Dagur - 05.01.1996, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 5. janúar 1996
FRÉTTIR
Skiptum lokið ur
þrotabúi Matvöru-
markaðarins
Skiptum úr þrotabúi Sæborg-
ar hf. á Akureyri, sem stóð að
rekstri matvöruverslunarinnar
Matvörumarkaðarins í Kaup-
angi á Akureyri, er lokið.
Veðkröfur, lögveð og kröfur
vegna veðbundinnar eignar,
samtals að upphæð kr. 6,6 millj-
ónir, greiddust að fullu. For-
gangskröfur kr. 3,8 milljónir
greiddust sömuleiðis að fullu en
upp í almennar kröfur, sem voru
samtals tæplega 75 milljónir
króna greiddust 7,2 milljónir
eða 9,7%. óþh
Friðrik ráðinn til ÍS
Friðrik Sig-
urðsson, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri
Kísiliðjunnar
hf. í Mývatns-
sveit, hefur
verið ráðinn
til starfa við Þróunarsvið ís-
lenskra sjávarafurða hf. Frá
þessu er greint í Fréttabréfi ís-
lenskra sjávarafúrða hf.
Eins og fram hefur komið
starfaði Friðrik fyrri hluta þessa
árs á vegum Celite China Inc. í
Kína.
Meginverkefni Friðriks hjá
íslenskum sjávarafurðum hf. er
vöruþróun og tengd verkefni
fyrir Seailower Whitefish Cor-
poration í Namibíu. óþh
Undirbúningur kjörs forseta Alþýöusambands íslands kominn í fullan gang:
Horfum vonaraugum á Kára
- segir Valdimar Guðmannsson, formaður Alþýðusambands
Valdimar Guðmannsson, for-
maður Alþýðusambands Norð-
urlands, segir að flestir þeir
verkalýðsleiðtogar á Norður-
landi sem hann hafi rætt við,
staðnæmist við nafn Kára Arn-
órs Kárasonar, fyrrverandi for-
manns AN og núverandi fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
Norðurlands, í embætti forseta
Alþýðusambands íslands, en
þing þess verður haldið í vor í
Reykjavík.
„Flestallir sem ég hef heyrt í
horfa vonaraugum á Kára Amór.
Hins vegar hefur ekki ennþá verið
rætt við hann með formlegum
hætti. Að þessu verður þó farið að
huga á allra næstu dögum. Ég tel
að Kári hafi mjög víðtækan stuðn-
ing hér norðanlands og mér þætti
ekki ótrúlegt að svo væri víðar um
land.
Alþýðusamband Norðurlands
samþykkti á þinginu á Illugastöð-
um sl. haust tillögu um að bæta
hlut AN innan Alþýðusambands
Islands. Tillögunni var vísað til
miðstjómar AN og er þar gert ráð
fyrir að hún komi fram með hug-
myndir fyrir næstu mánaðamót.
Hvað sem formannskjöri líður
viljum við Norðlendingar fá okkar
hlut bættan í miðstjórn ASÍ. Á
síðasta ASI-þingi misstum við tvo
fulltrúa í miðstjóm, fórum úr
þremur fulltrúum í einn. Þetta er
óásættanleg staða fyrir okkur. Það
er mikið atriði að Norðurland,
sem því miður verður að teljast
láglaunasvæði, eigi fleiri en eina
rödd í miðstjórn ASÍ. Því fleiri
sem við verðum í miðstjóm ASI,
því betra.“
Valdimar segir mjög nauðsyn-
legt að endumýja forystu Alþýðu-
sambands íslands. „Séð frá bæjar-
dymm hins almenna launamanns
er Alþýðusamband íslands ekki
mjög merkileg samtök, það er
krafa fólks að gera breytingar.“
Valdimar leggur á það áherslu
Norðurlands
að næsti forseti ASÍ komi úr jarð-
vegi verkalýðshreyfingarinnar.
Hann er hins vegar því ekki
fylgjandi að næsti forseti ASÍ
verði starfsmaður Alþýðusam-
bandsins, en nafn Halldórs Grön-
vold hefur nr.a. verið nefnt í þessu
sambandi. „Ég er alfarið á móti
því. Ég tel að á undanfömum ár-
um hafi starfsmenn Alþýðusam-
bandsins verið allt of áberandi í
kringum kjarasamninga. Forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar
hafa fallið í skuggann af hagfræð-
ingum og lögfræðingum ASÍ.
Okkar foringjar eiga að vera í
fremstu víglínu,“ sagði Valdimar
Guðmannsson. óþh
Menningar- og fræðslusamband alþýðu og verkalýðsfélög:
Standa fyrir skóla fyrir
atvinnulausa á Akureyri
- 500 kennslustundir - hefst 15. janúar nk. og lýkur 10. maí
Þann 15. janúar nk. hefst á Ak-
ureyri skóli fyrir atvinnulausa á
vegum Menningar- og fræðslu-
Togarinn Skafti SK-3:
Fékk 140 króna
meðalverð í Hull
sambands alþýðu í samvinnu við
verkalýðsfélögin í Eyjafirði. Hér
er um að ræða eiginlegan skóla,
kennslustundirnar verða sam-
tals 500 og er áætlað að náminu
Ijúki 10. maí í vor. Skólinn verð-
ur þátttakendum, sem miðað er
við að verði 14 talsins, að kostn-
aðarlausu, en hann er íjármagn-
aður af félagsmálaráðuneytinu,
um er að ræða fjármuni sem rík-
ið lagði inn í kjarasamningana í
febrúar á sl. ári.
Slíkur skóli hefur verið starf-
ræktur með góðum árangri í
Reykjavík og á Suðurnesjum og
Skafti SK-3, einn togara Fiskiðj-
unnar-Skagfirðings hf., seldi í
Hull á miðvikudag og fimmtu-
dag 165 tonn fyrir 24,1 milljón
króna, sem gefur 140,50 krónur í
meðalverð. Þetta er allgóð sala
en þó nokkuð lakari sala en
Skafti SK gerði í Hull í byrjun
árs 1995 en þá voru seld 162
tonn fyrir 31 milljón króna, eða
meðalverð á kfló 193 krónur,
sem þá var metsala.
Ástæða metsölunnar í fyrra var
sú að þá var énginn annar fiskur á
markaðnum, bræla á heimamiðum
og í Norðursjó en nú voru á mark-
aðnum 450 tonn af þorski úr Bar-
entshafi af tveimur færeyskum
togurum og ágætur afli á heima-
miðum. Mánudaginn 8. janúar nk.
selur Skagfirðingur SK-4 í Brem-
erhaven 210 tonn af karfa. GG
Jólatrés-Rr
fagnaður v
verður í Skeifunni kl. 14.00
laugardaginn 6. janúar.
Öll börn og fullorðnir velkomin.
Kvennadeild Léttis.
■fl"
Ósk um viðskiptavinum sem
og öhrum gleðilegs nýs árs
Þökkum fyrir frábærar viðtökur á árinu sem er liðiS
Við viljum bjóða alla hjartanlega velkomna til okkar
tf þú klippir út þessa auglýsingu færð þú 500 kr. afslátt af 1 tíma
TH
HL
Sjukranuddstofa
Glerárgötu 24 - Sími 462 5530
Jr3
Aftur í skólann
Eftir gott jólafrí komu nemendur víða til skóla í gaer. Það var létt yfir nem-
endum Gagnfræðaskólans á Akureyri, þar sem þessi mynd var tekin, en víst
er að margir áttu erfitt með að vakna í gærmorgun eftir drjúgan morgun-
svefn að undanförnu. óþh/Mynd: BG
Laxá í Mývatnssveit:
Ný brú í gagnið
Fyrir skömmu var opnað fyrir
umferð á nýja brú yfir Laxá í
Mývatnssveit. Brúin er við enda
þjóðvegarins sem liggur vestan
vatnsins þar sem hann kemur
inn á þjóðveg eitt milli bæjanna
Arnarvatns og Helluvaðs. Eftir
er að ganga endanlega frá vegin-
um við brúna með klæðningu og
verður það gert í sumar.
Brúin er mikið mannvirki og
hin besta samgöngubót, sem leysir
af hólmi tvær gamlar brýr með
trégólfi. Hún er tvíbreið með
göngubraut og þannig útbúin að
hægt er að ganga undir hana á
bökkunum beggja megin árinnar.
Það var talið nauðsynlegt, ekki
síst fyrir veiðimenn, en efri hluti
Laxár er eitt frægasta urriðasvæði
landsins. Skammt frá brúnni er
Veiðifélag Laxár og Krákár ein-
mitt að vinna að byggingu veiði-
heimilis, sem taka á í gagnið í vor.
HA
nú er sem sagt komin röðin að
Akureyri. Sigurbjöm Kristinsson,
sem hefur umsjón með skólanum,
segir að námið skiptist í tvo hluta.
Annars vegar almennan hluta (350
stundir) þar sem m.a. verði kennd
íslenska, stærðfræði, enska, sam-
félagsfræði og tölvunotkun og
hins vegar starfsmenntunamám
(150 stundir) þar sem áhersla
verði lögð á ferðaþjónustu.
Sigurbjörn segir inntökuskil-
yrðin þau að þátttakendur séu
orðnir tvítugir, þeir séu á atvinnu-
leysisskrá og hafi styttri
skólagöngu að baki (grunnskóla-
menntun og tvær annir í fram-
haldsskóla). Sigurbjöm tók fram
að þetta nám verði metið til stytt-
ingar á bótalausu tímabili.
Bóklegi hluti námsins verður
til húsa að Furuvöllum 3 á Akur-
eyri, á efri hæð Straumrásarhúss-
ins. Ætlunin er að Akureyringar
sjái að stærstum hluta um kennslu.
Kennt verður kl. 9 til 14.30 mánu-
daga til fimmtudag og á föstudög-
um kl. 9-12.
Þegar em famar að berast um-
sóknir um námið en umsóknar-
frestur rennur út í næstu viku. Sig-
urbjörn vildi koma því á framfæri
að umsóknum megi skila til
Vinnumiðlunarskrifstofunnar á
Akureyri, skrifstofu Verkalýðsfé-
lagsins Einingar og tómstunda-
miðstöðvarinnar Punktsins á Gler-
áreyrum,
Sigurbjörn sagði góða reynslu
af sambærilegu námi á suðvestur-
hominu. Ekki liggi fyrir nákvæm
tölfræðiúttekt á stöðu nemenda að
námi loknu, en nokkur dæmi séu
um að þeir hafi fengið góða vinnu
eftir að hafa farið í gegnum þetta
nám Menningar- og fræðslusam-
bands alþýðu. óþh
Héraðsdómur Norðurlands eystra:
Gjaldþrotabeiðnum
hefur fækkað
Nýjum gjaldþrotabeiðnum til
Héraðsdóms Norðurlands eystra
fækkaði lítilega á síðasta ári
samanborið við árið 1994. Að
sama skapi voru gjaldþrotaúr-
skurðir örlítið færri á árinu 1995
en 1994.
Á síðasta ári bárust Héraðs-
dómi Norðurlands eystra 115 nýj-
ar beiðnir um gjaldþrotaskipti
samanborið við 123 beiðnir árið
1994.
Gjaldþrotaúrskurðirnir voru 56
á síðasta ári samanborið við 60 ár-
ið 1994. óþh