Dagur - 05.01.1996, Síða 3
FRÉTTIR
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
Tapaðir fjármunir
Á fundi bæjarráðs í gær var
tekin til afgreiðslu bókun
stjórnar veitustofnana frá 20.
desember sl. um afskrifaðar
kröfur. í bókun bæjarráðs kem-
ur fram að fallist sé á felldar
verði niður útistandandi kröfur
hjá Hita- og vatnsveitu að upp-
hæð kr. 3,7 milljónir og kr. 6,7
milljónir hjá Rafveitu, sem að
meginhluta hafa tapast við
gjaldþrotaskipti.
Samkomulag um
Glerárgötu 26
Lagt var fram samkomulag
dags. 21. desember sl. milli
Lífeyrissjóðs Norðurlands og
Akureyrarbæjar sem bæjar-
stjóri hefur undirritað með fyr-
irvara um samþykki bæjarráðs.
Samkomulagið felur m.a. í sér
að Akureyrarbær selur Lífeyr-
issjóði Norðurlands eignarhlut
sinn í Glerárgötu 26 efh. á
genginu 1.0, en jafnframt er
gengið frá samningi um leigu
Akureyrarbæjar á húseigninni
frá 10. ágúst 1995 til 31. júlí
2006 með kauprétti. Meirihluti
bæjarráðs staðfesti samkoinu-
lagið og húsaleigusamninginn.
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, sat hjá við af-
greiðslu málsins.
Verkefnisstjórn skipuð
Að tillögu félagsmálastjóra
samþykkti bæjarráð í gær að
skipa þriggja manna verkefnis-
stjóm tímabundið í 6-7 mánuði
til þess að hafa umsjón með
þjónustu við látlaða og móta
tillögur um breytta skipan
hennar. Verkefnisstjómin taki
til starfa þegar skrifað hefur
verið undir samninga við fé-
lagsmálaráðuneytið um að Ak-
ureyrarbær taki að sér málefni
fatlaðra sem verkefni reynslu-
sveitarfélágs. Verkefnisstjóm-
ina skipi Valgerður Magnús-
dóttir, formaður, Þórgnýr Dýr-
fjörð og Bjami Kristjánsson.
Tilfærsla í starfi
Bæjarráð samþykkti að fela fé-
lagsmálastjóra að gera samn-
ing við Hermann Sigtryggs-
son, íþrótta- og tómstundafull-
trúa, um tilfærslu í starfi hjá
Akureyrarbæ. Félagsmála-
stjóra var einnig falið að aug-
lýsastöðu deildarstjóra íþrótta-
og tómstundadeildar í samráði
við starfsmannastjóra.
Kaup á Hlíð
Bæjarráð samþykkti drög að
samningi um kaup Akureyrar-
bæjar á íbúðarhúsinu á býlinu
Hlíð (Litlu-Hlíð). Kaupverð er
kr. 5,5 milljónir. Seljandi er
Ingimar Víglundsson.
Kaupsamningur um Reyki
Bæjarráð samþykkti að leggja
til við bæjarstjóm að samning-
ur um kaup HÍta- og vatnsveitu
Akureyrar á Reykjum II í
Fnjóskadal ásamt öllunt húsum
og réttindum, þar með töldum
vatns- og borréttindum, verði
samþykktur. Seljandi er Guð-
mundur Hafsteinsson, Reykj-
um II. Kaupverð er 13,99
milljónir króna.
Föstudagur 5. janúar 1996 - DAGUR - 3
Slysið við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð á Akureyri:
Drengurinn einnig með
áverka á brjósti og kvið
Alvarlegt slys varð við verslun-
armiðstöðina í Sunnuhlíð á Ak-
ureyri 29. desember sl. eins og
komið hefur fram í Degi. Þrett-
án ára drengur hlaut þá alvar-
lega áverka en í fyrstu var talið
að hann hefði aðeins höfuð-
Skinnastaður:
Prestshjónin
kvödd með
virktum
- „við sjáum eftir þeim,“
segir sóknarnefndar-
formaður
Prestshjónin, Sigríður Helga
Valgeirsdóttir og sr. Eiríkur Jó-
hannsson, voru kvödd með
virktum í kaffisamsæti að Lundi
í Öxarfirði eftir messu í Skinna-
staðakirkju á annan í jólum.
Þau hjón eru flutt frá Skinna-
stað og að Hruna, þar sem sr. Ei-
ríkur hefur verið kjörinn prestur.
„Þetta var tregablandin gleði-
stund,“ sagði Laufey Bjarkadóttir
frá Hafrafellstungu, en hún er
sóknamefndarfoimaður í Öxar-
firði. Það voru einnig sóknarbörn
frá Garðskirkju í Kelduhverfi og
Snartastaðakirkju við Kópasker,
sem sameinuðust um að kveðja
prestshjónin. Ávörp voru flutt og
það var sungið, m.a. söng Sigrún
Jónsdóttir, kórstjóri við Snarta-
staðakirkju.
Sr. Eiríkur kom að Skinnastað
haustið ’89. „Við sjáum eftir þeim
og gáfum þeim mynd af Skinna-
stað svo þau gleymdu okkur ör-
ugglega ekki,“ sagði Laufey, en
prestshjónin voru kvödd með
gjöfum frá sóknunum: myndinni,
áletruðum pennastandi frá Álfa-
steini, handunninni tehettu og
bók, Þingeyjarsýslur, sýslu- og
sóknarlýsingar.
„Við sitjum svo eftir prestslaus,
en höfum séð í blöðum að sr. Sig-
hvatur Karlsson á Húsavík eigi að
þjóna prestakallinu, það hefur enn
ekkert verið talað við okkur,“
sagði Laufey í samtali við Dag,
milli jóla og nýárs. Enginn sótti
um þegar auglýst var eftir sóknar-
presti að Skinnastað. IM
Aðalskipulag
Svalbarðs-
strandarhrepps
1994-2014
til sýnis
Skömmu fyrir jól var auglýst í
Lögbirtingablaðinu eftir athuga-
semdum við tillögu að aðal-
skipulagi Svalbarðsstrandar-
hrepps 1994-2014, en tillagan
nær til alls sveitarfélagsins.
Aðalskipulagstillagan liggur
frammi almenningi til sýnis á
skrifstofu Svalbarðsstrandar-
hrepps á Svalbarðseyri og hjá
Skipulagi ríkisins við Laugaveg í
Reykjavík frá og með deginum í
dag til 8. febrúar 1996. Athuga-
semdum við skipulagstillöguna
skal skila á skrifstofu Svalbarðs-
strandarhrepps fyrir 22. febrúar
1996 og skulu þær vera skriflegar.
óþh
kúpubrotnað, en eftir að dreng-
urinn hafði gengist undir ítar-
lega rannsókn á Borgarspítalan-
um komu í Ijós töluvert meiri
áverkar, bæði á brjóstholi og
kvið.
Ekki var talið í fyrstu að dreng-
urinn hefði orðið fyrir bifreið sem
ók um bílastæðið við Sunnuhlíð
en að sögn læknis á Borgarspítal-
anum í Reykjavík og rannsóknar-
lögreglunnar á Akureyri hafa lík-
urnar á því að hann hafi orðið
undir bílnum hins vegar aukist eft-
ir að í ljós komu áverkar á brjósti
og kvið. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri hefur málið til rannsókn-
ar og er verið að yfirheyra vitni,
m.a. drengi sem voru samtímis
þeim slasaða á bílastæðinu.
Að sögn læknis á Borgarspítal-
anum er líðan drengsins þokkaleg
eftir atvikum, hann er úr allri lífs-
hættu og með góða meðvitund en
á þessu stigi er ekki hægt að segja
hversu varanlegir áverkamir eru.
Áverkar á höfði reyndust alvar-
legri en talið var í fyrstu, m.a.
taugaáverkar, sem ekki er enn vit-
að hversu alvarlegir þeir eru. GG
Vegur yflr Fljótsheiöi:
Ein athuga-
semd barst
Ein athugasemd barst Skipu-
lagi ríkisins vega fyrirhug-
aðrar vegarlagningar yfir
Fljótsheiði.
Skömmu fyrir áramót var
frá því greint að engin athuga-
semd hefði borist, en þá hafði
ein verið rétt ókomin. Varðar
hún áhrif vegarlagningarinnar
á lífríkið. Farið verður með
þessa athugasemd eins og þær
sem berast frá lögboðnum um-
sagnaraðilum, t.d. frá Náttúru-
vemdarráði, að óskað verður
eftir skýringum eða svörum frá
framkvæmdaaðila. HA
Skipstjóra- og stýrimannafélag Norðlendinga:
Menntamálanefnd til að
fylgja eftir breytingum
Aðalfundur Skipstjóra- og stýri-
mannafélags Norðlendinga, sem
haldinn var þann 27. desember
1995, samþykkti að kjósa 3ja
manna menntamálanefnd.
Ástæða þess er brýn þörf á ýms-
um breytingum á námsefni og
kennslu til skipstjórnarnáms
sem 37. þing FFSI ályktaði um.
í nefndina voru kjörnir Sigur-
björn Ingi Reimarsson, Sæ-
mundur Friðriksson og Stefán
Ingvason.
Fundurinn samþykkti einnig að
félagið beitti sér fyrir því að stofn-
aður yrði endunnenntunarsjóður
skipstjómarmanna og í næstu
kjarasamningum verði lögð
áhersla á að ná samningum um
framlag útgerðarmanna til endur-
menntunarsjóðs enda hafi skip-
stjómarmenn undir höndum af-
kastamikil skip og dýran tækni-
væddan búnað sem tekur örum
breytingum. Fundurinn samþykkti
einnig að ítreka fyrri samþykktir
FFSÍ að þorskkvótinn verði auk-
inn um 100 þúsund tonn.
Formaður Skipstjóra- og stýri-
mannafélags Norðlendinga er Þor-
björn Sigurðsson, skipstjóri á
Baldri EA-108; varaformaður
Ámi Bjamason, stýrimaður á Ak-
ureyrinni EA-110, og ritari Sæ-
mundur Friðriksson, stýrimaður á
Svalbak EA-2. GG
HRÍSALUNDUR
BAYONNESKINKA KR. 882 KG
GRILLAÐIR KJÚKLINGAR
G LÆS1LEGT FISKBORÐ
NÝ BÁTAÝSA KINNAR
FISKRÉTTIR SIGINN FISKUR
SALTFISKUR SALTSÍLD
REYKTUR FISKUR LAX
GELLUR SILUNGUR