Dagur - 09.07.1994, Síða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 9. júlí 1994
MANNLÍF
Sigurður Halldórsson, öðru nafni Siggi Donna, lct sig ckki vanta í afmæiis-
veislu nafna síns Lárussonar. Þeir fclagar léku lengi saman í vörn í Skaga-
manna og þóttu ekki árennilcgir á þeim tíma.
Fjölmenni í fertugsafmæli
Sigurðar Lárussonar
Sigurður Lárusson, þjálfari 1. deildarliðs Þórs í knatt-
spyrnu, fagnaði fertugsafmæli sínu í góöra vina hópi
nýlega. Hann og kona hans Valdís Þorvaldsdóttir
buðu til veislu í Hamri og þar var saman kominn stór
hópur fólks.
Sigurður sem hefur verið einn þekktasti knatt-
spyrnumaður landsins í gegnum tíóina, spilaði lengi
með liði Skagamanna, var fyrirliói liðsins og síóar
þjálfari og þaö kom því ekki á óvart að fjöldi Skaga-
manna sótti hann heim á þessum merku tímamótum.
Auk þess voru Þórsarar fjölmennir bæði ungir og
gamlir, lcikmenn, stjórnarmenn, vinnufélagar og kon-
ur þeirra. Einnig sáust KA-menn í veislunni, nt.a.
leikmenn sem spiluðu með Sigurði í liði ÍBA á árum
áður.
Afmælisbarninu bárust margar góðar gjafir og
kveðjur og auk þess voru fluttar fjölmargar ræður. Þá
var skotið upp fjórum stórum flugeldum, einum fyrir
hvern áratug og vakti sú uppákoma mikla athygli,
bæði hjá veislugestum, sem og hjá íbúum í næsta ná-
grenni við Hamar. Myndirnar sem hér fylgja voru
teknar í afmælisveislunni. KK
Afmælisbarnið, Sigurður Lárusson,
á tali við Bjarna Svcinbjörnsson,
helsta markaskorara Þórs og konu
hans Höllu Halldórsdóttur, scm
cinnig cr þckktur íþróttamaður og
cr m.a. í landsliðinu í blaki.
TILKYNNING TIL
C---t NOTENDA
Hinn 1. janúar 1995 verður núverandi
Loran-C staösetningarkerfi lagt niður
Frá sama tíma verður GPS gervihnattakerfið aðalstaðsetningarkerfi
við ísland.
Samtímis því að núverandi Loran-C kerfi verður lagt niður hefst
rekstur nýs lorankerfis, svo kallaðs NELS kerfis. Hætt verður að
senda út loranmerki frá stöðvunum á Gufuskálunt og á Grænlandi.
Búast tná við að þetta nýja kerfi nýtist ekki við vestanvert landið.
Athugið að breyta þarf Loran-C tækjum svo að hægt sé að nota þau
við NELS kerfið.
Til að bæta þjónustu við notendur, sem þurfa meiri nákvæmni en
GPS kerfið gefur, hefur samgönguráðuneytið staðið fyrir
uppbyggingu á leiðréttingarkerfi sem gefur notendum 5 til 10 metra
staðsetningarnákvæmni á hafsvæðinu umhverfis ísland.
Vita- og hafnannálastofnun sér um rekstur leiðréttingarstöðva og
eru fimm af sex þegar komnar í notkun og áætlað er að sú síðasta
verði tilbúin fyrir áramót.
Athygli notenda er vakin á því að mikill munur getur verið á
staðsetningum eftir því í hvaða staðsetningarkerfi þær eru gerðar.
Það er því ekki hægt að finna stað mældan í Loran-C kerfinu með
GPS (eða NELS tækjum), Loranpunktasöfn verða því ónothæf.
Unnið er að því að breyta Loran tölum í GPS töiur.
Nánari upplýsingar veitir Vita- og hafnamálastofnun,
sími 91-600000.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTI
RÁÐUNEYTI FLUTN I NGA, FJARSKI PTA OG FERÐAMÁLA
Stjórnarmenn Þórs létu sig ckki vanta og hér má sjá m.a. þá Rúnar Antons-
son, varaformann aðalstjórnar og fyrrum formann knattspyrnudcildar,
Friðrik Adolfsson, ritara aðalstjórnar, Árna Gunnarsson, vallarstjóra og
Ragnar Brciðfjörð Ragnarsson, varaformann knattspyrnudeildar. Myndir: KK
Strákarnir í 1. deildarliði Þórs fjölmcnntu í veisluna ásamt mökum sínum
og samfögnuöu „gamla manninum.“
Skagamcnn Ijölmcnntu til Akurcyrar og hciðruðu Sigurð með nærvcru
sinni á þcssum mcrku tímamótum.