Dagur - 20.11.1993, Qupperneq 15
SKOLALI F
Laugardagur 20. nóvember 1993 - DAGUR - 15
Fjórir svangir í mötuncytinu.
Margrét Níelsdóttir tciknaði.
Margrct Níelsdóttir tciknaði.
Geimverur
Það voru cinu sinni tveir menn
scm loru á Snæfellsjökul til aö
sjá geimverur. Þcir fóru meö
nesti og nýja skó. I heila viku
biöu þeir eftir geimverunum og
loksins þegar þær komu voru
þcir orðnir svo stífir í höndunum
að þeir náðu ekki niynd og
geimverurnar fóru aftur heim.
Og þegar þeir voru komnir heim
og sögðu frá öllu héldu allir aó
þeir væru vitlausir og þeir voru
því sendir á hæli.
Ólafur Eiríkur Þórðarson
og Jóhann Símon Björnsson.
Sólin vermir björt og heit,
í skýjum flýgur lóa feit.
Það hvín í trjánum, lóa hrædd
og hún er inn í vorið fædd.
Heiða Björk Pétursdóttir.
Grenivíkurskóli
1993
Fyrir rúniuni tólf árum eða
nánar tiltekið 13. október 1981
flutti Grenivíkurskóli í núver-
andi húsnæði úr gamla skólan-
um þar sem voru bara tvær
kennslustofur.
Lóan
Fyrsta veturinn voru í skólan-
um áttatíu nemendur en þeint fór
fjölgandi og urðu níutíu og þrír
þegar tlest var. Síðan fækkaði
þeint aftur og eru núna sjötíu og
fimm. Vorið 1986 útskrifaði skól-
inn í fyrsta skipti nentendur úr 9.
bekk sem jafngildir 10. bekk nú.
Fram að því voru unglingar sendir
til hcimavistar að Stórutjörnum.
Fjölmennustu bekkirnir í skól-
anurn í ár eru 8. bekkur sent hel'ur
fimmtán nemendur og 10. bekkur
með cllefu. Vegna lámennis veró-
ur að kcnna tvcimur og tveimur
aldurshópum santan í Ilestum til-
Grcnivíkurskóli.
fellunt. Við skólann cru starfandi
átta kcnnarar með skólastjóra.
Mötuneyti er í skólanum fyrir
krakkana úr sveitinni og aðra sent
ekki komast heim í hádeginu.
Eitt er sérstakt við okkar skóla.
I öðrum skólunt eru skólastofur
númeraðar en í okkar skóla eru
þær nefndar nöfnum eins og Hóla-
kot, Hornhús, Bakkabúð, Jaðar og
Kaðalstaðir. Þessi nöl'n eru fengin
frá göntlum eyðibýlum eða horfn-
um húsunt í hreppnum.
Nú er veriö að byggja nýtt
íþróttahús við Grenivíkurskóla.
Salurinn sem við höfum þurft að
notast við er svo lítill að við höf-
um verið sneydd öllum tækifærum
til að geta spilað handbolta, körfu-
bolta og aðrar vinsælar íþróttir.
Eina íþróttin sent hefur verið hægt
að æfa með einhverjum árangri er
borðtennis. Þaö hefur gengið vel.
Til þessa höfum við eignast átta
Islandsmeistara í borðtennis.
Skólaferðalagið í vor hjá 8., 9.
og 10. bekk veróur til Noregs. Við
grípum til ýmissa bragóa til að
safna fyrir ferðinni. Vió gefum út
l'rétta- og skemmtiritið Sncpil og
scljuni í lausasölu og til fastra
áskrifenda. Einnig höldurn við
basara og við seljum siginn fisk
og heimabakaö brauð í báta og
hcimili.
Grenivíkurskóli hefur sl. 25 ár
veriö átta mánaða skóli en starfar í
níu rnánuði í fyrsta sinn nú á
þessu ári.
Inga Steinlaug.
Edward Fogln lciðbcinir ncmcndum í málun.
Kata í málvcrkinu.
Draumaherbergið
Draumahcrbcrgið mitt á að vera
40 fcrmetrar að stæró. Suður- og
austurveggirnir ciga að vera úr
rauðu og kóngabláu gleri cn hinir
klæddir speglunt. Loftið á að vera
úr marglitu gleri í munstri og ein
og cin spcgilplata inni á milli. Ur
loftinu eiga að hanga gróskuntikl-
ar plöntur á hvítum ntarmarahill-
um.
A speglaveggjunum eiga að
vera hillur úr speglum fyrir blónt
og skrautmuni. Skápar eiga að
vera innfelldir í veggina og einnig
meó speglahurðum. I horni þar
sern mætast speglar og glcr á aó
vcra fuglabúr, þrír nietrar á alla
kanta og ná alla leið upp í loft,
fullt af páfagaukum og öðrum
skrautlcgum fuglum. A miðju
gólfinu (sem á aó vera úr marrn-
ara) á að vera stór hornsófi sem
hægt er að breyta í rúnt. Fyrir
framan hann á að vera sjónvarp
með 40 tommu skjá, afruglari og
myndbandstæki og skápur fullur
af myndbandsspólum.
Einhvers staðar í herberginu á
að vera stórt vinnuborð undir
saumavélar og aðstaða til aó sníða
föt og annað. Rétt hjá því eiga að
vera græjur með 300 vatta hátöl-
ururn og fullt al' geisladiskunt.
Svo vildi ég hafa stóran ísskáp
fullan af einhvcrs konar drykkjar-
föngum og annan skáp fullan af
sælgæti og öðru matarkyns.
Svona vildi ég að herbergið
mitt liti út en það verður áreiöan-
lcga dálítið þangað til sú ósk ræt-
ist. Að minnsta kosti verður þaó
ekki fyrr en ég eignast fullt af
peningum og búðunt.
Meira hef ég ekki að segja fyrr
en ég skipti unt skoðun og vil eitt-
hvað annað. En þetta er draumur
minn núna.
Dúi.
Tréð sem gat
talað og
gengið
Það var einu sinni tré sem gat
talað og gengið. Dag einn var
það í gönguferð. Þá sá þaó ann-
að tré sem gat talað og gengið.
Þá byrjaði það að elta tréð og
elti það út unt allt, yfir fjöll og
dali. Eftir tvær vikur náði tréð
því loksins og þá giftust þau og
lifðu sæl til æviloka.
Þorsteinn Björnsson.