Dagur - 01.10.1994, Síða 6

Dagur - 01.10.1994, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 1. október 1994 Ég er svo mikill þjóðarrembingur Akureyringurinn Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir er ein af þeim sem hefur látið drauminn rætast. Hún hefur komið sér upp litilli og snoturri saumastofu i Grófargili á Akureyri, sem hún kallar Kiðagil. Þar verða til mokka- og skinnflikur aföllum stærðum og gerðum. Dagur bank- aði upp á hjá Siggu Viff, en svo er hún gjarnan kölluð af vinum, á dögunum. Fyrst um bakgrunn Sigriðar Sunnevu. „Ég útskrifaðstfrá Menntaskólanum á Akureyri árið 1983 og ári síðar fór ég i Myndlista- og handiðaskólann og inn- ritaðist i auglýsingateiknun. Ég var engu að siður staðráð- in i þvi aðfara i tiskuhönnun og leit á námið i MHÍ sem góðan grunn Jyrir hana. Ítalía varð fyrir valinu afþeirri einföldu ástæðu að hönnun og sköpunargáfa ítalanna hreif mig, ekki aðeins ifatnaði heldur einnig í myndlist, arki- tektúr, iðnhönnun ogfleiri listgreinum. Ég ætlaði mér í skóla i Milanó en málin æxluðust þannig að ég innritaði mig i italsk-bandariskan tiskuháskóla í Flórens, sem heitir Polimoda, en hann er einskonar dótturskóli „Fashion Ins- titute of Technology". Þar stúderaði ég í þrjú ár og líkaði vel. Þama voru gerðar miklar kröfur og maður lærði að vinna bæði hratt og vel. Kannski má segja aó kennsluaóferóimar hafi verið banda- rískar en hönnunin ítölsk. Þetta var að mínu mati góð blanda. Eg ákvað að leggja áherslu á hönnun fatnaðar úr íslensku hráefni og lokaverkefnið mitt, sem var undir „inspirasjón“ frá Norðurljósunum á norðurhjara, sam- anstóð af fjórum alklæðnuðum úr mokka, leðri og ullarjerseyi. Við- brögðin voru mjög góð og úr nem- endahópnum þetta árið var ég valin sem besti hönnuðurinn á utanyfir- flíkum.“ Öguð vinnubrögð ítala „Eftir útskrift komst ég síðan í kynni við nokkur af stærstu fyrirtækjunum í þessum mokka- og leðurbransa á Italíu og vann ég sem fatahönnuður hjá einu þeirra í tæpt ár og öðlaðist dýrmæta reynslu. Ég kynntist öguð- um vinnubrögðum og hugsunarhætti ítalanna og það er ekki spuming að Islendingar mættu mikió af þeim læra. Viö eigum tvímælalaust að hafa þaó að leióarljósi aó framleiða einungis það besta. Viö þurfum að skapa framleiðslu okkar ímynd og hefð og láta gæðin sitja í fyrirrúmi en ekki magnið. Meö fullunninni vöru hér heima skapast ekki einungis meiri atvinna og auknar gjaldeyris- tekjur, heldur ekki síður góður orðstír. Atvinnurekandi minn fór þess á leit við mig að kynna þær vörur sem hann framleiðir. á íslandi. Það vakti eólilega athygli ítalanna að hér norð- ur undir heimskautsbaug skyldu ekki fleiri en raun ber vitni ganga um í þykkum mokkaflíkum og því vildu þeir athuga markaðinn hér á landi. Ég komst að því aó ef litir og snið á þessum flíkum féllu Islendingum í geð, þá gætu þær runnið út eins og heitar lummur. Athugun mín leiddi líka í ljós að mokkafatnaðurinn yrði að hafa eilítið norrænna yfirbragó. I raun er skandinavískur fatastíll ein- hversstaðar mitt á milli mið- og suð- ur- evrópsks annars vegar og banda- rísks hins vegar. Málið þróaðist síóan þannig að ég fór sjálf að athuga möguleikann á því að setja á stofn fyrirtæki á Islandi sem sérhæföi sig í framleiðslu alís- lensks mokka- og leóurfatnaóar. Hugmyndin var sú að ítalska fyrir- tækió, sem ég hafði unnið hjá, ætti aöild að fyrirtækinu. Af því varð þó ekki í bili, en hins vegar hafa Italir eftir sem áður áhuga á samstarfi við Islendinga á þessu sviói, ekki síst vegna gæða og sérstaks karakters ís- lenska hráefnisins." Saumastofan Kiðagil „Hugmyndin var sú að framleiða fatnað sem ekki færi á milli mála að væri íslenskur. Þann 11. október 1993, fyrir tæpu ári, startaði ég saumastofunni minni og eftir að hafa komið mér upp lágmarks lager af mismunandi vestum, jökkum, vestis- peysum og mokkaflíkum, fór ég með þessar vörur í verslanir og kynnti þær. Ég fékk strax góðar viðtökur. Til að byrja með var saumastofan heima hjá mér, en þaö gat auðvitað ekki gengió til lengdar og frá og með miðjum júní sl. hef ég haft aðstöðu hér í Grófargili og saumastofuna kalla ég Kiðagil. Þessi nafngift helg- ast af því að ég er svo mikill þjóðar- rembingur í mér og vil engar út- lenskar nafngiftir. Svo passar þetta nafn svo ótrúlega vel viö það sem ég er að fást vió í lambs- og geita- skinnum, að ég tali nú ekki um stað- setninguna í Gilinu. Listagilið er mjög spennandi „menningarsenter" sem gæti með tímanum skapað vissan íslenskan heimsborgarabrag í þessu fámenna bæjarfélagi á norðurhjara. Það er hins vegar umferðarþungi og því sem honum fylgir, s.s. skortur á bíla- stæðum, mengun, hávaði og síðast en ekki síst slysahætta, scm er mikið Fata- hönnuðurinn Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir sótt heim vandamál og þarf að leysa sem fyrst, annars getur þetta ekki gengið til lengdar.“ Sigríður Sunneva er hugmynda- smiður saumastofunnar og auk henn- ar starfa þrjár konur í Kiðagili. „Ég tel mig hafa verið sérdeilis heppna með starfsfólkið því við vinnum eins og einn maður og andrúmsloftið er mjög gott.“ íslenskt hráefni í öndvegi Um þesssar niundir er Sigríður Sunneva að ganga frá kaupum á þrotabúi mokka- og leðursauma- stofu, sem staðsett var í Skagafirðin- um en var í raun hluti þrotabús skinnasaumastofu Sambandsins. „Nú eru þessar vélar og tæki að snúa heim á æskustöðvamar þar sem þær eiga réttilega heima. Þessi véla- og tækjakostur gæti séð a.m.k. 10 manns fyrir vinnu í framtíðinni og það er því hugsanlegt aó leitað verði eftir hluthöfum ef fyrirtækið fer að færa út kvíarnar. Það er ekkert laun- ungarmál að ég stefni á útflutning.“ Hráefni í fatnaðinn segist Sigríö- ur fá að langstærstum hluta frá Skinnaiðnaði hf. á Akureyri en ftsk- roðið kaupir hún af manni á Akur- eyri og Loðskinni á Sauðárkróki. Loðdýraskinn notar Sigríður í kraga og bryddingar og þau fær hún frá Jakobi Amasyni, loðdýrabónda á Vatnsleysuströnd. Tölur kaupir hún meöal annars austan af landi og úr Eyjafirði. Rúskinnið veróur hún hins vegar aó kaupa frá Danmörku og finnst henni það miður. „Öll önnur skinn kaupi ég af Skinnaiðnaði hf. og ég verð að segja að þeir sem þar vinna kunna vel til verka og hafa reynst mér ákaflega vel. Framleiðsla þeirra er afar fram- bærileg og í háum gæóaflokki og þaó hef ég líka heyrt af munni Itala. Enn sem komið er hef ég ekki framleitt það mikið af fatnaói að ég vilji opna hér sölugallerí, en hins vegar verður þess ekki langt að bíða. Auk þess sem ég sel í verslunum bæði hér á Akureyri (Centro) og í Reykjavík (Frikka og dýrinu og Is- lenskum heimilisiðnaði), þá hef ég hannað flíkur samkvæmt pöntunum frá fólki sem þekkir mig eða hefur heyrt mín getið.“ Sýningar á dagskrá „Ég hef enn sem komið er ekkert gert af því að auglýsa þessa fram- leiðslu, en það sténdur til bóta. Nefnt hefur verið/við mig að taka þátt í sýningu í Reykjavík um miðjan nóv- ember og skilst mér að þema hennar sé í stórum dráttum hvemig^ verði umhorfs a íslandi árið 2000. Ég hef ekki tekió, endanlega ákvörðun um hvort ég vcrði með í þessari sýningu, en hins vegarær ég ákveðin í því aö efna til eigin syhingar á mínum fatn- aði helst fyrir jól. Httgmyndin er sú að hafa eina sýningu nér á Akureyri og tvær sýningar viku síðar í Reykja- vík og mun ég að sjálfsögðu kynna þær betur þegar þar að kemur. Þá er ég með þaö á stefnuskránni að fara til Ítalíu eftir áramótin til að athuga viðbrögö Itala við þessum vörum mínum og svo náttúrulega til þess aó heimsækja vini og upplifa Flórens." Lista- eða iðnaðarmaður? Sigríði Sunnevu vafðist tunga um tönn þegar sú spuming var borin upp hvort hún liti á sig sem listamann eða iðnaðarmann. „Þaó má reyndar álíta sem svo að hver og ein llík sé hálfgert módel sem í er ákveðin sköpun. Ég gef mikió af sjálfri mér við hönnun hvcrrar flíkur og er lengi að púsla henni saman og vega hana og meta. Ég er ekki aö segja að ég sé alltaf fullkomlega ánægð, en engu aó síður reyni ég hvað ég gct að leita aó því allra besta í hverri flík. Þetta er ekki fjöldaframleiðsla og þess vegna get ég varla sagt að ég sé iðnhöldur, sem betur fer. Þetta er kannski miklu fremur handverks-/listiðnaóur. Ég ber mikla virðingu fyrir handverk- inu, það er nokkuð sem ítalamir kenndu mér. Þaö hefur löngum vant- aó töluvert upp á virðingu og skiln- ing Islendinga á því að það fer mikill tími í að hanna og sauma eina svona flík. En sem betur fcr hefur skilning- ur fólks á þcssu vaxið. Það er rétt að ég legg mikið upp úr því að þetta sé alíslensk hönnun og hráefnið sé sömuleiðis íslenskt. Með þessi atriði aö leiðarljósi tel ég aó hægt verði að skapa vörunni nafn hvar sem cr í heiminum og rúmlega það.“ Viðtal: Óskar Þór Halldórsson. Mynd: Robyn Redman. Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir er hér í jakka sem hún hcfur hannað. Hún lcggur inikla áherslu á íslcnskt hráefni sem hún segir að eftir sé tekið úti í hinum stóra hcimi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.