Dagur - 05.02.1994, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 5. febrúar 1994
F RAMHALDSSAÚA BJÖRN DÚASON TÓK SAMAN UM VÍÐAN VÖLL
Saga Natans og Skáld-Rósu
17. kafli:
Stuldur íMúla
Aö Múla í Vesturhópi bjó bóndi sá
er Guðmundur hét, hann var auð-
ugur og safnaði peningum.
Geymdi hann sjóð með 144 dölum
í kistu sinni, en hún var illa læst og
stóð í ólæstu framhýsi. Kvöld eitt
kom aö Múla umrenningur sá, er
Helgi hét, á honum lá miðlungi
gott orö. Hann gisti þar og gekk
víða um hús, varð og vart við, að
hann fór ofan um nóttina. Daginn
eftir dvaldi hann á Vatnshorni og
þæfði. Var þá sagt þangað, að
peningum Guðmundar i Múla
hefði verið stolið um nóttina.
Bóndinn á Vatnshorni þóttist sjá
að Helga brá við þessa fregn. Seg-
ir bóndi þá og lætur Helga heyra:
„Þetta kemst víst upp, því Þor-
valdur á Gauksmýri á Þórshamar
og með honum getur hann komið
upp stuldum." Það var Beina-Þor-
valdur og stóð mörgum geigur af
honum.
Varð Helgi órór, fór þaðan um
kvöldið og létti ekki fyrr en hann
kom að Lækjarmóti. Kallaði hann
Natan á einmæli, töluðu þeir lengi
og fór Helgi svo þaðan þegar.
Guðmundur kærði skaða sinn fyrir
Blöndal. Hann prófaði málið, og
bárust likur að Helga en hann
þverneitaði. Þá kvisaðist að Natan
á Lækjarmóti hefði sést vera að
sjóöa upp gamla peninga. Var Nat-
ani þá stefnt, játaði hann að hann
hefði fengið hjá Helga 15 spesíur,
allar gamlar. Helgi neitaði því. Nú
grunaði Blöndal og fleiri að Natan
hefði sent Helga til stuldarins. Aðr-
ir hugðu að Helgi hefði gefið Nat-
ani af peningunum til að vernda
sig fyrir Þórshamri Þorvaldar. En
allir töldu víst, að Natan vissi um
stuldinn með Helga. Gekk Blöndal
fast á Natan, en hann neitaði allri
vitund. Kallaði Blöndal hann þá á
einmæli og leiddi honum fyrir sjón-
ir, að eigi mundi honum annað
hollara en segja sannleikann og
spurði hvort hann gæti synjað fyrir
að hafa sent Helga. Natan svaraði
á þá leið, að eigi hafi hann sent
Helga, en ekki væri sér ókunnugt
um stuldinn. Er mæit að því hafi
Natan svarað þannig, að hann ótt-
aðist að sér yrði dæmdur synjunar-
eiður, en eið vildi hann ekki vinna.
Blöndal á líka að hafa spurt
hvort Natan hefði ekki stolið í
Svartárdal með Bjarna, en hann
hefði svarað tvíræðum orðum í
sama tilgangi. Fyrir réttinum skýrði
Blöndal nú frá því, að Natan hefði
játað yfirhylmingu með Helga. En
þá þrætti Natan fyrir. Við það
gramdist Blöndal svo að hann
mælti I hótunaranda til Natans:
„Ég skal einhvern tíma verða þér
leppur í annan skó." - „Þá veröur
vandfengin dula á móti," svaraði
Natan.
Tók Blöndal nú það ráð að rýma
dómarasæti, fá settan dómara í
málinu en koma sjálfur fram sem
vitni. Setti Grímur amtmaöur Jón
Espólín setudómara í málinu. Þing-
aði hann að Stóru-Borg 9. sept.
1824. Var þangað stefnt Helga,
Natani, Guðmundi í Múla, Blöndal
sýslumanni og fleirum. Með Jóni
Espólín var Jón Ólafsson sterki frá
Hraunum, bróðir Björns Ólsens á
Þingeyrum. Var tilætlun Espólíns,
að Natani skyldi hugfallast, er
hann sæi þá báða, hafði hann
heyrt að Natan væri ekki hugaður.
Og er hann tók að spyrja Natan
gjörði hann sig reiðilegan. Þá
mælti Natan: „Vera má að svo
megi hræða mig, að ég játi á mig
ósönnum sökum. Það sem ég hefi
mest hræðst á ævi minni eru
sterkir menn og mannýg naut."
Bar nú Blöndal vitni um orð Nat-
ans í eintali þeirra. En hann var
einn til vitnis og gilti það eigi móti
neitun Natans.
Þá tók Espólín það til bragðs að
saka Natan um lausamennsku.
Þeirri sök gat Natan ekki neitað og
bauð fébætur, en því var eigi
sinnt. Ekkert vannst á Helga og
svo var þingi slitið.
Natan storkaði Espólín er þeir
kvöddust, kvað lítið hafa orðið er-
indi hans og væri sekum manni
betra að standa 10 sinnum fyrir
rétti hjá honum en einu sinni hjá
Blöndal.
Espólín reiddist og kvað:
Er nú kominn á þig rómur.
Endann fæ ég séöan.
Harönar á þér Drottins dómur
dag frá degi héðan.
Kveiji þig allskyns kynja skæö
kvöld og Datan-glatan.
Brenni þér sinar blóð og æö
bölaður Natan, Satan.
Natan svaraði: „Guð ræður, en
mennirnir þenkja. Hver á að
ábyrgjast orð sín sjálfur."
Espólín iðraðist vísnanna síðar,
en þaö er önnur saga. Hann kvað
upp dóm í málinu 16. sept. 1824.
Var Helgi sýknaður en skyldi þó
borga 1/3 málskostnaðar. Natan
skyldi hýða 10 vandarhögg og
borga 2/3 málskostnaöar. Skaut
hann dóminum til landsyfirréttar
og var málskostnaði þá skipt jafnt
en Natan fékk 15 vandarhögg og
undi illa við. Hann kvað:
Égerþrotinn allskonar
yndisnotum farsældar,
elfum flotinn angistar,
örvum skotinn bölvunar.
Espólín hæddist um dóm Nat-
ans og kvað:
Nú skal flengja Natan dreng
nauða vöndur stóri.
Sig mun engja saman í keng
Satans ára stjóri.
Úr myndasafni Dags:
Ungirog
eMegir
Flestir sem fylgst hafa meó skákíþróttinni á Akureyri
ættu aó kannast vió svipinn á þessum ungu drengjum.
Frá vinstri: Skapti Ingimarsson, Tómas Hermannsson
og Rúnar Sigurpálsson. Myndin er tekin árió 1986
þegar félagamir voru aö fara meó íslensku unglinga-
landsliöi til Bandaríkjanna. Rúnar er einn öflugasti
skákmaöur Skákfélags Akureyrar um þessar mundir
og Skapti og Tómas hafa einnig verió nokkuó í sviós-
ljósinu,
DACSKRÁ FJÖLMIDLA
SJÓNVARPIÐ
LAUGARDAGUR
5. FEBRÚAR
09.00 Morgunijinvarp
bamanna
Kynnir ei Rannveig Jóhannsdótt-
ir. Stundin okkar. Felix og vinir
hans. Norræn goðafræði. Sinbað
sæfari. Galdrakarlinn í Oz.
Bjarnaey. Tuskudúkkurnar.
11.00 Bindi er bústilpl
Ný, heimildarmynd um landbún-
að. Áður á dagskrá 23. janúar.
11.45 Er bóndi bústilpl?
Samantekt úr umræðuþætti um
íslenskan landbúnað sem sýndur
var 25. janúar.
12.55 Staiur og stund
Heimsókn.
13.10 f sannlelka sagt
14.15 Syrpan
14.40 Einn-x-tvelr
14.55 Enska knattspyraan
Bein útsending frá leik Manc-
hester City og Ipswich.
16.50 fþrðttaþátturinn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Draumastelnninn
(Dreamstone).
18.25 Verulelldnn - Að leggja
rækt við beraskuna
Níundi þáttur af tólf um uppeldi
baina frá fæðingu til unglingsára.
18.40 Eldhúslð
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Strandverðlr
(Baywatch ni) Bandarískur
myndaflokkur um ævintýralegt lif
strandvarða í Kaliíorníu. Aðal-
hlutverk: David Hasselhof, Nicole
Eggert og Pamela Anderson.
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Lotti
20.45 Slmpson-fjðlskyldan
(The Simpsons)
21.15 Bilogblti
(B & B) Bresk fjölskyldumynd frá
1992 sem gerist á suðurströnd
Englands. Atvinnulaus aikitekt
bregður á það ráð að breyta húsi
sinu í gistiheimili. Reksturinn
gengur vel en fjandvinur arki-
tektsins ætlar sér að komast yfir
lóðina, rifa húsið og reisa i stað-
inn orlofsibúðir. Leikstjóri: Gra-
ham Dixon. Aðalhlutverk: Kevin
Whately, Alexandra Millman, Jo-
anna Kanska, Kate Murphy og
Ian McNeice.
23.00 Gaukshrelðrlð
(One Flew Over the Cuckoo's
Nest) Bandarísk óskarsverð-
launamynd byggð á sögu eftir
Ken Kesey. Fangi er lagður inn á
geðsjúkrahús til rannsóknar.
Meðan á dvöl hans stendur
stappar hann stálinu í aðra vist-
menn og hvetur þá til að láta
ekki fara með sig eins og skyn-
lausar skepnur. Leikstjóri: Milos
Foreman. Aðalhlutverk: Jack Nic-
holson, Louise Fletcher, Will
Sampson, Danny DeVito, Christ-
opher Lloyd og Scatman Crot-
hers. Kvlkmyndaeftirllt ríkls-
ins teiur myndina ekkl hæfa
áborfendum yngri en 16 ára.
01.10 Útvarpsfréttlr i dagskrár-
lok
SJÓNVARPIÐ
SUNNUDAGUR
6. FEBRÚAR
09.00 Morgunsjinvarp
barnanna
Kynnii er Rannveig Jóhannsdótt-
ii. Perrine. Söguhornið Anna Sig-
ríður Árnadóttir segir ævintýrið
af pönnukökukónginum. Gosi.
Maja býfluga. Dagbókin hans
Dodda.
10.50 Hlé
11.00 Messa
Upptaka frá guðsþjónustu í Innri-
Njarðvikuikirkju. Prestur er séra
Baldur Rafn Sigurðsson og organ-
isti Steinar Guðmundsson.
13.00 Ljisbrot
13.45 Siðdeglsumræðau
15.00 Dabbl ðnd og félagar
(Daffy Duck: Quackbusters)
16.20 Badmlnton
Bein útsending frá úrslitum í ein-
liðaleik karla og kvenna á ís-
landsmótinu í badminton sem
fram fer i Laugardalshöll.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 SFK
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Boltabullur
(Basket Fever) Teiknimynda-
flokkur um kræfa karla sem útkljá
ágreiningsmálin á körfuboltavell-
inum.
19.30 Fréttakrinlkan
20.00 Fréttir og íþrittlr
20.35 Veður
20.40 Fólkið í Forsælu
(Evening Shade) Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur i léttum
dúr með Burt Reynolds og Marilu
Henner í aðalhlutverkum.
21.10 Þrenns konar ást
(Tre Kárlekar II) Framhald á
sænskum myndaflokki sem sýnd-
ur var í fyrra og naut mikilla vin-
sælda. Þetta er fjölskyldusaga
sem gerist um miðja öldina. Leik-
stjóri: Lars Molin. Aðalhlutverk:
Samuel Fröler, Ingvar Hirdwall,
Jessica Zandén og Mona Malm.
22.05 Jirunn Viðar tinskáld
Þáttur um tónlist Jórunnar og
æviferil i tilefni af 75 áia afmæh
hennar í desember sl. Jórunn
stundaði nám í Berlín á árunum
fyrii síðari heimsstyrjöld og
seinna í Juilhard-skólanum í New
York. Hún hefur lengi verið með-
al fremstu tónskálda þjóðarinnar,
kom margoft fram sem einleikari
á píanó og hefur kennt við Söng-
skólann í Reykjavík frá stofnun
hans. í þættinum ræðir Valgarður
Egilsson við Jórunni um lif henn-
ar og hst og flutt er tónhst eftii
hana.
23.05 Kontrapunktur
Noregur - Finnland Annar þáttur
af tólf þar sem Norðurlandaþjóð-
irnar eigast við i spuminga-
keppni um sígilda tónhst.
00.05 Útvarpsfréttlr i dagskrár-
lok
SJÓNVARPIÐ
MÁNUDAGUR
7. FEBRÚAR
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Tðfraglugginn
18.25 Iþrittahornlð
18.55 Fréttaskeyti
19.00 Staður og stund
Heimsókn í þáttunum er fjallað
um bæjarfélög á landsbyggðinni.
í þessum þætti er htast um á
Skagaströnd.
19.15 Dagsljis
20.00 Fréttlr
20.30 Veður
20.35 Gangur lifsbis
(Life Goes On II) Bandariskur
myndaflokkur um hjón og þrjú
börn þeirra sem styðja hvert ann-
að i bhðu og striðu. Aðalhlutverk:
Bhl Smitrovich, Patti Lupone,
Monique Lanier, Chris Burke og
Kelhe Martin.
21.25 Já, forsætisráðherra
(Yes, Prime Minister) Breskur
gamanmyndaflokkur um Jim
Hacker forsætisráðherra og sam-
starfsmenn hans. Aðalhlutverk:
Paul Eddington, Nigel Haw-
thorne og Derek Fowlds. Endur-
sýning.
22.00 Toni Morrlson
(Toni Morrison: Ett multiportrátt)
Þáttur frá sænska sjónvarpinu
um bandarísku skáldkonuna Toni
Morrison sem hlaut nóbelsverð-
laun í bókmenntum 1993.
22.30 Gjðfin
(Tuhainen) Finnsk stuttmynd um
unga stúlku sem stendur frammi
fyrii breytingum á lífi sinu. Hvað
er orðið um pabba hennar? Af
hverju er annar maður fluttur
inn? Hafa mamma hennar og nýi
maðurinn gert eitthvað sem eng-
inn má vita? Leikstjóri: Janne
Kuusi.
23.00 Ellefufréttir og skákskýr-
lngar
23.25 Dagskráriok
STÖÐ 2
LAUGARDAGUR
5. FEBRÚAR
09:00 MeðAfa
10:30 Skot og mark
10:55 Hvitl úlfur
11:20 Brakúla greifi
11:45 Ferð án fyrlrhelts
(Odyssey II)
12:10 Likamsrækt
í stað handlóða má nota 250 g -1
kg sandpoka. Leiðbeinendur:
Ágústa Johnson, Hrafn Frið-
björnsson og Glódís Gunnars-
dóttir.
12:25 Evripski vinsældalistinn
13:20 Fasteignaþjinusta
Stððvar 2
13:55 Heimsmeistarabridge
Landsbréfa
íslendingar urðu heimsmeistarar
í bridge árið 1991 og í þessum
þáttum skýrir Guðmundur PáU
Arnarsson leikina gegn sveit
Bandarikjamanna. Þættirnir eru
tuttugu talsins og eru ætlaðir
jafnt byrjendum sem lengra
kornnum.
14:15 Grand Prix mitlð í
snóker
Stöð 2 hefur nýlega fest kaup á
nokkrum snókermótum frá Bret-
landi í samvinnu við snókerstofur
á Reykjavikursvæðmu. Hér verð-
ur sýnt fyrsta mótið og er það
sjálft Grand Prix mótið.
15:10 3 BÍÓ
Hundasaga (Footrot Flats) Hund*
ur er aðalsöguhetja þessarar
teiknimyndar. Hann er einhver
vinsælasta teiknimyndahetja
Ástralíu og í þessari mynd fáum
við að fylgjast með honum og
vinum hans.
16:20 NBA tilþrif
16:45 Gerð myndarinnar Mrs.
Doubtfire
í þessum þætti verður fylgst með
gerð myndarinnar Mrs. Doubtfire
og spjallað við leikara og leik-
stjóra.
17:00 HótelMarlin Bay
(Marlin Bay)
18:00 Popp og kók
18:55 Falleg húð og frískleg
Nú endursýnum við fyrsta þátt-
inn í þessari fróðlegu íslensku
þáttaröð þar sem fjallað er um
umhirðu húðarinnar. í þessum
þætti verður fjallað almennt um
húðina, uppbyggingu hennar,
starfsemi og utanaðkomandi
þætti, eins og hita, kulda og
snyrtivörur.
19:1919:19
20:00 Falin myndavél
(Beadle's About) Gamansamur
breskur myndaflokkur með háð-
fuglinum Jeremy Beadle.
20:35 Imbakassinn
Grínrænn spéþáttur með dægur-
ívafi. Umsjón: Gysbræður.
21:00 Á norðurslóðum
(Northern Exposure) Skemmti-
legur og lifandi framhaldsmynda-
flokkur um ungan lækni í smábæ
í Alaska.
21:50 Töfralæknirinn
(Medicine Man) Lengst inni í
regnskógum Suður-Ameríku
starfar fluggáfaður en sérlundað-
ur vísindamaður sem hefur öllum
að óvörum fundið lækningu við
krabbameini. En bjöminn er ekki
unninn því hann hefur týnt form-
úlunni og leitar hennar nú í kapp-
hlaupi við tímann. Regnskógur-
inn eyðist ört og vísindamaður-
inn má engan tima missa. Hon-
um verður því illa við þegar hann
fær óvænta heimsókn kvenmanns
sem er ætlað að hafa auga með
honum og leggja mat á störf
hans í frumskóginum. Aðalhlut-
verk: Sean Connery, Lorraine
Bracco og Jose Wilker.
23:30 Strákarnir í hverfinu
(Boyz N the Hood) Tre Sty-
les er alinn upp af föður sínum
sem reynir allt hvað hann getur
til að halda drengnum frá glæp-
um í hverfi sem er undirlagt af
klíkuofbeldi og eiturlyfjasölu.
Bræðurnir Doughboy og Ricky
eru vinir Tres en þeir feta sína
slóðina hvor. Doughboy kemst
hvað eftir annað í kast við lögin
en Ricky reynir að mennta sig og
stofnar fjölskyldu. En þegar Ric-
ky er skotinn til bana á götu úti
er Doughboy kennt um hvernig
fór. Hann er staðráðinn í að hefna
bróður síns og reynir að fá Tres
til að leggja sér lið. Myndin fær
þrjár stjömur í kvikmyndahand-
bók Maltins og þykir lýsa því
ófremdarástandi, sem ríkir í fá-
tækrahverfum bandarískra stór-
borga, einkar vel. Aðalhlutverk:
Larry Fishburne, Ice Cube, Cuba
Gooding Jr. og Nia Long.
Stranglega bönnuð bömum.
01:25 Ofsahræðsla
(Fear Stalk) Jill Clay-
burgh fer með hlutverk framleið-
anda sjónvarpsefnis sem kemst
að því að geðsjúklingur eltir hana
á röndum og fylgist með öllu sem
hún gerir. Hann hefur það í huga
að taka völdin í lifi hennar og hún
verður að koma í veg fyrir það
með öllum mögulegum ráðum.
Aðalhlutverk: JUl Clayburgh og
Stephen Macht. Bönnuð böm-
um.
03:00 Gegn vilja hennar
(Without Her Consent) Þessi
átakanlega kvikmynd er byggð á
sannri sögu og segir frá Emily
Briggs sem flytur frá smábæ til
stórborgarinnar Los Angeles.
Ágætis kunningsskapur tekst
með henni og nágranna hennar,
Jason. Jason býður Emily heim
og misnotar hana kynferðislega.
Emily segir engum frá atburðin-
um til að byrja með en hann hef-
ur mikil áhrif á hana og eitrar
samband hennar og unnusta
hennar. Aðalhlutverk: Melissa
Gilbert, Scott Valentine, Barry
Tubb og Bebe Neuwirth.
Stranglega bönnuð bömum.
04:35 Dagskrárlok Stöðvar 2
STÖÐ 2
SUNNUDAGUR
6. FEBRÚAR
09:00 Sódl
09:10 Dynkur
09:20 Lísa í Undralandi
09:45 Undrabæjarævintýr
Nýr teiknimyndaflokkur með ís-
lensku tali sem fjallar um 10 ára
grallara og sextugan vin hans
sem búa í Undrabæ og lenda í
spennandi ævintýrum.
10:10 Sesam opnist þú
10:40 Súper Maríó bræður
11:00 Artúr konungur og ridd-
aramir
11:30 Blaðasnápamir
(Press Gang)
12:00 Á slaginu
Hádegisfréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Kl.
12:10 hefst bein útsending úr
sjónvarpssal Stöðvar 2 frá um-
ræðuþætti um málefni liðinnar
viku.
ÍÞRÓTTIR Á SUNNUDEGI
13:00 NISSAN deildin
13:25 itaiskl boltinn
15:15 NBAköríubolUnn
16:10 KeUa
16:20 Golfskóli Samvinnuferða-
Landsýnar
Skemmtilegir og fróðlegir þættir
fyrir golfara, bæði byrjendur og
þá sem lengra eru komnir. Leið-
beinandi er Arnar Már Ólafsson
en hann hefur áralanga reynslu
sem golfkennari.
16:35 Imbakassinn
17:00 Húsið á sléttunni
(Little House on the Prairie)
18:00 í sviðsljósinu
(Entertainment This Week)
18:45 Mörkdagsins
19:1919:19
20:00 Lagakrókar
(L.A. Law)
20:50 Straumar vorsins
(Torrents of Spring) Heill-
andi og rómantísk kvikmynd sera
gerð er eftir sögu rússneska rit-
höfundarins Ivans Turgenev.
Myndin fjallar um forboðnar ástir
og heitar ástríður. Dimitri Sanin
er rússneskur óðalseigandi. Hann
er á ferðalagi um Evrópu þegar
hann kynmst þýskri konu, trúlof-
ast henni og býr sig undir að
setjast að í heimalandi hennar.
Hann heldur því heim til Rúss-
lands í því skyni að selja landar-
eign sína en þá taka örlögin í
taumana. Dimitri fellur flatur fyrir
eiginkonu vinar síns og ástin
blómstrar enn á ný. Aðalhlut-
verk: Timothy Hutton, Nastassia
Kinski, Valeria Golino og William