Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 13
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994 13 Flas er falli næst íslendingar hafa áunnið sér virð- ingu annarra strandríkja í hafrétt- ar- og fiskverndunarmálum. Þekk- ing okkar og skipulag á nýtingu flskstofna hefur orðið öðrum þjóð- um til eftirbreytni. Með minnkandi þorskafla undanfarin ár hafa tog- arar í síauknum mæh haldið til úthafsveiða utan 200 mílna land- helginnar á fjarlæg hafsvæði, m.a. í Smuguna í Barentshafi og við Svalbarða. Á þessu hafsvæði er stærsti þorskstofn veraldar. Þarna eru því gifurlegir hagsmunir í veði fyrir Norðmenn og Rússa, en leyfilegt er að veiða þarna nú um 700-800 þúsund tonn. Verndunaraðgerðir þessara ríkja undanfarin ár hafa borið ríkulegan ávöxt. Viðbrögð Norðmanna Það voru því eðhleg og reyndar sjálfsögð viðbrögð Norðmanna að vernda og skipuleggja veiðar á þessum hafsvæðum, ella yrðu þau eyðilögð með óheftri rányrkju út- hafsflota fjölda ríkja líkt og gerðist við Nýfundnaland og víðar. Norð- menn áttu því ekki annarra kosta völ en að færa landhelgina út í 200 mílur 1977 við Svalharða og lýsa einhliða yfir að þetta væri þeirra fiskverndunarsvæði. Aðrar þjóðir sem áttu aðild að Svalbarðasamningnum frá 1920 og áunnið höfðu sér fiskveiðiréttindi fengu úthlutað kvóta. Þó svo að Norðmenn hafi skort lagalegar heimildir til slíkra aðgerða þá hljóta allir sem virða rétt strand- ríkja til verndunaraðgerða að við- urkenna nauðsyn þessara aðgerða. Náist ekki samkomulag á hafrétt- arráðstefnunni um réttarstöðu strandríkja til nýtingar og vernd- unar fiskstofna á úthöfum ættu ís- lendingar að fara að fordæmi Norð- manna og lýsa einhliða yfir eigin fiskverndunarsvæði á Reykjanes- hryggnum úr 200 í 400 mílur. Við myndum þá úthluta þeim þjóðum kvóta, sem hafa áunnið sér fiskveiðiréttindi á þessum slóðum m.a. Norðmönnum og Rússum. Ætli hagsmunaaðilar þessara ríkja myndu þá ekki þrýsta á stjórnvöld KjaUaiiim Kristján Pétursson fyrrv. deildarstjóri að opna „Smugur“ í Norðurhöfum fyrir íslendinga? Samningar eða illdeilur? Það hlýtur að vera vænlegri kost- ur að ná samningum við þessi ríki með þeim hætti að beita þeirra eig- in rökum og aðgerðum í fiskvemd- unarmálum en að standa í illdeil- um við góða granna. Við náum best fram markmiðum okkar við þessar þjóðir með því að koma fram við þær eins og við vilj- um að þær komi fram við okkur. Nauðsyn brýtur lög, líttu þér nær era gömul og ný sannindi. Viö verðum að ígrunda markmið okkar í þessari deilu af skynsemi, ábyrgð og þrautseigju þvi flas er falli næst. Kristján Pétursson „Þó svo aö Norðmenn hafi skort laga- legar heimildir til slíkra aðgerða þá hljóta allir sem virða rétt strandríkja til verndunaraðgerða að viðurkenna nauðsyn þessara aðgerða.“ í Smugunni. - Sjálfsögð viðbrögð Norðmanna að vernda og skipuleggja veiðar á þessum hafsvæðum, seg- ir Kristján m.a. í greininni. Allir í góðu skapi Það er greinilegt að sumarið er komið í fjölmiðlabyltinguna. í útvörpunum okkar eru allir í svo góðu skapi að það er eins og þeir hfi bara á vahumtöflum. Og í sjónvörpunum eru menn alltaf að bjóða okkur eitthvað fyrir ekki neitt sem við höfum ekkert að gera með, til dæmis af því að við eigum nót af því fyrir. Bíla, sjónvörp, veiðidaga í laxveiðiám, grihmat, og gönguferð á Esju og til baka aftur. En auðvitað langar okkur ekkert í neitt af þessu. AUra síst bíla því að þeir eru svo dýrir í rekstri. Mér er sagt að það kosti mánaðarlaun bánkastjóra að reka einn bU á ári. Sjónvarp eiga víst allir, ég þekki fólk sem á þrjú. Tveir dagar í bestu laxveiðiá landsins er svona álíka spennandi og að fara á bílasýningu og horfa á gírstangir og bensín- tanka. - Og eins og alhr vita grillar ekki nokkur maður á íslandi nema sem afsökun fyrir því að fara á fyUirí. Meira fjör Og ekki er fjörið minna í verslun- unum. Þar getur maður ekki leng- ur keypt það sem mann langar til því að það er svo óhollt. Þaö er allt- af verið að reyna að koma í veg fyrir að við drepumst úr kólesteról- innihaldi fæðunnar og halda nær- ingarfræðingar og eróbikkmeistar- ar um stjórnvölinn í þeim efnum. Stundum gengur áróðurinn fyrir hoUustunni svo langt hjá þessu KjaUarinn Benedikt Axelsson kennari ágæta fólki að manni finnst maður ekki staddur í venjulegri nýlendu- vöruverslun heldur á einhvers konar allsherjar grænmetisútsölu í himnaríki. Hvaðer til ráða? Auðvitað getum við ekki stjómað góðmennsku fjölmiðlabyltingar- innar. Og það er svo sem saklaust að þröngva bfi upp á einhvem eða gönguferð. Stundum finnst manni þó að fjölmiðlabyltingin ætti að snúa sér að einhveiju öðru. Til dæmis að vanda betur málfar sitt. Ég held nefnilega að flestir, sem unna ís- lenskri tungu, hafi einhvem tím- ann heyrt ambögur í útvarpi og margir oft á dag. Misjafnt er þó hvað menn vanda málfar sitt htið. Sumir sletta útlensku, aðrir eru þágufahssjúkir og margir virðast hafa ahst upp við slíka málfátækt að það er engu hkara en þeir geti ekkert sagt okkur merkilegra á óbjagaðri íslensku en hvað klukk- an sé og varla það einu sinni. Lengi vel voru dagblöðin útverðir íslensks máls. Gömlu setjararnir voru prófarkalesarar síns tíma og lögðu metnað sinn í að setja rétt. Þegar tæknin jókst og flýtirinn varð meiri vora ráðnir til blaðanna kunnáttumenn í íslensku sem leið- réttu texta blaðamanna og setjara. En nú er öldin önnur. Prófarka- lesarar eru hér um bU eins útdauð- ir og geirfughnn. Enda er varla hægt að þverfóta fyrir vihum í blöðunum. Þar klóra menn í bakkafullan lækinn, sjá sér þann kost grænstan og svo er komið ann- að hljóð í skrokkinn á mönnum. Ágætur blaðamaður, sem var fljótur að hlaupa, byrjaði eitt sinn grein sína: Þannig er mál með vesti. - Og meinti það. Og í ágætu blaði stóð í fyrra, og haft eftir bónda nokkrum, að nú væri fyrirslætti lokið í Eyjafirðin- um. Kalla má allt þetta klaufavUlur og segja sem svo að það sé ekki von að ungt fólk viti úr hvaða jarðvegi málið sé sprottið. Löngu gleymdir atvinnuhættir höfði ekki til unga fólksins og svo framvegis. En þegar víðlesnasta blað lands- ins leyfir sér að halda því fram að bæjarstjórinn í Hafnarfirði eigi tvo sfjúpsyni með konunni sinni hlýt- ur mælirinn að vera fullur. Benedikt Axelsson „Ágætur blaðamaður, sem var fljótur að hlaupa, byrjaði eitt sinn grein sína: >annig er mál með vesti. - Og meinti 3að. Og í ágætu blaði stóð í fyrra, og laft eftir bónda nokkrum, að nú væri fyrirslætti lokið í Eyjafirðinum.“ Eykurmögu- | M| I N f R leika kjosenda „Það hefur i oft verið talið vandamál í ís- lenskum stjómmálum að þú veist hvaðþúiætur ofan í kass- ann á kjördag Einar Kari Haralds- en ekki hvað son.framkvæmda- upp úr hon- stjórl Alþýðubanda- um kemur. lags. Þetta atriði hefur oft verið til umQöhunar í íslenskum stjórn- málum. Þaö þarf að auka mögu- ieika kjósandans til að velja sér stefnu- og starfsskrá ríkisstjóm- ar. Skrána á aö kynna fyrir kosn- ingar, hverjir standi aö henni og hverjir valskostirmr séu. Ég held að almenningur sé að verða æ betur upplýstur um stjómmál. Fólk er hætt að hlusta á tilbúinn ágreining flokkanna sem þeir nota til aö skilja sig hver frá öðrum. Menn spyrja frekar um árangur og hvaö flokkarnir ætlist fyrir í ríkisstjóm. Ég held að hluti af þreytunni í stjórnmálalífinu sé fólginn í því að fólki finnst það ekki hafa um neina kosti að velja. Ég er ekki sammála því að svona fylkinga- skipan fyrir kosningar stroki út allan mun milh fylkinga. Munur- ínn er fyrst og fremst sá að flokk- arnir vinna heimavinnu sína fyr- ir kosningar, og kjósendur hafa tækifæri til að dæma hana, í stað þess að vinna hana eftir kosning- ar án þess að kjósendur hafi nokkuö um það að segja.“ Ekki sett f ram af alvöru „Þessar hugmyndir sem Óiafur Ragnar liefur sett fram eru vissuiegar at- hyghsverðar, ekki síst sök- um þess að þær koma af vinstri væng stjómmál- anna þar sem flokkamir em flestir. Undirrót þessara hug- mynda hans er náttúrlega fram- boð R-listans i Reykjavik. Hins vegar get ég ekki séð að það séu nokkrir möguleikar á því núna aö stilla upp ríkissfjórn fyrir- fram. Ég held að það geti ekki gerst nema við höfum tveggja flokka kerfl í islenskum stjórn- málum. Við sjáifstæðismemi mundum fagna því ef það kæmist á tveggja flokka kerfi þannig að við vissum hverjir væru and- stæðingar okkar í raun. Við höf- um hins vegar getað myndað rík- isstjómir með Aiþýðuflokki og Pramsóknarflokki hin síðari ár. Að sjálfsögðu er Alþýðubanda- lagið ekki útilokað sem sam- starfsaöhi, svo framarlega sem ura það næðust málaefhalegar forsendur og niðurstaða, Ég lít fyrst og fremst á þessa hugmynd Ólafs Ragnars sem til- raun hans til að koma sér inn í umræðuna og tel að hún geti ekki verið sett fram af fullri alvöru. Sjónarmiö Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks í málefnum ESB, landbúnaðar og sjávarútvegs, til dæmis, eru svo gjörólík að ég get ekki ímyndað mér að þeir geti boðið fram sem em heild í kosningum hvaö þá að þeir geti komi sér fyrirfram sam- an um það á hvaöa nótum þeir myndi ríkisstjórn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.