Dagur - 01.10.1994, Page 18
18 - DAGUR - Laugardagur 1. október 1994
POPP MA6NÚS CEIR ÚUÐMUNDSSON
Nýjar hetj udáðir
Skyldi einhvern tímann renna
upp sú stund að heimurinn
eignist að nýju hlljómsveit á
borð við Bítlana eóa Rolling
Stones? Hljómsveit skipaða
ungum mönnum sem allt
myndu trylla allsstaóar? Þeirrar
spurningar spyrja menn stund-
um sjálfa sig þegar litió er aftur
til dýrðardaga þessara ofur-
sveita poppsins/rokksins og
fleiri slíkra. Sveitir á borð við
U2, REM, Guns n’ roses og
Metallica aó ógleymdum öllum
Seattlesveitunum, hafa vissu-
lega risió hátt á seinustu árum
og þá kannski sérstaklega þær
tvær fyrstnefndu, en einhvern
veginn hefur samt ekki sami
sjarminn verið yfir frama þeirra
og áóur var. Það gerir líklega
tíðarandinn, sem auðvitaó er
allur annar nú. En hvaó sem
því líður koma sífellt fleiri
hljómsveitir fram á sjónarsviðió
sem vekja verðskuldaða at-
hygli og ná, í minnsta falli,
miklum vinsældum til aó byrja
með. í Bretlandi telst það nú
vera Oasis, sem er líklegust
nýrra hljómsveita til stórafreka,
en í Bandaríkjunum eru það
tvær sveitir sem „heitastar" eru
þessa dagana í rokkinu, Off-
spring og Candlebox. Raunar
má bæta þeirri þrióju við í
Bandaríkjunum, Green day, en
um hana og eina til, Counting
crowes, sem líka hefur svo
sannarlega slegió í gegn, verð-
ur væntanlega fjallað sérstak-
lega síðar. Það sama gildir um
fleiri breskar sveitir líka, t.d.
SMASH og Echobelly.
Uppgötvaðir fyrir hreina
tilviljun
Eins og með margar fleiri
hljómsveitir sem frægar hafa
orðió og fengsælar, var Oasis
uppgötvuð fyrir hreina tilviljun
og heppni. Hljómsveitin, sem
skipuó er þeim Noel Gallagher
gítarleikara, laga og textasmið,
bróður hans Liam sem syngur,
Bonehead taktgítarspilara, Ken
McCarroll trommuleikara og
Paul McGuigan bassaleikara
og er um tveggja ára gömul,
var að spila á lítt þekktum stað
í Glasgow í Skotlandi, þegar
hún var „barin" augum af Alan
McGee, einum aðalforsprakka
Creationplötuútgáfunnar. (Hef-
ur t.d. Sugar meðal annarra
góðra hljómsveita á sínum
snærum.) Var McGee staddur
á staðnum fyrir hreina og klára
tilviljun og var snöggur að
bjóóa þeim útgáfusamning.
Raunar mun hann hafa verió
svo fljótur, að hljómsveitin
hafði vart lokið við að leika tvö
lög, þegar hann rauk upp á
sviðið til þeirra og bauð þeim
samning. Má segja aó síðan
hafi hlutirnir gengið vel og
gerst hratt hjá Oasis. Undir
áhrifum frá gömlum hetjum
eins og Bítlunum, Kinks, T-
Rex, Yardbirds og jafnvel Who
og síóan Cult, Cure og e.t.v.
samsveitungum frá Manchest-
er á borð við Smiths og The
Fall, hefur hljómsveitin með
sinni kraftmiklu og grípandi
tónlist slegið rækilega í gegn.
Hafa lög á borð vió Superson-
ic, sem var fyrsta smáskífulag-
ið og Live forever, sem fór á
topp tíu fyrir skömmu, tryggt
hana vel í sessi og undirbúió
jarðveginn vel fyrir útgáfu
fyrstu stóru plötunnar, Defini-
ungar
rokk-
sveitír
gera tíl-
katt til
hetms-
frœgðar
Pönkrokkarar tíunda áratugarins. Offspring.
Popprokk sem minnir á INXS f bland við öllu kraftmeira rokk. Candlebox 2.
Oasis. Skærustu nýliðarnir í bresku
poppi.
etly maybe, sem leit dagsins
Ijós í byrjun þessa mánaóar.
Fór hún beinustu leið á toppinn
í Bretlandi í fyrstu söluviku.
Hefur þessum skjóta frama
Oasis nú verið líkt við uppgang
Stone roses fyrir fimm árum
síðan og er það ekki að ófyrir-
synju. Þaó er hins vegar von-
andi að sami vandræðagang-
urinn verði ekki á Oasis eins
og hjá Roses, en hann hefur
ekki rióið við einteyming varð-
andi þá sveina. Er eins og fram
hefur komið áður hér í Poppi,
þó loksins að koma önnur plata
frá þeim innan tíóar. En hvað
sem því líður, þá er það Ijóst
með Oasis aó sveitin er komin
í sömu deild og Suede, Manic
street preachers, Terrorvisi-
on.Therapy?, Primal scream,
Radiohead og fleiri, sem nýja
þungamiðjan í bresku rokki og
þó víóar væri leitað.
Afrótum pönksins
Þegar pönkbylgjan hafði að
mestu rióið yfir í upphafi ní-
unda áratugarins í Bretlandi og
Bandaríkjunum, hlakkaði í
mörgum og voru menn ósparir
á að lýsa yfir dauða þessa
„vonda” fyrirbæris. En góóu
heilli, allavega í tónlistarlegu til-
liti, reyndust þær dauðayfirlýs-
ingar ýktar. Pönkrokkió dó
nefnilega ekki, það lá um tíma í
dvala, en smá saman hefur
þaó og áhrifa þess farió aó
gæta aó nýju. Seattlesveitirnar
og þá kannski sérstaklega Nir-
vana, hafa t.d. átt stóran þátt í
endurkomu áhrifa pönksins og
svo sjá menn t.a.m. í sveitum
eins og hinni bresku SMASH,
pönkið sjálft, hreint og klárt,
komið að nýju. Nú hefur síðan
fjögurra manna sveit frá Los
Angeles, sem tvímælalaust er
sprottin af rótum pönksins, Off-
spring, slegið rækilega í gegn í
Bandaríkjunum meó sinni ann-
arri plötu, Smash. Sveitin er
skipuð Dexter Holland gítar-
leikara og söngvara, Greg K
bassaleikara, Ron Welty
trommara og Noodles gítarleik-
ara og hefur hún verið
starfandi í um hálfan áratug.
Auk pönksins segjast þeir líka
vera mótaðir af hljómsveitum
eins og TSOL, en sú ágæta
sveit heimsótti einmitt ísland
fyrir nokkrum árum. Hefur
Smash selst í yfir milljón ein-
tökum í Bandaríkjunum og situr
í sjötta sæti yfir mest seldu
plöturnar.
Enn ein
„Seattlesprengjan “
Þriója hljómsveitin sem hér
skal nefnd er slegið hefur svo
um munar í gegn að undan-
förnu og þykir líkleg eins og
hinar til stórafreka, er Candle-
box, sú nýjasta í röðinni úr
rokksprengingunni frá Seattle.
Eins og Offspring og reyndar
Green day líka, hefur Candle-
box farið mikinn í Bandaríkjun-
um að undanförnu og hefur
fyrsta samnefnda platan þeirra
nú selst í hátt á aðra milljón
eintaka. Þó er um rúmt ár síð-
an platan kom upphaflega út,
en í kjölfar tónleikaferóar með
Metallica og þáttöku í Wood-
stock 2, hefur hún rokið upp í
sölu. Voru þaó þeir Kevin Mart-
in söngvari, Scott Mercado
trommuleikari, Peter Klett gítar-
leikari og Barch Martin bassa-
leikari (ekkert skyldur söngvar-
anum) sem stofnuóu Candle-
box í desember 1991 og hefur
hljómsveitin verið eins skipuð
síðan. Fengu þeir nafnið á
henni úr texta með lagi eftir
áströlsku sveitina Midnight oil.
Vöktu þeir félagar fljótlega at-
hygli og voru um hálfu ári eftir
stofnun komnir meó plötu-
samning vió Maverick, útgáfu
sjálfrar Madonnu og voru þeir
jafnframt fyrsta rokksveitin sem
hún tók upp á sína arma. Er
poppdrottningin nú víst góð
vinkona þeirra. Er það spá
margra aó Candlebox geti
hæglega náð enn lengra á
frægóarbrautinni og orðió ein
af þeim stærstu í rokkheimin-
um. Hvort það hins vegar getur
oróið í líkingu við Bítlana og
Rolling Stones, eins og velt var
upp í byrjun, er svo annaó mál
og gildir þaó sama um hinar
tvær sveitirnar sem hér hefur
verið fjallaó um og fleiri. Ef til
vill tekst hinni írsku popprokk-
sveit Cranberries það frekar,
en hún hefur nú þegar eins og
kunnugt er slegió í gegn bæði
austan hafs og vestan meó
plötunni sinni frá síóasta ári,
Everybody else is doing it, so
why can’t we? Viðgangur nýju
plötunnar No need to argue
mun væntanlega einhverju
ráóa um þaó.
PiÉtar
Eftir nokkra leit og fjöl-
margar prufur hefur
nú nýr gítarleikari
fundist sem arftaki Bernards
Butler í Suede. Er þar um
að ræöa ungan pilt að nafni
Richard Oakes. Mun hann
hafa komið fyrst fram meó
hljómsveitinni í síóustu viku,
í þættinum Top of the pops,
þar sem hún flutti nýja smá-
skífulagið We are the pigs.
Fór lagið í 14. sæti breska
smáskífulistans í fyrstu viku.
Hin snoppufríóa Eyja-
álfusnót, Kylie
Minogue, er nú aftur
komin á kreik og er sem oft-
ast fyrr vel áberandi. Situr
nýjasta lagió hennar, Confi-
de in me, þessa dagana í
fimmta sæti breska smá-
skífulistans, en það náði
öðru sæti við útkomu. Ný
plata, samnefnd, er svo aó
koma út.
Pearl Jam mun aó öll-
um líkindum fá til liós
við sig óþekktan
trommuleikara í stað Dave
Abbruzzese, sem hætti fyrir
stuttu. Enn er þó á huldu
hver hinn nýi er. Þá er það
frekar aó frétta af Pearl
Jam, að útgáfu nýju
plötunnar, Vitalogy, hefur
veriö seinkað. Á platan nú
að koma út í nóvember.