Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Blaðsíða 48
58 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 Afmæli Sveinn Einarsson Sveinn Einarsson, leikhússtjóri og rithöfundur, Tjarnargötu 26, Reykjavík, veröur sextugur á morg- un. Starfsferill Sveinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófí frá MR1954, phil. cand-prófi í al- mennri bókmenntasögu, leiklistar- sögu og heimspeki frá Stokkhólms- háskóla 1958, phil. hc.-prófi í leik- húsfræðum þaðan 1964, stundaði framhaldsnám í samanburðarbók- menntum og leiklist við Sorbonne- háskóla 1958-59 og 1961, nám í frönsku og sænsku við HÍ1959-60 og dvaldi við nám í Oxford 1971 og í Kaupmannahöfn 1972-73. Sveinn var blaöamaður við Al- þýöublaðið sumrin 1955-57, leiklist- argagnrýnandi þess 1959-60, fulltrúi á dagskrárdeild RÚV1959-61 og 1962, skólastjóri og kennari við Leiklistarskóla Leikfélags Reykja- vikur 1963-69, leikhússtjóri LR 1963-72, þjóðleikhússtjóri 1972-83, menningarráðunautur hjá mennta- málaráðuneytinu 1983-89 og dag- skrárstjóri innlendrar dagskrár rík- issjónvarpsins 1989-93. Sveinn hefur setið í ýmsum nor- rænum leiklistarnefndum, í RKK 1973-77, í aðalstjórn Alþjóðasam- bands leihúsmanna 1977-81 og vara- forseti 1979-81, í stjórn Sambands norrænna leikhússtjóra 1965-83, í skólanefnd Leikhstarskóla íslands, formaður skólanefndar frá 1983 og kennari þar af og til, í leikhstar- ráði, í stjórn Sænsk-íslenska félags- ins í Reykjavík í nokkur ár og for- maður 1984-87, formaður Leik- skáldafélags íslands 1985-89, í vara- stjórn Amnesty International um skeið, í úthlutunarnefnd bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs 1985-90, í menningarmálanefnd Evrópuráðsins 1986-89 og frá 1993, formaður skáldskaparnefndar Evr- ópuráðsins 1987-90, stundakennari öðru hvoru frá 1970 í leikbókmennt- um og leiklistarsögu við HÍ, í stjórn Samtaka norrænna leiklistarfræð- inga frá 1989, í norrænni nefnd um óperuflutning 1985-91, í stjórn evr- ópsku menningarstofnunarinnar í Delfí frá 1990, í framkvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík 1968-74 og 1978-80 og í fulltrúaráðinu 1968-83, í fulltrúaráöi Samtaka um byggingu tónhstarhúss og í stjórn 1987-90, í opinberum nefndum um Þjóðleik- hús, listdans og leiklistarlög, í út- hlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs 1986, formaður Félags leiklistar- fræðinga 1982-88, stjórnarformaður Listdansskóla íslands og íslenska dansflokksinsfrá 1992. Sveinn hefur flutt fyrirlestra um íslenska leiklist og leikritun við marga erlenda háskóla, flutt leik- húspistla og annast um fjögur hundruð útvarpsþætti um árabil. Hann hefur verið stjórnandi um sextíu verka á sviði hér á landi og erlendis og í sjónvarpi. Eftir Svein hafa komið út bækurn- ar Leikhúsið við Tjörnina, útg. 1972; Níu ár í neðra, 1984; Gabríeha í Port- úgal (barnabók), 1985; íslensk leik- list I, útg. 1991; Bandamannasaga, leikverk, sýnt af leikflokkum víða um heim; Dordingull, (barnasaga) lesin í Ríkisútvarp 1994. Hann samdi leikritin Fjöreggið, 1984; Ég er gull og gersemi, 1985; Búkollu, 1991, og Viðkomustað, 1970, sem var fyrsta íslenska sjónvarpsmyndin. Sveinn hlaut barnabókavérðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 1986; norrænu Clara Lachmann-verð- launin 1990; Finnsku hvítu rósina; fyrstu verðlaun í smásagnakeppni Ríkisútvarpsins á lýðveldisafmæli og konunglegu norsku viðurkenn- ingarorðuna 1993. Fjölskylda Eiginkona Sveins er Þóra Krist- Sveinn Einarsson. jánsdóttir, f. 23.1.1939, listfræðing- ur. Hún er dóttir Kristjáns G. Gísla- sonar stórkaupmanns og Ingunnar Jónsdóttur húsmóöur. Dóttir Sveins og Þóru er Ásta Kristjana, f. 5.10.1969, BA frá Brandeis-háskóla í stærðfræði og heimspeki frá 1992 en stundar nú doktorsnám við Harvard-háskóla. Foreldrar Sveins voru Einar Ólaf- ur Sveinsson, f. 12.12.1899, d. 18.4. 1984, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, og k. h„ Kristjana Þorsteinsdóttir, f. l. 7.1903, d. 19.10.1981, píanókennari. Til hamingju tneð afmælið 18. september 85 ára Agnar K. Hreinsson, Leifsgötu 28, Reykjavík. Björn Kristmundsson, Álftamýri 54, Reykjavík. Ólafur Ásmundsson, Langageröi 78, Reykjavík. Úthhð, Seyluhreppi. Guðrún Erla Melsted, Álfsstétt 3, Eyrarbakka. Lilja O. Ólafsdóttir, Þórunnargötu 3, Borgarnesi. Guðrún Helga Ágústsdóttir, Hvammabraut 10, Hafnarfirði. Guðmundur Sveinsson, Engihjalla 9, Kópavogi. Ingvar Christiansen, 80 ára Jónbjörg Katrin Jónsdóttir, Hverfisgötu62, Halharfirði. Eiginmaöur Jónbjargarvar Karl Sölvason semerlátinn. Jónbjörgtekur ámótigestumá afmæhsdaginn kl. 15-18 í Kiwanishúsi hrauni 22, Hafharfirði Óli Hermannsson, Kleppsvegi 64, Reykja þloltsgötu 41, Reykjavík. Stefán Arngrímsson, Hhðartúnil7, Höfn í Homafirði. Gígja Garðarsdóttir, Grenigrund48, Akranesi. Eiginmaður GígjuerSig- urður Guðjóns- son húsa- smíðameístari frá Bæjarstæði. Þau hjónin taka á móti vinum og vandamönn- um með grillveislu í sumarbú- staðnum Bjarkarlundi viö Munað- arnesl7.9.frákl. 18. Þórdís Sveinbjörg Jónsdóttir, Kristín Br. Kristmundsdóttir, Sólvahagötu 43, Reykjavik. írabakka 18, Reykjavík. Gyða Helgadóttir Gyða Helgadóttir, verkakona og húsmóðir, Sólvangi, Suðurbraut4, Hafnarfirði, er áttræð í dag. Starfsferill Gyða fæddist í Melshúsum í Hafn- arfirði, ólst þar upp og hefur átt þar heima alla tíð þar til hún flutti á Sólvang nú fyrir skömmu. Hún missti mann sinn 1953 en hann fórst með Eddunni frá Hafnarfirði. Fljót- lega eftir það hóf hún störf hjá ís- húsi Hafnarfjarðar og vann þar í tuttugu og fimm ár. Þá var hún mörg sumur í síldarsöltun hjá Ólafi Óskarssyni, ýmist á Siglufirði, Rauf- arhöfn eða Seyðisfirði auk þess sem hún leysti af sem kokkur á síldar- bátum. Fjölskylda Eiginmaður Gyðu var Guðbjartur Guðmundsson, f. 29.6.1911, d. 16.11. 1953, sjómaöur. Hann var sonur Guðmundar Jónssonar, sjómanns frá Þingeyri við Dýrafjörð, og Helgu Jónu Jónsdóttur húsmóður. Börn Gyðu og Guðbjarts eru Bára, f. 8.6.1938, verslunarmaður í Hafn- arfirði, gift Gissuri Þóroddssyni bólstrara og eiga þau sex börn; Sig- ríður, f. 25.9.1941, verslunarmaður á Norðfirði, gift Magna Kristjáns- syni skipstjóra og eignuðust þau þrjú börn en tvö þeirra eru á hfi; Guðný,f. 3.8.1944, skrifstofumaður í Grindavík, gift Hinrik Bergssyni vélstjóra og eiga þau þrjú börn; Helga, f. 21.5.1946, starfsmaður við prentsmiðju, gift Hafsteini Jónssyni húsasmið og eiga þau íjögur börn; Guðmundur, f. 1.9.1952, húsasmiður í Hafnarfirði, kvæntur Ingibjörgu Óskarsdóttur leikskólakennara og eiga þau íjögur börn. Systkini Gyðu voru Þórunn, bæj- arfulltrúi í Hafnarfirði, nú látin, var gift Páh Sveinssyni yfirkennara sem er látinn; Sigríöur, húsmóðir í Hafn- arfirði, var gift Bjarna Guðmunds- syni, verkamanni frá Stóra-Nýjabæ í Krísuvík en þau eru bæði látin; Gyöa Helgadóttir. Guðmundur, síðast prestur á Norð- firði, kvæntur Huldu Sveinsdóttur en þau eru látin; Hahdóra, dó fimm ára. Foreldrar Gyðu voru Helgi Guö- mundsson, f. 1877, d. 1956, sjómaður í Melshúsum, og Guðrún Þórarins- dóttir, f. 1875, d. 1955, húsmóðir. Gyða tekur á móti gestum á veit- ingastaðnum Kænunni sem er í suð- urhöfninni í Hafnarfirði milli kl. 16.00 og 19.00 ídag. 75 ára Margrét S. Blöndal, Naustahlein 18, Garðabæ. Bósa Pétursdóttir, Heiðarbrún 14, Hverageröi. Guðrún Sigfúsdóttir, Dalalandi 9, Reykjavík. 70 ára Þórdis Inga Þorsteinsdóttir, Barmahlíö 9, Reykjavik. Þorlákur Arnórsson, Blönduhlíð 25, Reykjavík. 60 ára Eyþór Sigtnundsson, Kársnesbraut 93, Kópavogi. Inga Hauksdóttir, Kambsstöðum, Hálshreppi. 50ára Jóna Guðrún Gísladóttir, 40ára______________ Sigurður Ásgeir Ólafsson, Flyörugranda 14, Reykjavik. Þórður Sævar Pálmason, Lækjarbraut4, Hólhr. Guðríður Þorkelsdóttir, Heíðarbraut9f, Keflavik. Vilborg Ósk Ársælsdóttir, Leifsgötu 12, Reykjavík. RíkharðurPescia, Grandavegi5, Reykjavík. Guðmundur Einarsson, Goðalandi 11, Reykjavík. Jón Ágúst Benediktsson, Reykásí 45, Reykjavik. Sigurður Jón Hjartarson, Urðarstekk 10, Reykjavík. Eva Wilfriede Horlebein, Heiðarbraut 32, Akranesi. Matthiidur Laustsen, Svarthömrum 21, Reykjavík Lilja Guðmundsdóttir, Dalhúsum 81, Reykjavík. Ég sendi mínar bestu þakkir þeim fjölmörgu sem glöddu mig á margan hátt á 80 ára afmæl- inu mínu og gerðu mér daginn ógleymanleg- an. Megi góður guð blessa ykkur öll. Ásta Laufey Gunnarsdóttir Litlagerði 14, Hvolsvelli Bergljót lindal Bergljót Líndal, hjúkrunarforstjóri Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, th heimihs að Skaftahhð 8, Reykja- vík, verður sextug á morgun. Starfsferill Bergljót fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Bergstaðastrætið. Hún lauk stúdentsprófi frá MR1954 og námi frá Hjúkrunarskóla íslands 1957, stundaði framhaldsnám i heilsuvernd í Stokkhólmi 1972 og í stjórnun við Hjúkrunarskóla ís- lands 1986. Þá fór hún náms- og kynnisferð til Minneapolis í Banda- ríkjunum sumarið 1970. Bergljót hóf störf við Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur 1958 og hefur unnið þar á ýmsum deildum. Hún er hjúkrunarforstjóri þar frá 1974. Bergljót hefur setið í stjómum og verið formaður í dehd hjúkrunarfor- stjóra innan HFÍ og hefur setið í út- gáfunefnd Hjúkrunarkvennatals og Hjúkrunarfræðingatals seinni útg. Fjölskylda Bergljót giftist 10.8.1957 Guð- mundi Jónassyni, f. 12.9.1929, d. 16.6.1962, kennara. Hann var sonur Jónasar Jónassonar, kennara og hreppstjóra í Flatey á Skjálfanda, og Guðríöar Kristjánsdóttur hús- freyju. Seinni maður Bergljótar er Einar Þ. Guðjohnsen, f. 14.4.1922, fram- kvæmdastjóri. Hann er sonur Svein- bjöms Guðjohnsens, sparisjóðs- stjóra á Húsavík, og Hahgerðar Ey- jólfsdóttur Guðjohnsen húsmóður. Börn Bergljótar og Guðmundar eru Jónas Guðmundsson, sýslu- maður í Bolungarvík, kvæntur Sól- rúnu Geirsdóttur kennara og er dóttir þeirra Halldóra, f. 12.6.1994, auk þess sem dóttir Jónasar frá því áður með Hildi Jónsdóttur, er Helga Theodóra, f. 14.5.1989; Guömundur Þór Guðmundsson, f. 13.3.1962, full- trúi í dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu, kvæntur Elínu Davíðsdóttur tónlistarnema en börn þeirra eru Bergljót Gyða, f. 17.1.1985, Kolbrún María, f. 4.6.1990, og Kristján Páll, f. 24.12.1991. Stjúpsynir Bergljótar eru Bjöm Jóhann Guöjohnsen, f. 8.3.1961, vél- fræðingur, og Siguröur Kristinn Guðjohnsen, f. 27.8.1962, myndlist- armaöur. Systkini Bergljótar: Páh Líndal, f. 9.12.1924, d. 25.7.1992, ráðuneytis- stjóri í umhverfisráðuneytinu; Sig- urður Líndal, f. 2.7.1931, prófessor viö lagadeild HÍ; Álíheiður Líndal, f. 15.8f 1932, húsmóðir. Foreldrar Bergljótar vora Theo- dór B. Líndal, f. 5.12.1898, d. 2.2. 1975, prófessor við lagadehd HÍ, og k.h., Þórhildur Líndal, f. Briem 7.12. 1896, d. 12.3.1991, húsmóðir. Ætt Theodór var sonur Bjöms Líndal, yfirdómslögmanns og útgerðar- manns, Jóhannessonar, og k.h., Sig- Bergljót Lindal. ríðar Metúsalemsdóttur, b. á Arnar- vatni, Magnússonar, bróður Þórar- ins, föður Magnúsar, afa Magnúsar Torfasonar hæstaréttardómara. Þórarinn var einnig faðir Þorbergs, langafa Steingríms prófessors, fóð- ur Héðins skákmanns. Þórhildur var dóttir Páls Briem amtmanns, bróður Eiríks presta- skólakennara, fóður Eggerts í Við- ey, afa Eggerts stærðfræðiprófess- ors. Annar bróðir Páls var Ólafur, alþm. á Álfgeirsvöhum og formaður Framsóknarflokksins, faðir Þor- steins, prófasts og ráðherra, og Ingi- bjargar, móður Þórðar, fyrrv. ríkis- saksóknara. Systir Páls var Kristín, móðir Ingibjargar, konu Jóns Þor- lákssonar forsætisráöherra og Mar- íu Kristínar, móður Gunnars Thor- oddsens forsætisráðherra. Páh amt- maður var sonur Eggerts Briem, sýslumanns á Reynistað, Gunn- laugssonar Briem, amtmanns á Grund, ættfóöur Briemættarinnar. Móöir Páls var Ingibjörg Eiríksdótt- ir, sýslumanns í Kohabæ, Sver'ris- sonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.