Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 Fréttir Lán sem Electrolux bauð borginni: Kjörin betri en danska ríkið getur fengið - segir Ásgeir Þórðarson hjá VÍB „Miðað við þá vexti sem mest hefur verið talað um, þ.e. upp á 8,1%, þá er ljóst að það lán sem Electrolux er að bjóða borginni er á afskaplega góðum kjörum. Danska ríkið fær t.d. ekki svona góð kjör á dönskum verö- bréfamarkaði. Það þarf að greiða um 8,6% vexti á tíu ára bréfum. Við erum m.ö.o. að tala um vexti hálfu pró- senti undir því sem danska ríkið þarf að borga,“ sagði Ásgeir Þórðarson hjá VÍB um lánakjör á tilboði sem Electrolux gerði borginni varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Laug- ardal. Ásgeir sagði aðspurður um orð Sigrúnar Magnúsdóttur, að borgin sjálf gæti fengið og hafi fengið hag- stæðari lán, aö hér væri ekki um sambærilega hluti að ræða. „Þetta er svona eins og að bera saman melónur og banana. Sigrún er að bera saman annars vegar lán í dönskum krónum og hins vegar verðtryggt lán í íslenskum krónum. Borgin getur hæglega fengið verð- tyggt lán í íslenkum krónum á rúm- lega 5% vöxtum en það er af og frá að borgin geti farið út á markaðinn og sótt sér betri kjör en 8,1% í dönsk- um krónum. Hafa verður í huga að danska lánið er bundið gjaldmiðlin- um en er óverðtryggt að öðru leyti þannig að það er mjög hættulegt að blanda þessum hlutum saman," sagði Ásgeir. Úttekt á tekjum lækna: Sá tekjuhæsti með rúmar 11 milljónir í árstekjur - landlæknir meðal þeirra tekjulægstu í læknastétt Bjöm Önundarson, fyrrverandi yfirtryggingalæknir hjá Trygginga- stofnun ríkisins, var tekjuhæsti læknirinn á síðasta ári í úttekt sem DV gerði á tekjum 25 þekktra lækna. Samkvæmt álagningu hafði Björn að jafnaði 945 þúsund krónur í tekjur á mánuði eða samtals á tólftu milljón yfir áriö. Miöað við árið á undan hækkuðu uppgefnar tekjur Bjöms um 113 þúsund krónur á mánuði milli áranna 1992 og 1993. Úttekt DV leiðir í ljós að læknarnir höfðu að meðaltah 487 þúsund krón- ur í mánaðartekjur á síðasta ári. Sé tekið mið af sambærilegri úttekt DV í fyrra á tekjum 23 þessara lækna hafa tekjur þeirra hækkað að meðal- tali um 15 þúsund krónur á mánuði. Næstmestu tekjumar á síðasta ári hafði Gunnlaugur Geirsson, prófess- or í réttarlæknisfræði, með 783 þús- und á mánuði. Gunnlaugur var tekjuhæstur læknanna í fyrra með 887 þúsund og hefur því lækkað um ríflega hundrað þúsund krónur á mánuði. í þriðja sætinu var Júlíus Valsson, nýskipaður yfirtryggingalæknir hjá Tryggingastofnun, með 695 þúsund krónur á mánuði. Miðað við árið 1992 hafa tekjur Júliusar hækkað um ríf- lega hundrað þúsund krónur á mán- uði. Fast á hæla hans kemur Þórður Harðarson lyflæknir með 694 þúsund krónur á mánuði. Athygh vekur að Ólafur Ólafsson landlæknir og Matthías E. Halldórs- son aðstoðarlandlæknir eru langt undir meðaltekjum þeirra lækna sem úttektin nær til. Tekjulægstur í úttektinni reyndist hins vegar Einar Thoroddsen, háls-, nef- og eyrna- læknir, með 291 þúsund krónur á mánuði. Munurinn á hæstu og lægstu mánaðartekjum reyndist hvorki meiri né minni en 654 þúsund krónur. Hitaveita Suðumesja: umhverfisátak Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum: Hitaveita Suðumesja hefur stað- iö í miklum framkvæmdum við vannaorkuver sitt i Svartsengi en þar er verið að fegra umhverfi veit- unnar hæði utan sem innan dyra. Móttökusalurinn hefur verið glæsilega endurnýjaður en þar kemur fjöldinn aUur af gestum ár- lega til aö kynna sér stööina. Kostn- aðurinn við þessar umhverfisfram- kvæmdir er nálægt 40 milljónum króna en fyrirtækið mun fagna 20 ára afmæU sínu í desember næst- komandi. Tekjur lækna — mánaóartekjur í þúsundum króna á árinu 1993 291 Einar Thoroddsen, háls-, nef- og eyrnalæknir 324 Víkingur Arnórsson barnalækftir 329 Höröur Þorleifsson augnlæknír 330 Ellen Mooney húösjúkdlæknif : ? 1 I •: | 331 Jón Kr. Jóhannsson tryggingalæknlr 335 Matthías E. Halldórsson aöstoöar landlæknir i "I. . I I I 349 Stefán Ó. Bogason tryggingaiæknir !. j I i 349 Olafur Ólafsson landlæknir l . t l í. . 372 Jón Guögeirsson húösjúkdlæknir l l. : l : I .. I 372 Gunnlaugur J. Snædal kvensjukdlæknir i i : i i - . f- ■ 401 Tómas Helgason geölæknir | 420 Gunnar Sigurösson lyflæknir 428 Gunnar Gunnlaugsson skurðlæknir i i 1 I I 459 Einar Sindrason, háls-, nef- og eyrna æknir 469 Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir ! i i i I 480 Ingimundur Gíslason augnlæknir I I í I I 617 Grétar Sigurbergsson geölæknir l I I s. I t l 835 Jónas Hallgrímsson, prófessor í meinafræöum 651 Atli Þór Ólason bæklunarlæknir I I I I I i ! 088 Einar Stefánsson augnlæknir i . i r-a»i .1 i -1? 694 Þóröur Harðarson lyflæknir i : .....1 í I I . I - - - 695 Júlíus Valsson tryggingalæknir í í l . l i i i 783 Gunnlaugur Geirsson réttariæknir i .11 i l í í l 945 Björn Onundarson tryggingalæknir I II I I i I I 0 100 200 300 400 500 600 700 800 900 1000 I dag mælir Dagfari Áttum sigurinn vísan íslenska þjóðin beið spennt um síð- ustu helgi. Það var að vænta góðra tíðinda úr ýmsum áttum. Af Sval- barðasvæöinu biðu menn eftir fregnum af þorskastríðinu eftir að óvígur togarafloti landsmanna sigldi þangað þöndum seglum. Af Evrópumeistararamótinu í frjáls- um íþróttum í Helsinki var beðið í ofvæni eftir árangri íslensku kepp- endanna, sem allir höfðu getið sér gott orð áður en keppnin hófst. Og frá Locamo var reiknað með þeim fréttum að Friðrik Þór Friðriksson sópaði til sín verðlaunum með Bíó- dagana sína. Ekkert af þessu rættist. Flotinn sneri sér að veiðum á nýjan leik og flúði í Smuguna. Það voru sár vonbrigði enda hafði átt sér stað hálfgerð herkvaðning í togaraflot- anum og menn höfðu dagana á undan unnið stórkostlegan sigur á Norðmönnum, þegar þeir gáfust upp við það að halda Hágangi II. og gera aflann upptækan. Sigurinn var slíkur að þeim Hágangsmönn- um var fagnað sem þjóðhetjum viö komuna heim og ein fréttastöðin lét þess getið að Anton Ingvason stýri- maður og haglabyssuskotmaður væri ókvæntur maður. Það mátti skilja sem ábendingu til kvenþjóð- arinnar að nú bæri vel í veiði þegar slíkt ofurmenni gengi laust. En sem sagt. Enginn sigur í Sval- barðadeilunni því aö útgeröar- menn sendu skipin í Smuguna og fóru að veiða aftur. Þaö var nú ljóti misskilningurinn. Haglabyssumar voru klárar, varðskipin voru klár pg Norðmenn höfðu uppgötvað að íslendingar réðu yfir ofurvindum, sem Norðmenn ættu ekkert svar við. En þessum vopnabúnaði var ekki beitt á Svalbarðasvæðinu og norska strandgæslan greip í tómt þegar hún hélt að nú væri hennar Waterloo runnið upp. íslendingar sendu úrvalssveit íþróttafólks á Evrópumeistaramöt-' iö í Helsinki og þar voru helst bundnar vonir viö kastarana okk- ar. Vésteinn Hafsteinsson hefur verið í fremstu röð kringlukastara og Pétur Guðmundsson varð fyrst- ur í undankeppninni. Eitthvað hefur komið fyrir þá fé- laga þegar til sjálfrar keppninnar kom því að Vésteinn náði ekki einu sinni í úrslit og Pétur varð sjöundi þegar á hólminn kom. Þetta hefur áreiðanlega ekki verið þeim sjálf- um að kenna, heldur aðstæðunum eða þá að þeir hafa verið illa upp- lagðir, en það er einmitt akkilesar- hæll íslenskra íþróttamanna að þeir eru afar óheppnir á stórmót- um, hvaö þeir eru alltaf illa upp- lagðir þegar stóra stundin rennur upp. Það gengur hara betur næst. Friðrik Þór kvikmyndaframleið- andi sem var næstum því búinn að vinna til óskarsverðlauna í fyrra eða hittiðfyrra, fór með Bíódagana sína á kvikmyndahátíðina í Log- amo. Myndin fékk gífurlega góðar viðtökur og vakti langmesta at- hygli hátíðargesta en af einhveij- um dularfullum ástæðum þótti dómurum myndir frá írak hafa tekist betur heldur en Bíódagamir. Þetta voru sár vonbrigði hér heima og helsta fréttaefniö að Bíódagar hefðu ekki fengið verðlaun, eins og það væri sjálfgefið fyrirfram aö myndin fengi verðlaun. Þessi úrsht komu Friðriki Þór hins vegar ekki á óvart. Hann þekkti dómarana og það var þeim að kenna aö myndin fékk ekki verðlaun. Það var ekki myndinni að kenna heldur dómurunum. Má segja að aðstæður hafi verið svip- aðar hjá Friðriki Þór og þeim á Svalbarða og hinum í Helsinki að þær gáfu ekki tilefni til góðs árang- urs. Islendingarnir ákváðu að bíða átekta og auðvitað getur maður ekki reiknað með að fá verðlaun fyrir bestu myndina, ef dómarar em á móti myndinni og hafa betri smekk fyrir bíómyndum frá írak heldur en bíódögum frá Reykjavík. Hvað þá ef menn eru illa upplagðir eins og í Helsinki. Svona er þetta nú einu sinni að það eru ekki alltaf jóhn og við get- um ekki ahtaf sigrað. Það gera að- stæður og dómarar og meira fiskirí annars staðar. Ekki hitt, að við sé- um ekki nógu góðir eða séum ekki thbúnir th að taka við verðlaunum. Það er ekki vandamálið. Við voram í rauninni bestir og áttum sigurinn vísan, hvort heldur á Svalbarða, Helsinki eða Locarno. Þaö kemur bara næst. Dagfari I i I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.