Dagur - 17.06.1994, Síða 9
Föstudagur 17. júní 1994 - DAGUR - 9
SÆVAR HREIÐARSSON
HM í BAN DARÍ KJUNUM '94
Loksins, loksins...
Þá er komið að stóru stundinni. Úrslitakeppni HM í Bandaríkjunum
hefst í dag. Undanfarnar vikur höfum við kynnt liðin sem taka þátt í
keppninni og nú er komið að síðustu fjórum liðunum. Liðin sem
mætast í F riðli eru Holland, Belgía, Marokkó og Sádí Arabía.
Næsta öruggt er að nágrannarnir frá Hollandi og Belgíu koma til
með að berjast um efsta sætið í þessum riðli. Hollendingar hafa ekki
sýnt sínar bestu hliðar undanfarin ár enda bestu menn liðsins, Ruud
Gullit og Marco van Basten, Iítið Ieikið með liðinu. Til stóð að Gullit
léki með liðinu í sumar en hann hætti við á síðustu stundu og dró sig
út úr landsliðshópnum. Belgar byggja lið sitt í kringum snillinginn
Enzo Scifo og ef hann nær sér á strik ætti þeim að ganga vel. Mar-
okkó stóð sig vel þegar þeir tóku þátt í lokakeppninni 1986 en ekki
er hægt að búast við að þeir nái jafn góðum árangri í ár. Þeir munu
berjast við Sádí Araba um þriðja sætið og það lið sem sigrar þegar
þessar tvær þjóðir mætast á ágæta möguleika á að komast áfram í
næstu umferð.
Holland
Þjálfari hollenska liðsins er Dick
Advocaat sem upphaflega átti aó-
eins að stýra liðinu í undankeppn-
inni og víkja svo fyrir Johan Cru-
yff, þjálfara Barcelona. En þegar
að ekki náðust samningar við Cru-
yff var Advocaat fenginn til að
halda áfram með liðið. Samband
hans við snillinginn Ruud Gullit
hefur verið stirt og nú er ljóst að
Gullit verður ekki með liöinu í
sumar. Framherjanum snjalla,
Marco Van Basten, var boðið að
taka sæti hans í liðinu en hann
hefur verið meiddur síðustu tvö ár
og AC Milan var mótfallið því að
hann byrjaði strax að leika. Vörn-
in er veikasti hlekkur liösins en
þar stjórnar Ronald Koeman frá
Barcelona öllum aðgerðum. Hann
þykir heldur seinn í svifum og
jendir oft í vandræðum en hann er
hinsvegar stórhættulegur þegar
hann bregður sér í sóknina og
skorar mörg glæsileg mörk með
langskotum. A miðjunni ræður
Frank Rijkaard ríkjum en hann
leikur nú með Ajax eftir glæsileg-
an feril með AC Milan. Með hon-
um á miðjunni leika baráttujaxl-
arnir Jan Wouters frá PSV Eind-
hoven og Wim Jonk frá Inter
Milan. A hægri kanti leikur hinn
bráðefnilegi Marc Overmars frá
Ajax sem þótti standa sig frábær-
lega í undankeppninni. Hraði hans
setur varnir andstæðinganna oft úr
jafnvægi og hann skapar mörg
færi fyrir samherjana. A vinstri
kantinum er Bryan Roy sem hef-
ur staðið sig mjög vel með Foggia
í vetur og leikur með Nottingham
Forest á komandi leiktíð. Hann
hefur mikla boltatækni og hefur
mjög gaman af því að leika sér
með boltann á kantinum. Peter
van Vossen frá Ajax leikur senni-
lega í fremstu víglínu en hann er
eldfljótur og markheppinn. Hann
hefur þó ekki verið heppinn með
meiðsl og missti af stórum hluta
síðasta tímabils vegna meiðsla.
Meó honum í framlínunni verður
Dennis Bergkamp sem hefur
ekki staðió undir væntingum á
sínu fyrsta tímabiii með Inter Mil-
an. Hann hefur þó ávallt staðið sig
vel með landsliðinu og er í hópi
bestu knattspyrnumanna heims.
Líklegt byrjunarlið (3-5-2):
De Goeij - Van Gobbel, R. Koe-
man, F. De Boer - Wouters,
Rijkaard, Jonk, Overmars, Roy -
Van Vossen, Bergkamp.
Belgía
Þjálfari Belga er Paul Van Himst
sem lék 81 landsleik fyrir Belga á
árunum 1960 til 1974. Hann náöi
frábærum árangri sem þjálfari
Anderlecht á fyrri hluta síðasta
áratugar og tók við landsliðinu í
maí 1991. Hann nær mjög góðu
sambandi við leikmenn sína og
fær þá til að vinna saman sem eina
heild. Lið hans leikur mjög agaða
og skynsama knattspyrnu en á oft
í erfiðleikum með að koma knett-
inum í markið. Markvörður liðsins
er Michel Preud homme frá
Mechelen sem talinn er í hópi
bestu markvarða heims. Hann lék
sinn fyrsta landsleik árió 1979 en
náði ekki að tryggja sæti sitt í
byrjunarliðinu fyrr en sjö árum
síðar. Miðvörðurinn Philippe Al-
bert frá Anderlecht er stór og erf-
iður viðureignar. Hann hefur átt
við meiðsl að stríóa en segist vera
tilbúinn í slaginn og munar um
minna þar sem hann er nú einn
eftirsóttasti leikmaður Evrópu.
Georges Grun er mjög fjölhæfur
varnarmaður sem hefur leikið með
Parma á Italíu undanfarin ár en er
nú á leið heim til Anderlecht.
Helsta stjama liðsins er leikstjóm-
andinn Enzo Scifo sem kom fyrst
inn í landslióið fyrir tíu árum, að-
eins 18 ára. Hann stóð sig frábær-
lega í lokakeppninni á Italíu 1990
og ekki er ólíklegt aó hann verði
einn af stjörnum keppninnar í ár.
Hann er mjög leikinn, sendingar
hans nákvæmar og hann skorar
mikið af mörkum. Belgum hefur
ávallt vantað sterka framlínumenn
sem geta skorað mörk. Þeir vonast
þó til að hafa fundió mann til að
leysa þetta vandamál. Það er Kró-
atinn Josip Weber sem nýlega
fékk belgískan ríkisborgararétt en
hann hefur verið markahæstur í
Belgíu síðustu þrjú tímabil þar
sem hann' leikur með Cercle
Brugge. Hann lék sinn fyrsta
landsleik gegn Zambíu fyrir
tveimur vikum og skoraði þá
fimm mörk í 9-0 sigri. Með hon-
um í framlínunni verður sennilega
Luc Nilis sem skorar ávallt mikið
fyrir Anderlecht en virðist ómögu-
legt að koma boltanum í netið fyr-
ir landsliðið. Hann skoraði sitt
fyrsta mark í sigrinuin á Zambíu
eftir að hafa leikið 22 leiki án þess
að koma boltanum í nctið.
Líklegt byrjunarlið (3-5-2):
Preud homme - Emmers, Grun,
Albert - Medved, Smidts, Van der
Khalid Al Muwallid er sóknartengi-
liður í liði Sádí Araba og einn sá
lciknasti í liðinu.
Hollendingar binda miklar vonir
við Dennis Bergkamp scm leikur
með Inter á Ítalíu.
Hollendingurinn Ed De Goey er
stærsti markvörður keppninnar,
197 cm, en Jorgc Carnpos frá
Mexíkó er sá minnsti, 175 cm.
Gaman verður að fylgjast með
hvort Sádí Arabar haldi sig við
sama þjálfarann út keppnina.
Fyrir síðasta leik undan-
keppninnar var Brasilíumaður-
inn Jose Candido rekinn fyrir að
neita að taka markvörðinn útaf í
leik eftir að Fasal prins hafði
heimtað aó honum yrói skipt út-
af. Hollendingurinn Leo Becn-
hakkcr var fenginn til að taka
við en hann entist aöeins í þrjá
mánuói og var rekinn fyrir að
hafa of erfiöar æfingar. Nú er
það Argentínumaðurinn Jorge
Solari sem stjórnar liðinu og
spcnnandi að sjá hvort hann ger-
ir eitthvaö af sér.
Ekki er algengt að tvíburar leiki
saman í lokakeppni HM en það
gerist aó öllum líkindum í sum-
ar. Frank Dc Boer hcfur átt fast
sæti í byrjunarliði Hollands og
bróðir hans, Ronald De Boer,
hefur verió viðloðandi liðið og
fær sennilega einnig að spreyta
sig.
Dcnnis Bcrgkantp framhcrji
Hollendinga var skíröur í höfuð-
ið á Denis Law markahrelli frá
Man. Utd. á árum áður. Faöir
hans hélt mikið upp á Law en
áttaði sig ekki á aö einu n-i var
ofaukið fyrr en unt scinan.
Allir lcikmcnn Sádí Arabíu
fengu um 7 milljönir kröna og
Mercedes bifreió fyrir að kom-
ast í úrslitakeppnina í sumar.
Noureddine Naybct cr helsta
stjarna liðs Marokkó og er talinn
besti varnarmaður Afríku í dag.
Króatinn Josip Weber er kominn
með belgískt vegabréf og er ætlað
að koma kncttinum í nctið.
HMpunktar
Amar Bjömsson, íþróttafrétta-
maður Ríkisútvarpsins, hefur rit-
að handbók HM 94. Bókin er
stútfull af haldgóðum upplýsíng-
um um alla leikmenn keppninn-
ar auk þess sem ýmsir fróðleiks-
molar eru tíndir til. Knattspymu-
áhugamenn ættu ckki að láta
þessa bók fram hjá sér l'ara en
Skátafélagið Klakkur sér um
sölu hennar á Akureyri.
Mest hcfur verið skorað sjö
mörk í úrslitalcik, þcgar Brasilía
vann Svíþjóð 5-2 í Svíþjóð
1958. Fæst mörk vom hins veg-
ar skoruó í síðasta úrslitaleik,
þegar V-Þýskaland sigraði Arg-
entínu, 1-0.
Númer á treyjum liöanna vom
fyrst notuó í lokakeppninni í
Brasilíu 1950. Þeim var ætlaó að
auðvclda dómurum, fjölmiólum
og áhorfendum að þckkja leik-
menn í sundur.
Elst, Scifo, Degryse - Nilis, We-
ber.
Marokkó
Þjálfari Marokkó er Abdellah
Ajri Blinda sem er 43 ára og tók
við liðinu þegar aðcins einn leikur
var eftir af undankeppninni. Hann
hcfur verið að endurbyggja liðið í
kringum leikmenn sem leika í
Evrópu. Vörn liðsins er líkamlega
sterk en vantar reynslu í lands-
leikjum, miðjumenn liðsins taka
virkan þátt í sóknarleiknum en
gætu átt erfitt með að verjast gegn
sterkum þjóðum. Framherjamir
eru snöggir en hefur oft vantað
nákvæmni í að klára dæmié
Helsta stjarna liósins er miðvörð
urinn Noureddine Naybet sem e
24 ára og leikur með Nantes
Frakklandi. Hann er sterkui
skallamaóur og ömggur þegai
hann er með boltann og kom ham
mjög á óvart í frönsku deildinni
vetur. Hann er mjög vinsæll í
Marokkó enda er hann talinn vera
besti varnarmaður Afríku um
þessar mundir. Með honum í
vörninni er Nacer Abdellah sem
er fæddur í Belgíu og leikur meó
Waregem. Hans helsta vandamál
er sennilega að hann talar ekki
arabísku og á erfitt með að tjá sig
við samherja sína. Leikstjómandi
liðsins er hinn 32 ára Mustapha
E1 Haddaoui sem leikur með
Angers í Frakklandi. Hann er eini
leikmaður liðsins sem tók þátt í
lokakeppninni í Mexíkó 1986.
Mustapha Hadji er 22 ára sókn-
artengilióur sem leikur með
Nancy í Frakklandi. Hann átti
þess kost aó leika með franska
U21 árs landslióinu en valdi frek-
ar að leika fyrir fæðingarland sitt,
Marokkó. A vinstri kanti leikur
Rachid Daoudi sem stóð sig
mjög vel í undankeppninni.
Heimamenn binda miklar vonir
við hann, enda mjög skemmtileg-
ur leikmaður. Framherjinn Mo-
hamed Chaouch var markahæsti
maður liósins í undankeppninni
mcó 5 mörk. Hann leikur meó
Nice í Frakklandi og hefur staðið
sig vel í vetur.
Líklegt byrjunarlið (4-4-2):
Azmi - Abdellah, Masbahi, Nay-
bet, E1 Hadrioui - Hadji, Tahar, E1
Haddaoui, Daoudi - Laghrissi,
Chaouch.
Sádí Arabía
Landslið Sádí Arabíu tekur nú þátt
í lokakeppninni í fyrsta sinn og er
ekki líklegt til afreka. Miklir fjár-
munir hafa verið lagðir í að
byggja upp knattspymulið í þessu
ríka landi og margir þekktir þjálf-
arar hafa verið fengnir til upp-
byggingar á leikmönnum. Leik-
menn liðsins eru teknískir en ekki
mjög sterkir líkamlega og þeir
hafa reynt að leika fallega sóknar-
knattspymu. Þjálfari liðsins er
Argentínumaðurinn Jorge Solari
sem tók við af Leo Beenhakker
lyrir þrcmur mánuðum. Been-
hakker hafði þá verið þjálfari liðs-
ins í aðeins þrjá mánuði en leik-
mennimir voru ekki sáttir við erf-
iðar æfingar hans og hann var því
látinn fjúka. Solari var í landsliói
Argentínu sem olli miklu fjaðra-
foki í lokakeppninni í Englandi
1966 með grófum leik. Leikmenn
liðsins leika allir með liöum í
heimalandinu og eru óþekktir utan
þess. I vöminni er Mohamed AI
Jawad óþreytandi vinnuþjarkur
og Ahmed Madani er mjög efni-
legur miðvörður og sérstaklega
sterkur í loftinu. Tengiliðurinn
Khalid AI Muwallid er einn sá
leiknasti í liðinu. Hann er 22 ára
sóknartengiliður með góóan
vinstri fót. Saeed Owairan er
einnig sókndjarfur tengiliður og
var hann markahæsti maður liós-
ins í undankeppninni með 7 mörk.
Mohammed Majed er 35 ára
sóknarmaður og er oft kallaður
„Pele eyðurmerkurinnar“. Hann er
fyrirliði liðsins og leikjahæsti
leikmaður landsins frá upphafi.
Líklegt byrjunariiö (4-4-2):
A1 Deayea - A1 Dosary, A1 Khla-
wi, Madani, A1 Jawad - Amuain-
ea, Amin, Owairan, A1 Muwallid -
Majcd, Falatah.
Leikir í F riðli
19. júní Belgía - Marokkó Orlando 16:30 RÚV
20. júní Holland - Sádí Arabía Washington 23:30 RÚV
25. júní Sádí Arabía - Marokkó New York 16:30
25. júní Belgía - Holland Orlando 16:30 RÚV
29. júní Marokkó - Holland Orlando 16:30 RÚV
29. júní Belgía - Sádí Arabía Washington 16:30