Dagur - 16.06.1995, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 16. júní 1995
LEIÐARI----------------------------
Gruimskóli til sveitarfélaga
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500ÁMÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
Eftir ríflega eitt ár munu sveitarfélögin í landinu taka
við rekstri grunnskólans. Upphaflega var gert ráð fyr-
ir yfirfærslu grunnskólans frá ríkínu til sveitarfélag-
anna 1. ágúst nk. en þessari umfangsmiklu kerfis-
breytingu var frestað um eitt ár, til 1. ágúst 1996.
Ekki hefur mikið borið á undirbúningi þessa máls í
opinberri umræðu að undanförnu en þó verður að
ætla að að því sé unnið af fullum krafti bæði af hálfu
sveitarfélaganna og ríkisins. Hér er um að ræða afar
gott mál, það er sannarlega tímabært að færa gruxm-
skólann yfir á sveitarfólögin, en þetta er mál sem
þarf mjög vandaðan undirbúning, það má ekki klúðr-
ast á einn eða annan hátt.
Áður en til þess kemur að sveitarfélögin taki yfir
rekstur grunnskólans þarf Alþingi að hafa afgreitt
breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkis-
ins. Einnig þarf þingið að setja lög um ráðningarrétt-
indi kennara og skólastjórnenda við grunnskóla er
tryggi þeim efnislega óbreytt ráðningarróttindi hjá
nýjum vinnuveitanda. í þriðja lagi þarf Alþingi fyrir 1.
ágúst 1996 að hafa samþykkt breytingar á lögum um
tekjustofha sveitarfólaga með tilliti til þeirra auknu
verkefha sem sveitarfélögin taka að sér.
Flutningur grunnskólans frá ríki til sveitarfélag-
anna er til þess fallinn að styrkja sveitaistjórnarstigið
í landinu. Með ábyrgð á rekstri grunnskólans verða
sveitarfélögin á einu bretti mun öflugari stjórnsýslu-
einingar. Sjálfsagt eru skiptar skoðanir um það meðal
sveitarstjórnarmanna hvort það só jákvætt eða nei-
kvætt fyrir sveitarstjómarstigið, en væntanlega eru
fleiri sem telja þetta jákvætt skref. Hins vegar verður
löggjafinn að tryggja það sem hér hefur að framan
verið nefnt. Án þess að það gerist er betur heima
setið en af stað farið.
í forystugrein nýjasta tölublaðs Sveitar6tjórnar-
mála segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaðiu Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, um flutning grunn-
skólans frá ríki til sveitarfélaga: „Sveitarfélögin í
landinu hafa alla burði til að yfirtaka rekstur grunn-
skólans og þeim er fullkomlega treystandi til þess.“
Og síðar í forystugreininni segir Vilhjálmur: „Undir-
búningur umræddrar yfirfærslu verður eitt mikilvæg-
asta viðfangsefni sveitarfólaganna, landshlutasam-
takanna og sambandsins á þessu ári. Meginmarkmið
verkefnatilfærslunnar á að vera betri grunnskóli,
betri menntun grunnskólabama, aukin skilvirkni í
starfsemi skólanna og aukin ábyrgð sveitarstjórnar-
stigsins."
KVIKMYNDIR
Kátbrosleg Muríel
í Borgarbíói
Borgarbíó á Akureyri.
Brúðkaup Muricl (Muriel’s Wedd-
'ng).
Framleiðsluland: Astralía.
Framleiðendur: Linda Ilouse og Joce-
lyn Moorhousc.
Leikstjóri: P J. Hogan.
Aðalhlutverk: Toni Collette, Bill
Ilunter og Rachcl Griffiths.
Borgarbíó og Háskólabíó frumsýna
í kvöld hina vinsælu áströlsku
mynd Muriel’s Wedding.
Muriel’s Wedding hefur heldur
betur slegið í gegn í Evrópu að
undanfömu, ekki síst í Bretlandi.
Hins vegar hefur myndin ekki náð
eins góöri fótfestu í Bandaríkjun-
um. Það þarf út af fyrir sig ekki að
koma á óvart, enda á húmorinn í
myndiimi örugglega frekar upp á
pallborðið hjá Evrópubúum en
Bandaríkjamönnum.
Muriel’s Wedding er öðruvísi
mynd, þetta er fyrst og frenist góð
afþreyingarmynd. Húmorimi er
stórskemmtilegur á köflum, sum at-
riðin verulega vel útfærð og mein-
fyndin.
Aðalpersóna myndarinnar, hin
ólögulega Muriel, sem síðar breytir
nafninu í Mariel, á sér þann draum
að giftast. Þetta er vitaskuld heldur
fjarlægur draumur því útlínur
Muriel og allt hennar fas cr ekki til
þess að auðvelda að láta drauminn
rætast. Hún er atvinnulaus og að
sögn föður hennar hinn mesti
ónytjungur. Svo er reyndar um
systkini hennar öll. Faðirinn reynir
fyrir sér á hinu pólitíska sviði, en
ófríð og ólánleg fjölskyldan þvælist
fyrir frama hans.
Svo fer að Muriel fær nóg af
heimilisþrasinu, hún flytur úr litla
bænum til Sidney og fer að vinna á
myndbandaleigu. Draumurimi um
brúðkaupið er enn til staöar og svo
fer að hún gengur í fylgd fööur síns
upp aö altarinu. Brúókaupið er hins
vegar ekki eins og brúðkaup eru
flest.
Þetta er ekta gamansöm afþrey-
ingarmynd. Osjálfrátt kemur hin
vinsæla breska mynd „Fjögur brúð-
kaup og ein jarðarför” upp í hug-
ann, þótt efnistök myndanna séu
ólík. En það skyldi nú vera að hug-
myndin aö þessu handriti hafi orðið
til í kjölfar velgengni bresku brúð-
kaupamyndarinnar?
Leikaramir sýna ekki neinn
stjömuleik, en Toni Collette sýnir
skemmtilega spretti í hlutverki
Muriel. Sagan segir að hún hafi
lagt mikið á sig við undirbúning að
töku myndarinnar og bætt á sig 19
kílóum. Hinn gamalkunni leikari
Bill Hunter fer einnig vel með hlut-
verk hins uppstökka föður.
Tónlist sænsku hljómsveitarinn-
ar ABBA hefur miklu hlutverki að
gegna í Muriel’s Wedding. Muriel
er forfallin ABBA-aðdáandi og
kaim auðvitað lögin aftur á bak og
áfram. Leikstjórinn notar kunnug-
leg lög ABBA, t.d. Waterloo og
Dancing Queen, á stórskemmtileg-
an hátt, ekki síst í óborganlegu
brauðkaupsatriði, sem er með því
fyndnara sem undirritaður hefur
séð í kvikmynd.
Þessi nýja ástralska mynd á ör-
ugglega eftir aó fá mikla aðsókn
hér á landi eins og í mörgum lönd-
urn Evrópu. Það er vel þess virði að
skella sér í bíó og sjá hina ólánlegu
Muriel og fjölskyldu.
Oskar Þór Halldórsson.
Menntaskólinn á Akureyri:
Brautskráning og veisluhöld afmælisárganga
Menntaskólanum verður slitið í
115. siim á morgun, þjóöhátíðar-
daginn 17. júní. Athöfnin fer fram í
Iþróttaliöllinni á Akureyri og hefst
kl. 10, þegar stúdentsefni ganga í
saliim að lokinni skrúðgöngu frá
Gamla skóla. Iþróttahöllin verður
opnuð fyrir gesti kl. 9 í fyrramálið.
MA-hátíðin í íþróttahöllinni
í kvöld
I kvöld, 16. júní, verður svokölluð
MA-hátíð í Iþróttahöllinni. Þar
Menntaskólinn á Akurcyri er að vanda miðpunktur hátíðarhaldanna 17. júní á Akureyn. Að þcssu sinm verða 145
nýstúdcntar brautskráðir frá skólanum.
koma saman um 600 gamlir stúd-
entar frá MA við kvöldverð,
skemmtun og dans. Undanfama tvo
daga hafa afmælisárgangar komið
saman á Akureyri og gert sér glað-
an dag. Þetta eru m.a. eins árs stúd-
entar, fimm ára, tíu ára, tuttugu ára,
tuttugu og fimm ára, fjörutíu og
fimmtíu ára stúdentar.
145 nemendur brautskráðir
Dagskrá skólaslitaathafnarinnar á
morgun veróur sem hér segir:
1. Tónleikar nemenda sem ljúka
námi af tónlistarbraut.
2. Ræða skólameistara.
3. Avörp afmælisstúdenta.
4. Brautskráning nýstúdenta.
5. Avarp nýstúdents.
6. Skólasiit.
Eins og fram kom í Degi sl.
miðvikudag mun Valdimar Gumi-
arsson, settur skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, braut-
skrá 145 stúdenta að þessu sinni.
Opið hús í Gamia skóla
Eins og venja er til verður opið hús
í Gamla skóla á morgun, 17. júní.
Þar hittast gamlir og nýir stúdentar,
kennarar og aðrir vinir og veluim-
arar skólans, þiggja kaffi og köku-
bita, rifja upp mimiingar, skoða
myndir og eiga í skólanum nota-
lega stund.
Stúdentaveisla í íþróttahöll-
inni
Aimað kvöld, að kvöldi 17. júní,
verður stúdentaveisla, hátíðarfagn-
aður nýstúdenta og aðstandenda
þeirra, í Iþróttaliöllinni. Þar verða
um 800 gestir í hátíðarkvöldverði
og síðan veröur dansað fram eftir
nóttu. Um miðnætti fara nýstúdent-
ar að venju um miðbæ Akureyrar.
Skógræktarferð á Þelamörk
Undanfama daga hafa stúdentsefni
fengist við ýmislegt. Meðal annars
fóru þau sl. þriðjudag í hefðbundna
skógræktarferð að Þelamörk undir
stjórn og handleiðslu Hallgríms
Indriöasonar, framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags Eyfirðinga, og
Tómasar Inga Olrich, alþingis-
maims og fyrrum frönskukennari
við MA. A Þelamörk hafa verðandi
stúdentar MA gróðursett trjáplöntur
á töluverðu svæði um margra ára
skeið. óþh