Dagur - 01.10.1994, Síða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 1. október 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON.(lþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Hvar eru mörkin?
Fá mál hefur borið jafn hátt í þjóðmálaum-
ræðunni síðustu vikurnar og mánuðina en
mál Guðmundar Árna Stefánssonar, félags-
málaráðherra. Eins og svo oft áður þegar
ráðamenn þjóðarinnar þurfa að svara bein-
skeyttum spurningum um störf sín og emb-
ættisgjörðir þá hafa háværar raddir snúist til
varnar og haldið því fram að um persónuleg-
ar árásir sé að ræða. Ráðherrann sjálfur hefur
fundið samheiti yfir spurningarnar sem hann
hefur þurft að svara og kallar þær „siðvönd-
unarstefnu".
Þetta mál má nálgast frá öllum hliðum, líka
þeirri að láta liggja á milli hluta hvaða ein-
staklingur það er sem þarf að skýra fyrir
þjóðinni embættisfærslur sínar. Hvort sem
stjórnmálamaðurinn, lýðræðislega kjörinn af
þjóðinni, heitir Guðmundur Árni Stefánsson
eða eitthvað allt annað þá þarf hann að lúta
umtalsverðum aga í starfi. Ekki aðeins sjálfs
síns vegna heldur líka vegna þess að þjóðin
verður að eiga þann öryggisnagla að þeir
sem fari með stjórn landsins geti ekki leyft
sér í krafti valda sinna að játa á sig mistök í
starfi og halda síðan áfram ferðinni eins og
ekkert hafi í skorist.
Ekki þarf að fara langt aftur í tímann til að
finna dæmi um afsögn ráðherra í Þýskalandi
sem notaði bréfsefni og pappír ráðuneytisins
í sína eigin þágu og fjölskyldunnar. Þar virð-
ast menn beita sjálfa sig þeim aga að fram-
kvæma ekkert það í starfi sem orkað getur
tvímælis. Hérlendis sitja menn uppi með þá
spurningu hvar á að draga mörkin og hver á
að gera það? Þeir sem finna ættu lausnina
eru stjórnmálamenn sjálfir, þeir sem vinna á
stóra leiksviðinu fyrir framan þjóðina. Geri
þeir það fer vafalítið meira fyrir virðulegri
umræðu í þjóðfélaginu um störf stjórnmála-
manna en á undanförnum árum.
MANNLÍF
I UPPAHALDI
Bjöggi hefur
engu gleymt
Um síðustu helgi steig Björgvin Halldórsson og
félagar hans í Brimkló á svió Sjallans á Akureyri
og trylltu ballgesti. Greinilegt var að Bjöggi hefur
engu gleymt, þrátt fyrir aó árin færist yfir, og þeir
félagamir héldu uppi miklu fjöri. Okkar maöur á
staónum, Þorgeir, tók meðfylgjandi myndir. óþh
Bjöggi hcfur cngu gleymt - hann er
bara nokkrum árum eldri en þcgar
hann söng „Þó líði ár og öld“.
Þrjár hressar í syngjandi sveiflu.
Bræðrunum Hilmari og Sævari Sæmundssonum leiddist ekki.
Björgvin Halldórsson og félagar hans i Brimkló sáu um að halda gestunum
úti á gólfi Sjallans.