Dagur - 05.01.1996, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 5. janúar
BRÆÐINOUR
Ljósmyndari Dags er alltaf á ferð og flugi og á dögunumi_ rakst hann á þetta gamla torfhús og smellti af því mynd. Húsakynni landans hafa
breyst mikið á síðustu 100 árum og í dag þætti víst fáum Islendingum bústaður sem þessi fýsilegur kostur. Mynd: BG
Hvað
veistu?
Máríá, mild og há,
móSir Gu&s á jörð.
Helga þér viljum vér
vora þakkargjörð.
Yl og trú andar þú,
um hinn kalda svörð.
Máríá, mild og há,
móSir Guðs jörð
Páll Isólfsson gerði stórkostlegt
lag við þetta Ijóð. Hver orti?
sjaAnijDyy Ji|iai)
IB^sdjBD;) djj p|D5(s uossuDjajg 91ADQ ua jduud uujéug
r
Hvað ætlar
þú að gera
um helgina?
„Ég reikna ekki með að fara á brennu á þrettándan-
um, eins og stundum áður en líklega verð ég mest fyrir
framan nýju tölvuna mína um helgina," segir Bjarni
Guðleifsson um fyrirætlanir sínar um helgina.
„Eg keypti mér nýja tölvu í stað þeirrar gömlu sem ég
var búinn að eiga í 10 ár og núna þarf ég að flytja
gögnin mín á milli. Síðan er á stefnuskránni að taka til
í bílskúrnum, sem ég geri ef það kemst á blað."
r
helgarinnar
Sigurður Erlendsson 30 ára, Stóru-Giljá, Torfalækjarhreppi
Laugardagur 6. janúar
Sigurbjartur Frimannsson 60 ára, Sólbakka, Engihlíðarhreppi
Laugardagur 6. janúar
Þórunn Sóley Björnsdóttir 20 ára, Skólastíg 11, Akureyri
Sunnudagur 7. janúar
Ásta Sylvía Björnsdóttir 25 ára, Grundarstig 12, SauSárkróki
Sunnudagur 7. janúar
Kjartan G. Guðmundsson 40 ára, Rimasíðu 27g, Akureyri
Sunnudagur 7. janúar
Fróðleikur
Ótrúlegt afl
Það vakti þjóðarathygli þegar Reyni Erni Leóssyni
tókst þann 23. september 1972 að brjótast út úr
fangaklefa í Keflavík á 5 klukkustundum og 50
mínútum þrátt fyrir hlekki. Hendur hans höfðu áður
verið bundnar með þremur handjárnum og vafðar
með 5 mm keðjum sem hver þolir 1270 kg álag.
Fæturnir voru hlekkjaðir með járnum og hann var
umvafinn 5 mm og 10 mm keðjum.
Heilræði dagsins
Leystu starf þitt vel af hendi áður en þú leitar
að öðru.
■uX9jn>|y d njoisju>)S!gæjjBo| u;Bi3 51
->|sj uuoij jnjai| jd 01 DBsyu uuDjuDpun |
'0861 !jOjdsuuDuu6rtjjD>juia uuDij >jnD| D<j'
'VÓ61 )|nDi UUDH m8S IH ! uJ9U!9æjj6o|
; UDgjs JOj 60 /9^ j VW ?Jj !jOjds|uapn|s
>jno| uuDp 7)75 [ sjdlu 'op jsjppæj 'uXajn
->|y 9 jnBujgæjjBoj 'uossjDuunQ jopujajg
í eldlínunni
Hlakka til að byrja aftur
„Leikurinn gegn KR, er leikur sem að öllu jöfnu ætti að vinnast, verði
allt eðlilegt, en KR-ingar hafa oft reynst okkur erfiðir í gegn um tíð-
ina," segir Jóhann Gunnar Jóhannsson, hornamaður í handboltaliði
KA, sem hefur leik í deildinni að nýju eftir jólafrí á sunnudaginn.
Mótherjarnir eru KR sem aðeins hafa fengið eitt stig í deildinni til
þessa, en KR-ingar máttu þola fjögurra marka tap fyrir KA þegar lið-
in mættust í fyrsta leik mótsins í Reykjavík.
„Menn eru búnir að vera í löngu fríi, en sumir okkar léku reyndar
með í pressuleiknum sem fram fór á milli jóla og nýárs. Ég hlakka til
að byrja aftur eftir þetta hlé og held að flestir okkar séu á sama máli.
Ég á von á að liðinu verði stillt upp á svipaðan hátt og í síðustu leikj-
um, þó ég viti ekki hvað þjálfarinn hugsar. A miðvikudaginn leikum
við bikarleikinn gegn Val, en erum lítið farnir að hugsa um þann leik
og stefnum að því að gera það ekki fyrr en eftir leikinn gegn KR."
Spuriting vikunnar __Spurt á Akureyri.
.Strengdir þú áramótaheit?
ingveldur Gunnarsdóttir:
Ég er nú alltof kærulaus til aS strengja
eitthvaS svoleiSis!
Siguróur Arni Jósefsson:
Nei.
Vilhjálmur Ingi Árnason:
Mér finnst nú svo kjánalegt þec
menn nota áramótin til aS strenc
einhver heit, þaS má því segja aS
hafi sleppt því þess vegna.
Kjartan SigurSsson:
Nei.
Hulda RagnheiSur Árnadóttir:
Já, ég ákvaS aS líta eins jákvætt á
hlutina oa hægt er, hætta aS ergja
mig yfir íeiSinlegum þáttum í útvarp-
inu og svoleiSis!