Dagur - 30.09.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 30. september 1995
Margan ungan manninn dreymir eflaust á unga
aldri að hasla sér völl í atvinnulífinu, verða eigin
herra og starfa að þeim málum sem hugurinn
stendur til, þá venjulega að loknu námi. Sumir
fara vissar krókaleiðir að þessu markmiði, ráða
sig til starfa hjá atvinnufyrirtœkjum eða í opin-
bera þjónustu og öðlast þannig ómetanlegra
reynslu sem nýtist þeim vel þegar þeir eru skyndi-
lega sjálfir íforsvari fyrir fyrirtœki sem þeir eiga
ýmist einir eða í samstarfi með öðrum. Hvernig
svo semferillinn er gildir œtíð hið fornkveðna, að
hver er sinnar gæfu smiður.
Árið 1990 keyptu þrír ungir
menn plastpokaverksmiðjuna Ako-
plast á Akureyri, sem rekin var af
endurhæfingarstöðinni Bjargi, og
hófu rekstur í því húsnæði. Ljóst
var þó að ftnna þurfti rekstrinum
yfir heiðar. Ekki var staðar numið
við þessar breytingar, ljóst var að
plastverksmiðjan nýja þurfti á hús-
næðinu við Tryggvabraut að halda
og leita þurfti að nýju og hentugu
húsnæði fyrir prentsmiðjuna. Áður
samskipti út á við, Jóhann um
framleiðsluna og viðhaldsmál en
Daníel stjómar fjármálum og
starfsmannahaldi.
„Þetta samstarf okkar þremenn-
inganna er dálítið sérstakt og það
reynir oft á það en við þekktumst
sáralítið áður fyrr. Jóhann, sem er
vélstjóri, hafði ég ekki séð áður en
við Eyþór höfðum rekið saman nef-
in hér á Akureyri og rætt málin en
Eyþór hafði haft áhuga um tíma á
plastinu. Við höfum gætt þess að
láta engin mál sjóða upp úr og ræð-
um málin þar til lausn er fengin.
Við höfum í bland verið svolítið
heppnir en kannski höfum við verið
að taka réttar ákvarðanir á réttum
tímum og vonandi verður það svo í
framtíðinni.
Daníel Unnsteinn Ámason er
fæddur að Hjarðarási í Núpasveit í
Norður-Þingeyjarsýslu, sonur Árna
Sigurðssonar, sem lengi var skóla-
stjóri bamaskólans á Kópaskeri
þar kjötafurðastöð. Að loknum
bamaskóla lá leið Daníels T' ungl-
ingaskóla í Skúlagarði í Keldu-
hverfi og í Héraðsskólann að
Reykjum í Hrútafirði, þar sem tek-
ið var landspróf.
Kona Daníels er Sigurhanna
Sigfúsdóttir bankastarfsmaður, ætt-
uð frá Húsavík í báðar ættir. Þau
eiga eina dóttur, Ragnheiði Bimu,
fæddaárið 1982.
Fékk í sig rekstrarvírus
„Frá Hrútafirði lá leiðin í Mennta-
skólann á Akureyri en vistin þar
varð aðeins einn vetur. Ætli ég hafi
ekki verið bara ruglað ungmenni,
sem hafði það ekki á hreinu hvað
ég ætlaði að taka mér fyrir hendur
og eins var áhuginn fyrir námi ekki
ýkja mikill. Ég hélt þá til Hafnar-
íjarðar, í Fiskvinnsluskólann, og
útskrifaðist þaðan sem fisktæknir.
Jafnframt því stundaði ég nám við
öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð og lauk stúndentsprófi í
velfestum greinum. Ég flutti þá
norður á Kópsker til starfa hjá Sæ-
bliki hf„ sem aðallega var í rækju-
að taka fyrri veturinn utan skóla og
sá jafnframt um rækju- og síldar-
vinnslu Fiskiðjusamlags Húsavíkur
á Húsavík. Seinni veturinn var ég
hins vegar á Bifröst með fjölskyld-
una og bjuggum við í einu af sum-
arhúsum samvinnumanna þar. Ég
segi stundum að það hafi kostað
einn hest og hálfan bíl eða sem
svarar andvirði þeirra en ég hef
lengst af átt hesta. Ég valdi frekar
þessa leið til að svala þörf minni til
fóðrunar á rekstrarvímsnum en að
fara í háskólanám, sem auðvitað er
jafnfram lengra og tímafrekara
nám. Ég hef ekki verið alltof
íhaldssamur eða fastur í rásinni
hvað varðar atvinnu, en minn skóli
hefur ekki síður verið skóli lífsins
og skóli samskiptanna. Ég hef með
því eignast marga og góða vini um
allt land þó ég hafi verið allt of lin-
ur við það að rækta þau sambönd.
Að loknu náminu á Bifröst lá leið
mín í stól skrifstofustjóra hjá sveit-
arfélaginu að Höfn í Homafirði og
skipti þannig í annan gír, fór úr
fiskvinnslunni í sveitarstjómarmál
og var þar fram að sveitarstjómar-
kosningunum vorið 1986. Þá um
Rekstur Akoplasts & POB hf. hefur tekið stórstígum
breytingum á undanförnum fimm árum:
„Höfum gætt þess
að láta engin
mál sjóða upp ár“
r
- segir framkvæmdastjórinn, Daníel Arnason, um
samstarf þriggja eigenda fyrirtækisins
nýtt húsnæði því hugmyndin var að
nýta neðri hæðina að Bjargi undir
þjónustumiðstöð við tvö fjölbýlis-
hús við Lindarsíðu, sem verið var
að byggja fyrir eldri borgara. Þar
var því ekki staðar numið og sú
húsnæðisleit leiddi m.a. til þess að
nokkmm misserum síðar, eða á ár-
inu 1992, var keypt rótgróin prent-
smiðja á Akureyri, Prentverk Odds
Bjömssonar hf„ af Landsbankan-
um sem leyst hafði til sín prent-
smiðjureksturinn eftir gjaldþrot.
POB var ein elsta prentsmiðja
landsins, stofnuð árið 1901. Þannig
reyndist unnt að flytja plastfram-
leiðsluna í húsakynni prentsmiðj-
unnar við Tryggvabraut á Akureyri
og reka hana þar samhliða prent-
smiðjunni og nánast fullnýta þann-
ig húsnæðið. í byrjun júnímánaðar
á þessu ári verða svo enn breyting-
ar á starfseminni er fyrirtæki þeirra
félaganna sem nú hét Akoplast &
POB hf. komst að samkomulagi
við Plastprent hf. í Reykjavík um
leiðir til hagræðingar og verka-
skiptingar, sem leiddi til stofnunar
nýs fyrirtækis, Ako-plasts hf„ og er
eignaraðild þeirra jöfn. Húseignin
að Tryggvabraut varð eign þessa
nýja fyrirtækis en prentsmiðjan
POB hf. varð þar með leigjandi í
húsnæðinu. Þessi breyting var
einnig atvinnuskapandi því við
hana sköpuðust átta ný störf og
veltan tvöfaldast, úr 120 milljónum
í 250 milljónir og hefur fjórfaldast
frá því plastpokaverksmiðjan var
keypt fyrir fimm ámm síðan. Þetta
eykur möguleikana á aukinni þjón-
ustu við sjávarútveginn, sérstaklega
fyrir norðan og austan. Kveikjan að
viðræðum Plastprents hf. og Ako-
plast & POB hf. var komin frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna eft-
ir að ljóst var að hluti starfsemi
þess fyrirtækis mundi flytja norður
höfðu farið fram viðræður við
stjóm Kaupfélags Eyfirðinga um
kaup á meirihluta þess í Dagsprenti
hf. sem gefur út dagblaðið DAG,
en það hefði leitt til töluverðrar
hagræðingar í umbrotsvinnu o.fl.
og rekstur Dagsprents hf. þá líklega
fluttur út í Tryggvabraut. Sam-
komulag náðist hins vegar ekki við
stjóm Kaupfélags Eyfirðinga. í lok
júnímánaðar sl. var prentsmiðju-
reksturinn seldur prentsmiðju- og
útgáfufyrirtækinu Ásprent hf. í
Glerárgötu á Akureyri ásamt því að
Ásprent hf. yfirtók ráðningasamn-
inga starfsfólks. Hið nýja fyrirtæki
fékk nafnið Ásprent - POB og
verður fyrirtækið í húsakynnunum í
Glerárgötu. Ástæða sölunnar var
m.a. sú að fyrirsjáanleg var tölu-
verð fjárfesting í tækjabúnaði, sem
ekki var talin áhættunnar virði í
stöðugt harðnandi samkeppni í
prentiðnaðinum. Akoplast & POB
hf. sem aðeins nokkrum misserum
áður rak bæði prentsmiðju og plast-
pokaverksmiðju var skyndilega
ekki í neinum rekstri. Ætla má að
það standi þó ekki til langframa en
eigendurnir hafa verið að kanna
möguleika á kaupum á fyrirtæki
sem er í rekstri og ætti það mál að
skýrast á næstunni. Hjólin halda
þvf áfram að snúast hjá þeim þre-
menningum sem í upphafi keyptu
plastpokaverksmiðju að Bjargi á
Akureyri en hafa eflaust ekki séð
fyrir endann á þeirri hröðu atburða-
rás, sem síðan átti sér stað í þeirra
atvinnurekstri á Akureyri. Þessir at-
hafnamenn eru Jóhann Oddgeirs-
son, Eyþór Jósepsson og Daníel
Unnsteinn Árnason en auk þeirra
eiga Steinþór Ólafsson og Ómar
Jósepsson minni hlut í fyrirtækinu.
Verkaskipting hefur alla tíð verið
nokkur skýr milli þeirra félaga; Ey-
þór sér um markaðsetningu og
jafnframt því að sinna bústörfum,
en síðan gerðist Árni starfsmaður
Kaupfélags Norður-Þingeyinga.
Móðir Daníels, Ragnheiður
Daníelsdóttir, er ættuð úr Borgar-
firði syðri, og hún gerðist einnig
starfsmaður Kaupfélagsins á Kópa-
skeri enda starfsemi þess á árum
áður þungamiðja alls atvinnulífs í
Öxarfirði og nágrenni. Þegar Árni
og Ragnheiður brugðu búi kringum
1980 tók elsti bróðir Daníels, Sig-
urður, við búinu en hann býr nú í
Presthólum í Núpasveit. í Hjarðar-
ási tók þá annar bróðir við búi,
Helgi. Önnur systkini eru Ingunn,
sem býr í Mosfellsbæ og Amþór
Gylfi, sem býr í Búðardal og rekur
vinnslu og er það fyrirtæki eins
konar forveri Geflu hf. Ég hafði
stutta viðdvöl á Kópaskeri, réði
mig sem framleiðslustjóra hjá
Meitlinum hf. í Þorlákshöfn og þar
kynntist ég góðum mönnum og
öðlaðist einnig mikla og dýrmæta
reynslu í fiskvinnslugeiranum.
Leiðin lá aftur norður á Kópasker
en viðveran var einnig stutt í það
skiptið, ætli það hafi ekki verið
kominn í mig einhver rekstrarvíms,
ég leitandi að þeim töfrum sem em
í kringum atvinnurekstur og annað
tengt því. Til að leita svara við
þeirri þörf sótti ég um skólavist á
Samvinnuskólanum að Bifröst og
hóf nám þar haustið 1983 en fékk
Akoplast & POB hf. og Plastprent
hf. stofnuðu Ako-plast hf. á sl. vori
til aukinnar þjónustu, fyrst og
fremst við sjávarútveginn. F.v.: Ey-
steinn Helgason, framkvæmdastjóri
Plastprents hf., Altreð Gíslason,
stjórnarformaður Ako-plasts hf.,
þremenningarnir Daníel Árnason,
Jóhann Oddgeirsson og Eyþór
Jósepsson í Akoplast & POB hf. og
Bjarni Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna. Myndir: GG