Dagur - 23.12.1995, Side 5
Laugardagur 23. desember 1995 - DAGUR - 5
Aggi Slæ og Tamlasveitin. „Tömlu-
lausir“.
Skrautleg
samsuða
Egill Ólafsson hefur svo árum
skiptir setið í „lávarðadeild" ís-
lenskra poppara og virðist ekkert
fararsnið vera á honum þaðan
ennþá. Það er þó heldur skrautleg
samsuða sem Egill ber á borð á
nýjustu plötunni sem hann stendur
fyrir, sem og Aggi Slæ ásamt
Tamlasveitinni.
Er þama á ferðinni tíu laga
plata þar sem átta eru af eldri
gerðinni og úr ansi hreint ólíkum
áttum, en tvö svo að segja bæði
ný, Korriró, sem kom út á
safnplötu í sumar og Tamla funk.
Meðal eldri laganna eru t.d.
Kepp on Runnin, sem svo vinsælt
varð fyrir um tveimur og hálfum
áratug með Spencer Davis Group,
Superstition eftir Stevie Wonder,
Bítlalagið Hard Days Night og
hinn magnaði íslenski diskósmell-
ur Diskó friskó, að ógleymdu lagi
van Morrisons, Have I told you
baby. Engin smáblanda, sem Eg-
iIl/Aggi og félagar, ekki minni
herrar en Asgeir Óskars á tromm-
um, Bjöm Thoroddsen á gítar, Ei-
ríkur Örn Pálssön blástursleikari,
Jónas Þórir píanóleikari, Gunnar
Hrafnsson bassaplokkari og Stef-
án S. Stefánsson saxafónleikari og
höfundur Diskó friskó og Tamla
funk (Korriró er eftir Egil) klæða í
tamla/fönk/sálarbúning með lát-
um.
Þó er það nú þannig að þegar
upp er staðið, eru frumsömdu ný-
smíðarnar bestar og hefðu þær
mátt vera fleiri á annars ágætlega
unninni plötu. mgg-
Sveitadvöl
Gogga og Grjóna
Gunnar Helgason er höfundur
bamabókarinnar Goggi og Grjóni
vel í sveit settir sem Mál og menn-
ing hefur gefið út. Bókin fjallar
um sömu söguhetjur og fyrri bók
höfundar, Goggi og Grjóni, og
segir hún í gamansömurr stíl frá
sveitadvöl þeirra félaga. Þeir taka
sér margt óvænt fyrir hendur og
óhætt er að segja að þeir verði
reynslunni ríkari.
Gunnar Helgason er leikari og
annar umsjónarmanna Stundarinn-
ar okkar í Sjónvarpinu. Bókin er
prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
og kostar 1.380 kr. Grafít hf. gerði
kápuna.
Aku
■
r með allt að
i ar
afslætti
•s'V
KAUFVANGSSTRÆTI 4 - SlMI 462 6100 - FAX 462 6156