Dagur - 23.12.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 23. desember 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
SÍMFAX: 462 7639 • SIMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (Iþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HúsavíK vs. 464 1585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRl'MANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Hátíð fer að
höndum ein
Jólin eru hátíð ljóssins þegar mannfólk fagnar fæð-
ingu frelsarans í Betlehem. Þessari guðsgjöf er
sungin lof og dýrð meðal kristinna manna út um
allan heim. Heimsbyggðin sameinast um stund,
þjóðir ýta deilum til hliðar og taka höndum saman
um að njóta jólanna. En jólin eru líka kærkomin á
þessum myrkvasta tíma ársins hér á norðurhjara -
þegar skammdegið hræðir. Þá er gott að gera sér
glaðan dag, eiga skjól í ljóssins hátíð. Um þetta
segir svo í ljóðlínum Valdimars Briem:
Jesú, þú ert vort jólaljós,
um jólin ljómar þín stjarna.
Þér englarnir kveða himneskt hrós,
það hljómar og raust Guðs barna.
Skammdegismyrkrið skyggir svart,
ei skugga sjáum þó tóma.
Þú ljósið afhæðum blítt og bjart,
þú ber oss svo fagran ljóma.
Lengi hefur því verið haldið fram að jólin, þessi
helga hátíð, sé að drukkna í efnishyggjunni, hin
andlegu gæði hafi vikið fyrir hinum veraldlegu. Ef
til vill hefur það verið svo fyrir nokkrum árum, en
margt bendir til þess að boðskapur jólanna sé í
sókn, ef svo má að orði komast, í hinum vestræna
heimi. Vaxandi kirkjusókn hér á landi um jól und-
angenginna ára gefur til kynna að boðskapur
ljóssins hátíðar hafi ekki gleymst í jólaundirbún-
ingnum og gjafakaupum. Það er ánægjulegt og um
leið allrar athygli vert. Jólin eru hátíð þegar fólk
sest niður með sínum nánustu og á með þeim
notalega stund. í nútímaþjóðfélagi, þegar foreldr-
ar vinna baki brotnu til þess að endar nái saman í
heimilisbókhaldinu, er fátt mikilvægara en einmitt
það að rækta fjölskylduböndin. Til þess gefst kær-
komið tækifæri við kertaljós á fæðingarhátíð frels-
arans.
Dagur sendir lesendum sínum og landsmönnum
öllum hugheilar óskir um að jólahátíðin verði rík af
friði og gleði.
■ UPPAHALPI
Hleyp öll lifandis ósköp
- segir Kertasníkir, sem kemur sídastur bræðra sinna til byggða á morgun
Að þessu sinni er þaö þrett-
ándi og síðasti jótasveinn-
inn, Kertasníkir, sem upp-
lýsir lesendur Dags um
hvað hann heldur nú mest
upp á. Von er á Kertasníki til byggða á
morgun, en nwð nútíma tækni tókst að
ná sambadi við sveinka þar sem liann
var á hraðferð ofan úr fjöllunum og
féllst hann fúslega á að staldra við til
að svara nokkrum spurningum. Hann
vildi þó ekki dvelja of lengi því eins og
hann sagði sjálfur „það er svo skrambi
kalt að maður stirðnar strax upp. “
Kertasníkir lét annars vel af ferð
sinni. Fœrð vœri óvenju góð „en fyrir
mína parta vildi ég nú gjarnan hafa að-
eins meiri snjó. Það er svo miklu jóla-
legra," sagði hann og vildi síðan ólmur
vinda sér í að svara spurningunum.
„Ég hef alltaf þótt nokkuð glúrinn í
svona spurningaleikjum. Gluggagægi
bróður mínum gremst til dæmis óskap-
lega þegar ég Itef betur," bætti hann
við.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Eg verð að viðurkenna að góð tólgarkerti
eru það allra besta sem ég fæ. Á hátíðar-
stundum hnupla ég stundum bita af hangi-
kéti frá bróður mínum Kétkróki og jafnvel
skyrspón frá honum Skyrgámi ef þannig
stendur á.“
Uppáhaldsdrykkur?
„Eg skal segja þér að þegar maður er
þyrstur jafnast ekkert á við fá sér sopa úr
tærum fjallalæk.“
Hvaða heimilsstörffinnst þér
skemmtilegust - leiðinlegust?
„Þessi er dálítið snúin. Satt best að segja
stend ég mig frekar illa á þessu sviði. Það
er helst að ég fáist í smá tiltekt því þá er
alltaf von um að finna kertisstubb að narta
Kertasníkir.
Stundarþú einhverja markvissa
lireyfingu eða líkamsrœkt?
„Ég hleyp öll lifandis ósköp og reyni að
halda mér liðugum. Það er eins gott að
vera snar í snúningum til að nappa kertun-
um af þessum nútímabömum, sem stunda
þetta erósprikl eða hvað það nú heitir."
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
„Ég kaupi nú ekkert sjálfur en kíki stund-
um í matreiðslubækumar hjá henni Grýlu
mömmu minni. Þar kennir sko ýmissa
grasa get ég sagt þér.
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Ég les voða lítið sjálfur. Þegar ég var
yngri las Leppalúði pabbi alltaf fyrir mig
á kvöldin en nú er það alveg búið því
sjónin hefur versnað svo mikið hjá gamla
manninum.“
/ hvaða stjörnumerki ert þú?
„Á þetta að vera einhver brandari?"
Hvaða tónlistarmaður er í mestu
uppáhaldi lijá þér?
„Auðvitað hlusta ég lang mest á jólalög
en vil síður gera upp á milli manna svo
enginn móðgist svona rétt fyrir jólin.“
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Bjúgnakrækir bróðir, engin spuming.
Hann er ótrúlega liðugur þegar hann
hendist upp í rjáfrið.“
Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi?
„Við höfum nú ekki enn fengið okkur
svoleiðis apparat í hellinn okkar."
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
„Hvaða jólasveinar em það?“
Hver er að þínu mati fegursti staður
á íslandi?
„Mamma hefur alitaf sagt, heima er best
og ég styð það.“
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
að flytja búferlum nú?
„Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda ef
við þurftum að flytja. Það gengi einfald-
iega ekki upp. Hér höfum við búið síðan
elstu menn muna og eru þeir þó margir
orðnir hundgamlir.“
Efþú ynnir stóra vinninginn í lóttó-
inu hvernig myndir þú eyða pening-
unum?
„Jólasveinabúningurinn minn er orðinn
dálítið slitinn, en veistu að ég held mig
langi mest í pakka af góðum tólgarkert-
um.“
Hvernig vilt þú hekt verja frístund-
um þínum?
„Þær eru nú fáar en helst reyni ég að
skemmta mér við að nappa kertum af
bræðrum mínum. Það er óskaplega gam-
an, finnst mér.“
Hvað œtlar þú að gera um helgina?
„Ég ætla auðvitað að reyna að ná eins
mörgum kertum og ég get. Eins og þú
veist höfum við bræður síðan frekar hægt
um okkur á sjálfa jólanóttina, sitjum á
strák okkar eins og það er kallað." HA
H ELCARRABB
AUÐUR INÚÓLFSDÓTTIR
Jæja, þá er komið að því. Jólin,
þessi hátíð sem allt snýst um í des-
ember, eru loksins að koma. Á
morgun líkur öllum æsingnum.
Verslunarmenn loka búðum sín-
um. Hreingemingardótinu er
fleygt inn í skáp. Útvarpsstöðvam-
ar hætta að spila jólapopplög og
við taka jólasálmamir. Lætin og
stressið víkur fyrir helgi jólanna.
Á mínu heimili eru fáir hlutir í
jafn föstum skorðum og aðfanga-
dagur jóla. Engu má breyta frá ári
til árs og alit verður að vera eins
og í fyrra. í hádeginu er borðaður
grjónagrautur. Eftir mat er jóla-
skrautinu komið fyrir á sínum stað
og jólapakkamir eru keyrðir út.
Um fjögurleytið fara þeir fyrstu að
tínast í bað og með góðri skipu-
lagninu eru allir orðnir hreinir og
fínir þegar messan byrjar klukkan
sex. Áð messu lokinni reynir hinn
róttækari hluti fjölskyldunnar að
breyta aðeins til. „Opnum við ekki
örugglega jólakortin eftir mat-
inn?“ Gamimar eru famar að
gaula enda enginn búinn að borða
síðan í hádeginu og því freistandi
að reyna að hnika dagskránni of-
urlítið til. En hinir íhaldssömu
hafa engu gleymt og vita vel að
jólakortin em alltaf opnuð FYRIR
matinn.
Ég veit ekki hvernig venjan er á
öðrum heimilum en ég hef þó grun
um að það sé nokkuð algengt að
opna jólakortin jafnóðum og þau
berast. Slíkt er hins vegar dauða-
synd heima hjá mér. Jólakortin á
að opna eftir messu og fyrir mat á
aðfangadag og á heimilinu eru
tveir bréfahnífar, sem eru aldrei
notaðir nema á þessari heilögu
stund. Reyndar kemur í Ijós að í
einstaka tilfellum er ekki þörf fyrir
bréfahnífana þar sem búið er að
opna nokkur umslög. Þama hefur
róttækari hluti fjölskyldunnar aftur
verið á ferðinni, þ.e.a.s. ég og
mamma, og hljótum við að laun-
um stingandi augnaráð frá karl-
peningnum á heimilinu: „Svindl-
arar, þið eru búnar að kíkja í kort-
in!“
Ég er búin að margsegja sjálfri
mér að auðvitað ráði ég sjálf hve-
nær ég opni mín eigin kort. Samt
skammast ég mín alltaf óskaplega
á aðfangadagskvöld, þegar upp
kemst að ég er búin að kíkja í öll
kortin, og heiti því að á næsta ári
standi ég mig betur. Ég er gífur-
lega hreykin af því hve vel ég hef
staðið mig í ár. Ekki búin að kíkja
á eitt einasta kort! í hvert skipti
sem ég geng í gegn um forstofuna
beiti ég mig jámaga og leyfi mér
ekki einu sinni að horfa í átt að
jólakortapokanum. Enn sem kom-
ið er gengur allt vel en nú hef ég
grun um að komin séu nokkur
þykk kort frá úlöndum sem í gætu
leynst bréf. Ég er alveg sérstak-
lega veik fyrir þessum kortum og
finn viljastyrkinn þverra með
hverri mínútunni sem líður. Þessi
eini dagur fram að jólum virðist
allt í einu alveg óendanlega langur
og í huganum fæðast ótal hug-
myndir um hvemig ég gæti nú
laumast í jólakortapokann án þess
að nokkur sjái til. Ætli einhver
fatti að ég hafi kíkt ef ég nota
gömlu aðferðina með gufunni og
lími svo umslögin aftur?
Loksins kemur matur
Ég býst ekki við öðru en að sama
verði upp á teningnum í ár og hin
fyrri ár að kortin verða opnuð á
fastandi maga. Um næsta dag-
skrárlið, sem er maturinn, ríkir þó
talsvert meiri sátt í fjölskyldunni.
Á aðfangadag er ófrávíkjanleg
regla að hafa hangikjöt á borðum.
Einu sinni hélt ég að allir borðuðu
hangikjöt á aðfangadag en nú sýna
fullt af könnunum að á aðfanga-
dagskvöld borða flestir Islending-
ar hamborgarahrygg en bíða með
hangikjötið fram á jóladag. Mitt
fólk lætur ekki fjölmiðlatal hafa
áhrif á sig og heldur sínu striki. Á
aðfangadagskvöld borðum við
hangikjöt og enginn myndi láta sér
detta í hug að stinga upp á öðru.
Sjálfri finnst mér reyndar ham-
borgarahryggur miklu betri en
þeirri vitneskju held ég fyrir mig
eina. Ég skapa víst nógan usla
með öllu jólakortaveseninu og
segi því ekki orð um jólamatinn.
Borða bara þeim mun meira af
grænum baunum og laufabrauði.
Eftir mat taka jólapakkamir
við. Hér hefur reyndar tekist að
breyta reglunum ofurlítið og kem-
ur það ekki til af góðu. f gamla
daga máttu allir opna einn pakka
fyrir matinn en nú er allt geymt
þar til eftir mat. Ég held að það sé
nú bara vegna þess að með hækk-
andi aldri fækkar jólapökkunum
og ef allir taka upp einn verða svo
fáir eftir. Börnin á heimilinu eru
orðin stór og ekkert okkar virðist
sýna því mikinn áhuga í augna-
blikinu að fjölga mannkyninu.
Pakkamir eru því ekkert voðalega
margir og flestir litlir. En sem bet-
ur fer er hún amma í heimsókn og
hún á alveg helling af bamaböm-
um og bamabamabömum sem sjá
um að fjölga gjöfunum undir trénu
enda kemur upp úr kafinu að þrír
af hverjum fjórum pökkum eru til
hennar. Ég örvænti því ekki þó
fjarskyldu frænkumar og frænd-
urnir sendi mér ekki lengur pakka
á jólunum. Ég bíð bara þolinmóð
eftir því að verða amma og lang-
amma og þá fæ ég aftur fullt af
pökkum.