Dagur - 16.06.1995, Side 1
78. árg. Akureyri, fóstudagur 16. júní 1995 113. tölublað
Ferðamönnum fjölgar
Fjöldi ferðamanna sem koma
á Umferðamiðstöðina á Ak-
ureyri hefur tvöfaldast frá fyrri
viku.
Rósa Jónsdóttir á Umferðar-
miðstöðinn sagðist vera býsna
ánægð, ferðamannastraumurinn
hefði tekið kipp í vikunni og
fjöldinn væri helmingi meiri en í
síðustu viku. Allir fjallvegir eru
lokaðir, en að sögn Rósu er tölu-
vert spurt um ferðir utan þjóðveg-
arins. „Flestir spyrja um leiðina að
Dettifossi og veröa fyrir miklum
vonbrigðum þegar þeir fá að vita
að vegurinn sé enn ófær.“
Hótel Reynihlíð var full skipað
í gær og gott hljóð í mönnum þar,
sagði Pétur Snæbjömsson hótel-
stjóri að honum sýndist fcrða-
mannafjöldinn vera á góðu róli,
svipaður og undanfarin ár.
Starfsmömium tjaldsvæða á
Noróurlandi bar saman um að fáir
tjölduðu en góð nýting væri á
gestahúsum við tjaldsvæðin. shv
Síldin á heimleið?
- ísiendingar eiga óveidd 49 þúsund tonn
Gluggað í samninginn.
Mynd: Robyn
Ami Friðriksson, skip Haf-
rannsóknastofnunar, hélt í
íyrrakvöld austur fyrir land til
síldarleitar. Færeysk sfldarskip
hafa mokveitt úr norsk-íslenska
sfldarstofninum undanfama
Samningar tókust í sjómannadeilunni:
Forsvarsmenn sjómanna lýstu
yfir ánægju með samninginn
Sjómenn og útgerðarmenn
undirrituðu nýjan kjara-
samning í fyrrinótt, en þá hafði
samningafundur staðið f um 20
klukkustundir. Samningurinn
var kynntur á fundum vítt og
breitt um land í gær og að því
loknu var hann tekinn til at-
kvæðagreiðslu. Úrslit úr henni
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í
vinnslu, en fastlega var búist við
að samningurinn yrði sam-
þykktur og þriggja vikna verk-
falli sjómanna þar með aflýst.
Gildistfmi samningsins er til árs-
loka 1996.
í stórum dráttum er samningur-
imi byggður á miðlunartillögu rík-
issáttasemjara sem sjómenn
felldu, en í honum er tekið á atrið-
um sem ekki voru í miðlunartil-
lögunni og atriðum sem sjómenn
voru ekki sáttir við. Stærsta breyt-
ingin felst í breytingum á olíu-
verðsviðmiðun, þar sem búin eru
til ný þrep. Verðmyndun á olíu
ræður síðan hverju þetta skilar.
Annað atriöi varaðar uppsagnar-
frest, sem var lengdur úr viku í
allt að 21 dag eftir starfsaldri.
Einnig voru gerðar breytingar á
starfsaldursálagi. I miðlunartillög-
unni var tekið á verðmyndun á
sjávarafla og er það nánar útfært í
hinum nýja samningi. Þannig er
úrskurðamefnd um fiskverð gerð
skilvirkari að mati sjómanna.
Forsvarsmeim sjómanna lýstu
yfir ánægju með samninginn og
hvöttu félagsmenn sína til að sam-
þykkja hann. Konráð Alfreðsson,
formaður Sjómannafélags Eyja-
fjarðar, sagði mikið ánægjuefni að
samningar hafi náðst og sagöi
samninginn verulega betri en
miðlunartillöguna. „Við náum
fram olíuvcrðstengingunni eins og
við lögðum hana fram í upphafi,
lengri uppsagnarfresti og breyttu
starfsaldursálagi.“
- og hvöttu sína menn tii að samþykkja hann
- Eillhvað sem þú er ósáttur að verö í því sambandi geti farið
óeðlilega langt niður.
Viö emm áfram að byggja á
frjálsu fiskverði og leggjum nú í
hendur hvers og eins að leysa
málið við sína áhöfn og gefa
þannig áhöfninni meiri rétt en hún
hafði áður til að fjalla um þessa
hluti. Síðan er fundinn farvegur til
að þaö komi niðurstaða í deilu-
málum um þessa hluti án þess að
komi til leiðinda og jafnvel vinnu-
stöðvana eins og hefur gerst á ein-
staka stað. A móti náði ekki fram
aö ganga krafa sjómanna um að
setja allan fisk á markað, enda
töldum við slíkt mjög óheppilegt
eins og okkar aðstæður em og sést
best í samhengi eins og hjá Ut-
gerðarfélagi Akureyringa,“ sagði
við?
„Við náum ekki fram einu at-
riði sem við hér vomm með, en
það varðar vinnslustjóra eða mats-
menn á frystiskipum. Við hefðum
viljað sjá það öðm vísi en það
endaði, en einhvers staðar verður
maður að stoppa,“ sagði Konráð.
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, var einnig
ánægður. „Meginefni þessa máls
varðar fiskverðið. Við semjum um
þessa samstarfsnefnd og að það
skuli úrskurðað ef menn ekki ná
samningum um fiskverðsmálin.
Eftir sem áður verður haldið
áfram að veiða heimildir sem em
framseldar en komið er í veg fyrir
nu
Kristján.
Hann sagði samningana
hafa verið óvenju erfiða og leiðin-
lega. „Eðlilega liggur fólk okkur á
hálsi fyrir að þetta gangi seint og
illa. Hins vegar verðum viö að fá
skilning á okkar stöóu í þessu
máli, sem er afar sérstök. LIU er
að semja við þrenn samtök sjó-
manna með allt upp í 20 manna
samninganefndir um sama atriðið.
Þarna verður að verða breyting á,
þannig aö þeir sem em að semja
um sama hlutinn geti setið í sama
herbergi. Þetta verða sjómenn
sjálfir að skilja að getur ekki
gengið og þeir verða að finna sér
betra samband innbyrðis en þarna
kom fram,“ sagði Kristján Ragn-
arsson. HA
daga um 15 sjómflur innan fs-
lensku lögsögunnar f stefnu beint
austur af Langanesi en Ámi mun
hefja leit mun sunnar og vestar.
Ástæða þess er sú að færeyska
skipið Kronborg keyröi fram á
síldartorfu á dögunum sem var á
um 64 gráðum og 40 mínútum
norður og 9 gráðum vestur. Þessi
síld er langt imian viö mörk ís-
lensku lögsögunnar og fyrir sunnan
tungu af köldum sjó sem er norður
og austur af landinu. Taldi skip-
stóri Kronborg að síldin stefndi á
Rauða torgið, en það em hinar
gömlu vetursetustöðvar norsk-ís-
lenska síldarstofnsins. Sé þetta
raumn er um mikil tíðindi aó ræða.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
ramisóknastofnunar, sagöi erfitt að
meta þessar fréttir, en nokkrir dag-
ar em síðan þetta gerðist. Fær-
eysku skipin hafa ekki hugað að
þessu meðan þau hafa mokveitt
mun norðar og austar en sú síld
mun vera á norðurleið og fer senni-
lega út úr íslensku lögsögumú inn-
an skamms. Eftir nokkra daga taldi
Jakob hins vegar að menn yrðu
búrúr að fá úr því skorið hvernig
dreifing síldarinnar væri og þá gæti
skýrst hvort hún er raunvemlega
að ganga á sínar gömlu slóðir á
Rauða torginu.
Islendingar eiga óveidd 49 þús-
und tonn af þeim síldarkvóta sem
ákveðinn var í samvinnu við Fær-
eyinga.
HA
Deiliskipulag vöruhafnarinnar á Akureyri í vinnslu:
Flutningamiðstöð Norðurlands hefur
sótt um 10.000 m2 lóð á svæðinu
- og Eimskip hefur kynnt hugsanlega stækkunarþörf fyrirtækisins
Afundi hafnarstjómar Akur-
eyrar í vikunni, kynnti
Bjarni Reykjalfn, arkitekt, vinnu
sfna við aðalskipulag vöruhafn-
arinnar. f framhaldinu var hon-
um falið að vinna frekar að
skipulaginu og skila þeirri vinnu
innan hálfs mánaðar.
Á sama fundi lá fyrir umsókn
frá Flutningamiðstöð Norðurlands
um 10.000 fermetra lóð upp af
Tangabryggju, undir starfsemi
fyrirtækisins og möguleika á
stækkun lóðarinnar um allt að
5.000 fermetra til vióbótar.
Hyggst fyrirtækið reisa 1.500-
2.000 fermetra hús á svæðinu.
Flutningamiðstöðin hefur að-
setur í skemmunni á Togara-
bryggjunni en þarf að fara þaðan
um næstu áramót. Eftir áramót er
Grunnskólarnir á Akureyri:
Svipaður fjöldi nemenda
Innritun í grunnskólana á Ak-
ureyri er lokið og útlit er fyrir
að heildarfjöldi nemenda verði
svipaður og undanfarin ár.
Gert er ráð fyrir u.þ.b. 340
nemendum í Barnaskólanum, 130
í Oddeyrarskóla, 450 í Glerár-
skóla, 330 í Lundarskóla, 650 í
Síðuskóla, 400 í Gagnfræða-
skólanum og rúmlega 40 í Gilja-
skóla.
Um 230 böni eru aö hefja
skólagöngu í ár á móti 214 í fyrra.
Að sögn Ingólfs Armannssonar,
skólafulltrúa, er heildarfjöldi nem-
enda yfirleitt svipaður núlli ára en
auðvitað fari fjöldinn eftir stærð
þeirra árganga sem eru að hefja
nám hverju sinni.
GH
gert ráð fyrir að Togarabryggjan
verði hluti af Fiskihöfninni, fyrir
starfsemi sem tengist útgerö og
fiskvinnslu.
Einnig lá fyrir fundi hafnar-
stjórnar, erindi frá Eimskip, þar
sem fyrirtækið kynnti hugmyndir
sínar og þarfir á vöruhafnarsvæð-
inu. I hugmyndum Eimskips kem-
ur fram að fyrirtækið gæti þurft
allt að 7.000 fermetra stækkun við
núverandi svæði til að byrja með
og möguleika á emi frekari stækk-
un.
Hafnarstjórn gat ekki tekið af-
stöðu til umsóknar Flutningamið-
stöðvarinnar og hugmynda Eim-
skips en mun skoða þau mál eftir
aö frekari vinnsla á skipulaginu
liggur fyrir. KK