Dagur - 05.01.1996, Page 5
HVAÐ ER A£> CERAST?
Föstudagur 5. janúar 1996 - DAGUR - 5
Skákfélagið með laugardags-
æfingu og uppskeruhátíð
Skákfélag Akureyrar verður með
laugardagsæfingu fyrir böm og
unglinga á morgun, laugardag, kl.
13.30. A sunnudaginn kl. 14 verð-
ur uppskeruhátíð Skákfélags Ak-
ureyrar fyrir tímabilið september
til desember. Veitingar verða í
boði og þeir sem það vilja tefla á
eftir.
Gunnar og Júlíus
á Oddvitanum
Gunnar Tryggvason og Júlíus
Guðmundsson skemmta gestum
Oddvitans um helgina, í kvöld og
annað kvöld. Húsið verður opnað
kl„ 22.
Vinir vors og blóma
í Sjallanum
Hljómsveitin Vinir vors og blóma
skemmtir gestum Sjallans á Akur-
eyri annað kvöld, laugardags-
kvöld, en í kvöld verður þar hins
vegar diskótek.
Á Góða dátanum verður Ingvar
Valgeirsson í kvöld og annað
kvöld og Rúnar Þór og hljómsveit
í Kjallaranum.
Einkasamkvæmi
á Hótel KEA
Á Hótel KEA verður einkasam-
kvæmi annað kvöld og því lokað
almenningi.
Aðalfundur Reikifélagsins
Aðalfundur Reikifélags Norður-
lands verður nk. sunnudag, 7.
janúar, kl. 20.30 í Bamaskóla Ak-
ureyrar. Allir sem hafa verið á
námskeiði í reiki eru boðnir vel-
komnir.
Lúðrasveitarheimsókn í
Skjaldarvík og á Hlíð
Hin árlega heimsókn Lúðrasveitar
Akureyrar með aðstoð Sérleyfis-
bíla Akureyrar á dvalarheimilum
aldraðra í Skjaldarvík og á Hlíð,
verður á morgun, laugardag. Leik-
ið verður í Skjaldarvík kl. 15 og
kl. 16 á Hlíð. Stjórnandi Lúðra-
sveitar Akureyrar er Atli Guð-
laugsson.
Fundur hjá Styrk
nk. mánudagskvöld
Styrkur - samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra á
Akureyri og nágrenni, boðar til
fundar í húsakynnum Krabba-
meinsfélags Akureyrar og ná-
grennis að Glerárgötu 24 nk.
mánudagskvöld kl. 20. Allir eru
boðnir velkomnir. Á fundinum
verður m.a. rætt vítt og breitt um
starfsemi Styrks og framtíð hans.
Karlakór Dalvíkur
syngur í Ólafsfirði
Karlakór Dalvíkur verður með
söngskemmtun í Tjarnarborg í Ol-
afsfirði í kvöld, föstudag, kl. 21.
Stjómandi kórsins er Jóhann Ól-
afsson, en einsöngvarar með kóm-
um verða Valdimar Kjartansson
og Jónas Þór Jónasson. Undirleik-
ari með kórnum er Helga Bryndís
Magnúsdóttir.
Bond og Carrey
í Borgarbíói
James Bond verður í essinu sínu
í myndinni Goldeneye f Borgar-
bíói um helgina. Myndin verður
sýnd alla helgina kl. 21 og
23.20. í hinum salnum verður
Jim Caaey, þessi vinsælasti
grínleikari í dag, í myndinni Ace
Ventura 2. Þessi vinsæla mynd,
sem fer mjög vel af stað í Borg-
arbíói, verður sýnd kl. 21 og 23.
Á bamasýningum kl. 15 á
sunnudag verða sýndar mynd-
imar Pocahontas og Hundalíf.
Miðaverð á þessar sýningar kr.
550.
Frá nýja heiminum til Akureyrar
- nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Akureyrarkirkju nk. sunnudag
Nýárstónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands verða í Akur-
eyrarkirkju sunnudaginn 7. janúar
kl. 17. Einleikari á tónleikum
hljómsveitarinnar verður Gunnar
Kvaran sellóleikari og stjómandi
verður Guðmundur Óli Gunnars-
son. Á efnisskránni em sellókons-
ert í a moll eftir Robert Schu-
mann, Sinfónía nr. 9 í e moll, frá
nýja heiminum eftir Antonin Dvo-
rak og elegía fyrir strengjasveit
eftir Szymon Kuran en hann er
einnig konsertmeistari hljómsveit-
arinnar.
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands er í sífelldum vexti og að
mati dómbærra manna í örri fram-
för. Mikilvægi þess að geta heyrt
stórvirki klassískrar tónlistar flutt
á tónleikum verður seint til fjár
metið og vonandi tekst í framtíð-
inni að víkka og styrkja starfs-
grundvöll hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin tekst sífellt á við
stærri og viðameiri verkefni og
sér þess nokkur merki í efnisskrá
næstu tónleika.
Það er andi rómantíska tíma-
bilsins sem svífur yfir vötnum á
þessum tónleikum. Sellókonsert
Schumanns, saminn 1850, er
glæsilegur fulltrúi þessa tímabils.
Tjáningarfullt og grípandi verk
sem gerir miklar kröfur til einleik-
arans bæði hvað varðar túlkun og
færni. Um Gunnar Kvaran þarf
vart að fjölyrða, enda landsmönn-
um að góðu kunnur bæði sem ein-
leikari og einn af meðlimum Tríós
Reykjavíkur, er skemmst að
minnast heimsóknar tríósins á
listasumri síðasliðið sumar. Leik-
Gunnar Kvaran leikur einleik með
hljómsveitinni í sellókonsert Schu-
manns.
ur Gunnars á sellókonsert eftir
Schumann er því mikill fengur
menningarlífi á Norðurlandi.
Sinfónía nr. 9 eftir Antonin
Dvorak er stundum talin ein af
þrem þekktustu sinfóníum tónlist-
arsögunnar ásamt með 5. sinfóníu
Beethovens og 40. sinfóníu Moz-
arts. Þeir sem ekki þekkja verkið í
heild sinni þekkja einstök stef
þess um leið og þeir heyra þau,
svo oft sem bútar úr verkinu hafa
verið leiknir við allrahanda tæki-
færi. Dvorak hafði næmt eyra fyr-
ir alþýðutónlist og nýtti sér hana í
verkum sínum. Má þar nefna slav-
neska dansa og dumka sem eru
úkraínsk þjóðlög og Dvorak not-
aði í frægt tríó, Dumky tríóið.
Guðmundur Óli Gunnarsson
stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norð-
uriands á þessum tónleikum.
Þess hæfileika Dvoraks, að vera
fljótur að greina kjamann í al-
þýðutónlist hverrar þjóðar, sér
stað í ríkum mæli í 9, sinfóníu
hans. Verkið er að mestu samið í
New York þar sem Dvorak bjó
um tíma og má glöggt greina áhrif
amerískra þjóðlaga í verkinu.
Verkið var frumflutt þar í borg
1893 og hefur síðan farið sigurför
um víða veröld.
Höfundarnir
Antonín Dvorák (1841-1904) varð
fyrst kunnur í heimalandi sínu fyr-
ir óperur, kórverk og sönglög, en í
þeim tók hann mjög mið af þjóð-
lagahefð Tékka. Margt af þeirri
tónlist þykir hin ágætasta, og
sama má segja um hljóðfæratón-
list hans. Af einhverjum ástæðum
hefir fátt eitt þessara verka náð at-
hygli manna þegar frá leið, og nú
á dögum stafar Dvorák aðeins
frægð af fáeinum tónverkum, og
einkum sinfóníunni eða hljóm-
kviðunni Úr nýja heiminum. Hún
var samin vestan hafs árið 1893 er
höfundur var þar við störf, og má
merkja þjóðlagaáhuga hans á gerð
stefjanna í henni, en þau minna
sum á tónlist svertingja, sem Dvo-
rák hafði leitast við að kynna sér.
Hljómkviður Dvoráks þykja í
fremstu röð þeirra er samdar voru
á síðara hluta 19. aldar og er sú ní-
unda hin síðasta í röðinni.
Robert Schumann (1810-1856)
er eitt merkasta hljómsveitarskáld
19. aldar, þótt þekktari sé fyrir
sönglög sín og píanóverk, og áttu
höfundar á borð við Brahms og
Tjækovskí eftir að leita mjög í
Hljómsveitin flytur ó þessum tón-
leikum elegíu fyrir strengjasveit eft-
ir konsertmeistarann Szymon Kur-
an.
Antonin Dvorák samdi sinfóníu nr.
9 í e-moll, sem flutt verður á sunnu-
dag.
Eftir Robert Schumann flytur Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands selió-
konsert í a-moll.
smiðju hans. Auk íhygli þeirrar og
persónulegrar túlkunar sem ein-
kennir öll verk Schumanns, byggj-
ast hljómsveitarverk hans á yfir-
gripsmiklum laglínum sem bæði
mynda einingu einstakra kafla og
verksins í heild, með því að birtast
lítt eða ekki breyttar á ýmsum
stöðum. Bæði íhyglin og stefjaein-
ingin eru áberandi í sellókonsert-
inum frá 1850 og haft er eftir Pa-
blo Casals að tónlistin í þessu
verki sé dýrleg frá upphafi til
loka, enda er það nú talið til helstu
verka fyrir þetta hljóðfæri. Margt
frumlegt má í því finna, m.a. ein-
leikskadensuna í lokakaflanum,
sem bæði kemur á óvenjulegum
stað og er liöfð við undirleik
hljómsveitarinnar.
Szymon Kuran (fæddur 1955)
stundaði nám í Póllandi og Lund-
únum, og hefir starfað hér á landi
um árabil sem fiðluleikari og tón-
skáld, bæði með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands og jass-sveitum (t.d.
Kuran Swing). Hann fór að fást
við tónsmíðar á barnsaldri og er
að mestu sjálfmenntaður til þeirra
verka. Tónlist hans hefir verið
flutt í Póllandi, Bretlandi og á ís-
landi. Meðal verka hans er að
finna bæði kirkjulega tónlist og
sinfóníska. Elegia (Harmljóð) fyr-
ir strengjasveit var samið í
Gdansk árið 1981 til minningar
um fómarlömb þeirra höimulegu
atburða sem gerst höfðu í Póllandi
um það leyti. Það hefír áður verið
flutt bæði erlendis og í Reykjavík.
Einleikarinn
Gunnar Kvaran sellóleikari (fædd-
ur 1944) stundaði tónlistarnám
m.a. í Reykjavík og Kaupmanna-
höfn. Hann starfaði í Danmörku
til 1980, en réðst þá til Tónlistar-
skólans í Reykjavík. Hann hefir
haldið fjölda tónleika heima og er-
lendis, og stofnaði Tríó Reykja-
víkur árið 1988 ásamt Guðnýju
Guðmundsdóttur og Halldóri Har-
aldssyni. Hann hefir og starfað
sem kennari og flytjandi við tón-
listarhátíðir í Vermont í Banda-
ríkjunum.
Stjórnandinn
Guðmundur Oli Gunnarsson er
skólastjóri Tónlistarskólans á Ak-
ureyri og fastur stjómandi Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands. Hann
er einnig stjórnandi Caput-hóps-
ins, sem víða hefir flutt samtíma-
tónlist á tónleikum og tekið upp til
útgáfu.