Dagur - 09.07.1994, Blaðsíða 9
Laugardagur 9. júlí 1994 - DAGUR - 9
norðurhúsi má finna mikið af ljósmyndum og teikningum af gömlum torfbæjum úr hcraðinu.
Öxnafell í Eyjafirði
Þjóðminjadagur á morgun:
Minjasafnið á Akureyri og
Laufásbær efitia til heyanna
- ýmis nýmæli í starfsemi Minjasafnsins í sumar
Þjóðminjadagur verður haldinn á
morgun, sunnudag, og af því tilefni
gera minjasöfn í landinu ýmislegt til
að vekja athygli á starfsemi sinni.
Minjasafnið á Akureyri mun í sam-
vinnu við safnið í Laufási efna til
heyanna. Heyjað verður með gamla
laginu og sýnd önnur vinnubrögð
frá fyrri tímum, úti sem inni. Ymis
nýmæli má finna í starfsemi Minja-
safnsins á Akureyri í sumar og má
þar nefna gönguferðir um Innbæinn,
söngvökur og nýjar sýningar. Þá er
hafin skráning á fomleifum í Eyja-
firði.
Heyannirnar fara fram að Lauf-
ási frá kl. 13-17. Félagar úr Félagi
aldraðra í Eyjafirði heyja með
gamla laginu, slá, raka og líklega
binda. Þá verður vinnufólkinu fært
kaffi í sokki.
Ymis vinnubrögð önnur verða
sýnd vió sama tækifæri, úti og inni.
I búri Laufásbæjarins verður mjólk-
urvinnsla, mjólk skilin, sntjör
strokkað og skyr síað. í hlóðaeld-
húsi verður kveikt upp í hlóðunt,
hangikjöt haft í potti og væntanlega
bakaðar lummur. Á baöstofulofti fer
fram tóvinna og vonandi rímna-
kveöskapur og upplestur.
Hugmyndin að baki þessum við-
burðum er að viðhalda þekkingu á
gömlum vinnubrögðum og kynna
þeim sem ekki þekkja til. Ætti að
vera tilvalið fyrir eldra fólk aó rifja
upp gömlu handtökin og það yngra
að skyggnast aftur í tímann um
stund. í tilefni þjóðminjadagsins
verður frítt inn á Minjasafnið á Ak-
ureyri og Laufássafnið.
Gönguferðir, söngvökur og
nýjar sýningar
Meðal annarra nýmæla í starfsemi
Minjasafnsins á Akureyri í sumar
eru gönguferóir um Innbæinn hvern
sunnudag til ágústloka, morgundag-
urinn þ.m.t. Lagt er af stað frá Lax-
dalshúsi kl. 13.30 og gengió inn eft-
ir fjörunni í fylgd leiðsögumanns
sem skýrir það sem fyrir augu ber.
Þá má nefna svokallaðar söngvökur
sem safnið stendur fyrir í Minja-
safnskirkjunni tvisvar í viku, á
þriðjudags- og fimmtudagskvöldum
kl. 20.30, fram til 13. ágúst. Þar er
flutt íslensk tónlist, forn og ný, t.d.
rímur, tvíundarsöngur, sálmar og
yngri og eldri sönglög. Flytjendur
og umsjónarmenn eru Rósa Kristín
Baldursdóttir og Þórarinn Hjartar-
son. I tengslum viö söngvökurnar er
Minjasafnið opið kl. 19.30-22.30 og
er aðgangseyrir að safninu innifal-
inn í aðgangseyri að söngvökunum,
sem er 600 kr.
Sýningar í Minjasafninu hafa
einnig verió endurnýjaðar að hluta. I
noróurhúsi hefur verið sett upp sýn-
ing á ýmsu sem tcngist landbúnaði
fyrri tíma og gömlum bæjunt. Sýn-
ingin kallast „Hér stóð bær“ og eru
þar sýndir ýmsir munir scm tengjast
sveitastörfum og einnig mikið af
ljósmyndum og tcikningum af
Á sýningunni „Hér stóð bær“ eru
sýndir hiutir sem tengjast landhún-
aði og búskap fyrri tíma, innan og
utan húss. Myndir: JHB
gömlum torfbæjum úr héraðinu.
I Kirkjuhvoli hafa staðið yfir
miklar endurbætur í vetur og þar eru
nú sýndir ýmsir nýrri gripir sem
safninu hafa borist á undanfömum
árum. Myndir Hallgríms Einarsson-
ar liggja frammi og getur fólk sest
niður í sólstofu Kirkjuhvols og
skoðað þær.
Skráning á fornleifum
í Eyjafirði
Minjasafnið er nú að hefja fornleifa-
skráningu í Eyjafirði og segir Guð-
ný Gerður Gunnarsdóttir, safnstjóri
Minjasafnsins, að stefnt sé að því að
skrá allar minjar í héraðinu á næstu
árum. Fornleifar verða merktar inn á
kort, bæði í rannsóknarskyni og
ekki síður til að finna áhugaverða
staði sem beina má ferðafólki og
öðrum á. Byrjað veróur í Eyjafjarð-
arsveit og í sumar er ráðgcrt að
verja fjórum vikum í skráningu á
fornleifum í nyrsta hluta sveitarinn-
ar. Tveir fornleifafræðingar munu
hafa umsjón mcð verkinu, Adolf
Friðriksson og Orri Vésteinsson.
Farið vcrður um svæðið og reynt að
hafa upp á öllum fornminjum, leitað
eftir upplýsingum frá fólki, sögnum
og munnmælum um gömul mann-
virki eóa leifar, munurn eða beinum
sem hafa komið upp úr jörðu o.fl.
JHB
Tónlistaskóli Öxarfjarðarhéraðs
Skólastjóri
óskast til starfa frá 1. september nk.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Öxarfjarðarhrepps í
síma 96-52188.
Umsóknarfrestur til 15. júlí.
Hótel Edda, Þelamörk
Okkar vinsæla kaffihlaðborð alla sunnudaga
frá kl. 15.00
og glæsilegt matarhlaðborð laugardaga og
sunnudaga frá kl. 19.00.
Munið barnaafsláttinn.
Verið ávallt velkomin.
hotel
edda
Starfsfólk
á Hótel Eddu,
Þelamörk.
Bændur
Nýtt á landsbyggðinni
Við höfum náð mjög
góðum kaupum á
búvéladekkjum
milliliðalaust beint frá
framleiðanda.
Við tökum mikið magn
sem þýðir lægsta verð til
ykkar.
Sendum hvert á land
sem er.
Akureyri
Símar 96-23002 og
96-23062
Símboði 984-55362.