Dagur - 16.06.1995, Side 16
Tónar hafsins
í Smiðjunni ásamt ljúffengum
og nýstárlegum eftirréttum
Ottast holskeflu slysa
- segir Helgi Haraldsson hja
Vinnueftiriifi ríkisins
Skýrsla sem tveir nemar á
lokaári í rekstrarfræði í Há-
skólanum unnu um fallslys
mun, að sögn Helga Haraldsson-
ar hjá Vinnueftirlitinu á Akur-
eyri, verða notuð við fræðslu hjá
Vinnueftirliti ríkisins.
Skýrsluna unnu þau Sigurlína
Styrmisdóttir og Helgi Einarsson
sem lokaverkefni sitt frá H.A. fyr-
ir Vinnueftirlitið. I henni kom
fram að öryggismálum á vinnu-
stöðum væri stórlega ábótavant.
„Skýrslan hefur þegar orðið að
miklu gagni þar sem hún hefur
fengið mikla umfjöllun í fjölmiðl-
um og ég er mjög þakklátur Sigur-
línu og Helga fyrir að hafa vakið
athygli á þessu vandamáli“, sagði
Helgi Haraldsson. „Oryggismál á
byggingasvæðum eru mjög erfið;
þau breytast dag frá degi. Það er
ekki hægt að gera öryggisráðstaf-
anir í eitt skipti fyrir öll, því að
eftir því sem byggingin breytist,
breytast aðstæðurnar.“ Helgi sagði
að ekki þyrfti að keyra nema einn
hring um bæinn til aó sjá að
öryggi er áfátt á byggingasvæð-
um. „Ég óttast að við munum fá
holskeflu slysa yfir okkur á næst-
unni, ef ekkert verður gert til að
bæta ástandið, en ég vona að
skýrslan hreyfi við mönnum í
byggingaiðnaði. Það er staðreynd
að meiri harka er komin í mál eftir
Fnjóskadaiur:
Enn falla
skriður
Þrátt fyrir að heldur hafl
dregið úr vatnavöxtum á
Norðurlandi eru enn að falla
nýjar skriður í fjöllum.
í fyrrakvöld féll allstór
skriða í Draflastaðafjalli í
Fnjóskadal. Margar skriður
hafa fallið í fjallinu síðustu
daga og má telja í það minnsta
15 stærri og minni skriður í
fjallinu. Sú sem féll í fyrra-
kvöld er þeirra stærst en heim-
ilisfólk á bæjunum Draflastöð-
um og Hjarðarholti vaknaði
upp við hávaðann sem skriðan
olli um klukkan eitt aöfaranótt
fimmtudags. Skriðan féll í svo
kallaðri Stekkjarrófu yfir beiti-
land og niöur á jafnsléttu við
túngarðitui. Áætlað er að skrið-
an sé um 100 metra löng og
50-60 metra breið. Lambfé var
á beit á þessu svæði en ekki er
taliö að það hafi lent í skrið-
unni. Veruleg sjónmengun er
af skriðunum í fjallinu og ljóst
að spjöll á gróðri eru tölverð.
KU
VEÐRIÐ
I dag verður sunnan og suóaust-
an átt, 10-16 stig hiti og úrkomu-
laust norðanlands. Á morgun
verður heldur kaldara 4-11 stiga
hiti, breytileg átt og skúrir, sem
sagt ekki úrvals 17. júní veður. Á
sunnudag og mánudag veður
svo komin noróanátt með rign-
ingu, nokkuð hvöss á sunnudag-
inn, en hægari á mánudaginn.
slys. Ef slys verður líða einungis
fáir dagar þangað til lögfræðingur
hefur verið fenginn til að sækja
málið. Það er að sjálfsögðu sann-
gjamt að menn fái þær bætur sem
þeir eiga rétt á, en það bætir oft á
tíðum ekki orðinn skaða. Fallslys
eru yfirleitt mjög alvarleg, en það
þarf ekki flókinn búnað til að
koma í veg fyrir stærsta hluta
þeirra.“ Helgi Haraldsson sagði
einnig að það væri brýnt að menn
lærðu af mistökum og gerðu við-
eigandi ráðstafanir. „Ef maður
fellur niður af palli, og sleppur við
meiriháttar meiðsl vegna þess að
hann lenti í sandhrúgu, þýðir það
ekki að allt sé í lagi, heldur á að
nýta aðvörunina til þess að bæta
öryggið, áður en illa fer.“ shv
Á næsta ári verður tekin í notkun ný 25 metra sundlaug fyrir sundgarpa og keppnisfóik á Akureyri.
Mynd: Robyn
Næsti áfangi framkvæmda við Sundlaug Akureyrar:
Ný útisundlaug næsta sumar
Bæjarráð Akureyrar staðfesti
í gær breytingu íþrótta- og
tómstundaráðs á áður fyrirhug-
aðri framkvæmdaröð við Sund-
laug Akureyrar. Þetta þýðir að
næsta sumar verður sett niður
ný 25 metra sundlaug samsfða
og sunnan núverandi laugar og
verður gert ráð fyrir þeim mögu-
leika að lengja hana f 50 metra
til vesturs.
Upphaflega hafði verið gert ráð
fyrir að í öðrum áfanga yrði m.a.
viðbygging við núverandi laugar-
hús, þar sem m.a. yrói komið fyrir
nýjum inngangi og baðaðstöðu.
Frá þessu hefur nú verið horfið og
í öðrum áfanga verður sett niður
ný sundlaug auk þess sem gert er
ráð fyrir að steypa kjallara við-
byggingarinnar og koma þar m.a.
fyrir nauðsynlegum hreinsibúnaði
fyrir nýju laugina.
Gísli Bragi Hjartarson, formað-
ur framkvæmdanefndar Akureyr-
arbæjar, segir að vió það sé miðað
að nýja laugin, sem verður stál-
laug keypt erlendis frá, verði tekin
í notkun strax á næsta ári. „Laugin
mun koma tilbúin með öllum bún-
aði, kostnaður við hana með bún-
aði er áætlaður á bilinu 20 til 23
milljónir króna. Vió þessa tölu
bætist kostnaður við jarðvegs-
gröft, undirstöður, að koma laug-
inni fyrir og frágang.“
Nýja sundlaugin er hugsuð
fyrst og fremst sem laug fyrir þá
sem leggja stund á sund, keppnis-
Há grunnvatnsstaða á Dalvík:
Vatn rennur inn i hus
Vatn er farið að renna inn f
kjallara húsa á Dalvfk sök-
um geysilega hárrar grunnvatns-
stöðu, en lagnir bæjarins hafa
ekki undan að flytja vatnið burt.
Að sögn Rögnvaldar Skíði
Friðbjömssonar, bæjarstjóra á
Dalvík, rennur inn í bókasafnið í
Ráðhúsi Dalvíkur, geymslur hjá
sparisjóðnum, Kaupfélagið og inn
í fiskvinnsluhús. „Það hefur í
sjálfu sér ekki orðið neitt verulegt
tjón af þessu en þaö þarf að dæla
upp vatni allan sólarhringinn. Við
erum bæði með dælur innan- og
utanhúss til að reyna að minnka
þetta. Við vonum að þetta fari að
minnka en það er ómögulegt að
reikna út hvenær það verður, það
er ennþá mjög mikill snjór upp í
hlíðum. Við sjáum að það leifir
ekkert af því að ákveðnar lagnir
Unnið er að því mcð ölluin tiltækum ráðum að dæla upp vatni á bókasafni
Dalvíkurbæjar. Mynd: Bæjarpósturinn
flytji það grunnvatn sem aó
berst.“
Rögnvaldur sagði að ólíklegt
væri að farið yrði í endurbætur á
lagnakerfi Dalvíkurbæjar, þetta at-
vik væri svo einstakt, mun senni-
legra væri að yfirföll yrðu sett á
lagnirnar. shv
Leysingar í
Þingeyjarsýslu:
Brú hrundi við
Vatnsenda
Brú hrundi við Vatnsenda í
Ljósavatnsskarði á miðviku-
dag og er ófært heim að bænum.
Að sögn Vegagerðarinnar á
Húsavík er þó ástandið að verða
stöðugt.
Með kólnandi veðri hefur dreg-
ið úr leysingum og sagðist Svavar
Jónsson hjá Vegagerðinni á Húsa-
vík vonast til að flóðum væri að
linna, í það minnsta í bili. Fært er
um Utkimi en vegurinn að bænum
Vatnsenda í Ljósavatnsskarði er í
sundur, þar sem brú yfir Djúpá
hrundi á þriðjudag, en unnið er að
því að opna nýja leið heim að
bænum. Vegurinn norðan við
Mýri í Bárðardal er enn á floti, en
unnið er að því að opna hann.
fólk og fleiri. „Síðan er ætlunin að
skipta gömlu lauginni í tvær laug-
ar, 25 metra laug og busllaug næst
laugarhúsinu, en þessar breytingar
eru hugsaðar sem lokaáfangi
framkvæmdanna, líklega ekki fyrr
en 1999 eða 2000.“
Gísli Bragi sagði að fram-
kvæmdir við Sundlaug Akureyrar
verði viðameiri en upphaflega hafi
verið gert ráð fyrir og fram-
kvæmdatími því lengri. „Það hafa
komið til sögunnar nýir verkþætt-
ir, sem ekki voru inn á fjögurra
ára áætlun, til dæmis þessi nýja
laug og pottur við hana.“
Gísli Bragi sagði að menn haft
haft af því nokkrar áhyggjur að
núverandi búningsaðstaða myndi
ekki anna aukinni aðsókn að
Sundlaug Akureyrar þegar nýja
laugin verði komin í notkun, en á
meöan umúð veröi að því að
koma upp nýrri búningsaðstöðu,
sé horft til þess að ljúka við tengi-
gang milli laugarhússins og
íþróttahússins við Laugargötu og
nýta á álagstímum búningsaðstöðu
þar. Auk þess sem hugmyndir séu
um að útbúa útiklefa til bráða-
birgða. óþh
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
ra kaupland
■LLdi Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565