Dagur - 09.07.1994, Blaðsíða 5
Laugardagur 9. júlí 1994 - DAGUR - 5
I HITA OC ÞUNÚA DACSINS Á CRENIVÍK
Kári Ellertsson íþróttakennari á Grenivík:
„Það er eitthvað í
umhverfinu!“
- litið inn á leikjanámskeið Magna
Þátttakendur í leikjanámskeiði
íþróttafélagsins Magna fyrir börn
á Grenivík og nágrenni voru í
sundi næstsíðasta daginn á nám-
skeiðinu. Grýtubakkahreppur tek-
ur þátt í leikjanámskeiðinu mcð
því að lána Magna ýmsa aðstöðu,
svo sem sundlaug, skólahúsnæöi,
íþróttasal o.fl. Leikjanámskeiðið
hefur staðið frá níu á morgnanna
til hádcgis.
„Leikjanámskeiðinu lýkur á
morgun en er búið að vera í fjórar
vikur,“ sagði Kári Ellertsson
íþróttakennari er útsendarar Dags
litu við í sundlauginni á Grenivík
nýlega. Kári er 25 ára Akureyr-
ingur og er menntaður íþrótta-
kennari frá Iþróttakennaraskóla ís-
lands á Laugarvatni. „Eg er bú-
settur hér á Grenivík nú orðið, var
hér í vetur að kenna og ætla að
vera héma næsta vetur,“ sagði
Kári í samtali við Dag.
Aðspurður um þátttöku sagði
Kári: „Hún var framar öllum von-
um; þaó eru svona 24 krakkar sem
hafa komið reglulega.“ - Eru það
kannski allir krakkamir í sveitar-
félaginu? „Ætli það séu ekki um
það bil 75%.“
Athygli blaðamanns vakti hátt
'nlutfall stúlkna í hópi þátttakenda
á leikjanámskeiðinu enda var
mjög fáa drengi að sjá. „Hlutföllin
héma í sveitinni eru nú þannig;
þaö er mjög lítið um stráka - það
ereitthvaó í umhverfinu!“
Kári Ellertsson, íþróttakennari.
Síóasta daginn fyrir sumarfrí
var ætlunin að grilla pylsur - en
hvað hafa krakkar á Grenivík gert
fleira en að synda á fjögurra vikna
leikjanámskeiði? „Við höfum far-
ið í alls konar leiki, gönguferðir,
hjólreiðatúra, fjöruferðir og
fjallgöngur; það tók okkur ekki
nema 45 mínútur að ganga hérna
upp á Höfðann. Svo er verið að
smíða kofa héma 'ninum megin
við skólann - glæsileg mann-
virki,“ sagði Kári Ellertsson
íþróttakennari að lokum. GT
Lísbet Patrisía Gísladóttir, 12 ára.
Lísbet, 12 ára:
„Skemmtilegt á leikjanámskeiðinu
- en þrír tímar er nóg“
Lísbet Patrisía Gísladóttir er 12 ára
Grenvíkingur og ein þeirra stúlkna
sem tóku þátt í fjögurra vikna
leikjanámskeiði íþróttafélagsins
Magna, sem Kári Ellertsson
íþróttakennari hefur séð um frá 9-
12 virka daga. Stúlkur eru í mikl-
um meirihluta á námskeiðinu og í
sveitarfélaginu almennt eins og
fram kom í viðtalinu við Kára hér
á sömu blaðsíðu. Við tókum Lísbet
tali næstsíðasta daginn á leikja-
námskeiðinu.
- Hvernig finnst þér á leikja-
námskeiðinu? „Bara skemmtilegt."
- Hefurðu prófað að vera á
leikjanámskeiði áður? „Já, héma á
Grenivík í fyrra en þá var það ann-
ar en Kári sem sá um það.“
- Hvað eruð þið búin að gera?
„Við erum búin að byggja kofa,
fara í leiki og sund og svona ýmis-
legt,“ svaraði Lísbet og sagðist að-
spurð hlakka til grillveislunnar
daginn eftir sem átti aó vera eins
konar lokahóf fyrir krakkana og
Kára.
- Gætirðu hugsað þér að taka
þátt í leikjanámskeiði næsta sumar
Ííka? „Já.“
- Myndirðu vilja að leikjanám-
skeiðið væri lengra en þrír klukku-
tímar á dag? „Nei, þrír tímar er
nóg.“ Hvað gerir maður þá þegar
leikjanámskeiðið er búió? „Æi,
bara eitthvað.“
- Ég sé að þaö eru eiginlega
tómar stelpur héma; eru engir
strákar á Grenivík? „Jú, einhverjir
en ekki margir á leikjanámskeið-
inu.“
- Hvaða íþróttir hafið þið
stundað? „Þaó er aðallega fótbolti
og svo frjálsar íþróttir.“
- Takk fyrir. „Bless.“ GT
JÓn Ingólfsson. Mynd: Robyn.
Atvinna og ferða-
menn á Grenivík
Jón Ingólfsson rekur verslun á
Grenivík í sama húsi og KEA;
sem hann leigir húsnæði af. I
Jónsabúó er selt allt milli himins
og jarðar - frá íþróttaskóm til sæl-
gætis auk þess sem leigðar eru
myndbandsspólur. Þar vinna auk
Jóns eiginkona hans og einnig að-
stoðarstúlka. Er blaóamann og
ljósmyndara Dags bar þar að garði
um daginn var vinna nýhafin í
frystihúsinu á Grenivík - nú undir
fána Útgeróarfélags Akureyringa
- og svaraói Jón því játandi er
blaðamaður spurði hvort atvinnan
hleypti bjartsýni í sveitarfélagió.
Sagði hann að verslun færi betur
af stað þegar ferðamannatíminn
færi af stað nú í byrjun júlí. „Já,
þaö hefur farið frekar vaxandi -
aukist ár frá ári,“ sagói Jón að-
spurður um hvort mikið væri um
að erlendir ferðamenn kæmu til
Grenivíkur. Þó sagði hann, að-
spurður, að meirihluti feróamanna
væri íslendingar. - Heldurðu að
þeim fjölgi eftir átakiö íslctnd -
sœkjutn það hciml „Já, ég á von á
því,“ sagði Jón og bætti við að
ferðamannatíminn teygóist nú
orðið fram í miðjan ágúst. GT
★
Leikfimi
★
Nuddpottur
★
Gufubað
★
Hamar, félagsheimili Þórs
við Skarðshlíð.
Sími12080.
Akureyrarbœr
Menntasmiðja kvenna d Akureyri
Nám sem auðgar líf þitt
skóli fyrir konur sem eru án launaðrar atvinnu.
Námiö er í tveimur 8 vikna áföngum. Fyrri áfangi hefst 22. ágúst og lýkur 14. október og
sá seinni hefst 24. október og lýkur 16. desember n.k.
Kennt verður á virkum dögum frá kl. 9:00 -15:00.
Hugmyndafrœði Menntasmiðjunnar byggir á reynslu frá lýðháskólum og kvennadag-
háskólum á Norðurlöndum og námskeiðum sem þróuð hafa verið fyrir konur hér á
landi.
Uppbygging námsins er bœði hóp- og einstaklingsmiðuð og rfk áhersla verður lögð á
að aðlaga námið að mismunandi þörfum kvennanna.
í Menntasmiðjunni er gert ráð fyrir eftirtöldum námsþáttum:
♦ Hagnýtum frœðum s.s.íslensku, erlendum tungumálum, ritvinnslu, bókhaldi, bréfa-
skriftum, skattamálum o.fl.
♦ Sjálfsstyrkingu og markmiðssetningu
♦ Samfélagsfrœðum
♦ Líkamsrœkt
♦ Listsköpun s.s. ýmis konar handverki, leiklist, tónlist o.s.frv.
Stefnt er að því aö bjóöa nemendum starfsþjálfun að námskeiöum loknum
Hámarksfjöldi nemenda er 20 konur. Reynt veröur að bjóða upp á leikskóla fyrir börn
þátttakenda ef þörf krefur. Námið er konum án launaðrar atvinnu að kostnaðarlausu
og konur sem hafa atvinnuleysisbœtur halda bótum sínum á meðan á náminu stendur.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, verkefnisfreyja Menntasmiðj-
unnar í síma 21000, kl. 14:00 -16:00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí. Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum sem liggja
frammi á bœjarskrifstofunum Geislagötu 9, 2. hœð og á Vinnumiölunarskrifstofunni
Gránufélagsgötu 4.
Kynningarfundur um Menntasmiðjuna
verður haldinn mánudaginn 18. júlí n.k. kl. 15:00 -18:00
í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14,4. hœð.
Jafnréttisfulltrúi Akureyrarbœjar.