Dagur - 05.02.1994, Page 20
Hópur hagsmunaaðila á Akureyri:
Vetrarbærinn kynntur af krafti
- auglýsingaherferð og útgáfa dagskrár á döfínni
Sjö manna hópur hagsmunaað-
ila í veitingarekstri og ferða-
þjónustu á Akureyri er nú að
undirbúa öflugt kynningarátak
þar sem vetrarbærinn Akureyri
verður í sviðsljósinu. Segja má
að átakið hefjist í Kringlunni
um helgina en þar verða Akur-
eyringar með bás á sýningu sem
er hugsuð sem kynning á mögu-
leikum á sviði vetraríþrótta og
ferðalaga.
Hagsmunaaðilar í bænum, sér-
staklega í hótel- og veit-
ingarekstri, hafa haldið nokkra
fundi og sjö manna átakshópur var
skipaður til að fylgja eftir þeim
hugmyndum sem fram hafa kom-
ið. Málin hafa verið rædd fram og
Arnarneshreppur:
Bíll lenti á hrossi
- og stórskemmdist
Laust fyrir klukkan 7 í gær-
morgun var ekið á hross við bæ-
inn Hof í Arnarneshreppi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Akureyri var árekstur-
inn mjög harður og hrossið mun
hafa týnt líflnu.
Bíllinn stórskemmdist og var
kallað á kranabíl til að fjarlægja
hann. Ökumann sakaði hins vegar
ekki.
Að sögn lögreglu hefur töluvert
borið á lausagöngu hrossa í ná-
grenni Akureyrar og lögreglan
hefur þurft að reka þau dag eftir
dag. Full ástæða er því til að vara
fólk við óboðnum gestum á þjóð-
vegum. SS
Húsavík:
Klakstöðin gjaldþrota
Klakstöðin hf. á Húsavík var
lýst gjaldþrota í síðustu viku.
Þorvaldur Vestmann Magnús-
son og Þórhallur Óskarsson
voru stærstu hluthafar fyrir-
tækisins, sem stofnað var 1985.
Þorvaldur sagðist ekki geta
gefið upp upphæðir, en að gjald-
þrotið væri ekki mjög stórt miðað
við gjaldþrot í fiskeldi. Klakstöðin
var með seiðaeldi og húsbygging
og eldisker var í eigu fyrirtækis-
ins. Starfsemi hefur ekki verið á
vegum fyrirtækisins undanfarin
misseri.
Þorvaldur sagði fiskeldismálin
sorgarsögu. Aðspurður um orsakir
fyrir gjaldþroti Klakstöðvarinnar
sagði hann þær vera hremming-
arnar sem yfir fiskeldið hafa geng-
ið. Markaður fyrir seiði hafi hrun-
ið og fyrirtækið tapað umtalsverð-
HELGARVEÐRIÐ
Ekkert verður af kuldanum
sem búið var að spá um
helgina. í dag verður vax-
andi austan og suðaustan
átt um land allt og rigning. Á
morgun verður austlæg átt,
víða strekkingur og slydda
sunnanlands en þurrt fyrir
norðan og hiti 0-5 stig en á
mánudaginn kólnar lítið eitt
og verður þá vægt frost í
innsveitum norðanlands.
um fjármunum, er felldar voru
niður skuldir Svarthamars á sl. ári.
Erfiðleikamir í fiskeldinu hafi
verið keðjuverkandi og Klakstöð-
in ekki haft möguleika til að
breyta um rekstrarform. IM
Hæstiréttur:
Varðhald vegna
líkamsárásar
Hæstiréttur hefur þyngt dóm
Héraðsdóms Norðurlands
eystra í líkamsárásarmáli á Ak-
ureyri. I héraðsdómi var ákærði
dæmdur í 25 daga skilorðs-
bundið fangelsi, en Hæstiréttur
þyngdi dóminn í 2ja mánaða
skilorðsbundið fangelsi.
Nefnd líkamsárás varð á Akur-
eyri 27. janúar 1993. Þrjátíu og
níu ára maður sló 32 ára mann
með þeim afleiðingum að gler-
augu brotnuðu og skurðsár mynd-
aðist neðan við vinstra augnlok.
í dómi Héraðsdóms Norður-
lands eystra var maðurinn dæmd-
ur í 25 daga varðhald skilorðs-
bundið í 2 ár. Jafnframt var hon-
um gert að greiða rúm 80 þús. kr.
í skaðabætur auk sakarkostnaðar.
Hæstiréttur þyngdi dóminn í 2
mánaða varðhald skilorðsbundið í
2 ár. Staðfest var ákvæði dóms
undirréttar um greiðslu skaðabóta
og sakarkostnaðar. óþli
lUorðlenskft afthafnafolk!
Iðntæknistofnun veitir ráðgjöf og tækniþjónustu í
iðnaði og sjávarútvegi
lóntæknistofnunl f
Starfsmaður Iðntæknistofnunar
á Akureyri er
Kristján Björn Garðarsson
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Glerárgötu 36, 600 Akureyrí
Simi (96) 30957
Fax (96) 30998
aftur á mörgum fundum að undan-
fömu.
Að sögn Jóns Gauta Jónssonar,
atvinnumálafulltrúa Akureyrar-
bæjar, liggur fyrir áætlun sem er í
meginatriðum þríþætt. Um miðjan
febrúar verður farið að auglýsa
vetrarbæinn Akureyri í fjölmiðl-
um og hefur nokkru fjármagni
verið ráðstafað til þess. í öðru lagi
er stefnt að því að gefa út dag-
skrárblað í mars og þar verður
greint frá því helsta sem verður
um að vera í bænum á sviði menn-
ingar, lista og útilífs frá því Leik-
félag Akureyrar frumsýnir Óperu-
drauginn 26. mars og til aprílloka.
Loks er verið að ganga frá því að
ráða starfsmann í hlutastarf til að
sjá um framkvæmd átaksins.
„Mér finnst óvenju mikill hug-
ur í mönnum núna. Það er kominn
nægur snjór í Fjallið og margt
spennandi á döfinni þannig að Ak-
ureyri ætti að vera aðlaðandi fyrir
ferðafólk. Síðasta sumar var hér
Listasumar með samfelldri dag-
skrá og ég hugsa að þetta gæti
orðið vísir að vetrarhátíð sem
verður fastur liður eftir að sól tek-
ur að hækka á lofti,“ sagði Jón
Gauti, en inn í þessa dagskrá kem-
ur páskavertíðin sem yfirleitt hef-
ur reynst mikil lyftistöng fyrir
bæjarfélagið. SS
Verið er að undirbúa öflugt kynningarátak uni vetrarbæinn Akureyri.
Mynd: Robyn.
Við
tökum vel á
móti ykkur
alla daga
til kl. 22.00
Byggðavegi 98
TILBOÐ
PFAFF
SAUMAVÉL 6085
HEIMILISVÉL 20 SPOR
VERÐ KR. 39.805
□
\4 KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565
■
11—
Utsalan er hafin
Góðar vörur - mikið úrval
afsláttur
Vetrarfatnaður og vetrarvörur, mikið
úrval fyrir alla aldurshópa. Nokkrar
gerðir af íþróttaskóm átilboði
E
ploirlt
Glerárgötu 28. Sími:l 1445