Dagur - 05.02.1994, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 5. febrúar 1994
POPP
MAÚNÚS CEIR CUÐMUNDSSON
Diskó, friskó
- cnn lifir í gömlom glmðum
Páll Óskar brá sér í líki diskóstjörnunnar á plötunni sinni Stuð.
Chic, Grace Jones,
Donna Summer, Diana
Ross, Tina Charles, Vi-
lage people, Boney M,
Bee Gees, John Tra-
volta, Sylvester og Amy Stewart,
eru á meðal margra annarra
frægra nafna, sem tengjast um
margt nokkuð merkilegu tímabili
í popptónlistarsögunni, diskó-
tímabilinu. Á mestum hluta
skeiðs sins, sem segja má aó
hafi staðið frá upphafi til loka átt-
unda áratugarins, var diskótón-
listin nefnilega óhemju áhrifamik-
il og í raun á tímabili nær allsráð-
andi hvað almenna vinsældatón-
list varóaói. Er því ávallt talaó
um „diskóbylgjuna" eða „æðið“
þegar fjallaó er um þetta tímabil,
sem afmarka má nokkurn veginn
við árin 1975-1979.
Menningarfyrirbsri
Þótt diskóbylgjan hafi alið af sér
margar stjörnur, eins og fram
kom hér í upphafi, á svipaðan
hátt og aðrar poppstefnur og
rokkið, þá minnast menn hennar
e.t.v. frekar sem víðtæks og
nokkuó sérstæðs menningarfyr-
irbæris, með upphafi, góðu risi
og endi, líkt og vel smíóuð bók.
Vissulega var og er ýmislegt
spunnið í sumar diskóstjarn-
anna, Bee Gees, Diönu Ross og
Travolta til dæmis, en þaó er
glysinn og glaumurinn, Ijósa-
dýrðin og dansinn sem gerir
diskóið minnisstætt. Umgjörðin
utan um allt saman og það sem
segja má að hafi skipt mestu
máli í að gera diskóið sérstakt,
var svo auóvitaó diskótekið sjálft
meó sinn „DJ“, „diskódjönkara",
sem síðan hefur í daglegu tali
nefnst plötusnúður á íslensku,
meó sína tvo plötuspilara og
hljóðnema.
Þeirra hlutur er aó mati
margra tónlistarspekinga ekki
síðri í diskóbylgjunni en tónlistar-
innar sjálfrar og vel aó merkja,
þá lifðu þeir af þótt diskóæðið
sem slíkt liói undir lok.
Diskóplötusnúðarnir voru þó ekki
þeir fyrstu af þessu tagi, því fyrir-
myndina sóttu þeir eins og svo
margt annað til blökkumanna, en
í samkvæmum hjá þeim varð
þessi siður vinsæll á fimmta ára-
tugnum og færðist svo inn í rokk-
ið á þeim sjötta. En í diskóinu
mótaðist hins vegar plötusnúóur-
inn og skapaði sér ímynd, sem
síðan hefur þróast enn frekar og
er einna merkust nú í rappinu.
fifturgöngur
Þrátt fyrir að diskóið hafi liðið
undir lok og dánarvottorðió und-
irritað í lok áttunda áratugarins,
má segja að líkt og pönkió hefur
gert svo eftirminnilega í t.d.
Seattlerokkinu, hafi þaó gengið
aftur í nýju líki og þaó með litlu
minni áhrifum. Er þar vitaskuld
átt við danstónlistina í víðasta
skilningi, House, Rave, Trance
og hvað sem þetta nú allt kallast,
sem nú um árabil hefur verið
mjög vinsæl hjá æsku heimsins
og nokkuð gróskumikil. Áberandi
fylgifiskar hennar eru líka
„DJarniC og ekki síður tæknin,
sem líkt og í diskóinu spilaói
stóra rullu, hljóðgervlar, hljóm-
borð, „samplerar" o.s.frv. og sér
ekki fyrir endann á því öllu sam-
an ennþá. Áhrifamáttur plötu-
snúðanna nú í danspoppinu er
þó ekki eins mikill og áóur. Á
diskótímabilinu voru plötusnúó-
arnir einfaldlega einráóir og því
lítill grundvöllur fyrir hljómsveitir
að spila á dansstöðum. Lauk
diskótónlistarmaður þ.a.l. nær
sínu hlutverki þegar plötuupp-
töku sleppti. Nú er hins vegar
meira jafnvægi þarna á milli. Að
auki hafa svo menn gert sér það
aó leik aó „dubba" upp á gamla
góða diskóið sjálft í heióursskyni
eða til gamans.
Diskóstuð Póls Óskars
Til að rifja upp bernskuár sín
þegar diskóið var enn við líði og
raunar í algleymingi, gerði hann
Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari
og „sjarmör“meó meiru sér lítið
fyrir og gaf út undir jólin heila
plötu því til heiðurs með hjálp
góðra manna á borð við Sigurjón
Kjartansson leiðtoga HAM.
Nefndist gripurinn eins og sjálf-
sagt flestir vita Stuó og fékk bara
hinar ágætustu viðtökur. Sem
minningar- og heiðursplata er
hún líka hin ágætasta og hvorki
betri né verri en margar slíkar frá
tíma diskósins. Páll lætur hins
vegar vonandi þar við sitja, því í
sannleika sagt er hann hvorki
besti né skemmtilegasti
diskó/danssöngvari sem maóur
gæti hugsað sér. Aftur á móti
verður fróðlegt að sjá hvernig
hann spjarar sig meó Milljóna-
mæringunum í stað Bogomils,
en þaó vandfyllta skarð tók Páll
að sér að fylla í haust þegar sá
fyrrnefndi hvarf á braut til út-
landa.
I sífeikflri swiflu
- mcd Gcirmundi
Pað þarf ekki fyrir einu
einasta mannsbarni
að kynna sveiflukóng-
inn frá Sauóárkróki,
Geirmund Valtýsson,
svo „heimsfrægur" á íslandi er
hann orðinn. Hefur Geirmundur
með afbragðs árangri, starfrækt
hljómsveit sína í Skagafiróinum,
sem svo þeyst hefur landshorna
á milli í rúman aldarfjórðung og
virðist ekkert lát ætla að verða á
ennþá. Sem kunnugt er hefur
Geirmundur ekki hvað síst verið
áberandi í undankeppnunum fyr-
ir „júróvision", en í þeim hefur
hann átt lög í nær hvert einasta
skipti. Honum hefur þó aldrei
tekist að sigra, sem er nokkuð
kaldhæðnislegt í Ijósi þess að
tvö lög, bæði í flutningi Stjórnar-
innar, Eitt lag enn og Nei eöa já,
sem sigruðu hér heima og náðu
svo bæði langt í úrslitakeppnun-
um, voru óumdeilanlega í „hans“
skagfirskættaða sveiflustíl og
það sem meira er, hið fyrrtalda
var eftir Höró Ólafsson, sem ver-
ið hafði bassaleikari í hljómsveit
Geirmundar til margra ára. En
hvað sem því hefur lióið, lætur
Geirmundur engan bilbug á sér
finna og heldur áfram sínu striki
sem áóur segir.
Prjár plötur síðustu
fimm ár
Auk þess að hafa verið duglegur
vió að spila og taka þátt í Evr-
ópusöngvakeppninni, hefur Geir-
mundur síóustu árin, eins og
reyndar þau fyrri líka, verið
drjúgur við að semja lög og gefa
þau út á plötum. Á síðasta ári
voru einmitt rúm tuttugu ár frá
því að hans fyrsta og jafnframt
eitt allrafrægasta lag, Nú er ég
léttur, kom út. Var það á lítilli
plötu ásamt laginu Nú kveð ég
allt á B-hlið, sem Tónaútgáfan
hans Pálma Stefánssonar
(Pálma í Tónabúðinni) gaf út árið
1972. Nú síðustu fimm árin hefur
Geirmundur svo sent frá sér
þrjár plötur í fullri lengd, í syngj-
andi sveiflu árið 1989, Á fullri
ferð 1991 og svo Geirmundur nú
fyrir jólin.
Eás tvö birti um síðustu helgi
niðurstöður könnunnar
sinnar yfir það besta á ár-
)93 af innlendum tónlistar-
vettvangi. Er það orðinn árlegur
viðburður á rásinni að vera með
svona val og taka jafnan 30-40
þátt ( þvi. Helstu niðurstöður voru
þær að Todmobile var bæði talin
eiga bestu plötuna, Spillt, og
besta lagið, Stúlkan. Tónlistarvið-
burður ársins voru taldir lokatón-
leikar Rafns Jónssonar og bjart-
asta vonin var kosin Bubbleflies...
Tónleikaplata með Husker
Du, gömlu hljómsveitinni
hans Bobs Mould, nú for-
sprakka Sugar, mun nú vera að
líta dagsins Ijós, allnokkru eftir
endalok hennar. Er um að ræða
plötu sem unnið var að árið 1987,
en var aldrei fullkláruð. Mun grip-
urinn eiga að heita The living end
og geyma auk gamalkunnugs efn-
is, tvö áður óheyrð lög..
Eins og menn fengu að sjá í
sjónvarpinu um síðustu helgi
í þætti með hinni írsku Sine-
ad O' Connor er ekkert lát á
„Unplugged" æðinu og sér víst
ekki fyrir endann á því ennþá.
Dagskráin hjá MTV sjónvarps-
stöðinni, sem stendur fyrir þess-
um tónleikum eins og kunnugt er,
nú f febrúar er t.d. ekki af verri
endanum, nefnilega með Nirvana,
Pearl Jam og Stone temple pilots.
Verður fróðlegt að sjá hvort svo
ekki eitthvaó af þessu rati ekki
síðan í plötuútgáfu...
Fyrir skömmu kom út safnplata
til styrktar dýraverndun, sem
skartar áður óútgefnum lög-
um með Pearl Jam, Michael Stipe
söngvara REM, Lush, Disposable
heroes of hiphoprisy og Helmet
m.a. Nefnist platan In defense of
animals. Önnur slík á vegum
Grænfriðunga er svo væntanleg
Primal Scream með nýtt lag bráðlega f útgáfu
Pearl Jam eru sérstakir vinir dýr-
anna.
þar sem m.a. REM, U2, James,
Sonic youth og Disposable hero-
,es.. leggja til lög...
Breska sveitin framsækna,
Primal Scream, sem sló f
gegn 1991 með plötunni
Screammedalica, sendir frá sér
nýtt lag (lok þessa mánaðar sem
nefnist Rocks. Mun lagið að sögn
vera i anda Rolling Stones. Ný
plata, sú fjórða f röðinni, kemur
svo út í mars.,.
■4 Geirmundur Valtýsson er enn á
fullri ferð í sveiflunni. Sýningu með
honum verður hleypt að stað í Sjall-
anum um næstu helgi.
Við sama heygarðs-
hornið
Líkt og með hljómsveitarstarf-
semina og fleira heldur Geir-
mundur sig á svipuðum nótum á
nýju plötunni, sem nefnist eins
og áður sagði, einfaldlega Geir-
mundur. Er sem sagt við sama
heygarðshornið, ýmist á sveiflu-
nótunum eða þeim Ijúfu í sveita-
ballöðuanda. Söngvarar Geir-
mundi til aðstoðar eru líka kunn-
uglegir frá fyrri plötum, Ari Jóns-
son, sem sungið hefur lengur
með Geirmundi en elstu menn
muna, Guðrún Gunnarsdóttir og
Helga Möller m.a. Það er því
ekkert sem kemur á óvart á
plötunni enda líklega heldur ekki
ætlunin. Á plötunni er þó aó
finna lög sem sanna aó kappinn
er ekki alveg dauður úr öllum
æðum t.d. Ég skemmti mér og
Að vona sem Ari syngur og
Komdu til mín aftur sem Helga
syngur. Geirmundur hefur því
væntanlega ekki valdió aðdá-
endum sínum vonbrigðum með
plötunni. Hins vegar finnst mér
persónulega miklu skemmtilegra
að sjá hann og félaga á sviði.
Tækifæri á því gefst einmitt á
komandi vikum og mánuðum,
því næsta laugardagskvöld, 12.
febrúar, hefst nefnilega í Sjallan-
um Geirmundarsýning, sem eins
og fram hefur komið áður í Degi,
er áætlaó að muni ganga á
hverju laugardagskvöldi fram í
apríl. Munu þar koma fram
ásamt Geirmundi og félögum
þær stöllur Guórún Gunnars og
Helga Möller og svo hann Ingvar
Grétars. Yfirumsjónarmaður og
kynnir er síóan enginn annar en
„stríðsfréttaritarinn" margfrægi
„Haffi" Helga, B. Hafþór Helga-
son.