Dagur - 16.06.1995, Side 6
6 - DAGUR - Föstudagur 16. júní 1995
Fyrir 17. júní
hátíðina
★ Hattar ★ Blöðrur
★ Knöll ★Stafir
★ Fánar ★Lúðrar
Glens og
gaman
Munið nætursöluna til
kl. 02,17. júní
Nestin
Lystigarðurinn á Akureyri:
Miiuiisvarði um Jón Rögnvaldsson
afhjúpaður nk. sunnudag
Sunnudaginn 18. júní ki. 14.00
verður athöfn í Lystigarði Akur-
eyrar þar sem minnisvarði um
Jón Rögnvaldsson, garðyrkju-
mann frá Fífilgerði, verður af-
hjúpaður. Tilefnið er að þennan
dag verða liðin 100 ár frá fæð-
ingu Jóns. Hann veitti Lysti-
garðinum forstöðu um 16 ára
skeið og kom á fót miklu safni
fslenskra og erlendra plantna.
Jón Rögnvaldsson fæddist í
Grjótárgerði í Fnjóskadal 18. júní
1895. Atta ára gamall fluttist liann
að Fífilgerði við Eyjafjörð og þar
átta hann heima stærstan hluta
starfsævi sinnar. Jón lauk gagn-
fræðaprófí á Akureyri og áriö
1919 fór hann til Kanada og var
þar í nokkur misseri við vinnu og
nám við skógræktarstöð ríkisins
sem heitir Indian Head (Indjána-
höfuð). Hann stundaði einnig há-
skólanám í garðyrkju og lauk
prófi í garðyrkjufræðum. Eftir
fimm ára dvöl vestra kom hann
heim, fullur af hugmyndum, og
helgaði sig ræktunarmálum ævina
alla.
Jón stofnaði Skógræktarfélag
Islands hér á Akureyri en nafninu
var síðan breytt í Skógrætarfélag
Eyfirðinga. Hann vann garðyrkju-
störf árum saman og árið 1953 tók
hann að sér að hafa forsjá meö
Lystigarðinum á Akureyri. Undir
hans handleiðslu tók garðurinn
fljótt nokkrum breytingum; var
t.d. stækkaöur bæði í suður og
vestur. Arið 1957 keypti Akureyr-
arbær plöntusafn Jóns og Krist-
jáns bróður hans og grasadeild
Lystigarðsins var stofnuð. Teg-
undum í grasagarðinum hélt áfram
að fjölga á meðan Lystigarðurinn
var í umsjá Jóns og þegar hann lét
af störfum árið 1970 voru í garð-
inum um 2400 tegundir plantna.
Jón Rögnvaldsson lést 10. ágúst
1972, þá 77 ára að aldri. AI
Jón Rögnvaldsson frá Fífilgerði.
Undir hans handleiðslu tók garður-
◄ inn fljótt breytingum og var
stækkaður í suður og vestur.
Bflasala • Bflaskipti
Hyundai Sonata GLSi, árg. ’94, VW Golf 1400 st., árg. ’94, Suzuki Vitara JLX 3 d., árg. ’90,
ek. 22 þús. Verð: 1.500.000,- ek. 11 þús. Verð: 1.270.000,- ek. 58 þús. Verð: 1.050.000,-
Bflaskipti • Bflasala
MMC Montero 5 dyra, V4>, ’92, leður,
ABS o.fl., ek. 56 þús. Verð: 3.000.000,-
Ford Explorer Sport, árg. ’91,
ek. 71 þús. Verð: 1.900.000,-
Volvo 850 GLE, árg. ’93, spólv., ABS,
álf., ek. 23 þús. Verð: 2.250.000,-
Tívolí 17. júní
á Akureyrí
í ár sér Skátafélagið Klakkur
um hátfðarhöldin 17. júní á Ak-
ureyri. í fréttatilkynningu frá
Klakki segir að skátar, sem sjái
um hátíðarhöldin 17. júní á Ak-
ureyri, leggi mikla áherslu á að
bjóða upp á fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá.
Hluti af dagskránni verður
skátatívolí, sem verður haldið yfir
miðjan daginn á flötinni fyrir neð-
an Samkomuhúsið. A túninu verð-
ur margt annað til skemmtunar,
þar á meðal skemmtiatriði á palli,
hestaferðir sem félagar í Hesta-
mannafélaginu Létti annast, báta-
ferðir á vegum Nökkva, skátar á
leið til Hollands sýna tjaldbúð
sína og keppnin Aflraunameistari
Islands fer fram á sama stað. Frítt
verður á alla dagskrárliði sem eru
á vegum skátanna og þar á meðal
tívolíið.
I fréttatilkynningu frá Klakki
kernur fram að hugmyndin sé sú
aó allir sem taki þátt í tívolíinu fái
sérstakan safnmiða. Fyrir þátttöku
í hverju atriði fæst einn punktur
auk þess sem viðkomandi fær ein-
hver lítil verðlaun ef hann nær til-
settum árangri í tækinu. Þeir sem
ná að safna lágmarks fjölda
punkta geta skilað inn safnmiðan-
um og komist þamiig í „stóra pott-
inn“, en stóru vinningamir verða
dregnir út að tívolíinu loknu. Nöfn
vinningshafa verða birt í blöðum
eftir helgina. Einnig veróur haft
samband við þá sem hljóta vinn-
ing séu upplýsingar um vinnings-
hafa nægjanlegar á miðanum sem
skilað verður inn.
Bílasala • Bflaskipti
Nissan Sunny SLX A/T, 4 d., árg. ’92,
ek. 60 þús. Verð: 960.000,-
Chevrolet Camaro Iroc-Z, árg. ’85,
m. öllu, 280 hö., Verð: 950.000,-
Á söluskrá m.a.
Tjaldvagnar: Camplet ’86
Combi Camp ’86, Alpen Kreuzer ’89
Camp Tourist ’82
Hobby hjólhýsi ’82 með öllu
Vantar bíla, hjól og tjaldvagna
á skrá og á staðinn
Stór og góður sýningarsalur
[rílásaunn1
öldur hf.
B í L A S A L A
við Hvannavelli
Símar 461 3019 & 461 3000
Einstakar gjafabækur
Bókaútgáfan Skjaldborg hf. hefur
sent frá sér tvær nýjar bækur í
smábókaflokknum „Til gjafa - til
að eiga“,
I bókunum er safn tilvitnana
um afmarkaö efni og eru þær til-
valdar sem vinargjöf og einiúg má
nota þær sem gjafakort því gert er
ráð fyrir að skrifað sé í þær
fremst.
Bækurnar sem nú koma eru;
„Alveg einstök anuna” og „Alveg
einstakur sonur“. Áður hafa kom-
ið út í sama flokki; Alveg einstök
dóttir, Alveg einstök móöir, Alveg
einstakur vinur og Hlotnist þér
hamingja. Bækur þessar hafa farið
sigurför um allan heim og hlotið
fádæma góðar viðtökur.
(Fréttatilkynning)
Bamfóstrunámskeið
Rauða krossins
Bamfóstrunámskeiði sem Rauði
krossimi heldur árlega er nú ný-
lega lokið. Aðsókn á námskeióið
var mjög góð og reyndar meiri en
svo að allir kæmust aö sem vildu.
Þess vegna hefur nú veriö ákveðið
að halda auka bamfóstrunám-
skeið. Námskeiðið hefst mánu-
dagiim 26. júní. Allar nánari upp-
lýsingar, svo og skráning á nám-
skeiðið er í síma 461 2374.
(Fréttatilkynning)