gera skurðaógerð innan gall- blöðrunar. Þjálfun lækna er ekki alltaf í takt við hina hröðu þróun tækninnar. Ef eitthvað er að í lungunum er hægt að skoða öndunarvegina og taka sýni af óeðlilegum vefja- myndunum. Þannig er öll sjúk- dómsgreining fljótlcgri og ör- uggari. Fyrir vcnjulega skurðlækna þýðir „skráargatsaðferðin" það að þeir geta fjarlægt gallsteina og jafnvel komist fyrir sumar tegundir af kviðsliti. Fyrir kvensjúkdómalækna er þetta alger bylting. Þeir geta framkvæmt sjúkdómsgreiningar af meiri nákvæmni og auðveldað þeim ýmis störf. Þegar um er að ræða óútskýr- anlega magaverki er hægt að komast að upptökunum á örugg- an hátt. Það á vel við um botn- langabólgu og utanlegsfóstur ef um það er að ræða. Bæklunarskurðlæknar geta fjarlægt rifið brjósk úr hnénu án verulegra óþæginda. Sjúklingur- inn ætti jafnvel að geta gengið samdægurs. Axlir, olnboga, úln- liói, mjaðmir og ökkla er hægt að skoða með lítilli smásjá. Með lasergeisla er auk þess hægt að fjarlægja óæskilega „diskntynd- un“ á milli hryggjarliðanna. Þrátt fyrir viðleitni þessarar aðferðar til þess að gjörbylta þeim aðferðum sem notaðar eru í læknavísindunum á hún sína gagnrýnendur. Skurðlæknar sem flestir þurfa að leggja sig fram við að geta framkvæmt hinar hefðbundnu skurðaðgeröir þurfa að ná tökum á einstaklega há- tæknilegum tækjum. Ymsar raddir innan læknastéttarinnar í Bandaríkjunum, þar sem þcssi tækni tekur örum framförum, nefna í því sambandi að þjálfun sé ekki í takt við hina öru fram- þróun tækninnar. Það er cngu að síður augljóst mál að þegar tæknin tekur þess- um framförum, þá munu læknar sem sérhæfa sig í slíkunt aðgerð- um og tækjum sjá um að fram- kvæma þessar „skráargatsað- gerðir.“ Það er ekki ólíklegt að með tilkomu nýrra aðferða í geislafræði og segulsviðsmynda- töku að allar skurðaðgerðir verði brátt framkvæmdar með aðstoð tölvu. En eins og Peter Molitor segir, þá er ekki nokkur ástæða til að óttast. Það er hrein og bein vísindaskáldsaga að ímynda sér að skipt verði á skurðlækninum og einhverjum örtölvukubb.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.