Dagur - 16.06.1995, Síða 11
Föstudagur 16. júní 1995 -DAGUR - 11
Trésmiðjan Borg á Sauðarkróki:
„Byggingariðnaðurinn
enginn gullkálfur“
- segir Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri
yfir þessa lægö. Hinsvegar gæti
næsti vetur orðið erfiður þar sem
framkvæmdum við flestar opin-
berar byggingar er að ljúka.“
Sumarhús í Kjarnaskógi
Eitt af þeim verkefnum sem tré-
smiðjan er að fást við um þessar
mundir, reyndar í samviiuiu við
tvö önnur fyrirtæki, er bygging sjö
sumarhúsa sem eiga að fara í
Kjamaskóg. Guðmundur segir að
um 10-12 manns vinni við verk-
efnið og það taki 2-3 mánuði að
byggja húsin. Þrjú fyrirtæki á
Sauðárkróki: Trésmiðjan Borg hf.,
Friðrik Jónsson sf. og Eik sf.,
vinna sameiginlega að þcssu verk-
efni undir nafninu Ostak sf.
„Við göngurn frá húsunum að
Miklar hræringar hafa verið í
byggingariðnaðinum á undanförn-
um árum og fjöldi fyrirtækja oröið
gjaldþrota og þurft að hætta starf-
semi. Trésmiðjan Borg á Sauðár-
króki er eitt af þeim fyrirtækjum
sem hefur staðið af sér marga
storma og hefur fyrirtækið starfað
í rúm þrjátíu ár. Guðmundur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Trésmiðjunnar Borgar, segir að þó
fyrirtækið sé nokkuð traust í sessi
sé markaður byggingariðnaðarins
engiim gullkálfur.
„Þetta er erfiður bransi sérstak-
lega vegna þess að útboðsmál
hafa þróast þannig að mönnum er
gert ókleift að bjóóa í á eðlilegan
máta. Það er mikið um undirboð
og það sem er kannski verst er að
ríkisvaldið hefur gengið á undan í
því að taka tilboðum sem eru
langt frá því að vera raunliæf. Síð-
an þegar upp er staðið og fyrirtæki
fara á hausinn þá eru það ríkis-
valdiö og einstaklingar sem tapa.
Það er auðvitað mjög erfitt að
keppa á þessum grundvelli ár eftir
ár enda er það staðreynd að mjög
fá fyrirtæki innan þessarar at-
vimiugreinar eru gömul.“
Eftir samdrátt á undanförnum
árum er þó nokkur uppsveifla í
byggingariðnaði á landsvísu. Guð-
mundur segir að á Sauöárkróki og
nágrenni finni menn lítið fyrir
þessari uppsveiflu fyrst og fremst
vegna þess að þetta svæði lenti
ekki í eins mikilli lægð og mörg
önnur svæði. „Hér hafa verið
byggðar nokkrar opinberar bygg-
ingar og það hefur hleypt okkur
Kári Þorsteinsson, trésnuður, að siníða kojur sem fara í sumarhúsin.
Guðmundur Guðmundsson cr framkvæmdastjóri Trciniðjunnar Borgar.
mestöllu leyti hér,“ segir Guö-
mundur. „Þau eru svo flutt tilbúin
til Akureyrar og þar eru þau sett
upp.“
Þríþætt starfsemi
Trémiðjan Borg treystir ekki
eingöngu á útboðsvimiu og segir
Guðmundur að í megindráttum
megi skipta starfseminnni í
þrennt. I fyrsta lagi himr almemii
útboðsmarkaður og verktakastarf-
semi og dæmi urn slíkt verkefni er
bygging bóknámshús Fjölbrauta-
skóla Norð-Vesturlands á Sauðár-
króki. Amiar þáttur starfseminnar
eru viðgerðir og endurbætur á
húsum og hefur fyrirtækið sérhæft
sig í aö gera upp eldri hús. „Við
vorum einmitt að ljúka við við-
gcrðir á Ashúsi, sem tilheyrir
byggðasafninu í Glaumbæ, sem
var töluvert stórt verkefni."
I þriöja lagi rekur fyrirtækið
verkstæði sem sér um innréttinga-
smíði. Guðmundur segir að fyrir-
tækið hafi mikið smíðað fyrir
Reykjavíkurmarkað. Trésmiðjan
Borg sá til að mynda um að smíða
borðin sem fóru í Þjóðarbókhlöð-
una. Eimúg framleiðir fyrirtækið
T-Borg og Kvartett innréttingar,
sem Egill Árnason hf. selur í
Reykjavík. Guðmundur segir það
ekkert skrýtið eða óvenjulegt hve
góðum árangri trésmiðjan hefur
náð á þessurn markaöi. Fyrirtækið
standi á gömlum grumti. „Við er-
um líka með mjög góða smiði og
erum þess vegna vel samkeppnis-
færir.“ AI
Garðeigendur —
Skógræktarfólk
Sumarblóm, fjölær blóm,
tré og runnar.
Bóndarósir, rósir.
Himalajaeinir 70-90 cm á hæð.
Blómstrandi gullregn 2 m á hæð.
Skógarplöntur í bökkum
og margt margt annað.
Gróðrarstöðin
Réttarhóll ~
Svalbarðseyri, sími 461 1660. vj|
M
LfTTi
Vinn ngstölur
14.06.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n 6 af 6 3 15.757.000
a 5 af 6 +bónus 0 333.750
0 5 af 6 6 43.700
a 4 af 6 202 2.060
0 3 af 6 +bónus 732 240
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku
48.458.750
i ísl.: 1.187.750
fll/inningur: fór til Danmerkur (1) og Noregs (2)
UPPLYSINGAR, SIMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Tilboð á grillbö
15% afsláttu
Grillpylsur 395 kr. kg
218 kr.
Kynning á férskum hvítlauks-
brauðumfrá Kristjánsbakaríi
föstudag kl. 15-19