Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Qupperneq 29
28 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 Elín Ósk Óskarsdóttir í draumahlutverkinu: Umraeðan um launin hafði auðvitað áhiif „Þetta er stórkostlegt hlutverk. Ég hoppaói af gleði þegar ég fékk að vita í hlutverki Toscu 1986. Þá var Elín Ósk aðeins 25 ára. að ég hefði fengið það.“ DV-mynd GVA „Auðvitað hafði umræðan um laun Kristjáns áhrif á andrúmsloftið. En það er ágætt að þessi mál hafa verið rifin upp.“ DV-mynd GVA í kvöld stígur Elín Ósk Óskarsdóttir á sviö Þjóðleikhússins og syngur dTaumahlutverk dramatískra sópr- ansöngkvenna, hlutverk Leonóru í óperunni Vald örlaganna eftir Verdi. „Þetta er alveg stórkostlegt hlut- verk. Ég hoppaði af gleði þegar ég fékk að vita í apríl að ég hefði orðið fyrir vahnu,“ segir Elín Ósk. „Þetta er líka alveg sérstakt fyrir mig því að þegar ég debuteraði hér heima söng ég á móti Kristjáni Jóhannssyni í Toscu og það var líka í Þjóðleikhús- inu. Þá var líka sami stjórnandi og nú, Maurizio Barbacini." Samstaríið við Kristján segir Elín Ósk hafa verið mjög gott. „Hann er ósköp indæll, kátur og skemmtileg- ur. Það þurfa auövitað allir að halda á sínu, vita af sér og láta vita af sér. Þetta gengur út á það.“ Með vasapeninga miöað vió Kristján Jóhannsson Hún neitar því ekki að umræðan um há laun Kristjáns hafi haft áhrif á andrúmsloftið í Þjóðleikhúsinu meðan á æfingum stóö. „Auðvitað hafði þetta áhrif. Aö óskoðuðu máli hugsar maður með sér: Ég fæ vasa- peninga á meðan mótsöngvari minn fær svona oíhoðslega fjárhæð. En þegar maður fer að skoða dæmið verður að gá að því að íslenskir söngvarar eru hreinlega illa launað- ir. Maður eins og Kristján, sem er kominn út í hinn stóra heim, er á allt öðrum launum. Ég er ekkert viss um að hann sé tilbúinn að lækka launin sín og láta það spyrjast út. Ég held aö það væri ekki gott fyrir hans stöðu erlendis. Ég er því alls ekkert reið vegna þessa. íslenskir söngvarar þurfa hins veg- ar að berjast fyrir hærri launum. Og ef vel ætti að vera þyrftum við aö vera fastráðin við leikhúsin til að tryggja okkur góða alkomu. Það þarf samstöðu meðal söngvara. Það er ágætt aö þessi mál hafa verið rifin upp,“ leggur Elín Ósk áherslu á. Hún kveðst ekki þora að segja frá því að svo stöddu hvaö hún fær sjálf fyrir kvöldið en tekur það frám að það sé ekki í námunda við það sem Kristján fær fjrir að syngja hlutverk Alvaros. Dramatísk ópera með léttu ívafi í óperunni Vald örlaganna er Al- VcU'o vonbiðill markgreifadótturinn- ar Leonóru. Fööur Leonóru þykir Alvaro slæmur kostur þar sem hann sé sonur meints föðurlandssvikara og trúvillings. Alvaro verður fyrir því að skot hleypur úr byssu hans þegar hann ætlar að hafa Leonóru á brott með sér og hæfir skotið fóður Leonóru og lætur hann lífið. Alvaro verður að flýja. „Þetta er ákaflega dramatískt verk,“ greinir Elín Ósk frá. „Leonóra verður yfirkomin af harmi því að hún elskar fóður sinn óskaplega mik- ið. Hún ákveður að reyna að fá af- lausn synda sinna hjá munkum og fær skjól hjá þeim sem einsetukona í helli. Á meðan þetta gerist fer Al- varo, sem alltaf var í huga Leonóru, í stríðið. Carlo, bróðir Leonóru, er að leita að henni og Alvaro til aö hefna föður síns. Carlo fer einnig í stríðið og hann og Alvaro sveriast í fóstbræðralag án þess að vita hvor um annan. Það kemst þó upp um síð- rirhver hvor er. Alvaro leitar í klaust- ur en Carlo hefur upp á honum'. í einvígi særir Alvaro Carlo illa. Al- varo fer til að leita hjálpar í helli ein- setumannsins, sem hann heldur að í dvelji munkur, en þá kemur Leonóra út. Hún hleypur til bróöur síns sem neytir síðustu kraftanna til að stinga hana með rýtingi. Leonóra lætur lífið i örmum unnusta síns. En þó að óp- eran sé óskaplega dramatísk þá eru léttir kaflar inn á milli og það er ákaflega gaman að vera með í þess- ari uppfærslu." Var25 ára þegar hún söng Toscu Elín Ósk var aðeins 25 ára þegar hún söng Toscu fyrir átta árum og þótti það óvenjulegt að svo ung söng- kona skyldi takast á við hlutverkið. Það var frumraun hennar. Hún var að ljúka námi á Ítalíu þegar hún fékk boð um að syngja fyrir vegna upp- færslu Toscu í Þjóðleikhúsinu. Til Ítalíu hafði hún haldið haustiö 1984 ásamt eiginmanni sínum, Kjart- ani Ólafssyni sem hún haföi kynnst í Söngskólanum í Reykjavik. Um vor- ið höföu þau bæði útskrifast. úr Söng- skólanum, hún með einsöngvarapróf og hann með söngkennarapróf. „Við vorum tvö ár í einkanámi hjá Pier Miranda Ferraro í Mílanó. Eg söng víða á Norður-Ítalíu því að kennari okkar var spurður hvort hann hefði ekki nemendur sem gætu komið og sungið á skemmtunum og tónleikum hjá ýmsum tónlistarfélög- um. Ég söng líka G-dúr messu Schu- berts á sex konsertum ásamt kór og hljómsveit Verdi Conservatorio. Mér fannst ég hafa fengið góðan undir- búning fyrir Ítalíuferðina hjá Þuríöi Pálsdóttur og öðrum kennurum mín- um í Söngskólanum. Ég var búin að halda einsöngstónleika sem reyndar voru liður í útskriftarprófinu. Ég var líka búin að koma fram á ýmsum söngskemmtunum og hafði ég mjög gott af því. Meðal annars haföi ég sungiö Hans í Hans og Grétu en nem- endur Söngskólans settu þætti úr óperunni á svið.“ Uppalin í hesta- mennsku og mikilli sönggleði Elín Ósk segir að eiginlega hafi LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 aldrei annað komið til greina en aö fara út í söngnám. Hún segúst hafa alist upp í hestamennsku og mikilli sönggleði. Hún fæddist á Rauðalæk í Holtahreppi en flutti eins árs þaðan og bernskuárunum eyddi hún að mestu á Hvolsvelli. „Við áttum lítið hestabýli eins og ég kalla það, fallegt hús og garð og eignarlóð í kring. Pabbi starfaöi mikið í kórum og mamma var mjög söngelsk og þau létú mig syngja mikið heima, bæði sálma og annað. Ég fór í Tónlistar- skóla Rangæinga þegar ég var 11 ára og stundaði píanónám hjá Friðriki Guðna Þórleifssyni. Ég hafði reyndar byrjað að læra á gítar og orgel hjá Sigríði Sigurðardóttur konu hans sem jafnframt var skólastjóri Tón- hstarskóla Rangæinga. Ég var líka í skólakór tónlistarskólans. Ég hafði því gott veganesti þegar ég fór frá þeim.“ í Söngskólann sautján ára Hún var 17 ára er fór hún til Reykjavíkur í Söngskólann. „Mér fannst ekkert annað koma til greina en að prófa þetta. Ég hafði snemma hljómmikla rödd og ég var mikið hvött til þess að læra aö syngja. Ég byrjaði hjá Þuríði Pálsdóttur og var hjá henni í fimm ár þangað til ég lauk einsöngvaraprófi. Og þá tók ít- alíudvölin viö.“ Ári eftir að Elín Ósk kom heim frá Ítalíu og söng Toscu, eða 1987, fékk hún hlutverk Don Elviru í óperunni Don Giovanni í íslensku óperunni. Elín Ósk eignaðist son, Heimi Þór, 1989 og gerði hún þá hlé á söngnum. Ári seinna söng hún Dido í óperunni Dido og Aeneas í uppfærslu Islensku hljómsveitarinnar. Öperan var svið- sett í Langholtskirkju. Árið 1991 var hún ein af dömum næturdrottning- arinnar í Töfraflautunni eftir Mozart sem var flutt í íslensku óperunni. Á þessum árum söng hún einnig með Sinfóníuhljómsveit íslands og Kammersveit Ákureyrar auk þess sem hún hélt einsöngstónleika í Reykjavík og úti á landi. Fynr tveim- ur árum var henni boðið til Rovani- emi í Finnlandi á listahátíð með Rangæingakórinn í Reykjavík sem hún hefur stjórnað á fimmta ár. Elín Ósk hélt einnig sjálf tónleika og fengu bæöi hún og kórinn mjög góða dóma. í vor söng hún í Niflunga- hringnum eftir Wagner á listahátíð. „Um leið og ég var að æfa fyrir þá sýningu þurfti ég að hella mér út í að æfa hlutverk Leonóru. Þetta var ansi strembinn tími því jafnframt var vetrarstarfi Rangæingakórsíns að ljúka. Svo var ég einnig að út- skrifa fólk úr Söngskólanum,“ grein- ir Elín Ósk frá. Hún hefur kennt við Söngskólann síðan 1987. Söngkennsluna byrjaði hún reyndar á Hvolsvelli í einn vetur og keyrði þangaö einu sinni í viku en þótti erfitt aö vera á svoleiðis þvælingi. Mikið úrval góðra söngradda Áhugi íslendinga á söng hefur löngum verið mikill og Elín Ósk telur að hann sé jafnvel meiri nú en verið hefur. „Þeir eru margir sem sækja um inngöngu í Söngskólann. Það komast þó ekki allir að sem vilja því þaö þarf að þreyta inntökupróf. En ég held ekki að allir þeir sem sækja um ætli sér að verða atvinnusöngv- arar. Kórfólk kemur í skólann til aö fá raddþjálfun og svo held ég aö sum- ir af þeim eldri séu að láta gamlan draum rætast. En margt af unga fólk- inu ætlar sér áreiðanlega eitthvað meira.“ íslendingar eru gott söngfólk að mati Elínar Óskar. „Við höfum mikiö úrval af röddum, allar tegundir. En það verður að segjast eins og er að möguléikamir fyrir þá sem ætla sér eitthvað eru ny ög takmarkaðir. Þetta er lítið þjóöfélag og við höfum bara eina starfandi óperu og það komast ekki allir þar inn. Verkefnin hjá óperunni eru kannski bara eitt eða tvö á ári. Núna fá um fimmtán sólist- ar tækifæri í Valdi örlaganna og svo auðvitað kórinn en það er ekki gert ráð fyrir nema sextán sýningum." Spyr mig óneitan- lega hvortég geti ekki meira Hún segir að auðvitað hafi það hvarflað að henni sjálfri að reyna fyrir sér erlendis. „Staöan hefur ver- iö þannig undanfarið að ég hef ekki farið út í það ennþá. Mér finnst ég vera svo bundin öllu hér á íslandi. Fjölskylduböndin hér heima eru svo sterk og ég er svo mikill íslandsvinur að ég vil helst starfa á íslandi. En auðvitað fer maður að spyrja sjálfan sig spurninga ef maður fær ekki nóg að gera. Á maður að leggja upp laupana og vera eingöngu við kennslu og kórstjórn sem auðvitað er bæði gefandi og gaman. Það er ef til vill líka vegna þess hversu gaman mér hefur þótt að vinna við þessi störf að ég hef ekkert gert í hlutunum enn. Þegar maður fær svona hlut- verk til að takast á við þá hugsar maður samt óneitanlega með sér: Gæti ég ekki gert eitthvað meira og þá erlendis? Kemst ég að þar og er þetta ekki einfaldlega lífið sem ég vil lifa? Það er óneitanlega spurning og ég verð að fara að vinna úr því dæmi núna. Það fylgja því vissulega fórnir en það er þá líka spurning um það hversu mikið aðrir koma á móti manni. Það væri allt hægt. Það er bara spurning um hvað Elín Ósk sjálf vill gera. Ekki vantar stuðninginn því það eru ýmsir sem eru aö hvetja mig til að reyna fyrir mér erlendis. Það er alveg ómetanlegt að fmna þessa hvatningu." Elín Ósk kveðst sérstaklega hafa fundið fyrir miklum stuðningi við undirbúninginn fyrir'úppfærsluna á Valdi örlaganna. „Þetta hefur verið erilsamt en ákaflega gaman að setja alla lausa enda saman. Undanfarið hafa verið sjö tíma æfingar á dag, þrjár klukkustundir á morgnana og fjórar á kvöldin. Allra síðusfu daga hafa aðallega verið kvöldæfingar. Það er fullt af fólki sem hefur lagt hönd á plóginn til að gera sýninguna sem best úr garði. Leikhúslífið er skemmtilegt líf.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.