Dagur - 05.02.1994, Side 3
FRETTIR
Laugardagur 5. febrúar 1994 - DAGUR - 3
Bifreiðaverkstæðið Múlatindur í Ólafsfirði:
Nýr slökkvibíll afhentur
Dalvíkmgum um mitt sumar
- stefnan að smíða vatnsflutningabila fyrir slökkvilið
Bifreiðaverkstæðið Múlatindur
í Olafsfirði er nú nieð tvo
slökkvibíla í framleiðslu og hef-
ur verið samið um sölu á öðrum
þeirra til slökkviliðsins á Dal-
vík. Hinn billinn verður til á
lager hjá Múlatindi. Bíllinn sem
fer til Dalvíkur er samskonar og
bíll sem Múlatindur afhenti
slökkviliðinu á Blönduósi á síð-
asta ári. Slökkvibíll Dalvíkinga
Dalvík:
punktar
■ Vegna umræóna um að laug
í nýrri sundlaug væri of grunn,
upplýsti bæjartæknifræðingur
bæjarráð um að samkvæmt
upplýsingum íþróttafullU-úa
ríkisins og íþróttafulltrúa
Reykjavíkurborgar væri laug-
ardýpt í samræmi vió reglur
um öryggi á sundstöðum og
uppfyllti skilyrði um keppnis-
laugar hérlendis.
■ 25. janúar sl. voru opnuð til-
boð í raflagnir í sundlaugina og
bárust tilboó frá eftirtöldum
aðilum: Sigmari Sævaldssyni
kr. 1.698.401 eða 73% af
kostnaðaráætlun og frá Birni
og Helga kr. 1.841.689 sem er
79%. Kostnaðaráætlun Raf-
tækni hljóðaði upp á
2.325.397.
■ Húsnæöisnefnd hefur sam-
þykkt að úthluta Amgrími
Jónssyni og Guðnýju Gunn-
laugsdóttur íbúðinni að Lækj-
arstíg 5 og Viðari Emi
Sigmarssyni og Rannveigu
Hrafnkelsdóttur íbúðinni að
Lokastíg 1. Samþykkt var að
innleysa íbúðina að Brimnes-
braut 25 sem er almenn kaup-
leiguíbúð. Borist hefur bréf frá
Hrafnhildi Þórarinsdóttur þar
sem hún óskar eftir aðstoð
Húsnæðisnefndar í húsnæðis-
vandræðum. Hrafnhildur fer
inn á biðlista um lciguhúsnæói.
Borist hefur tilkynning frá
Húsnæðisstofnun ríkisins um
að niður falli frá og með 1.
mars svonefnd „bráðabirgða-
lán“ um Byggingarsjóði verka-
manna til innlausnar og endur-
bóta á félagslegum íbúðum
skv. 104. gr. rgl. nr 46/1991 til
félagslcgra framkvæmdaaðila í
landinu.
■ íþrótta- og æskulýósfulltrúi
hefur samþykkt aó æskulýðs-
fulltrúi fari á ráðstcfnu uni fjöl-
skyldumál. Samþykkt var að
leita eftir samstarfi viö Dalvík-
urskóla og nágrannaskóla um
fyrirlestur um kynlíf, ástina og
tilfinningar. Fyrirlesari er Óttar
Guðmundsson.
■ Veitunefnd samþykkir að
beina því til heilbrigðisfulltrúa,
hcilbrigðisncfndar og bæjar-
stjómar Dalvíkur að staðfesta
tillögur Orkustofnunar um
vemdarsvæði vatnsbóla vatns-
veitu Dalvíkur. Samþykkt var
að vatnsgjald tbúóarhúsa og
annarra mannvirkja í Svarfað-
ardal sem tengjast Vatnsveitu
Dalvíkur skuli vera það sama
og á Dalvík enda sé ekki um
búrekstur aó ræða. Samþykkt
að vatnsgjald verði lagt á hest-
hús í Hringsholti skv. A-
gjaldflokki.
verður afhentur um mitt næsta
sumar.
Þetta er þriðji bíllinn sem
Múlatindur selur. Fyrsti bíllinn
var seldur slökkviliðinu í Ólafs-
firði og er hann nokkru minni en
hinir tveir seinni. Sá bíll sem
Múlatindur á nú á lager er einnig
af minni gcrðinni. Sá kostar um
5,5 milljónir króna en stærri bíl-
arnir um 7,5 milljónir.
Sigurjón Magnússon, aðaleig-
andi Múlatinds, segir að með
þessari framleiðslu hafi verið
skapað nýtt atvinnutækifæri á
verkstæðinu. Nú standi einnig til
að víkka þessa þjónustu við
slökkviliðin út og bjóóa vatns-
flutningabíla og verður einn slíkur
standsettur á næstunni.
Sigurjón er nýkominn til lands-
ins frá Þýskalandi og HoIIandi þar
sem hann kynnti sér framleiðslu
slökkvibíla. Hann segist ánægður
með samanburðinn við eigin
framleiðslu, mörg atriði séu betur
útfærð í bílnum frá Múlatindi en í
sambærilegum erlendum bílum.
Samanburðurinn hvað varðar verð
sé mjög hagstæður því sambæri-
legur bíll og sá minni sem Múla-
tindur smíðar kosti í Þýskalandi
um 8 milljónir króna og þá eigi
eftir að bæta ofan á veróið inn-
flutningsgjöldum. Framleiðslan
hér heima standi því vel að vígi.
„Já, þctta var mjög lærdómsrík
ferð og ég sá að við erum greini-
lega á réttri leið fyrir utan aö
bjóða miklu ódýrari bíla,“ sagði
Sigurjón. JOH
Múlatindur afhcnti slökkviliðinu á Blönduósi þcnnan bíl á síðasta ári og
smíðar nú samskonar bíl fyrir Dalvíkinga.
Hæstiréttur:
Staðfestur dómur héraðsdóms
í flugeldamálinu í Mývatnssveit
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Norðurlands
eystra frá liðnu sumri t máli
ákæruvaldsins gegn fyrrverandi
formanni Björgunarsveitarinn-
ar Stefáns í Mývatnssveit.
Málsatvik voru þau aó 17. júlí
1991 skaut maðurinn upp neyðar-
llugeldum í Mývatnssveit án til-
efnis og í kjölfarið hófst víðtæk
neyðarleit á landi og í lofti.
Fram kom við flutning málsins
fyrir Héraðsdómi Noróurlands
eystra að maðurinn hafi verið að
eyða gömlum birgðum af neyðar-
llugeldum. Hafði hann sagt vió
yfirheyrslu ekki hafa leitt liugann
að því að farið yrói að leita og vís-
aði til þess að veður hafi verið
gott og hann auk þess staðsettur í
mióri sveit.
I dómi Héraósdóms Norður-
lands eystra þann 30. júlí 1993
segir að með hliðsjón af því að
maðurinn hafi verið gjörkunnugur
Belgirnir á Húsavík:
Aðfór að karlakj ötsfyrningum
- 19 belgir runnu um 33 kg fyrstu vikuna
Um 2,5 tonn af karlmönnum
kom saman á Húsavík nýlega.
Það þurfti aðeins 23 stykki af
mönnum til að ná sömu þyngd
og 190 meðaldilkar, enda var
meðalþyngd karlanna 108 kg.
Félagsskapurinn kallar sig
„Belgina" og markmið hans er að
hleypa úr þcim, gera félaga sína
að minni mönnum. Benedikt
Kristjánsson formaóur sagði að
mjög létt væri yfir þcssum þunga
hóp, gaman hefði verið á fyrsta
fundinum og léttur andi ríkt.
Eingöngu karlar fá inngöngu í fé-
lagið, og neitaði formaður að gcfa
skýringu á því jafnréttisleysi.
Félagar kusu Belgjunum stjórn
og er Olafur Jónsson meðstjórn-
andi og mælingamaður; Hrciðar
Hreiöarsson gjaldkeri, Arni Logi
Sigurbjörnsson ritari, Olafur Sig-
urpálsson og Sigmundur Þor-
grímsson eru meóstjórnendur.
A fundinum gæddu félagar sér
á síóustu rjómatertunum og
ákváðu að hittast vikulega til vigt-
Belgirnir á Húsavík, mcðalvigt 23ja fclaga cr 108 kg.
unar og aðhalds. Hópurinn kemur
saman kl. 19.30 á mánudags-
kvöldum í verkalýðssalnum og
byrjar á því aó ganga út og suóur.
Síðan eru sundferðir fyrirhugaðar
á mióvikudögum.
Þaó voru 19 félagar sem mættu
sl. mánudagskvöld og sjá, 33 kg
samtals voru horfin til feðra sinna,
og hafði sá duglegasti misst 4 kg.
Mikill hugur cr í Belgjunum og
arka þcir stórstígir um bæ og fjall,
í glímunni við grömmin. Nýir fé-
lagar eru velkomnir í hópinn, að
sögn Bencdikts. IM
allri starfsemi björgunaraðila í
Mývatnssveit „verður aó telja að
honum hafi hlotið að vera ljósar
þær afieiðingar sem það myndi
hafa aó skjóta í loft upp þvílíku
björgunartæki sem neyðarflugeld-
ur er.“
Niðurstaða héraðsdóms var sú
aó fresta ákvöróun um refsingu
mannsins og láta hana falla nióur
að liðnu einu ári frá dómsuppsögu
ef maðurinn héldi almennt skilorð.
Hæstiréttur staðfesti þessa
dómsniðurstöðu héraðsdóms í öll-
um meginatriðum. Orðrétt segir í
dómi Hæstaréttar: „Á það er fallist
með héraðsdómara, aó ákærða
hafi hlotið að vera ljóst af þekk-
ingu sinni og langri reynslu, að
langlíklegast væri, að afleiðingar
þess að skjóta upp neyóarflugeld-
um yrðu með þeim hætti, sem
raun varð á. Veröur hinn áfrýjaði
dómur því staðfestur um annað en
sakarkostnað.“
I undirrétti var maóurinn
dæmdur til að greióa sýslumann-
inum á Húsavík skaðabætur aó
upphæð rúmar 63 þúsund krónur
vegna útlagðs kostnaðar við leitar-
flug. Auk þess var honum gert að
greiða sakarkostnað, þ.m.t. máls-
vamarlaun skipaös verjanda. Að
þessu viðbættu dæmdi Hæstiréttur
manninn til greiðslu á 35 þúsund
krónum í saksóknaralaun í ríkis-
sjóð. óþh
................................................ .......................................................... tn-'
Þorrablót
Glæsibæjarhrepps
verður haldið laugardaginn 12. febrúar
kl. 20.30 stundvíslega.
Miðapantanir í síma 26090, Herborg og 23613,
Jón, þriðjudaginn 8. febrúar og miðvikudaginn 9. febrúar
milli kl. 20 og 22 baeði kvöldin.
Hreppsbúar fyrr og nú velkomnir.
Nefndin.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Administration ot occupational satety and health
Bíldshöfða 16 - Pósthólf 12200 -132 Reykjavlk
Eigendaskipti vinnuvéla
Tilkynning til eigenda farandvinnuvéla og vinnuvéla um
breytt fyrirkomulag á tilkynningu um eigendaskipti
vinnuvéla.
Frá og með 15. febrúar nk. skal tilkynna eigendaskipti
skráðra farandvinnuvéla og vinnuvéla á þar til gerðum
gíóseðli. Gíróseðlar liggja frammi á öllum pósthúsum
landsins.