Dagur - 23.12.1995, Side 6

Dagur - 23.12.1995, Side 6
6 - DAGUR - Laugardagur 23. desember 1995 Ilmur af eldrauðum útlendum blómum - um Davíð Þorvaldsson rithöfund frá Akureyri Akureyri hefur alið af sér margt skáldið. Sum eru nafnkunnari en önnur en trúlega kannast fáir við Davíð Þorvaldsson. Engu að síður var hann talinn til efnilegri rithöfunda á íslandi um 1930 en hann náði aðeins að gefa út tvö smásagnasöfn áður en tæringin varð hon- um að aldurtila. Smásagan var það form sem Davíð unni og eftir hann liggja um þrjátíu sögur, sem sumar hverjar hafa verið þýddar á erlendar tungur. Fram til þessa hefur þó farið lítið fyrir Davíð í þeirri bókmenntasögu sem höfð er fyrir íslenskum námsmönnum. Þar á hann fyllilega skilið sæti við hlið samtíðarskáldjöfra og er þess- ari grein ætlað að varpa ofurlitlu ljósi á ævi Davíðs, drengsins sem dreymdi um ilminn af eldrauðum, útlendum blómum og lét draum- inn rætast.' Umskipti auðnu og ógæfu I mörgum kaupstöðum á íslandi er gatan fram með fjörunni nefnd Strandgata. [...] Öðru megin göt- unnar er fjörðurinn eða flóinn, bryggjur og hafnarmannvirki, ef til eru, skip og bátar; hinum meg- in húsakumbaldar, gamlir og nýir, [...] I húsum þessum býr fólk af öllum stéttum, en þó aðallega þeir, sem stunda kaupsýslu, eyrar- vinnu og sjómennsku. [...] Fjöru- lykt af rotnandi þangi og þara berst inn í húsin, í stormi þyrlast göturykið og leitar inn um hverja smugu. Þegar vetur gengur í garð, þekur snjórinn sand og leir, gatan verður hvít, loftið heilnœm- ara.2 Akureyri síð- ustu aldamót- anna var ekki stórt þéttbýli á mælikvarða okkar tíma en þótti stórbær í þá daga. Þar voru útgerð og verslun, skólar og skemmtana- hús, menning þéttbýlisins að fikra sig frá menningu sveitanna. Meðal kaupmanna og útgerðar- manna í hinum norðlenska kaup- stað var Þorvaldur Davíðsson sem rak eigin verslun í húsi sem Ole Lied skósmiður reisti árið 1885 að Strandgötu þrettán. Hann og fjöl- skylda hans bjuggu einnig í hús- inu og þar fæddist hinn 3. júní 1901 lítill drengur sem skírður var Davíð Marinó. Hann var þriðja bam Jóhönnu Jónasdóttur og Þor- valds, þriðji drengurinn. Hinir tveir voru Jónas Þórir, fæddur 1897, og Kristján Jónas, fæddur 1898. Drengurinn var skírður í höfuð- ið á afa sínum, Davíð Ketilssyni frá Miklagarði en hann aðstoðaði Þorvald við verslunarreksturinn og útgerðina sem var töluverð um aldamótin þegar síld var inn um allan Eyjafjörð. Reksturinn gekk misvel, sérstaklega útgerðin, en vorið 1903 byggði Þorvaldur þó nýtt íbúðarhús áfast við það gamla og flutti þá faðir hans til þeirra. Ari síðar stækkaði Þorvaldur verslunina og þá fjölgaði enn á heimilinu því foreldrar Jóhönnu, Jónas Gunnlaugsson, fyrrverandi hreppstjóri á Þrastarhóli, og Þór- dís Jóhannsdóttir, kona hans, flutt- ust þá einnig að Strandgötu þrett- án. Þorvaldur, faðir Davíðs, var metnaðarfullur maður og árið 1904 gerðist hann útibússtjóri hins nýstofnaða íslandsbanka á Akur- eyri. Eitt af skilyrðunum fyrir starfinu var að hann ræki ekki eig- in verslun og tók faðir hans þá formlega séð við versluninni. Fljótlega eftir að Þorvaldur settist í stól útibússtjóra fór hann að kenna sér sóttar og versnaði stöðugt. í ársbyrjun 1905 lagðist hann rúmfastur og fór hann sam- kvæmt læknisráði til Danmerkur, á heilsuhæli í Silkeborg. Eflaust átti það sinn þátt í því að Davíð litli var sendur austur á Fáskrúðs- fjörð sama sumar í fóstur hjá föð- ursystkinum sínum, Jóni og Jakobínu. Hjá þeim var hann allt til ársins 1910 og slapp þannig við að taka beinan þátt í miklum hörmungum sem gengu yfir fjöl- skylduna. Árið 1906 var ár áfalla hjá Jó- hönnu Jónasdótt- ur og hennar fólki. í mars- mánuði andaðist móðir hennar og í júní fékk hún þær fregnir frá Danmörku að Þorvaldur hefði látist úr berklum í maí og búið væri að jarða hann. Um haustið varð síðan stór- bruni á Akureyri þegar fjöldi húsa við Strandgötuna varð eldi að bráð, þar á meðal hús númer þrett- án. Sem betur fer voru hús og verslun vátrygjgð og fékkst tjónið að fullu bætt. I ársbyrjun 1907 var því hafist handa við að reisa nýtt hús og að beiðni Jóhönnu var það haft eins stórt og lóðin leyfði. Byggingu þess lauk um sumarið og stendur húsið enn í dag á homi Strandgötu og Glerárgötu og er gjama kallað homskakka húsið því það stendur samhliða báðum götunum. Þar opnaði Davíð Ket- ilsson aftur verslun en reksturinn gekk erfiðlega þannig að henni var lokað 1910. Örlaganomimar höfðu hins vegar ekki bmnnið með gamla húsinu og fylgdu fjöl- skyldunni í það nýja. Um veturinn 1907-1908 veiktist Jónas Þórir af berklum og dó haustið eftir. Af öllum þessum örlagaríku at- burðum fékk Davíð litli aðeins fjarlægar fregnir. Jón föðurbróðir hans var verslunarstjóri hjá Verzl- un Thors E. Tuliniusar á Fá- skrúðsfirði og jafnframt hrepp- stjóri. Jakobína, föðursystir Davíðs, var ráðskona hjá Jóni til 1907 en þá kvæntist hann Jóhönnu Kristjánsdóttur. Jakobína var samt áfram til húsa hjá bróður sínum til haustsins 1909 þegar hún giftist Ólafi Gíslasyni sem starfaði við verslunina hjá Jóni. Þau Jakobína og Ólafur fluttust síðan á Borgar- fjörð eystri árið 1913 þar sem Ól- afur tók við verslunarstjóra- stöðu í einni af Hinum samein- uðu íslenzku verzlunum. Eins og áður segir kom Davíð litli aftur til fjöl- skyldu sinnar á Akureyri árið 1910. Umskipti höfðu orðið; fað- ir hans, bróðir og amma vom látin, húsið sem hann fæddist í horfið og móðir hans sem eitt sinn hafði átt láni að fagna og góðum efnum, hafði nú hlotið örlög ekkjunnar, sem búa má við lítinn kost en man fífil sinn fegri? Barnskónum slitið með bókviti - Já, það var síðara hluta dags um haust í blíðuveðri. Ofan úr berja- hvömmunum bar fjallaþeyrinn ilm af lyngi og grösum. Hjá fallega garðinum við læknishúsið stóð kyrrlátt, berklaveikt barn með ná- fölt andlit. Það teygaði ilminn af eldrauðum, útlendum blómum.4 Davíð gekk í barnaskóla á Ak- ureyri og fór síðan í Gagnfræða- skólann. Þröngur fjárhagur fjöl- skyldunnar gerði það að verkum að aðeins annar þeirra bræðra gat gengið menntaveginn. Sú leið féll Davíð í skaut enda segir Davíð Stefánsson að hann hafi bæði ver- ið námfús og bókhneigður. Vorið 1921 lauk Davíð þriðja bekk með gagnfræðaprófi. Akur- eyrarskóli fékk ekki leyfi til að út- skrifa stúdenta fyrr en nokkrum árum síðar svo að norðlenskir gagnfræðingar urðu að halda suð- ur í höfuðstaðinn til frekara náms. Slíkt var dýrt og ekki á allra færi. Einnig var álit norðlendinga á Menntaskólanum í Reykjavík ekki upp á marga fiska. Álmennt var álitið að skólinn vœri hálfgert spillingarbœli, sem fæstir kœmust í gegnum óskaddaðir? Davíð settist í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík haust- ið 1921 og vafalítið hefur honum ekki brugðið minna en Steindóri Steindórssyni frá Hlöðum sem kom suður ári síðar: Mér þótti skólinn strax óvið- felldinn, svo að ekki sé sterkar að orði kveðið. Stofurnar lágar og dimmar, þröngt á göngum, og eins og einhver þyngslasvipur á öllu. Verstir þóttu mér þó gluggarnir eða gœgjugötin á hurðunum, mér þóttu þau fullkomið miðaldatákn um það, að í skólanum drottnaði andi njósna og ófrelsis. Margt var frumstœtt. Klœðaskápar voru inni í stofunum, þangað var dyngt inn yfirhöfnum, oft blautum og skó- hlífum forugum og ókrœsilegum. Má fara nœrri um hver áhrif það hafði á loft- ið, en loftrœsting var ófullkomin, ekki nema litlir gluggar á hjör- um og þeir ekki opnaðir nema í lífsnauðsyn að heita mátti? Þrátt fyrir niðurdrepandi umhverfi virðist félagslíf nem- enda við Menntaskólann hafa verið all- gott. Framtíðin hét helsti félags- skapurinn og á vegum hennar voru haldnir málfundir og rit- uð einskonar skólablöð, Skinfaxi fyrir óbundið mál og Hulda fyrir ljóð. Auk þess starfaði ritdóma- nefnd í tengslum við félagið sem gagnrýndi skáldverkin í sérstakri ritdómabók. Davíð virðist ekki hafa geyst fram á ritvöllinn á sín- um fyrsta vetri í Reykjavíkur- skóla. Trúlega hefur hann lagt megináherslu á námið og haldið skáldskapnum fyrir sjálfan sig. En kapp er best með forsjá. Stundaði hann nám sitt af miklu kappi, enda mun það hafa riðið heilsu hans að fullu, því að árið 1922 kenndi hann þess sjúk- dóms, sem hann átti allt afsíðan í höggi við? Þannig kemst Kristján Guð- laugsson að orði í kveðjuorðum til skólabróður síns Davíðs. Hvort sem um var að kenna of miklum námsáhuga eða þeim aðbúnaði sem Steindór lýsir þá hrakaði heilsu Davíðs eftir nokkurra mán- aða veru í Reykjavík. Engu að síður sat hann í fimmta bekk vet- urinn 1922-1923. Hinn fyrsta nóv- ember 1922 ritar hann í Skinfaxa sína fyrstu smásögu sem hann lagði fyrir annarra augu, „Ást krypplingsins. Söguna las hann síðan upp á fundi Framtíðarinnar tveimur dögum síðar. Viðtökur skólafélaga hans voru ótvíræðar, nýtt skáld hafði kveðið sér hljóðs. Eftir þetta var Davíð hampað sem sönnum snillingi af Framtíðarfélögum og sárt saknað þegar hann, heilsu sinnar vegna, var frá námi veturinn 1923-1924. Sést það glöggt í upphafsorðum gagnrýni sem Pétur Benediktsson skrifaði 29. nóvember 1924 um söguna „Undir björgum eftir Davíð; Þegar ég var í fjórða bekk, heyrði ég Davíðs fyrst getið. Mér var sagt, að hann væri ógurlegt skáld, einna helzt samanberandi við Shakespeare. Og sjálfur sá ég, að hausinn á honum var talsvert iíkur hausnum á Shakespeare eftir því, sem hann er á sumum mynd- um. Af þessum líkum þótti mér eigi ólíklegt, að gamii maðurinn vœri þarna endurfœddur. [...] I fyrra vetur var Davíð eigi í skóla. Var því eðlilegt, að þá birtist eng- in ósköp eftir hann, en þá heyrði ég ýmsa gráta hann. Það væri Ijótan, sögðu þeir, fyrir Framtíðina, að hafa hann Davíð ekki. Það væri nú skáld í lagi? Afköstin hjá Davíð í smá- sagnagerðinni á þessum árum voru lítil miðað við það sem seinna varð. Aðeins fjórar sögur eru eftir hann í Skinfaxa, tvær á vetri. En skáldverkin féllu vel í kramið hjá skólafélögunum og í bókmenntasögu sinni líkir Stefán Einarsson honum við Jóhann Gunnar Sigurðsson og Jóhann Jónsson hvað það áhrærir. Þessi Iitlu afköst í skáldskapn- um eiga sér væntanlega þá skýr- ingu að námið hafi verið í fyrir- rúmi hjá Davíð. Hann varð næst- hæstur á stúdentsprófinu 1925 og útskrifaðist með fyrstu einkunn, 6,98, en þá var hæst gefið átta. Leiða má getum að því að fátækt fjölskyldunnar hafi hvatt hann til að stunda námið af krafti og taka próf sem dygði honum vel í bar- áttunni um þá fjóra styrki sem menntamálaráðuneytið úthlutaði stúdentum árlega til náms erlend- is. Raunin varð líka sú að Davíð hreppti styrk til náms í náttúru- fræðum við Hafnarháskóla ásamt Steindóri Steindórssyni og Jó- hannesi Áskelssyni. Þetta hafði mikla þýðingu fyrir hann. Þó að féð hrykki skammt þegar út var komið, en styrkurinn var 100 kr á mánuði í fjögur ár, þá rættist draumurinn sem kviknaði við ilm- inn af eldrauðum, útlendum blóm- um. Hin kalda Kaupmannahöfn Morguninn 3. september var hálf- grámygluiegur, en brátt glaðnaði í lofti, og sólin skein í allri sinni dýrð yfir turna og torg. Við flýttum okkur í land, rislág- ir og sjólegnir, svangir og illa til hafðir eftir 10 daga reisu á fúlu farrými Goðafoss? Þannig lýsir Steindór Stein- dórsson komu hinna þriggja verð- andi náttúrufræðinga til Kaup- mannahafnar. Svo fór að þeir Davíð leigðu saman fyrstu mán- uðina en í sjálfsævisögu sinni seg- ir Steindór að þeir hafi aldrei orð- ið nánir vinir enda harla óskaplík- ir: Davíð var draumlyndur og hneigður til skáldskapar, eins og síðar kom betur fram, og hafði þá áreiðanlega hugsað sér að leggja út á braut listarinnar, ef honum entist aldur til. Hann hafði ekki valið sér náttúrufræðinám af áhuga á greininni, heldur miklu fremur til að fá færi á að komast utan, til þess að kynnast nýju um- hverfi, hitta fólk og fá nýja og víðari yfirsýn um mannlífið. Þegar svo var í pottinn búið, var sýnt, að námið mundi ekki veita honum nokkra fullnægju og því síður gleði. Enda tók honum brátt að leiðast það, og hætti hann þá að sækja fyrirlestra og æfingar. Ofan á það bættist, að hann var heilsu- veill og hafði ekki þrek til áreynslu. [...] við höfðum lítið saman að sælda. og sáumst lítt, þó við byggjum í sama herbergi. Eg reif mig á fætur snemma á morgn- ana, til að komast í fyrirlestra, og sat úti á lestrarstofum allan dag- inn, en Davíð var sjaldnast vakn- aður, þegar ég fór. Hinsvegar fór hann oft út á kvöldin, og var kom- inn út áður en ég kæmi heim, en ég aftur sofnaður við heimkomu hans. Við áttum því fá sameigin- leg áhugamál fyrst leiðir skildu Árið 1906 var ár áfaila hja Jóhönnu Jónas- dóttur og hennar fólki. Hjá fallega garðinum við læknishúsið stóð kyrrlátt, berklaveikt barn með ná- fölt andlit. Það teygaði ilminn af eldrauðum, útlendum blómum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.