Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1994, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994
Stuttar fréttir Útlönd
59 látnir og rúmlega 70 saknað á Ítalíu:
Neyðarástand á
flóðasvæðunum
Heimfyrkjólsn
Bandarílgastjóm hefur ákveöiö
aö kalla heliring herliös síns
heim frá Haítí fyrir jólin.
Chiraclofaroglofar
Jacques I
Chirac,forseta-
frambjóöandi í
FrakMandi,
lofar Frökkum
þjóöarat-
kvæðagreiðslu
um evrópska
myntbandalag-
iö verði hann forseti. Ekki var
ætlunin að kjósa um máliö.
Verja Sarajevo
Herþotur NATO fljúga nú dag-
lega yfir Sarajevo til að koma í
veg fyrir að bardagamir í Bosníu
nái þangað.
Enginvopnaðvestan
Bandaríkjastjórn neitar að hún
standi að baki leynilegri vopna-
sölu til múslíma í Bosníu.
Stríðsglæparéttarhöld
Réttarhöld hófúst yfir meintum
stríðsglæpamanni frá Serbíu í
Haag i Hollandi í gær.
Norður-Kórea í sátt?
Norður-Kóreumenn verða
teknir í efnahagssamstarf Asíu
smíði þeir ekki kjamavopn.
Blökkumennfáland
Stjóm Suður-Afríku viU aö
blökkumenn fái aftur land sem
hvftir menn hafa tekiö.
Forseti á sigurbraut
Fyrstu tölur
enda til aö Jo-
aquin Chiss-
ann, forseti
Mósambík, fari
með sigur af
hólmi í nýaf-
stöðum kosn-
ingum. Treg-
lega geng-
ur að telja. Sögur em um svik í
kosningunum en alþjóöegir eftir-
Utsmenn neita því.
Slagurí Líberiu
Átök hafa enn á ný blossaö upp
í Líberíu. Stjórnarherinn á í höggi
viö hópa byssumanna.
Ráðherraiembætti
Nýr forsætisráöherra tekur
formlega við völdu á Haítí í dag.
Bræðrabylta í Svíþjóð
Fylkingar já- og neimanna
standa nú jafnt að vígi I barátt-
unni um hylli sænskra kjósenda
fyrir þjóöaratkvæðiö um inn-
gönguna í EBS.
IKEA-maður nasisti?
Stofnandi og forstjóri IKEA i
Svíþjóð er sakaður um stuðning
vlð nasista á sínum yngri ámm.
Þýskur togari tekinn
Norska strandgæslan tók þýsk-
an togara í landhelgi í gær.
Gjafaféstolið?
Milljónir af norsku gjafafé, sem
fara átti til Palestínu, eru horfnar
sporlaust.
MóðirTeresa ötuðauri
í nýrri
breskri heim-
ildarmynd em
brigöur bomar
áaöMóðirTer-
esa sé slíkt
gæðablóð sem
af er látið. í
myndinni er
trú almennings á gömlu konuna
skýrö sem sambland af „fiöl-
miölabrellum og hindurvitnum
miöalda". Reuter, TT og NTB
'v
Skíturinn f lýgur en
tollir ekki á Clinton
„Atvinnulausum fækkar, hallinn
á ríkissjóöi minnkar og heimurinn
er öruggari staður nú en fyrir
nokkrum mánuðum," hrópar Bill
Clinton Bandarikjaforseti yfir kjós-
endur á hverjum framborösfundin-
um á fætur öðrum.
Þetta virðist þó koma fyrir lítið
því allt stefnir í að demókratar,
flokksmenn forseta, tapi meiri-
hluta í báðum deiidum Bandarikja-
þings í dag. Repúblikanar hafa ekki
haít meirihluta í báöum deildum
samtímis frá árinu 1954.
Nú benda skoðanakannanir ein-
dregiö til aö forsetinn veröi að
kijást viö óvinveitt þing þaö sem
eftir er kjörtímabilsins. Seinasta
von demókrata er að kjósendur
hlusti á forsetann og trúi oröum
hans um nýtilkomna sælu og vel-
megun. Flestir þeirra sem nú ganga
aö kjörborðinu hafa ekki orðið var-
ir við mikla breytingu til batnaöar
í stjómartíð Ciintons.
Kosningabaráttan hefur verið
óvenju ruddaleg. Þingmenn láta
Bill Clinton i kosningaham.
ekkert tækifæri ónotaö til að ata
keppinauta sína auri. Menn em
sakaðir um eiturlyfianeyslu, fram-
hjáhald og fjársvik. Forsetinn er
sakaöur um aö hafa áreitt unga
konu kynferðislega en þaö hefur
ekki hrifið.
Svo virðist sem Bandaríkjamenn
fyrirgefi Clinotn umfram aðra
menn aö vera nokkuð upp á kven-
höndina. Skiturinn viO því ekki
tolia viö forsetann þótt óspart sé
klíntOgkastað. Reuter
Björgunarsveitarmenn hafa unniö
baki brotnu viö að leita aö hkum eft-
ir mestu flóð sem hafa orðið á Norð-
ur-ítaliu í áratugi og í gær var tala
láfinna komin í 59. Ríkissjónvarpið
sagöi hins vegar að látnir væm farn-
ir að nálgast hundraðið. Búist er við
að ríkisstjórnin lýsi yfir neyðará-
standi á svæðinu þegar hún ræðir
aðstoð við flóðasvæðin á fundi í dag.
Tugir heimila grófust undir aur-
skriöum og þúsundir fóm undir vatn
þegar ár í fjallahéraðinu Piedmont í
norðvesturhluta landsins flæddu yfir
bakka sína. Á þremur dögum mæld-
ist rigningin 60 sentímetrar.
Stjómvöld hafa sætt harðri gagn-
rýni fyrir seinagang. Hróp vora gerð
að Shvio Berlusconi forsætisráð-
herra þegar hann heimsótti flóða-
svæðin í gær.
Sjötíu og þriggja er saknað í Pied-
mont og tveggja til viðbótar.á Lang-
barðalandi þar sem Pó, stærsta fljót
Ítalíu, flæddi yfir bakka sína við
bæinn Pavia. „Viö eigum litla mögu-
„Ég grátbið hvern þann sem heldur
vemdarhendi yfir morðingjanum að
segja til hans,“ segir Gina Watling,
unnusta Johns Penfolds, unghngs-
phts sem um helgina var drepinn í
verslun í Lundúnum fyrir tvo smá-
peninga. Morðinginn komst undan
með ránsfeng sinn, tvo fimmtíu
pensa peninga. Þaö er jafnvirði ríf-
lega hundrað íslenskra króna.
Morðið hefur vakið þjóöarathygh í
Bretlandi og þykir með ólíkindum
að saklaus unghngur skuli myrtur
viö vinnu sína í fjölsóttri verslun á
háannatímanum.
Penfold heitinn var lærlingur í
versluninni. Hann var að telja skipti-
mynt á búðarborðinu þegar morð-
ingjann bar þar að. Maðurinn þóttist
ætla að kaupa snakk en þegar hann
sá peningana dró hann umsvifalaust
upp lítinn eldhúshníf og stakk Pen-
fold í hjartastað.
Pensin tvö láu þá á búðarborðinu
og hljóp maðurinn út með þau. Úti
beið hans maður á bíl og saman óku
þeir á brott. Viðstaddir fengu ekkert
aö gert og var morðinginn á bak og
burt á augabragði.
Allar tílraunin th að bjarga hfi Pen-
folds reyndust árangurslausar og lést
hann áður en sjúkrabhl kom á staðinn.
Lögreglan hefur nú upplýst að
morðinginn hafi fyrr um daginn
rænt afgreiðslumenn í átta verslun-
um. Hann hafði yfirleitt aðeins smá-
peninga upp úr krafsinu hverju
sinni. Telur lögreglan að hann hafi
þó verið búinn að nurla saman ríf-
lega þúsund pundum yfir daginn.
„Við munum ekki láta staðar num-
ið fyrr en þessi maður er kominn bak
við lás og slá,“ segir Chris Burke,
lögreglufuhtrúi sem stjórnar rann-
sókn málsins. „Þessi maður er stór-
hættulegur og við höfum fuha
ástæðu til að ætla aö hann láti fljót-
lega th skarar skríða að nýju. Hann
hefur þegar myrt einn mann full-
komlega að thefnislausu og er vís til
að gera það aftur.“
Gina Watling kom fram á blaðamannafundi í gær og hét á Breta að finna morðingja Johns Pnefolds, unnusta
síns. Penfold var myrtur við vinnu sína í verslun í Lundúnum af manni sem hafði fengið augastað á smápeningum
i höndum hans. Símamynd Reuter
Bjorgunarsveitarmenn virða fyrir
sér rústir húss eftir flóðin á Ítalíu.
Simamynd Reuter
leika á að finna fóikið á lífi,“ sagði
talsmaður siökkviliösins.
Skemmdir af völdum náttúruham-
faranna em metnar á 260 mihjarða
íslenskra króna og búist er við að
Piedmont-hérað verði ekki samt og
áðurfyrreneftirrúmtíuár. Reuter
Víðtæk leit bresku lögreglunnar að samviskulausum hnífamorðingja:
Myvti ungling fyrir
smápeninga í búð
- morðinginn sá aurana á búðarborðinu og stakk afgreiðslumanninn í hjartað