Dagur - 09.07.1994, Blaðsíða 11

Dagur - 09.07.1994, Blaðsíða 11
IÞROTTIR HALLDÓR ARINBJARNARSON Laugardagur 9. júlí 1994 - DAGUR - 11 Þrír strákar úr Akureyrarliðunum KA og Þór voru valdir í Landsliðið og Pressuliðið á Shellmótinu. í landsliðið var valinn Jóhann Helgason úr KA sem er á myndinni til vinstri ásamt fclaga sínum Sölva G. Jónssyni sem var valinn í Prcssuliðið. Þar var líka Hreggviður Gunnarsson úr Þór sem er á myndinni til hægri. Shellmótiö í Vestmannaeyjum: Prúðir Akureyringar Hið árleg Shellmót knattspyrnu- félagsins Týs í Vestmannaeyjum fór fram um síðustu helgi. Þar keppa sem kunnugt er knatt- spyrnukappar í 6. aldursflokki. Mótið tókst vel í alla staði enda veður mjög gott. FH sigraði í flokki A- og C-liða en Fylkir hjá B-liðum. Þór og KA sendu bæói lið til mótsins. Þau léku um 11. sæti mótsins í flokki A-liða og þar sigr- aði KA 4:1. Þau mættust aftur í flokki C-liða, léku þar um 9. sætið og gerðu jafntefli 1:1. I flokki B- liða vann KA Val 3:2 í leik um 15. sætið en Þór tapaði 0:1 fyrir Sel- fyssingum í leik um það 17. Einnig var keppt í innanhússfóL bolta í flokki A- og B- Iiða. í flokki A-liða datt Þór út í 8 liða úr- slitum á móti IR en KA komst í leik um 3. sætið og tapaði 0:1 fyrir HK. í flokki B-liða komst Þór í undanúrslit og lék um 3. sætið við Val. Þar sigruðu Þórsarar 1:0 og tryggðu sér þar meö bronsverð- launin. Einnig var keppt í ýmsum knattþrautum. Þar sigruðu til að mynda Þórsaramir Daði Kristjáns- son og Vilberg Brynjarsson í eldri flokki í keppni um að skalla á milli. Einn af hápunktum mótsins cr viðureign Landsliðsins og Pressu- liðsins sem þjálfarar liðanna sjá um að velja í. Þar áttu Akureyrar- liðin 3 fulltrúa. Jóhann Helgason úr KA var valinn í Landsliðið og í Pressuliðið þeir Sölvi G. Jónsson úr KA og Hreggviður Gunnarsson úr Þór. Liðin gerðu jafntcfli 1:1. Akureyrarliðin fengu cinnig tvær viðurkenningar sem jafnt leik- mcnn, þjálfarar og fararstjórar geta verið ákaflega stoltir af. C-lið KA fékk viðurkenningu fyrir háttvísi, þ.e. heiðarlegan leik og góða hcgð- un innan vallar og Þór var valið prúðasta liðið ásamt Þrótti Reykja- vík. Það er því ljóst að strákamir hafa verið góðir sendihcrrar Akur- eyrar í Vestmannaeyjum. B-lið Þórs vann til bronsvcrðlauna á innanhússknattspyrnumótinu. Fígúran sem Heimir Björnsson heldur hér á var lukkudýr KA og það varð alltaf að vera til staðar þegar liðið spiiaði. Þór og KA lcntu hvort á móti öðru í tveimur leikjum um sæti á mótinu, bæði hjá A og C-liðum. Hér eru það C- liðin sem kljást en jafntefli varð niðurstaðan, 1:1. Myndir: Björn Kr. Björnsson/Peter Jones. Vertu með ■ draumurinn gæti orðið að veruleika ! GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISMENN HF

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.