Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Page 14
14
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994
Sviðsljós
Það var ekki laust viö að hrollur færi um þá sem horfðu á svipbrigðin
á þessum ungu drengjum sem heimsóttu Tívolí UK um helgina sem um
þessar mundir er staðsett við Reykjarvíkurhöfn. Öskrin og lætin voru
þvílík að heyra mátti úr mikilli íjarlægð enda þarf þónokkurn kjark til
að setjast í þessi sæti ótilneyddur.
Furðufjölskyldan svokallaða sem hefur m.a. verið tíður gestur í húsdýra- og fjölskyldugarðinum í Laugardal
að undanfórnu, skemmti gestum garðsins í seinasta skipti sl. helgi. Fjölskyldan túlkaði söguna „Njálu“ á
skemmtilegan og fróðlegan hátt við mikla kátínu viðstaddra.
Fjöldi fólks tók þátt í svokölluðu Fræ-hlaupi á laugardag sem haldiö
var undir kjörorðinu „stöðvum unglingadrykkju". í hlaupinu keppti hver
við sjálfan sig og réð fólk því hvort það gengi, skokkaði, hlypi eða hopp-
aði. Að hlaupinu loknu var boðið upp á hressingu sem margir tóku feg-
ins hendi eftir áreynsluna.
Það ríkti sannkölluð sveitaballsstemning á Hótel íslandi á laugardags-
kvöldið þegar hljómsveitin Fánar og gestahljómsveitin Brimkló léku fyr-
ir dansi. Gestir dansleiksins dönsuðu af lífi og sál enda skemmtilegar
hljómsveitir þarna á ferð.
Verslunin Kjallarinn stóð fyrir
sýningu á nýtískufatnaði á Rósen-
berkjallaranum sl. helgi. Sýningin
var óvenjuleg enda tískan í dag
bæði skemmtileg og íjölbreytt.
Förðun annaðist Þórunn Högna,
Linda, Jói og félagar sáu um hár-
greiðsluna, Richard Scobie um tón-
listina og Ella hafði umsjón með
sýningunni.
Þau fylgdust með af mikilli athygh börnin sem horfðu á Furðufjölskyld-
una túlka söguna „Njálu“ á fróðlegan og skemmtilegan hátt í fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í Laugardal á laugardaginn. Furðufjölskyldan hefur
að undanfornu skemmt gestum garðanna með leik sínum og var sl. helgi
lokahelgi hennar.
Það var góður kokkteill af tónlistarmönnum sem tóku
sig saman og spiluðu danstónlist fyrir gesti skemmti-
staðarins Tunglsins á föstudagskvöld. Uppákoma þessi
var nefnd „Funkyhipphoppjamm" og eru það þau Danni
úr hljómsveitinn Nýdönsk, Svala Björgvinsdóttir söng-
kona og Óskar saxófónleikari sem þarna flytja tónlist
af mikilli hst.
Áskrifendur DV eiga
möguleika á glæsilegum
ferðavinningum!
Áskriftarsíminn er
63»27»00
-
lslártd
Sækjum
það heim!
Hópur frá flmleikadeild Armanns sýndi fimleika á Árbæjarsafni á
sunnudaginn. í hópnum voru ungmenni á aldrinum 10—18 ára og sýndu
þau margs konar æfingar. Á myndinni sést tomphóppur Ármanns sýna
dans, en hópurinn er skipaður stúlkum á aldrinum 10-18 ára.
Þrír hollenskir Ustamenn ásamt einum Islendingi opn-
uðu sýningu á verkum sínum í Nýlistasafninu um helg-
ina. Tilefni sýningarinnar er samvinna milli Nýhsta-
safnsins og Quartair Gaherís í Haag. Sýning á verkum
þriggja íslendinga verður svo opnuð í Haag í ágúst nk.
Á myndinni eru hstamennirnir fjórir, Patricia Spoelder,
Margrét Haraldsdóttir Blöndal, Sander Doerbecker og
Marloes Hoogenstraaten.
Hringiða helgarinnar