Dagur - 05.02.1994, Blaðsíða 19
Laugardagur 5. febrúar 1994 - DAGUR - 19
Sinfóníuhlj óms veit N or ðurlands:
Marta G. Halldórsdóttir einsöngvari
á Vínartónleikum á sunnudaginn
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
heldur árlega Vínartónleika
sína á sunnudaginn. Eru það
aðrir tónleikar hljómsveitarinn-
ar á þessum vetri en sú hefð hef-
ur skapast í tónlistarlífi á Akur-
eyri að haldnir séu Vínartón-
leikar í febrúar. Það voru for-
ráðamenn Kammerhijómsveitar
Akureyrar, forvera Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands, sem
fyrst efndu til Vínartónleika og
skópu þá hefð er hin nýstofnaða
hljómsveit starfar eftir. Stjórn-
andi á Vínartónleikunum á
morgun verður Gerrit Schuil og
einsöngvari Marta G. Halldórs-
dóttir, sópransöngkona, en hún
vinnur nú að uppfærslu Operu-
draugsins ásamt öðru tón- og
leiklistarfólki hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar.
Marta kom heini frá námi á
síðasta ári cn hún hefur stundaó
söngnám í níu ár; fyrst hjá Sieg-
linde Kahman cn síðan í Miinchen
þar sem hún lauk Diplom prófi frá
Hochschule fur Musik vorið 1990.
En að því loknu stundaði hún
framhaldsnám um tveggja ára
skeið við sarna skóla. Marta hcfur
tckið þátt í ýmsum tónlistarvið-
buróum, bæði á námsárum sínum
í Þýskalandi og cinnig hcr hcinia
en verkefni hcnnar í Operu-
draugnum verður fyrsta stóra hlut-
vcrk hennar á leiksviði hér á
landi.
Marta kvaóst í fyrstu hafa
stundað nám í píanóleik en þar
sem hún væri af söngelskri fjöl-
skyldu og hafí alist upp vió mik-
inn söng þá hafi hún snemma
fengið áhuga á að leggja söng-
námið fyrir sig. Á 16. ári hafi hún
stigið sín fyrstu spor á leiksviði
þegar Litli sótarinn var vcrið sett-
ur upp í íslensku óperunni. „Nú cr
ég að fara á óperusvið að nýju í
Opcrudraugnum hjá Leikfélagi
Akureyrar. Þórhildur Þorlcifsdótt-
ir, leikstjóri, hal'ði samband við
mig og bauð ntér að koma í prufu
og í íramhaldi af því var ákveóið
að ég tæki þátt í uppfærslunni."
Marta kvaðst þó ekki hafa
stefnt að ópcrusöng í fyrstu heldur
hafi hah áhugi sinn fremur bcinst
að ljóðasöng og óratoríum. „Vera
má að það stafi af áhrifum frá því
tónlistárumhverfi sem ég er vaxin
úr. Eg var hcppin aó komast inn í
skóla í Þýskalandi þótt það tæki
mig nokkurn tíma að finna mér
kennara. Það er orðið erfitt að fá
inni í söngnámi. Vegna þess
hversu mikið framboð er á söngv-
urum þar í landi er farió að beita
ströngum takmörkunum á því
sviði. Fyrsta námsárið mitt í
Þýskalandi var ég hjá sérstaklcga
formföstum kennara, sem nálgað-
ist námsefnið með mjög fræðileg-
um hætti. Hann skýrði hvern tón
nákvæmlega út og cyddi oft til
þcss heilunt fyrirlestri. Eg var
nærri þögnuð undir öllum þcssum
fræðilegu útskýringum. Ef til vill
vegna þess að ég var ekki komin
nægilega langt í nániinu til að
meótaka allan þann fróöleik. Á
öðru námsári skipti ég um kcnn-
ara. Eg komst þá í nám hjá konu
af grískum ættum - sérstaklega lif-
andi og skemmtilegri persónu.
Mér var mikil upplifun aö njóta
tilsagnar hennar og handleiðslu.
Mér fannst sem ég væri að ncma
nýtt land hvaö sönginn snerti. Eg
get sagt aó þótt ég hafi ekki stefnt
sérstaklega að óperunni í upphafi
þá breytti námió þessari afstöðu
minni nokkuð og óperuáhuginn
tók aó vaxa með árunum." Marta
kvaðst hafa mikla þörf til að tjá
sig í söngnum og þegar röddin
svari þessari þörf ekki lengur þá
komi nárnið og þjálfunin til og
hjálpi henni áfram.
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
svcitar Noröurlands verða fiutt
verk eftir Tsjækovskí, Rossini, Jo-
han Strauss, Lehár, Stolz og
Sieczynski. Af einstökum verkurn
má nefna þætti úr Svanavatni
Tsjækovskís og Semiramidc Ross-
inis. Þá verða einnig llutt vel
þekkt lög eftir Johan Strauss.
Marta G. Halldórsdóttir kvaðst
hlakka til að takast á viö þetta
verkefni sem Vínartónleikarnir á
morgun væru. Vínartónlistin væri
skemmtileg viðfangs og gæfi
söngvurum góð tækifæri. ÞI
K.A. heimilið
v/Dalsbraut, sími 23482.
★ Nýjar perur.
★ Munið ódýru morguntímana frá kl. 8-14 aðeins kr.
280,-
★ Komið og fylgist með ungu og efnilegu afreksfólki við
leik og störf.
★ Alltaf heitt á könnunni.
Stórir og litlir salir fyrir veislur og árshátíðir.
BJORN SIGURÐSSON
HÚSAVÍK
FÓLKSFLUTNINGAR - VÖRUFLUTNING AR
HÚSAVIK - AKUREYRI - HÚSAVÍK
10/1 -1/6 1994
Sun. Mán. I>ri. Mið. Fim. Fös. I.au.
Frá Húsavík ♦ 8:00 * 8:00 8:00 8:00 *
19:00 16:45 16:45 16:45 16:45 16:45
Frá Akureyri • 7:30 7:30 7:30 7:30 7:30 *
* 15:30 * 15:30 15:30 15:30 *
* * * * * 18:30 *
Samtenging við ferðir Norðurleiðar mánu-, miðviku-, fimmtu- og föstudaga
AFGREIÐSLUR
Húsavík: Shell-Nesti Héðinsbraut 6, (farþegar) s:41260
BHS hf. Garðarsbraut 7, (pakkar) s:42200
Akureyri: Umferðarmiðstöðin Hafnarstræti 82, s:24442
Tilboð óskast!
Vátryggingafélag íslands hf á Akureyri, óskar eftir
tilboöum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum.
1. MMC Lancer GLX ..........árgerð 1989
2. MMC Lancer EXE ..........árgeró1988
3. MMC Galant GLS .........árgerð 1987
Bifreiðarnar veróa til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VIS
aö Furuvöllum 11, mánudaginn 7. febrúar n.k.
frákl. 9.00 til 16.00.
Tilboðum sé skilað á sama staó fyrir kl. 16.00 sama dag.
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANiDS HF
Til sölu 157 fm
EINBÝLISHÚS
í MÝVATNSSVEIT
Húsinu má skipta í tvær íbúðir. Veró kr. 5.900.000,-
Sumar- eða heilsárshús, í nágrenni við verslun, veit-
ingasölu og sundlaug.
Fasteignasalan hf.,
Gránufélagsgötu 4, Akureyri.
Opið frá kl. 10-12 og 13-17.
Sími 96-21878.
Myndriti 96-11878.
Hermann R. Jónsson, sölustjóri, heimasími 96-25025.
Traust þjónusta í 20 ár.
Auglýsing um styrki
og lán til þýðinga
á erlendum bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981, reglugerð nr. 638/1982
og breytingu nr. 102/1992 um þýðingarsjóð, er hlutverk
sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu
vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli.
Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök.
3. Geró og frágangur verka fullnægi almennum gæóakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1993 nemur 7
milljónum króna.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóónum fást í
afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, og skulu umsóknir hafa borist ráðu-
neytinu fyrir 15. mars nk.
Reykjavík 2. febrúar 1994.
Menntamálaráðuneytið.
Markaðsfræðingur
Lítið iðnfyrirtæki á Akureyri þarfnast strax mark-
aðsfræðings í hlutastarf. Reynsla í markaðsmálum,
góð tölvu og ensku kunnátta nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir sendist afgreiðslu Dags merkt
„Markaðsfræðingur 94“.