Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1994, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994 17 íþróttir Fékk hjartaslag ímiðjum leik Stefano Pioli, varnarleiktnaður ítalska liðsíns Fiorentina, komst í hann krappan í leik Fiorentina og Bari i ítölsku knattspyrnunni um helgina, Á 31. mínútu leiksins fékk Pioli slæmt spark í höfuðið og fékk um leið alvarlegt hjartaslag. Læknir Fiorentina, sem kom fyrstur á vettvang, sagðist strax hafa gert sér grein fyrir því að alvarlegt mál væri á ferðinni. Það tók lækninn tvær mínútur að fá varnarmanninn til að anda á ný en hann er nú á batavegi á sjúkrahúsi. Schustervillspila með landsliðinu Bernd Schuster, einn frægasti knattspyrnumaður heims sem er 34 ára gamall í dag, hefur lýst þvi yfir að hann sé til í að leika á ný með þýska landsliðinu í Evrópu- keppninni. Schuster lék um árabil á Spáni með liðum Barcelona, Real Madrid og Atletico Madrid. í fyrra gekk hann til liðs við Bayer Leverkusen og hefur leikið mjög vel með liöinu. Berti Vogts, landsliðsþjálfari Þjóðverja, sagöi í gær að hann heföi ekki not fyrir Schuster í landsliðshópi sinum og í stöðu Schusters væru snjallir leikmenn sem væru einfaldlega betri en hann um þessar mundir. Kærumál í körfuboltanum ÍH vann mjög óvæntan sigur á ÍSí 1. deild karla í körfuknattleik í síðustu viku og fékk með því sín fyrstu stig. Tapiö var mikiö áfall fyrir Stúdenta, sem eru í barátt- unni um sæti i úrvalsdeildinni en flest bendir til þess að þeir fái bæöi stigin þrátt fyrir allt. Þeir hafa kært leíkinn á þeim forsend- um aö einn leikmanna ÍH, Hólm- geir Hólmgeirsson, hafi ekki ver- ið oröinn löglegur með Hafnar- fjarðarliðinu eftir félagaskipti úr Létti, og málið er nú hjá dómstóli íþróttabandalags Hafnarfjaröar. Zetterberg íhópiSvía Par Zetterherg, leikmaður meö Anderlecht í Belgíu, hefur veriö valinn í sænska landslíðshópinn í knattspyrnu fyrir leik gegn Ung- verjum i Evrópukeppninni i næstu viku. Zetterberg, sem lék mjög vel með Svíum á síðasta ári, meiddist illa á hné i febrúar og missti af HM í sumar. Einn landsliðs- maður meðZlín FH-ingum hefur gengið erfiö- lega að fá upplýsingar um mót- herja sína í Evrópukeppninni um næstu helgi, Zlín frá Tékklandi. Þeir vita nánast það eitt að með því leikur Ilrazja Karel, 33 ára fyrrum landsliðsmaður með 153 landsleiki aö bakí, og þrír hafa spilað með unglingalandsliði. Zlín tapaði bikarúrslitaleiknum gegn Dukla Prag í fyrra með einu marki en Dukla varö jafniramt meistari. Leikir FH og Zlín fara fram í Kaplakrik'a, sá fyrri á laugardag- inn klukkan 16.30 og sá síðari á sunnudagskvöldið klukkan 20. Suttonenn úti Chris Sutton, dýrasti knatt- spymumaöur Bretlandseyja, kemst ekki enn í landslið Eng- lendinga - sem leikur æfingaleik við Nígeríu 14. nóvember - þrátt fyrir að Ian Wright sé meiddur. Terry Venables valdi Sutton hins vegar í 2l-árs lið enskra. Guðmundur bestur hjá Þórsurum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Guðmundur Benediktsson var kjörinn „leikmaður ársins“ hjá Þór á Akureyri í lok keppnistímabilsins. Það kjör kemur fáum á óvart, en Guðmund- ur, sem lék nú sitt fyrsta heila keppnistíma- bil með mfl. hér á landi, átti stórgott tímabil með Þór og vakti mikla athygli. Arnar Bill Gunnarsson var kjörinn leikmaður 2. flokks og Bjarni Freyr Guðmundsson efnilegasti leikmaðurinn bæði í 2. fl. og meistaraflokki. Þá fékk Ólafur Pétursson, markvörður meist- araflokks, sérstaka viðurkenningu. Borðtennis: IngólfurogEva unnu Pepsi-mótið Ingólfur Ingólfsson sigraði Guðmund E. Stephensen í úr- slitaleik í meistaraflokki karla á Pepsi-mótinu í borðtennis sem fram fór í TBR húsinu á sunnu- daginn. Guðmundur vann fyrstu lotuna, 21-18, en Ingólfur hinar tvær, 21-14 og 21-16. Eva Jósteinsdóttir vann Lilju Rós Jóhannesdóttur í úrslitaleik í meistaraflokki kvenna. Víkingar voru mjög sigursælir á mótinu og unnu alla ílokka. Hættu þessum skrípalátum eða þú verður eins og ég - George Best hefur miklar áhyggjur af framtíð Ryans Giggs George Best, einn mesti glaum- gosi enskrar knattspyrnu fyrr og síðar, hefur miklar áhyggjur af Ryan Giggs, táningnum efnilega hjá Manchester United. Best tók ljúfa lífið iðulega fram yfir knatt- spyrnuna á sínum yngri árum og er það talið hafa staðið hæfileikum og frammistöðu þessa snillings á knattspymuvellinum fyrir þrifum á árum áður. Ryan Giggs hefur verið mikið í fjölmiðlum á Bretlandseyjum und- anfarna mánuði. Giggs hefur sést með hinúm og þessum konum og lifað ljúfu lífi að því er virðist. Nú á efri árum hefur Best róast tölu- vert og séð sjálfan sig í Giggs að mörgu leyti. Skilaboð Best til Giggs eru einfold: „Hættu þessum skrípa- látum eða þú verður alveg eins og ég.“ Best segir aö hann og Giggs eigi ótrúlega margt sameiginlegt. Best lék fyrst sem táningur í liði Man. Utd og var álitinn einn efnilegasti knattspyrnumaður landsins um árabil, líkt og Giggs. Báðir höfðu þeir útlitið með sér og þénuðu heil ósköp af peningum. „Stúlkurnar voru alltaf til staðar og allir vinir mínir vildu drekka meö mér. Nú skoðar maður blöðin og þá er Giggs með þessari stúlku einn daginn og uuMni hinn Ferguson að stöðva þessa þróun og knattspyrnu- ferill Giggs sé þegar í mikilli hættu. Giggs er mjög mikið í fiölmiðlum og þegar má sjá þess merki á hans leiki með United,“ segir Best sem endaði sinn feril hjá United 28 ára gamall. Og allir vita ástæðuna, kvennafar og drykkjuskapur. Best lék á sínum tíma 349 leiki með United og skoraði í þeim 134 mörk. í dag er Best 48 ára gamall og viU gera aUt sem hægt er til aö afstýra því að Ryan Giggs feti í fót- spor hans. Giggs hefur leikið 128 leiki með United og skorað 28 mörk. Hann hefur ekki náð sér á strik á þessu tíma- bili, hverju sem um er að kenna. Best segir að mál- ið sé einfalt varðandi Giggs og skUaboð hans séu ein- föld: „Þú verður að einbeita þér að knattspyrnunni. Ef þú gerir það ekki á knattspyrnuvelUnum munt þú missa allt annað. Peningana, auglýsingasamninga og konunar. Þetta mun aUt hverfa." Iþróttir Austurbakki og KKÍ semja Körfuknattleikssamband íslands og Austurbakki hf. hafa endurnýjað samn- ing sinn til þriggja ára en samstarfið hefur staðið yfir í átta ár. Austurbakki hf. sér KKÍ fyrir boltum, skóm og fatnaði á landshðin, auk þess að styrkja sambandið með ýmsu móti. Á myndinni skrifa Árni Þór Árnason, forstjóri Austurbakka, og Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ, undir samninginn, sem metinn er á rúmar fimm millj ónir króna. DV-my nd Bry nj ar Gauti Karen og Sigurpáll „kylf ingar ársins“ Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Karen Sævarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja, og SigurpáU Geir Sveins- son, Golfklúbbi Akureyrar, voru kjörin „kylílngar ársins" á uppskeruhá- tíð Félags meistaraflokkskylfinga sem haldin var um helgina. EfnUegasti kylfingurinn var kjörinn ÞorkeU Snorri Sigurðsson, Golf- klúbbi Reykjavíkur, og Kristín Elsa Erlendsdóttir, Golíklúbbi Akureyrar, kjörin bjartasta vonin, en hún er aðeins 12 ára með 15 í forgjöf. Þá voru veittar viðurkenningar fyrir ýmis afrek unnin á golfvöllunum í sumar. Björgvin Sigurbergsson úr KeUi var með lægsta meðalskor úr mótum sumarsins, 74,33 högg, og hann fékk einnig flesta „fugla“. Eins og undanfarin ár var Sigurður Hafsteinsson, GoUklúbbi Reykjavikur, sá meistaraflokkskylfingur í karlaflokkl sem hitti flestar brautir i upphafs- höggi eða í 68% tilvika, og Þórdís Geirsdóttir úr Keili var hæst í kvenna- flokki með 75% árangur, Með fæst pútt að jafnaði var KeUismaðurimi Sveinn Sigurbergsson með 30 pútt að jafnaöi. Loks var Siguijón Arnars- son, Golfklúbbi Reykjavikur, sá sem oftast hitti flatir í þeim höggafiölda að þurfa tvö pútt tU að ná pari. Danskir fjölmiðlar: Ánægðir með sína menn í Reykjavík Danskir íþróttafréttamenn, sem fylgdust með Alþjóða Reykjavíkurmótinu í handknattleik, fara fógrum orðum um mótið og segja að íslendingar séu vel í stakk búnir að halda heimsmeistaramót- ið í maí næsta vor. í Ekstra Bladet segir blaða- maðurinn að stemningin á landsleik íslands og Danmerkur í Kópavogi hafi verið sérlega skemmtUeg og sér minnisstæð. Hann segir húsið mjög gott í aUa staði. Ekstra Bladet segir að fyrri hálfleikur Dana gegn íslendingum hafi verið besti hálfleikur danska liðsins í langan tíma. í síðari hálfleik hafi liðið gert afdrifarík mistök og ekki hafi held- ur bætt úr skák að norsku dómararnir dæmdu danska liðinu aUt í mót. Danskir fiölmiðlar eru fulUr bjartsýni fyrir heimsmeistaramótið og segja engan vafa á því að þjálfari liðsins, Svíinn Schefvert, sé á góðri leik með Uðið. Nógur tími sé til stefnu og spenn- andi verði að fylgjast með Uðinu fram að heims- meistaramótinu. í bikarleikinn „Raunhæft að Island stef m a þriðja sætið 66 Gylfi Kristjártsson, DV, Akureyri: „Ég á ekki von á því að okkar menn verði heimsmeistarar, tU þess eru lið Svíþjóðar og Rússlands allt of sterk og reyndar í allt öðrum gæðaflokki en önnur landsUð í heiminum i dag. Hins vegar finnst mér raunhæft að ísland leiki um 3. sætið í mótmu i vor, og það er markmið sem stefna á að,“ segir AUreð Gíslason, handboltamaöur úr KA og fyrrverandi landsliðs- maður, um möguleika íslands i HM-keppninni hér á landi í vor. Alfreð segir að ýmislegt hafi verið jákvætt við leik okkar manna í al- þjóðamótinu í síðustu viku. „Mér fannst t.d. frammistaða Dags í hlut- verki leikstjórnanda ágæt, hann hefur ekki spilað mikiö með lands- liöinu en stóð sig ágætlega. Þá er ég sérstaklega ánægður með frammistöðu Patreks. Hann hefði reyndar átt að fá tækifæri fyrr í mótinu en hann stóð sig mjög vel og leikur t.d. mun betri vörn en áöur. Hægra hornið var ekki gott, Bjarki náöi sér ekki á strik en Konráð kom mér á óvart í vinstra horninu og stóð sig vel. Þá Bergsveinn mjög vel i þessum leikj um. Það sem er að í þessu liði er menn vantar meiri samæfingu því þarna eru margir nýir raenn koma inn og það vantar t.d. betri tæmingu í sóknarleikinn. Þá þurf- um við aö nýta betur færin gefast, þau voru t.d. mjög mörg leiknum gegn Svíum en þeir létu markmanninn verja aUt of mikið frá sér. Varnarleikur liðsins hefði að mínu mati mátt vera betri, vörnin var þó góð á köflum. Við verðum að athuga að íslenska Uðið er ungt liö sem er að mótast. Þegar Uðið kemur út í keppni eins og heimsmeistarakeppnina í vor þá spilar ýmislegt inn í, svo sem hvort strákarnir standast það álag og þá pressu sem verður á þeím, hvort þeir hafa einhverja hepþni með sér, en að öllu samanlögðu þá tel ég að 3. sætið í vor eigi að vera raunhæfur möguleiki sem menn geta stefnt aö,“ segir Alfreð Gisla- son. Markalaust á City Ground Nottingham Forest og Newc- astle gerðu markalaust jafntefli á City Ground í Nottingham í ensku úrvalsdeUdinni í gær- kvöldi. Staöa efstu liða: Newcastle.14 10 3 1 31-13 33 Blackburn 14 9 3 2 28-12 30 Manch. Utd ...13 9 1 3 23-10 28 Nott.Forest...l4 8 4 2 25-14 28 Liverpool.13 8 2 3 29-13 26 Steina margt til lista lagt Þorsteinn Gunnarsson, DV, Eyjum: Þorsteini Hallgrímssyni, fyrr- verandi íslandsmeistara í golfi, frá Vestmannaeyjum er ýmislegt til Usta lagt. Hann gerði sér lítið fyrir á stigamóti í snóker um síð- ustu helgi og vann fyrrverandi heimsmeistara unglinga, Kristj- án Helgason, í úrslitaleik, 3-2. „Ég hef leikiö nokkuð mikið snóker í gegnum tíðina með Eð- varði Matthíassyni sem núna er að reyna fyrir sér í atvinnu- mennsku. Sigurinn kom mér skemmtilega á óvart,“ sagði Þor- steinn Halgrímsson. Þorsteinn hefur átt í þrálátum bakmeiðsl- um en segir niðurstöðu að vænta úr rannsóknum. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Valdimar Grímsson stefnir ótrauður á að leika með KA í bikarleiknum gegn Vík- ingi sem verður á Akureyri í lok mánaðar- ins. Fram að þeim tíma leikur KA tvo leiki í íslandsmótinu, gegn ÍH á útivelU og gegn FH á Akureyri og Valdimar missir af þess- um leikjum. Valdimar fór í aðgerð á hné í síðustu viku, en meiðsU hafa háð honum í aUan vetur þótt hann hafi jafnan spUað í leikj- um KA. Um er m.a. að ræða Uðþófa- meiðsU og sennilega teflir Valdimar á tæp- asta vað með því að ætla sér í bikarleikinn gegn Víkingi. í leik KA og Víkings í 1. umferð íslands- mótsins skildu liðin jöfn í miklum hörku- leik á Akureyri. Það er því víst að bikar- leikurinn verður hörkuviðureign og ekki nokkur möguleiki að sjá fyrir hver niður- staða þeirrar rimmu getur orðiö. HM fatlaðra í sundi: Heimsmet hjá Sigrúnu Sigrún Huld Hrafnsdóttir í flokki þroskaheftra sigraði í 50 m bringusundi kvenna á HM fatlaðra á Möltu í gær. Sigrún varð í fyrsta sæti á tímanum 41,84 sek. sem er nýtt heimsmet. Bára B. ErUngsdóttir keppti í sama sundi og varð í fjórða sæti. Kristín Rós Hákonardóttir vann til silfurverðlauna í 100 m bringusundi þegar kom kom í mark á nýju íslandsmeti, 1:42,40 mínútum. Hilmar Jónsson komst í úrslit í 50 metra bringsundi í flokki þroskaheftra og varð í 8. sæti á tímanum 38,71 sekúndum sem er nýtt íslandsmet. Birkir R. Gunnarsson varð í fimmta sæti í flokkum B-1 og B-2 í 100 m flug- sundi á 1:16,13 mínútum. Þá vann Pálmar Gunnarsson silfurverðlaunin í 100 m skriðsundi í flokki S-3 í fyrradag en hann synti á 2:08,71 mínútum sem er nýtt íslandsmet. Þessir kappar leggja upp i (erð tii Suður-Afríku á morgun og munu þeir taka þátt í heimsmeistarakeppni áhugamanna í snóker sem fer fram í Jó- hannesarborg 12.-26. nóvember. Til vinstri er Kristján B. Helgason, heims- meistari unglinga í fyrra, og til hægri er Jóhannes R. Jóhannesson. DV-mynd Hson Andri handsalar samninginn við Fjölni í gærkvöld. Á myndinni frá vinstri eru Kári Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Fjölnis, Andri Marteinsson og Haraldur Haraldsson í meistaraflokksráði Fjölnis. DV-mynd ÞÖK Valdimar ætlar Andriráðinn þjáKari Fjölnis Andri Marteinsson var í gærkvöldi ráðinn þjálfari 3. deildar liðs Fjölnis í knattspyrnu og skrifaði hann undir tveggja ára samning viö félagið. Sam- hliða þjálfuninni mun hann einnig spila með liðinu sem hafnaði í þriðja sæti á sínu fyrsta ári í 3. deild á síð- asta keppnistímabili undir stjórn Magnúsar Þorvaldssonar. Andri, sem er 29 ára gamall, hefur leikið með FH-ingum við góðan orðs- tír undanfarin 5 ár en á alls að baki 183 leiki í 1. deild. Eftir íslandsmótiö í fyrra gekk hann til liðs við norska 1. deildar liðið Lyn en líkaði ekki vistin og kom aftur til FH snemma sumars. Andri hefur leikið 20 leiki með A-landsliði íslands, þá síðustu gegn Sádi-Aröbum og Bandaríkja- mönnum í apríl í vor. „Metnaður minn er í rauninni far- inn að stefna á önnur mið. Ég hef stefnt að því að fara út í þjálfun síð- ustu árin og hef reynt að mennta mig sem slíkan. Þetta er mjög spenn- andi verkefni og ég sé þarna frábært tækifæri til að sanna mig sem þjálf- ari í góðri umgjörð. Samningur minn við Fjölni er uppsegjanlegur af beggja hálfu eftir eitt ár þannig að ég hef alltaf færi á að snúa til baka ef ég finn að þetta er eitthvað sem ég er ekki tilbúinn til að gera strax," sagði Andri við DV í gærkvöldi. „Þetta er stór stund fyrir okkur Fjölnismenn. Við erum mjög ánægð- ir með hafa náð samningum við Andra og væntum góðs af verkum hans. Fjölnir er ungt félag með mik- inn metnað og við teljum mikla lyfti- stöng fyrir félagið að fá Andra til liðs við okkur,“ sagði Kári Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Fjöln- is, við DV í gærkvöldi. Fyrsti sigur SA Spurs - Moses Malone setti nýtt met í NB A-deildinni í nótt Varamenn Chicago Bulls áttu mjög góðan leik í nótt er Chicago sigraði 76ers örugglega í NBA- deildinni í körfuknattleik. Það var Króatinn Toni Kukoc sem fór fremstur í flokki og hefur aldrei á ferlinum skorað fleiri stig í leik: „Ég fann mig mjög vel í þess- um leik og það gaf mér aukið sjálfs- traust að fá að taka þátt í þessum leik. Við lékum mjög góða vörn í fjórða leikhluta og það lagði grunn- inn að sigrinum," sagði Kukoc eftir leikinn. Þess má geta að varamenn Chicago skoruðu alls 62 stig í leikn- um gegn 13 stigum varamanna 76ers. Atlanta gaf eftir á enda- sprettinum gegn Utah Jazz en að- eins munaði einu stigi á liðunum þegar rúmar 3 mínútur voru til leiksloka. Atlanta hefur ekki enn unnið leik á tímabilinu. Sömu sögu er að segja af New Jersey Nets sem tapaði fyrir Spurs í nótt en Spurs vann þar slnn fyrsta sigur í vetur en örugglega ekki þann síðasta. Gamli lurkurinn Moses Malone, nú varamiðherji Spurs, skoraði úr vítaskoti númer 9000 á ferlinum og er Malone fyrsti leikmaöur NBA-deildarinnar sem slikt gerir. • Þeir Charles Barkley og Danny Ainge léku ekki með Phoenix Suns gegn Miami, aðfaranótt mánudags- ins. Kevin Johnson fór á kostum þrátt fyrir að leika meiddur á fæti: „Fyrst Barkley og Ainge léku ekki varð ég að vera með. Við sigruðum en vitum þó að margt má betur fara í leik okkar. Vörnin er til dæm- is hræðilega léleg hjá okkur,“ sagði Johnson eftir sigurinn. Úrslit í NBA-deildinni í nótt: Chicago-Philadelpia 76ers.. 98- 83 Kukoc 28, Pippen 22/10 - Malone 25, Weatherspoon 20. San Antonio-NJ Nets......105- 96 Elliott 23, Robinson 18/19, Person 18 - Edwards 22, Anderson 18. Utah Jazz-Atlata Hawks....104- 86 Malone 28/9, Bond 14 - Augman 24, Lang 17, Norman 15. Aðfaranótt mánudags Phoenix Suns-Miami Heat... 119-107 Johnson 29, Person 23, Majerle 20/15 - Rice 23, Smith 22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.