Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 Sviðsljós Tom Hanks slær enn í gegn: Besta hlutverk mitt til þessa - segir stjaman um Forrest Gump í myndinni Forrest Gump er rakin saga ungs manns en hann kemur við sögu í flestum meiriháttar viðburðum sögunnar undanfarin þrjátiu ár - sem fólk kannast við. „Það getur verið erfitt að búa til góða bíórnynd," segir stórstjarnan Tom Hanks er hann reynir að svara því hvernig standi á að nýjasta mynd hans, Forrest Gump, sé svo vinsæl sem raun ber vitni en hún hefur sleg- iö öll aðsóknarmet í Bandaríkjunum í sumar. Síðastliðið vor fékk Tom Hanks óskarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Philadelphia en hann sló eftirminnilega í gegn í þeirri kvikmynd. Tom Hanks hefur verið heppinn í síðustu myndum sínum en hér áður var hann oft óheppinn með hlutverk. Hann lék t.d. í kvikmyndinni Under the Volcano árið 1984 en sú mynd hlaut ömurlega gagnrýni á sínum tíma og hafði nær eyðilagt feril hans. Þess vegna er sagt að Hanks taki mikla áhættu þegar hann velur hlut- verk. „Það getur enginn verið á Kvikmyndir sem Tom Hanks hefur leikið í He Knows You’re Alone (1981) Mazes and Monsters (1982) Bachelor Party (1984) Splash (1984) The Man with One Red Shoe (1985) Volunteers 1985 Every Time We Say Goodbye (1986) The Money Pit (1986) . Nothing in Common (1986) Dragnet (1987) Big (1988) Punchline (1988) The Burbs (1989) Turner and Hooch (1989) Joe Versus the Volcanor (1990) Bonfire of the Vanities (1990) Radio Flyer (1992) A League of Their Own (1992) Sleepless in Seattle (1993) Philadelphia (1993) Forrest Gump (1994) toppnum um alla eilífð," segir leikar- inn. Tom Hanks þykir hafa sannað að hann getur leikið jafnt í gaman- myndum sem þeim alvarlegri. Hann sýndi t.d. mjög góðan leik í kvik- myndinni Splash. Það var þó ekki fyrr en hann lék í kvikmyndinni Big sem hann sýndi virkilegan stjörnu- leik enda var hann þá tilnefndur til óskarsverðlauna. Frábærar myndir komu á eftir eins og A League of Their Own, Sleepless in Seattle og Philadelphia. Með kvikmyndinni Forrest Gump hefur Tom Hanks sýnt og sannað að hann er einn besti kvikmyndaleikari Bandaríkjanna í dag. Forrest Gump er nafn á manni sem í bíómyndinni rifjar upp lífshlaup sitt í gegnum sögulega viðburði. Forrest hefur aðeins greindarvísi- tölu upp á 75 en er einlægur og hjartahlýr. Tom Hanks segir að þetta sé eitthvert skemmtilegasta hlutverk sem hann hefur leikið. „Ég hef þénað svo mikið að ég þarf ekki að vinna. Að minnsta kosti get ég valið og hafn- að. Hlutverkið Forrest Gump hreif mig hins vegar og mér fannst hand- ritið eitthvert það skemmtilegast sem ég hef lesið,“ segir leikarinn. Forrest Gump upplifir Vietnam- stríðið, hann hrífst af Elvis Presley, hann gerist hippi á því tímabili og Bítlarnir verða í uppáhaldi hjá hon- um. Framleiðendur myndarinnar nota raunveruleg atriði í bíómynd- inni og setja Tom Hanks inn í þau með hjálp tölvu. Þannig ná þeir að búa til áhrifamiklar senur, t.d. talar Forrest Gump við John Lennon og John F. Kennedy. „Flestallir sem eru komnir til vits og ára finna sjálfa sig í þessari mynd þar sem þeir geta auðveldlega sett sig í spor Forrest Gump,“ segir Tom Hanks. „í þessari mynd kemur bara raunveruleikinn fram,“ segir leikarinn ennfremur. Forrest Gump verður bráðlega sýnd hér á landi ogþá munu væntan- lega miðaldra íslendingar kannast við margt á hvita tjaldinu en það er ekki síst þessi raunveruleiki sem gert hefur myndina jafn vinsæla og raun ber vitni. Tom Hanks leikur einlægan og hjartahlýjan mann, Forrest Gump, í nýjustu mynd sinni sem er að slá i gegn vestanhafs um þessar mundir. Myndin verður sýnd hér á landi inn- an skamms. Úr myndinni Sleepless in Seattle þar sem Tom Hanks sýndi mikinn stjörnuleik. Tom Hanks fékk óskarsverðlaun fyr- ir leik sinn í Philadelphia. Allir unglingar eru eins Unglingar um heim allan hafa sama smekk og sömu þarfir. hvar sem þeir búa Táningaherbergi er svo til eins um allan heim. Myndbandaupptökur frá herbergjum stélpna og stráka í 25 löndum sýna að unglingarnir hafa sama smekk, hvort sem þeir búa í Afríku, Suður-Ameríku, Bandaríkj- unum, Asíu eða Evrópu. í herbergjunum er að sjá sams kon- ar plaköt og unglingarnir eru hrifnir af sömu hijómsveitunum, ganga í sams konar fatnaði og nota eins snyrtivörur. Þoir drekka ákveðnar tegundir af gosdrykkjum og leika sér méð eins tölvuleiki. Og hvað er það þá sem heillar ungl- inga um allan heim? Samkvæmt könnun bandarísku auglýsingastof- unnar BSB Worldwide, sem greint er frá í danska blaðinu Politiken, er það meðal annars þetta: Levi’s og Diesel buxur. NBA-jakkar. Hip Hop- kassettur. MTV-sjónvarpsútsending- ar. Timbarland og Dr. Martens stíg- vél. Red Hot Chili Peppers og Ice Cube (þetta eru hljómsveitir en ekki krydd eða drykkir). Sega og Nin- tendo tölvuleikir. Coca Cola og Pepsi. Cover Girl smink. Spider-Man teiknimyndaseríur. Bandarískar körfuboltahetjur. McDonald’s matur og pitsur. Táningar eru eftirsóknarverðir viðskiptavinir. Ef hægt er að vekja áhuga þeirra á einhverri vöru geta menn reiknað með að þéna dágóðan skilding. Það er oftast í Bandaríkjun- um sem tískan myndast og skömmu síðar breiöist hún út meðal táninga um allan heim. í Bandaríkjunum eru mörg fyrirtæki sem sérhæfa sig í markaðsrannsóknum sem tengjast vamingi sem reyna á að selja táning- um landsins sem eru sagðir vera 28 milljónir. Fyrirtækið Simmons Market Rese- arch Bureau of New York City upp- lýsir í alþjóðlega viðskiptablaðinu Fortune að í fyrra hafi bandarískir táningar gert innkaup fyrir 57 billj- ónir dollara. Og þá er eingöngu um þeirra eigin vasapeninga að ræða. Árið 1992 voru það táningar sem keyptu um 25 prósent af öllum seld- um bíómiðum í Bandaríkjunum og þeir keyptu 27 prósent af öllum myndböndum. Sá aðili sem hefur einna mest áhrif á smekk unglinga í Evrópu er banda- ríska sjónvarpsstöðin MTV sem sýn- ir tónlistarmyndbönd alla daga. Þar eru stór bandarísk og ensk nöfn mest áberandi en litlar evrópskar hljómsveitir fá þó að láta ljós sitt skína inni á milli. ... að Mandy Smith vildi skilja við Pat van den Hauwe eftir bara eins árs hjónaband vegna af- brýðisemi hans. Hjónaband Mandy og Bills Wymans varaði i eitt og hálft ár en þau voru bara eina víku undir sama þaki. ... að Arnold Schwarzenegger ætlaði að kenna umheiminum að dansa tangó. Schwarzeneg- ger hyggst gefa út dansmynd- band eftir kvikmyndinni True Li- es sem nú er víða verið að sýna fyrir fullum húsum. ... Paul McCartney væri ríkari en Bretadrottning og öll börn hennar. Eru eignir Bitilsins metnar á yfir fjörutiu milljarða en drottningin er sögð eiga um 15 milljarða. ... að Elvis Presley hefði orðlð sextugur 8. janúar nk. og í tilefni af því munu verða haldnir miklir tónleikar i heimabæ hans, Memphis, 8. október nk. Þar munu meóal margra frægra verða hjónakornin Lisa Marie Presley og Michael Jackson og syngja dúett. ... að nýlega hófust að nýju sýn- ingar á þáttunum Beverly Hills 90210 í Bandaríkjunum og er þetta fimmta serian sem gerð hefur verið. Þættir þessir hafa notið mikilla vinsælda um allan heim en nú munu hafa orðið ein- hverjar mannabreytingar i þátt- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.