Dagur - 01.10.1994, Blaðsíða 11
Laugardagur 1. október 1994 - DAGUR -11
Félagsmálaráðuneytið:
Gefur út reglugerð
um skjávinnu
Félagsmálaráðuneytiö hefur gefið
út reglugerð um skjávinnu sem
lýtur m.a. að skyldum atvinnurek-
enda gagnvart þeim starfsmönnum
sem vinna við tölvuskjá.
I reglugerðinni segir að at-
vinnurekanda beri að „skipuleggja
vinnu starfsmanna á þann hátt að
dagleg skjávinna sé rofin meö hlé-
um eða vinnu af öðru tagi sem
minnkar álag við skjávinnu.“
Starfsmcnn skulu eiga rétt á að
„hæfur aðili prófi augu þeirra og
sjón á viðeigandi hátt áður en
skjávinna hefst, meó jöfnu milli-
bili eftir það eða ef fram konta
vandkvæði tengd sjón sem gætu
átt rót að rekja til skjávinnu.“
Starfsmenn skulu samkvæmt
reglugerðinni eiga rétt á skoðun
hjá augnlækni ef niðurstöður
augnskoðunar gefa til kynna að
þess þurfi og sé hún starfsmönn-
um aö kostnaðarlausu.
Reglugerðin kveður í löngu
máli á um búnað og umhverfi. Þar
segir m.a. að lyklaborð skuli vera
hallanlegt og aðskilið frá skjánum
„svo starfsmaður geti unnið í
þægilegri líkamsstellingu sem
ekki veldur þreytu í höndum,
handleggjum, hálsi eða heróum."
Tekió er fram að fyrir framan
lyklaborðið skuli vera nægjanlegt
rými til að hendur og handleggir
notanda geti hvílt á borðplötunni.
Þá segir að lyklaborðið skuli vera
með mattri áferð þannig að ekki
glampi á það.
Um vinnustóla segir að þeir
skuli vera stöðugir og veita starfs-
mönnum kost á að hreyfa sig
óhindrað og vera í þægilegri lík-
amsstellingu. Tilgreint er að hæð
setu skuli vera stillanleg, hæð
stólbaks og halli þess skuli vera
stillanlegur og öllum sem þess
óski skuli séð fyrir fótskemli. óþh
Mál og menning:
Gefur út „Ur ríki samviskunnar“
Mál og menning hefur í samvinnu
við Islandsdeild Amnesty Interna-
tional gefið út alþjóðlegt ljóöasafn
sem ber yfirskriftina Ur ríki sam-
viskunnar. Þýðandi safnsins og rit-
stjóri er Sigurður A. Magnússon,
rithöfundur, en bókin kemur út í
tilefni af 20 ára afmæli Islands-
deildar Amnesty Intemational.
Ljóöasafnió Ur ríki náttúrunnar
inniheldur 130 ljóð eftir 102 skáld
hvaðanæva af heimskringlunni.
Meðal þeirra eru nokkur helstu
skáld aldarinnar, svo sem Anna
Akhmatova, Osip Mandelsdam,
Pablo Neruda, Wole Soyinka, Se-
amus Heaney, Czeslaw Milosz og
Tomas Tranströmer.
Mörg skáldanna hafa orðið að
þola þrengingar og ofsóknir fyrir
orð sín og nokkur goldið fyrir þau
með lífi sínu. 011 hafa þau meó
einhverjum hætti gert sér þjáning-
ar aldarinnar innlífar og túlkað
þær í ljóðum sem vonandi eiga er-
indi við alla hugsandi mcnn.
Ur ríki santviskunnar er 183
bls., unnin í prentsmiðjunni Odda
hf.. Kápuna hannaði Margrét E.
Laxness.
Vanti þig öruggan, sparneytinn,
rúmgóðan og fallegan bíl
þá er Fiat Punto svarið
F I A T
i
reynsluakstur
r
Bílasýning um helgina
Opið laugardag kl. 12.00-17.00 ogsmudagkl. 13.00-17.00
(talskir bílar hf. tí
Skeifan 17 - Sími 91-887620
'öldur hf.
Sýningarsalur
Tryggvabraut 10
Símar 21715 og 27385
þrefaldur
l.vinningur!
i
MERKISMENNHF