Dagur - 09.07.1994, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 9. júlí 1994
POPP
MAGNÚS ÚEIR OUÐMUNDSSON
ÁFRAM SAMA SAGAN
- ENN OG AFTUR BLIKUR Á LOFTI HJÁ GUNS N’ ROSES
Hafi einhver verið farinn að halda
að ró og friður væri að færast yfir
herbúðir stórrokkaranna banda-
rísku í Guns n’ roses og þaðan
væri lítilla tíðinda að vænta, þá er
því nú aldeilis ekki að heilsa.
Virðist nú enn einn „lönguvit-
leysukaflinn" í hinni vægast sagt
skrautlegu sögu hljómsveitarinn-
ar vera hafinn, sem ekki sér fyrir
endann á og er ómögulegt að
segja hvaða afleiðingar hann
kann að hafa í för með sér. En
innan um vondu tíðindin, sem
hlaðist hafa upp að undanförnu,
eru önnur skárri, sem e.t.v. er
betra að skýra frá fyrst.
Gítarleikaraplötur
Betri fréttirnar og þær sem verða
að teljast eðlilegri eru þær, að
báðir gítarleikararnir, þeir Slash
og Gilby Clarke, eru með plötur í
bígerð. í tilfelli Clarkes er þó um
meira en bígerð að ræða, því
hann hefur fullgert plötuna og er
hún að koma út nú í júlí. Ber hún
titilinn Pawn shop guitars og inni-
heldur 11 lög. Eru níu þeirra eftir
Clarke sjálfan, en tvö fengin frá
frægum sveitum. Annars vegar
stonesslagarinn Dead flowers, en
hins vegar Jail guitar doors úr
smióju pönkgoðanna í Clash.
Clark nýtur krafta töluvert margra
tónlistarmanna á plötunni, þ.á.m.
allra hinna félaganna í Guns n’
roses. Að sögn Clarkes mun
uppistaðan á plötunni vera bland-
að popp, sem lítið eigi skylt meó
Guns n’ roses. Hvað varðar
plötuna hans Slash, þá er vinna
við hana aðeins rétt að hefjast.
Hún hefur þó þegar fengið nafnið
SVO snakepit (svo stendur fyrir
Slash very own) en útgáfan er
með öllu á huldu. Markast sú
óvissa einkum af því aó Slash
hefur ekki ennþá fundið rétta
söngvarann, sem hann telur sig
þurfa. Treystir hann sér nefnilega
ekki til að syngja sjálfur, þótt
hann hafi sótt söngtíma að und-
anförnu. Það gerir Clarke aftur á
móti á sinni plötu. Slash er þó til-
búinn með sautján lög til upptöku
þegar söngvarinn finnst, sem síð-
an tíu verða valin úr fyrir plötuna.
Þá mun ekki vera loku fyrir það
skotið að túlkun Slash á Step-
penwolflaginu fræga Magic carp-
et ride fljóti með á plötunni. Með
Slash á henni munu væntanlega
spila þeir félagar hans úr Guns n’
roses, Clarke og Matt Sorum
trommari og síóan Michael Inez
bassaleikari í Alice in chains. En
það vantar sem sagt söngvara.
Upplausn?
Slæmu fréttirnar, sem óneitan-
lega eru fyrirferðarmiklar og hátt-
hrópaðar, eru þær að upplausn
virðist vera í gangi innan Guns n’
roses og allt upp í loft meó a.m.k.
suma meðlimi hljómsveitarinnar.
Er þar fyrst að telja að svo virðist
sem Axl Rose söngvari hafi upp
á sitt eindæmi rekið Gilby Clarke
úr selskapnum, án útskýringa eft-
ir því sem næst verður komist.
Gerir kappinn þetta mitt í því er
hann stendur í dómsstólastappi
við bæði fyrrum kærustu og eig-
inkonu, hvorki meira né minna.
Veit enginn hvernig þau mál
munu enda, en víst er að slúður-
blöðin þurfa ekki að kvarta yfir
efnisleysi. í ofanálag herma svo
frekari fréttir frá Bandaríkjunum
að Sorum trommari hafi verið
kæróur fyrir að lúskra á eigin-
konu sinni. Mun hannhafa fengið
á sig dóm fyrir það fyrir u.þ.b.
viku. Öll þessi ósköp setja enn
einu sinni spurningarmerki vió
framtíð sveitarinnar, sem vart
getur þolaó slíkt til lengdar. Mun
væntanlega fást úr því skorið inn-
an skamms hvað um hana verð-
ur, en eins og fyrr sagði er erfitt
að spá um afleiðingarnar.
Guns n’ roses er nú sem aldrei fyrr í fréttum af mörgum ástæðum. Gætu endalokin jafnvel verið nálægt hjá stórsveitinni.
ATHYGLI
SKAL
VAKIN...
Það er rétt að minna rokkunn-
endur á, og þá ef til vill sérstak-
lega þá sem eldri eru, að nýja
platan frá „Jörlunum” í Rolling
NÝR
GÍTARLEIKARI
Óstaðfestar fregnir herma að
rokkhljómsveitin sérstæða Fa-
ith no more, hafi fundið nýjan
gítarleikara í stað Jim Martins,
sem var látinn fjúka um síðustu
áramót. Mun ef rétt reynist
vera um óþekktan pilt að ræða
að nafni Trey Spruance,
(væntanlega rétt ritað) sem á
víst að hafa verió meó söngv-
ara Faith no more, Mike Patton
í sveit (hljómsveit) í eina tíð.
Vinna við nýja plötu mun svo
vera hafin og er gert ráð fyrir
að hún komi út í byrjun næsta
árs. Nánari fréttir um þetta
væntanlega síðar.
stones, Voodoo lounge, er rétt
í þann mund að koma út. Út-
gáfudagurinn er nánar tiltekið
þann 15. júlí. Er það ekki að
ástæðulausu sem minna má á
gripinn, því fyrstu lögin sem
heyrst hafa af plötunni lofa
mjög góðu og að jafnvel sé um
að ræóa þaó ferskasta frá
Jagger og félögum I langan
tíma. Var það reyndar líka sagt
um síðustu hljóðversplötu,
Steel whells, þannig að menn
munu víst seint hætta aó hríf-
ast eða fá leiða á Rolling
stones. Mun Voodoo lounge
innihalda ein fimmtán lög og
var það Don Was sem sá um
upptöku plötunnar. Sem for-
smekkur aó plötunni, kom út
fyrir skömmu fjögurra laga
plata þar sem Love is strong er
aðallagið, en tvö af hinum
þremur eru aukalög sem ekki
verða á plötunni. Gripur sem
sannir og fleiri Stonesaðdáend-
ur láta ekki fram hjá sér fara.
Annað væri nú.
Rolling stones virka ferskir á nýju plötunni.
JAGGER
ENN AÐ
SÖNGKONU-
SORG
í Poppi fyrir viku var sagt frá því
að Cortney Love söngkona Hole,
væri aðeins farin að jafna sig eftir
hið hræðilega sjálfsvíg eigin-
mannsins Kurt Cobain og hefði
m.a. verið viðstödd kvikmynda-
verðlaunaafhendingu MTV. (sú
athöfn var víst á dagskrá Stöðvar
tvö um síðustu helgí) En aum-
ingja stúlkan er vart farin að horf-
ast í augu við raunveruleikann að
nýju þegar frekari áföll dynja yfir
og er það víst að hún mun hér
eftir eiga heldur erfitt uppdráttar.
Það gerðist sem sé fyrir u.þ.b.
þremur vikum aó ein nánasta vin-
kona Courtney og bassaleikari
Hole, Kristen Pfaff, lést af völdum
lyfjaneyslu. Mun hún af yfirlögðu
ráði hafa tekið lyfin, sem voru eft-
irþví sem fréttir segja svefntöflur.
Þrátt fyrir þetta áfall hafa Courtn-
ey og hinir eftirlifandi meðlimir
Hole gefið út þá yfíriýsingu að
hljómsveitin muni halda áfram.
Það verður þó örugglega erfitt
sem fyrr segir fyrir söngkonuna,
en hún hefur í ofanálag mátt þola
ýmislegt ónæði við heimili sitt.
Óvelkomna gesti sem hafa viljað
ná tali af henni og jafnvel reynt
að brjótast inn.
DÁNAR-
FREGNIR
Önnur skuggaleg dauóafrétt auk
þeirrar um bassaleikara Hole hér
á síðunni, er af fyrrum söngvara
bandarísku hljómsveitarinnar Ri-
ot, Rhett Forrester, en hann var
skotinn til bana fyrir skömmu f
Atlantaborg. Var Riot ein af fram-
varóarsveitum bandarísks
þungarokks í byrjun áttunda ára-
tugarins og söng Forrester með
henni á tveimur plötum, þeirri
fjórðu og fimmtu í röðinni, Rest-
less breed og Born in America.
Um tildrög skotárásarlnnar er
ekki nánar vitaó og er ekki vitað
hver eða hverjir myrtu hann.
Engan vafa er hins vegar um að
ræða varðandi fráfall Derek „Lek"
Leckenby, gítarleikara í hinni
frægu bresku hljómsveit á sjö-
unda áratugnum, Hermans herm-
its. Lést hann úr krabbameini fyrir
stuttu, 48 ára að aldrí. Hafði hann
um nokkurt skeið barist við sjúk-
dóminn er hann lést. Hermans
hermits var ein af vinsælli popp-
sveitum bítlatímabilsins svokall-
aða og átti geysivinsæl lög á
borð við l’m into something good
og There's a kind of hush meðal
annarra. Annar gítarkappi, að öll-
um líkindum nokkuð þekktari, var
svo einnig að deyja fyrir skömmu
úr krabbameini. Er þar um að
ræða hinn virta Joe Pass, sem
lengi var ( fremstu röó djassraf-
magnsgítarleikara af gamla skól-
anum. Var hann 65 ára að aldri.
Hljómsveitin Hole ætlar að
halda áfram þrátt fyrir sviplegan
dauðdaga bassaleikarans Krist-
en Pfaff. (önnur frá vinstri).