Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1994, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1994
Fólk í fréttum_______________
Ólafur Öm Haraidsson
Ólafur Örn Haraldsson fram-
kvæmdastjóri, Frostaskjóli 79,
hreppti annað sætið í prófkjöri
framsóknarmanna í Reykjavik.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík 29.9.
1947 en ólst upp á Laugarvatni.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann á Laugarvatni, viö Idrætshoj-
skolen í Sonderborg í Danmörku
1963-64, var við þýskunám viö
Goethe Institut 1966, lauk stúdents-
prófi frá ML1968, B.Sc.-prófi í landa-
fræði við HÍ1972 og MA-prófi í
byggða- og skipulagsfræði frá Uni-
versity of Sussex í Englandi 1973.
Ólafur var stundakennari við
Hagaskóla 1970-72 og við MR
1971-72, ráðgjafi hjá Hagvangi hf.
1973-80, framkvæmdastjóri þar
1980-85, framkvæmdastjóri innan-
landsdeildar Útsýnar 1986-87, fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda Gall-
ups á íslandi 1987-93 og rekur síðan
eigin ráðgjafarþjónustu.
Ólafur var framkvæmdastjóri
fatasöfnunar RKÍ og Hjálparstofn-
unar kirkjunnar, framkvæmda-
stjóri umdæmisnefndar um samein-
ingu sveitarfélaga á Suðurlandi, var
framkvæmdastjóri landsmóts UMFÍ
á Laugarvatni sl. sumar og vinnur
nú að sameiningu Stéttarsambands
bænda og Búnaðarfélags íslands.
Hann samdi gamanþættina Jónas
og Qölskylda fyrir Umferðarráð og
áramótaskaup fyrir ríkissjónvarpið.
Nú er að koma út eftir hann bókin
Hvíti risinn sem fjallar um skíðaferð
yfir Grænlandsjökul í fyrra þar sem
hann var leiðangursstjóri.
Ólafur var formaður nemenda-
samtaka ML, sat í stjóm Landfræði-
félags íslands í eitt ár, sat í stjórn
og var formaður Félags íslenskra
rekstrarráðgjafa 1981-85, sat í stjóm
Rotaryklúbbsins Austurbær 1986-87
og hefur setið í stjóm Reykjavíkur-
deildarRKÍ.
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Sigrún Jakobs-
dóttir Richter, f. 29.6.1948, ritari,
dóttir Jakobs Helga Richter skipa-
smiðs og Gythu J.F. Richter hús-
móður.
Börn Ólafs og Sigrúnar eru Har-
aldur Örn, f. 8.11.1971, lögfræðinemi
við HÍ; Örvar Þór, f. 13.1.1975, nemi
við VÍ; Haukur Steinn, f. 19.1.1983,
nemi.
Systkini Ólafs: Jóhanna Vilborg,
f. 9.7.1946, sálfræðingur í Reykjavík;
Matthías Björn, f. 24.4.1949, d. 9.3.
1981, háskólanemi; Þrúður Guðrún,
f. 14.12.1950, húsmóðir og háskóla-
nemi.
Foreldrar Ólafs eru dr. phil. Har-
aldur Matthíasson, f. 16.3.1908,
fyrrv. menntaskólakennari á Laug-
arvatni, og k.h., Kristín Sigríður
Ólafsdóttir, f. 16.4.1912, kennari og
húsmóðir.
Ætt
Meðal systkina Haralds má nefna
Steinunni, móður Gests Steinþórs-
sonar skattstjóra. Haraldur er son:
ur Matthíasar, b. á Fossi í Hrana-
mannahreppi, Jónssonar, b. á
Skarði, Jónssonar, b. á Skarði,
Gíslasonar, b. á Hæh, bróður Gests
á Hæh, langafa Steinþórs Gestsson-
ar, fyrrv. alþm. Móðir Matthíasar
var Steinunn, systir Rósu,
langömmu AlfreðsFlóka. Steinunn
var dóttir Matthíasar, b. á Miðfehi,
Gíslasonar, af Kópsvatnsætt.
Móðir Haralds var Jóhanna
Bjarnadóttir, b. í Glóru, Jónssonar,
b. í Háholti, Ámasonar, b. í Há-
holti, Eiríkssonar. Móðir Árna var
Sigríður Guðmundsdóttir, systir
Brynjólfs, langafa Þuríðar, móður
Þorsteins Erhngssonar skálds. Móð-
ir Jóhönnu var Guðlaug Loftsdóttir,
b. í Austurhlíð, bróður Ingunnar,
ömmu Guðrúnar á Skarði,
langömmu Guðlaugs Tryggva
hestamanns. Loftur var sonur Ei-
ríks, ættfóður Reykjaættar, Vigfús-
sonar.
Bræður Kristínar: Ólafur, ís-
lenskukennari í MR, og Haraldur,
Sigurður og Bragi, forstjórar Fálk-
ans hf. Kristín er dóttir Ólafs, stofn-
anda Fálkans, Magnússonar, b. á
Ólafur Örn Haraldsson.
Gih í Örlygshöfn, Sigurðssonar.
Móðir Ólafs var Þórdís Jónsdóttir,
smiðs í Miðhlíð, Bjamasonar og
Kristínar Jónsdóttur, systur Gísla,
langafa Árna Friðrikssonar fiski-
fræðings. Móðir Kristínar var Þrúð-
ur, dóttir Jóns Borgfjörð, snikkara
í Ingólfsbrekku í Reykjavík, Gísla-
sonar og Oddrúnar Samúelsdóttir.
Afmæli
Gísli Hallgrímsson
Gísli Hahgrímsson, Heiðarvegi 2,
Selfossi, er áttræður í dag.
Starfsferill
Gísh fæddist á Dalvík en fór eins
og hálfs árs í fóstur að Hofsá í Svarf-
aðardal til Bergs Jónssonar bónda
þar og k.h., Óskar Rögnvaldsdóttur
húsfreyju. Þar var Gísh alinn upp
til sautján ára aldurs en fór þá til
foreldra sinna á Dalvík og átti þar
heimihtill941.
Gísh stundaði sjómennsku og al-
menn verkamannastörf. Hann var
tvær vertíðir í Sandgerði, 1942 og
1943, en réðst vorið 1944 til Kaupfé-
lags Ámesinga og var þar mjólkur-
bílstjóri til 1951. Gísh starfaði í tvö
ár við írafossvirkjun, einkum við
akstur, var síðan við keyrslu á
Keflavíkurflugvelh frá 1953 í eitt og
hálft ár er hann fór aftur til sjós.
Hann fluttist norður á Siglufjörð
1957 og stundaði þar sjómennsku en
varð síðan starfsmaður Síldarverk-
smiðju ríkisins th 1971. Þá flutti
Gísli til Vestmannaeyja og starfaði
þar í fiskverkun fram að gosi, í árs-
byijun 1973. Hann flutti á Seltjam-
arnesið er gosið hófst í Eyjum og
starfaði hjá ísbiminum stuttan tíma
en flutti á Selfoss í árslok 1973 og
hefur búið þar síðan. Gísli hefur
starfað hjá Kaupfélagi Ámesinga
eftir að hann kom á Selfoss, lengst
afípakkhúsi.
Fjölskylda
Kona Gísla var Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 16.7.1918, húsmóðir,
enhúnerlátin.
Gísh og Sigríður eignuðust sex
börn. Þau eru: Rögnvaldur, f. 1943,
trésmiður í Reykjavík, kvæntur Sig-
ríði Andersen húsmóður, þau eiga
saman tvö böm, auk þess sem hann
átti fyrir tvö böm og hún önnur
tvö; Svanhildur, f. 1949, húsmóðir í
Vestmannaeyjum, gift Róbert Sigur-
mundssyni trésmið, þau eiga fimm
börn; Hansína, f. 1951, húsmóðir og
lengi verslunarstjóri í Karnabæ,
búsett í Garðabæ, hún á eina dóttur
og er sambýlismaður hennar Ólafur
Egilsson lögregluþjónn; Sigurður, f.
'1953, drukknaði á Siglufirði á barns-
aldri, og Sigríður, f. 1957, húsmóðir
í Færeyjum, gift Marteini Hósini,
sjómanni í Klakksvík, þau eiga þijú
börn.
Gísli átti sjö systkin: Stefán, f. 1911,
lengst af sjómaður í Hafnarfirði, átti
Dagbjörtu Pálsdóttur sem erlátin,
þau eignuðust einn son sem lést af
slysforum á barnsaldri; Jónas, f.
1912, verkamaður á Dalvík; Guðrún,
f. 1918, verkakona á Dalvík, hún á
tvo syni; Kristinn, f. 1922, lengst af
sjómaður og síðar verkamaður á
Eskifirði, kvæntur Jóhönnu Guðna-
dóttur, þau eiga fimm börn; Guð-
laug, f. 1924, húsmóðir á Svertings-
stöðum í Eyjafirði, gift Haraldi Sig-
urgeirssyni, b. þar, og eiga þau átta
böm; Rósa, f. 1926, húsmóðir í
Bandaríkjunum, gift Michael Haag
vélstjóra; Maríanna, f. 1928, d. 1980,
húsmóðir, hún var gift Jóni Krist-
inssyni skólasfjóra og eignuðust þau
fiögurbörn.
Foreldrar Gísla voru Hahgrímur
Gíslason, sjómaður á Dalvík, og
kona hans, Hansína Jónsdóttir.
Gisli Hallgrímsson.
Ætt
Hahgrímur var sonur Gísla, sjó-
manns á Dalvík, Sigurðssonar og
Sólveigar Hallgímsdóttur.
Hansína var dóttir Jóns Hansson-
ar og Önnu Björnsdóttur, b. á
Syðra-Garðshorni í Svarfaðardal.
Gísli tekur á móti gestum á Hótel
Selfossi sunnudaginn 13.11. n.k. kl
15-18.
dClllCi: 99 •56*70
Tilkynning
Eftirtalin sveitarfélög hafa tilkynnt félagsmálaráðuneytinu
þá ákvörðun sína að greiða húsaleigubætur á árinu 1995
skv. ákvæðum laga um húsaleigubætur nr. 100/1994:
Aðaldælahreppur, Arnarneshreppur, Dalvíkurbær, Eyrar-
bakki, Fellahreppur, Hafnarfjörður, Hofshreppur, Garða-
bær, Grindavík, Mosfellsbær, Neskaupstaður, Reyðarfjarð-
arhreppur, Reykholtsdalshreppur, Reykjavík, Sauðárkróks-
kaupstaður, Selfoss, Seltjarnarnes, Stokkseyri, Súðavíkur-
hreppur, Sveinsstaðahreppur, Tálknafjarðarhreppur, Torfa-
lækjarhreppur, Vopnafjörður, Þingeyrarhreppur, Öxarfjarð-
arhreppur.
Félagsmálaráðuneytið, 7. nóvember 1994
95 ára 60 ára
Engilbert Runólfsson, Borgarbraut 65, Borgamesi. Sigríður Jónsdóttir, Hlíöarvegi 54, Njarðvik. Aðalheiður Óskarsdóttir.
or Hólagötu41,Vestmannaeyjum. 0ða,a Ólafur Sieurðsson.
Sigvaldi Gunnlaugsson, KirkjuvegilO, Dalvík. Grýtubakka 6, Reykjavík. Guðmundur Þorsteinsson, Hialtabakka 2, Reykjavík.
80 ára Guðbj artur Þorsteinsson, Asparfelh 4, Reykjavík.
Bertha María Guðmundsdóttir, Fáfnisnesi 14, Reykjavflt. Egilsgötu 24, Rey kjavík.
2 ‘tO o h- 50 ára
Jónas Þórólfsson, Syöri-Leikskálaá, Ljósavatns- hreppi. Soffía Bjarnadóttir, Hólmgarði 15, Reykjavík. Sóiey Friðfínnsdóttir, Njálsgötu 69, Reykjavík. Hermann Hcrmannsson, Krosshóh, Hraungerðishreppi. Ágúst Mars Valgeirsson, Torfufehi 35, Reykjavík. Snorri J. Evertsson, VíöihhðSl. Sauðárkróki.
Jóhanna Bogadóttir,
Hjarðarhaga 48, Reykjavík.
Jens Gíslason,
Fannafold 170, Reykjavik.
Pétur Jónsson,
Eiríksgötu 25, Reykjavík.
Margrét B. Birgisdóttir,
Úthlíö 11, Reykjavík.
Hörður Kóri J óhannesson,
Vesturgötu 24, Akranosi.
Þórdís Baldursdóttir,
Brekkubyggð 30, Blönduósi.
Sigriður Björk Þórðardóttir,
Miðvangi 147, Hafnarfirði.
Hallhjörn Þráinn Ágústsson,
Jörfabakka26, Reykjavík.
Elín Guðrún Tómasdóttir,
Syðri-Ingveldarstöðum, Skarðs-
hreppi.
Guðný Guðmundsdóttir,
Flúðaseh 67, Reykjavík.
Magnea Guðný Róber tsdóttir,
Marargötu 7, Grindavík.