Dagur - 09.07.1994, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 9. júlí 1994
„Ekki heppilegt að vera
alla œvi í sama stól"
„Mér líst ágætlega á að breyta til og takast á við nýja hluti. En ég
er þess meðvitaður að þetta er að mörgu Ieyti mjög erfítt starf
sem ég er að taka að mér nú. Bæði er bæjarstjórastarfíð persónu-
legra og snýst um pólitík að einhverju leyti sem þýðir meiri átök
en ella. Svo er allt öðruvísi hugsun í þessu starfi,“ segir nýr bæj-
arstjóri á Dalvík sem byrjaði fyrir 27 árum að vinna hjá KEA á
Dalvík sem er í næsta húsi við Ráðhúsið. Rögnvaldur Skíði heitir
hann og er Friðbjörnsson; ættaður úr Svarfaðardal að hálfu og
Skíðadal að hálfu eins og skilja má af nafngiftinni sem er eftir
frumbyggja þar. Hann er fæddur 1949 - og segir það heldur hafa
hvatt sig að sækja um starf bæjarstjóra þegar hann hafí komist að
því að fæðingardagur hans, 27. apríl, er sá sami og fæðingardagur
væntanlegs bæjarstjóra á Akureyri sem er þó árinu yngri en
Rögnvaldur.
„Það var ákaflega mikilvægt fyrir
mig að ég gæti hafið hér störf
strax og sett mig inn í þá hluti sem
hér eru,“ segir Rögnvaldur sem
fór fyrirvaralítiö úr starfi útibús-
stjóra KEA í góðu samráði vió
forsvarsmenn þar og tók viö starfi
bæjarstjóra hinn 1. júlí sl. eftir 10
ár sem útibússtjóri og þar áður 12
ár sem skrifstofustjóri KEA á Dal-
vík en einnig sat hann 6 ár sem
fulltrúi starfsmanna í stjórn KEA.
„Eg áleit að 10 ár væru hæfi-
legur tími í svona stjórnunarstarfi
- bæði fyrir mig sjálfan og fyrir-
tækið,“ segir Rögnvaldur sem var
farinn að hugsa alvarlega um það
fyrir ári síðan að hann þyrfti að
skipta um starf. „Það er aó mínu
mati ekki heppilegt að vera alla
ævina í sama stól.
Fyrsti dagurinn var mjög
ánægjulegur; starfsfólkið hér og
forseti bæjarstjómar tóku vel á
móti mér en það var auðvitað ekki
sjálfsagóur hlutur að ég yrði næsti
bæjarstjóri. Eg haföi í sjálfu sér
aldrei hugsað út í þaö að sækja
um starfið.“
„Erfitt og óskynsamlegt að
reyna að skipuleggja lífið
mjög langt fram í tímann“
Rögnvaldur sagói óhræddur fyrra
starfi sínu lausu. „Eg veit það hins
vegar að ég er hér mjög trúlega í
skammtímastarfi en lífið er jú
þannig að það er erfitt og óskyn-
samlegt að reyna að skipulcggja
það mjög langt fram í tímann. Það
verður bara að mæta því sem
mæta þarf þegar þar að kemur.“
Rögnvaidur er tilnefndur af
Framsóknarfiokknum sem fékk að
ákveða hver yrði ráðinn bæjar-
stjóri en á hinn bóginn varð sam-
ráó um að samstarfslisti fram-
sóknarmanna í meirihluta bæjar-
stjórnar, I-listinn, fcngi að ráða
hver yrði formaður bæjarráðs og
forseti bæjarstjórnar. Rögnvaldur
er hins vegar ekki flokksbundinn
og hefur ekki haft afskipti af pólit-
ísku starfi á Dalvík. „Eg hef litið
svo á að útibússtjóri eigi ekki að
starfa mikið í pólitík cnda er það
heppilegra fyrir fyrirtækið að
menn starfi meira hlutlaust. Þann-
ig forðast maður að draga fyrir-
tækió inn í deilur scm koma því
ekki við en gætu spillt fyrir í viö-
skiptum enda snúast hagsmunir
margra hér á Dalvík um KEA.“
Aðspurður segir Rögnvaldur
ekki. mikla hættu á hagsmuna-
árekstrum vegna fyrra starfs hans
hjá KEA enda starfi sveitarfélagið
mikið eftir lögum og reglum auk
þess sem hann hafi í fyrra starfi
sínu átt ágætt samstarf vió fyrri
bæjarstjórnir.
Þegar Rögnvaldur er spurður
að því hvort hann telji betra að
ráða framkvæmdastjóra sveitarfé-
lags á faglegum forsendum eða
kjósa um hann, eins og gert hefur
verið í Reykjavík og nú á Akur-
eyri, segir Rögnvaldur skemmti-
legra fyrir bæjarstjóra að vita að
hann hafi verið valinn á faglegum
forsendum. „Hins vegar held ég
aó ekki sé mikill munur þar á -
því þegar menn eru valdir af pólit-
ískum sjónarmiðum þá eru þau
líka fagleg. En ég er ekkert frá því
að kjósendur vilji vita það fyrir-
fram hver verði bæjarstjóri. Bæj-
arstjóri veróur auóvitaö að vera
bæjarstjóri fyrir alla bæjarfulltrú-
ana en hins vegar á hann miklar
skyldur við meirihlutann enda
held ég að það geti að mörgu leyti
farið vel saman og að nicnn skynji
rnuninn á þessu tvennu.
Bærinn hefur gjörbreyst
Ég hef alltaf neitað því að taka
sæti á pólitískum Iista hér á staðn-
um meóan ég væri útibússtjóri og
þannig var ég að vissu leyti búinn
að múra mig fastan. Þaó var því
e.t.v. bcsta leiðin fyrir mig sjálfan
að skipta yfir mjög skyndilega því
auðvitaó er það mjög spennandi
að glíma við verkefni bæjarins,“
segir bæjarstjóri í 1534 íbúa bæ
við Eyjatjörð þar sem atvinnulífið
gcngur að mörgu leyti betur en í
höfuðstað Norðurlands. „Bærinn
hefur vaxið mjög hratt og gjör-
breyst nú í seinni tíð. Skipin hafa
stækkað og húsunum hefur tjölg-
að. Þegar ég byrjaði sem ungl-
ingur að vinna hjá KEA var mað-
ur að kvarta yfir því að fara með
póst í hús sem þá voru í útjaðri
bæjarins cn nú cru þau nánast í
miðbænum.“
Ný sundlaug og sjálfstæður
framhaldsskóli
Rögnvaldur segir að efst á blaói
hjá nýjum meirihluta í bæjarstjórn
Dalvíkur sé að ljúka við byggingu
sundlaugar. „Sundlaugin er að
komast á lokastig þannig að gert
cr ráð fyrir því að hún verði tekin
í notkun fullbúin í lok sumars. Sú
aóstaóa verður örugglcga mjög
kærkomin - bæði sundfólki,
íþróttafólki og öðrum íbúum Dal-
víkur.“ Meóal annarra fram-
kvæmda sem eru á döfinni nefnir
Mynd og texti: GT
Rögnvaldur brimvarnargarð norð-
an við höfnina sent kostaður verð-
ur í sameiningu af ríki og sveitar-
félögunum í Hafnarsamlagi Eyja-
fjarðar. „Nú síðan horfa menn til
þess að hér þurfi að stækka skól-
ann enda hefur meirihlutinn sett
sér þaó að vinna mikið að skóla-
málum á kjörtímabilinu. Þar eru
menn að tala um að koma á sjálf-
stæðum framhaldsskóla á Dalvík
sem komið yrði fyrir í varanlegu
húsnæði en skólarnir hafa verið í
leiguhúsnæði á efstu hæðum
kaupfélagshússins og Ráðhúss-
ins.
Aðaláherslur hjá nýjum meiri-
hluta eru svo að öðru leyti að
vinna aó félagslegum málum, um-
hverfis- og atvinnumálum. Þá er
stefnan hér, eins og alls staðar, aó
leita leiða til að laóa ný fyrirtæki
að staðnum. Nýstofnaður atvinnu-
þróunarsjóður á vegum bæjarsjóðs
kemur til með að styrkja nýsköp-
un í atvinnulífinu.
Ég held að þessi bær standi
mjög traustum fótum en hér er
endalaust hægt að auka verkefni á
þjónustusviói. Ég vona aó hér
blómgist áfram gott mannlíf en
framtíðin fyrir sjávarútvegspiáss
er ekkert nógu góð í dag; það eru
víða erfiðleikar vegna sífelldra
kvótaskerðinga,“ segir Rögnvald-
ur.
Kostir og ókostir nálægðar-
innar við Akureyri
Aðspurður segir Rögnvaldur að
Dalvíkingar sæki fjölmargt til Ak-
ureyrar og við þaó séu ótal kostir
og einnig ókostir. „Ég held að það
sé mikill styrkur fyrir Dalvík að
Akureyri skuli ekki vera lcngra frá
en rúmlega hálftíma akstur en
auðvitað missurn við eitthvað í
leiðinni,“ segir Rögnvaldur.
Rögnvaldur bað fyrir þakkir til
þeirra fjölmörgu sem hann hefur
starfaó með eða átt samskipti við í
starfi sínu hjá KEA á Dalvík.
„Hef heldur viljað halda mig
við fdsta landið"
„Ég er fæddur og uppalinn á Hóli í Svarfaóardal.Ég ólst þar upp í foreldrahúsum til
15 ára aldurs. l>á var ég eina vertíð á'sjó hér frá Dalvtk en haföi aldrei áður stigió
um borð í árabát. Reynsla mín af þeirri sjómennsku varó slík að ég hef lítiö gérl af
því að fara á sjó síóan; hef heldur viljaó halda mig við fasla landið."
Rögnvaldur fór í Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og gagnfræðaskóla á Ólafsfirði.
Hann kynntist konunni sinni, Guórfði Ólafsdóttur frá Borgarfirói eystra. þegar
hann var í Samvinnuskólanum á Bifröst frá 1969-1971. Þau hófu búskap á Dalvík
1971 og giftu sig 1972. Rögnvaldur og Guðríður eiga tvö böm. Lilju Berglindi, f.
1975, og ÓlafHclga, f. 1977.
Skíði, stöng og byssa
Þrátt fyrir annríki hefur Rögnvaldur gefió sig aó ýmsum áhugamálum. Nú segist
hann vera með snjósleóadeilu en fyrr á ánim áttu Ijósmyndir hug hans allan. Hann
var um skeió Ijósmyndari fyrir fréttablaóið Noröurslóó og tók hann einnig af og til
myndir fyrir Dag. „Ég gekk með myndavél framan á mér í 10 ár en hætti því svo.
Annars er ég mikið fyrir útiveru enda er þaó ákaflega mikilvægt fyrir kyrrsetumann
eins og mig aó finna einhvem farveg í aó hreyfa sig. Ég hef gaman af því að
skokka. fara á gönguskíði og stunda ýmiskonar veiði og - bæói stang- og skot-
veiói."