Dagur - 16.06.1995, Síða 15
IÞROTTIR
Föstudagur 16. júní 1995 - DAGU R - 15
SÆVAR HREIÐARSSON
Knattspyrna - Mjólkurbikarkeppni KSÍ:
Stórleikir á sunnudag
- Magni mætir Grindavík og Völsungur tekur á móti FH
Um helgina verða stórleikir hér
norðan heiða í Mjólkurbikarkeppn-
inni í knattspyrnu. Á Grenivík
mætir 4. deildarlið Magna 1. deild-
arliði Grindvíkinga og má búast
við hörkuleik. Á Húsavík fá Völs-
ungar FH-inga í heimsókn og Hús-
víkingar stefna hátt í keppninni.
Þessir leikir fara fram á sunnudag
en á mánudag halda Þórsarar til
Reykjavíkur og mæta Leiknismönn-
um og þangað fara einnig Leifturs-
menn til að leika vió U23 ára lió KR-
inga. Fimmta norðaniiðió sem enn er
í keppninni er U23 ára lió Þórs og
það keppir við HK á Akureyri nk.
þriðjudag.
Það verður eflaust erfitt verk fyrir
Magnamenn aó komast áfram í
keppninni en Sigurbjöm Vióarsson
og lærisveinar hans munu leggja sig
alla fram við að stríða Lúkasi Kostic
og félögum hans í Grindarvíkurliðinu
en Sigurbjöm og Lúkas em mikiir
mátar síðan þeir léku sarnan rneð Þór.
Húsvíkingar lögðu 2. deildarlið
KA í síðustu umferó og nú er þaó 1.
deildarlið FH sem kemur í heimsókn.
„Það getur allt gerst á sunnudaginn.
Vió fómum okkur í þennan leik og
gemm allt til þess aö vinna. Það er
rosalega góður andi í hópnum og
viljinn er mikill. Þetta verður
skemmtilegur leikur og þaó verður
ekki gefin tonmia eftir. Það verður
yfirsnúningur á strákunum," sagói
Siguróur Lámsson, þjálfari Völs-
unga, í samtali við Dag.
Á mánudaginn keppir Leiftur við
U23 ára lió KR-inga og aö öllu eóli-
legu má búast við aö Leiftur konúst
áfram í næstu umferð. Þórsara bíður
aðeins erfiðara verkefni því leikur
liðsins við Leikni fer fram á gervi-
grasvelli félagsins í Breiðholti. U23
ára lið Þórs mætir síðan HK á Akur-
eyri á þriðjudaginn kl. 20.00.
Hitað upp fyrir Kvennahlaupið. Undanfarin ár hefur gífurleg fjölgun verið í
Kvennahlaupinu á Akureyri og spurningin er hversu margar taka þátt að
þessu sinni.
Almenningsíþróttir:^
Hclgi Pétursson Þórsari og Jóhann Hclgason KA-maður í baráttu um bolt-
ann í a-liða leiknum en fyrir aftan standn Skúli Eyjólfsson og Bjarni Pálina-
son, KA-mcnn. Myndir: sh
Sumarbúðir
í Hamri
Nýtt ndmskeib
hefst mdnudaginn
19. júní
Allar upplýsingar og
skrdning í Hamri,
sími 461 2080.
KA-maðurinn Ilcimir Björnsson
sýnir takta mcð boltann á incðan
Ilreggviður Gunnarsson sækir að
honum.
c-liðanna 5:0 og mörkin skoruðu
Einar Logi Friöjónsson tvö, Haf-
þór Úlfarsson, Kristján Aðal-
steinsson og Jóhann Fimisson.
Bróðurlegt jafntefli varö í leik
d-liða 2:2, þar sem Elmar Krist-
þórsson skoraði bæði mörk Þórs
en Magnús Þórisson og Páll Ingv-
arsson mark KA.
KA-strákar voru sterkir í e-lið-
unum og sigruðu 7:2. Guðjón Sig-
urósson skoraði tvö mörk, Halldór
Brynjarsson, Bjarni Steindórsson,
Sigurður Sigtryggsson Hlynur
Ingólfsson og Jónas skoruðu eitt
mark hver fyrir KA en Jónas Atli
Kristjánsson og Vilhelm Einars-
son skomðu mörk Þórs.
Golf:
Jónsmessumót og Sumargleöi
Um helgina verða tvö mót í gangi
á Jaðarsvelli. í kvöld er svokallað
Jónsmessumót og á laugardag og
sunnudag er það Sumargleði 95
sem tekur við en það er golfmót
til styrktar unglingastarfi GA.
Ræst er út á öllum teigum sam-
tímis í Jónsmessumótinu og spilað-
ar 9 holur. Skráning er á staðnum
en ræst út kl. 21.00 í kvöld.
Keppnisfyrirkomulag í Sumar-
gleðinni er þannig að keppandi vel-
ur um að leika 18 eða 36 holur og
gilda þær 18 bestu. Þ.e. ef illa
gengur með vissa holu fyrri dagitm
er hægt að bæta það upp þann
seinni. Keppt verður í karla-,
kvenna- og unglingaflokki með og
án forgjafar. Mótsgjald er 2000 kr.
fyrir báða dagana og 1500 kr. fyrir
aiman daginn en innifalið í móts-
gjaldinu er Grillveisla. Skráningu
lýkur í dag kl. 18.00 í Golfskálan-
um.
Kvennahlaup ISI1995
Á sunnudaginn verður mikið um
að vera í miðbæ Akureyrar. Þá fer
fram hið árlega Kvennahlaup ÍSÍ
og má búast við mikium fjölda
kvenna við göngu eða skokk.
Markmið Kveimahlaupsins er að
leggja álierslu á þátttöku kvemia í
almenningsíþróttum og hollum lífs-
háttum. Engin aldurstakmörk eru og
eru dæmi um þátttakendur allt frá
þriggja mánaða aldri upp í 85 ílra
Aflraunameistari Islands
krýndur á Akureyri á morgun
Á morgun, þjóðhátfðardaginn,
verður athyglisverð keppni hjá
sterkbyggðum rammíslenskum
karlmönnum sem kallast Afl-
raunameistari íslands. Margir
þekktir kraftakarlar mæta til
leiks en keppnin fer fram á flöt-
inni fyrir neðan Samkomuhúsið
og hefst kl. 14.30.
Keppt veröur í sex skemmtileg-
um greinum aflrauna og hefst
keppnin með bíldrætti með hönd-
um 25 metra vegalengd. Þá tekur
við armlyfta á höndum, svokölluð
Frissa Fríska lyfta. Því næst er
hleðslugrein þar sem tekinn er
tími á keppendum við að hlaða
fjórum þungum hlutum upp á
vagn, þá Puma-ganga þar sem
mikilmennin ganga meö 90 kg
hylki í hvorri hönd, steinahleðsla
þar sem 90, 110 og 130 kg hnull-
ungum er lyft upp á tunnur og
loks er handlóðspressa.
Hjalti Ursus Amason kemur að
suiuian og Norðlendingar mæta
honum með Torfa Olafssyni og
má búast við skemmtilegri keppni
þeirra á milli um titilinn Aflrauna-
meistari Islands.
Knattspyrna - 5. flokkur karla:
Hart barist á Akureyrarmóti
Akureyrarmótin í knattspymu
eru hafin af fullum krafti og í
vikunni var leikið í 5. flokki á
KA-vellinum. Heimastrákar
höfðu betur í þremur leikjum af
fimm, Þór vann einn og í einum
varðjafntefli.
KA sigraði í leik a-liða, 3:1,
með mörkum frá Skúla Eyjólfs-
syni, Jóhamii Helgasyni og Einari
Inga Egilssyni. Mark Þórsara
skoraði Helgi Pétursson.
Þórsarar höfðu yfirburóasigur í
leik b-liða 6:2 þar sem Ármann
Ævarsson fór á kostum og skoraði
4 mörk, Gunnar Örn Birgisson eitt
og Hreggviður Gunnarsson eitt.
KA vann öruggan sigur í leik
Gunnar Örn Birgisson og Ármann
Ævarssonn, markaskorarar I>órs í
b-liðinu fagna hér marki.
og allt að 4 ættliðir sem hafa tekið
þátt saman. Hver og einn velur simi
hraöa í göngu eða skokki og gefst
kostur á að velja um að fara 2,4 km
eöa 4,5 km.
Safnast verður saman á Ráöhús-
torgi milli kl. 11.00 og 12.00.
Skráning hefst kl. 10.30 og létt upp-
hitun kl. 11.45 en hlaupið sjálft
hefst kl. 12.00. Lifandi tónlist verö-
ur á staðnum og ættu allir að hafa
gaman af.
Þátttökugjald er kr. 550,- og fær
hver þátttakandi bol vió skráiúngu
en verðlaunapening og Blöndu eða
Frissa fríska frá Mjólkursamlagi
KEA að loknu hlaupi.
Forskráning er í dag kl. 15.00-
18.00 fyrir uUm Sporthúsið, við
Hrísalund, Hagkaup, Nettó og í
Suruiuhlíó.
Árið 1992 vom þátttakendur urn
250 en ári síðar var talan komin upp
í 598. Eim eitt stórstökkið var tekið
á síðasta ári þegar 1078 konur tóku
þátt og nú er bara að gera enn betur.
KA-pilturinn Einar Ingi Egilsson (til vinstri) á hér í baráttu við Vilberg
Brynjarsson I>órsara í leik a-liðanna. í baksýn fylgist Þórsarinn Andri Rún-
ar Karlsson spenntur með.
íþróttir
KN ATTSPYRN A: Föstudagur: 3. deild karla: Ægir-Dalvík kl. 20.00
Mjólkuibikarkeppnin: Sunnudagur: Magni-Grindavík kl. 14.00
Völsungur-FH kl. 20.00
Mánudagur: KR U23-Leiftur kl. 20.00
Leiknir-I>ór kl. 20.00
Þriðjudagur: Þór U23-HK kl. 20.00
AFLRAUNIR:
Laugardagur: Aflraunameistari Islands kl. 14.30
GOLF: Föstudag: Jónsmessumót kl. 21.00
Laugardag & sunnudag:
Sumargleóin ALMENNINGSÍÞRÓrriR:
Sunnudag: Kvennahlaup ÍSÍ kl. 12.00